Morgunblaðið - 22.03.1997, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 22.03.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 15 VIÐSKIPTI Afkoma Sláturfélags Suðurlands var í samræmi við áætlanir félagsins Hagnaðurinn 75 milljónir króna ífyrra Úr samstæðureikningi 1996 fíekstrarreikningur Míiijónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 2.325,0 2.220,7 +4,7% Rekstrargjöld 2.190,1 2.083,1 +5,1% Rekstrarhagn. f. fjármagnsliði og skatta 134,9 137,6 -2,0% Fjármagnsgjöld (54,7) (63,6) -14,0% Reiknaðir skattar (4,4) (2,9) +51,7 Hagnaður ársins 75,1 71,1 +5,6% Efnahagsreikningur Miiuónir króna 31/12 '96 31/12*95 Breyting I Eianir: I Veltufjármunír 717,1 769,9 -6,9% Fastafjármunir 1.213,6 1.038,4 +16,9% Eignir samtals 1.930,7 1.808,3 +6,8% I Skuldír oa e/aið fé:\ Skammtímaskuldir 381,6 705,5 -45,9% Langtfmaskutdir 1.006,0 734,6 +36,9% Eigið fá 543,1 368,2 +47,5% Skuldir og eigið fé samtals 1.930,7 1.808,3 +6,8% Kennitölur 1996 1995 Eiginfjárhlutfall 28,1% 20,4% Veltufjárhlutfall 1,9 1,1 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 183,4 1 133,2 +37,7% HAGNAÐUR af reglulegri starf- semi Sláturfélags Suðurlands og dótturfélags var 80,2 milljónir króna á árinu 1996, en nam 74 milljónum árið áður. Að frádregn- um sköttum og tapi hlutdeildarfé- lags var hagnaður 75,1 milljón en var 71,1 milljón árið áður. Afkoma félagsins á árinu var í samræmi við áætlun. Rekstrartekjur Sláturfélags Suðurlands voru 2.325 milljónir á árinu 1996, en 2.220,7 milljónir árið áður. Velta samstæðunnar jókst um 4,7% frá fyrra ári og skýrist veltuaukningin af auknum umsvifum kjötiðnaðar milli ára. í frétt frá Sláturfélagi Suður- lands kemur fram að rekstrargjöld námu 2.190,1 milljónum saman- borið við 2.083,1 milljónir árið áður sem er 5,1% aukning milli ára. Rekstrarhagnaður án fjár- munatekna og fjármagnsgjalda var 134,9 milljónir en var 137,6 milljónir árið áður. Eigið fé var 543,1 milljónir í árslok 1996 og hafði hækkað um 47,5% eða 174,8 milljónir frá árinu á undan. Eiginfjárhlutfall í lok ársins 1996 var 28,1% en var 20,4% á sama tíma árið áður. Veltufjárhlutfall var 1,9 í árslok FORMULA ONE, hið kunna alþjóð- lega kappakstursfyrirtæki, íhugar að koma hlutabréfum í sölu og slík ákvörðun mundi gera brezkan stofnanda fyrirtækisins, Bernie Ecclestone, að milljarðamæringi samkvæmt heimildum í fjármála- heiminum. Heimildarmennimir staðfestu fréttir brezkra blaða um að bréfin kynnu að vera boðin til sölu í Lond- on og New York í vor og að fyrir þau kynnu að fást allt að fjórum milljörðum dollara. Talsmaður Salomon Brothers, bandarísks fjárfestingarbanka sem undirbýr viðskiptin, sagði að endan- leg ákvörðun hefði ekki verið tekin og vangaveltur væru ótímabærar. Með sölu bréfanna yrði reynt að virkja mikinn áhuga á íþróttafyrir- 1996, en 1,1 árið áður. Arðsemi eigin fjár var um 16% á árinu 1996 en um 24% árið 1995. Nán- ari upplýsingar um afkomu og efnahag félagsins er að finna á meðfylgjandi töflu. Til kaupa og endurbóta á fast- eignum var varið 160,7 milljónum, en keypt var húsnæði að Fosshálsi 1, Reykjavík, þar sem vörudreifing og skrifstofa hefur verið frá því starfsemin var flutt frá Skúlagötu árið 1993, jafnframt því sem endurbætur voru gerða á slátur- húsinu á Selfossi. Keyptar vom vélar og tæki fyrir 85,2 milljónir og bifreiðar fyrir 28,8 milljónir. Eignir voru seldar fyrir 23,8 millj- ónir Veltufé frá rekstri var 183,4 milljónir árið 1996, samanborið við 133,2 milljónir árið 1995 sem er 37,7% aukning milli ára. I árslok 1996 störfuðu 283 starfsmenn hjá félaginu og er það fækkun frá árinu áður, er þeir voru 286. Þegar starfsmenn voru flestir hjá félaginu í sláturtíð voru 498 á launaskrá. Mikil hækkun hlutabréfa Hlutabréf Sláturfélags Suður- lands voru skráð á Verðbréfaþingi tækjum í Bretlandi. Þar er New- eastle United eitt nokkurra frægra knattspyrnufélaga, sem hyggjast fara að dæmi Manchester United og Tottenham Hotspur og koma hlutabréfum í umferð. „Freistandi tilboð“ Forstöðumaður fjölmiðla- og fjarskiptadeildar Salomons sagði í Sunday Telegraph að hann gæti ekki hugsað sér eins freistandi Islands í kjölfar á útboði á nýju hlutafé að nafnverði 65 milljónir Hlutabréfin voru seld á genginu 1,5 en forkaupsréttur var á tíma- bilinu 2. maí - 16. maí 1996 og sala á almennum markaði hófst 20. maí. Gengi hlutabréfa Sláturfélags- ins var 1,7 við skráningu hjá Verð- bréfaþingi íslands 22. maí en 2,4 í árslok 1996 sem er um 41% iþróttatilboð vegna „vinsælda Formula One í heiminum, frægðar vörumerkisins og sjónvarpsmögu- leika.“ Ráðgjafar fyrirtækisins hafa unnið að því að koma hlutabréfun- um í sölu í marga mánuði og reynt að koma reiðu á flókin sambönd Ecclestones, lið kappakstursmanna og eigenda kappakstursbrauta. Ecclestone er 65 ára gamall fyrr- verandi bílasali og hefur gert Form- ula One Promotions & Administrat- hækkun. Fyrstu mánuði ársins 1997 hefur gengi hlutabréfa í Slát- urfélagi Suðurlands hækkað enn frekar og var skráð 3,2 þann 13. mars sl. Skráð viðskipti með hluta- bréf Sláturfélagsins voru 39,3 milljónir á árinu 1996. Aðalfundur Sláturfélags Suður- lands verður haldinn föstudaginn 4. apríl nk. ion að alþjóðlegu fyrirtæki á síðustu 25 árum. Ecclestone á fyrirtækið enn að mestu leyti sjálfur og sala hluta- bréfanna mundi gera hann að ein- um auðugasta manni Bretlands. Tólf lið keppa 17 sinnum á ári á vegum félagsins og 330 milljónir manna í 130 löndum fylgast með í sjónvarpi. Réttur til sýninga í Bret- landi frá Formula One mæstu fimm ár var nýlega seldur fyrir 70 millj- ónir punda. Með tilkomu stafræns sjónvarps Sjónvarpsrásum mun fjölga m og þar með er búizt við að áhorfendum Formula One í heiminum muni fjölga ennþá meir. Mikill kostnaður vegna stafrænnar tækni mun hafa átt þátt í hugmyndum um að koma hlutabréfum í sölu. Viðræður um stórt hnattrænt fjarskipta- bandalag London. Reuter. BREZKA fjarskiptafyrirtækið Cable & Wireless á í viðræðum við France Telecom um að það verði brezkur meðeigandi í hnattrænu fjarskiptabanda- lagi, Global One, ásamt Sprint Corp í Bandaríkjunum og De- utsche Telekom í Þýzkalandi að sögn franska fyrirtækisins. Jafnframt hefur France Telecom borið til baka frétt í Wall Street Joumal um að franska fyrirtækið eigi í við- ræðum við C&W um stuðning við hugsanlegt 15 milljarða dollara tilboð í 80% hlutabréfa í Sprint. C&W, sem er annað stærsta íjarskiptafyrirtæki Bretlands, vildi ekkert segja um viðræð- urnar við Global One - sem getur orðið risastórt fjarskipta- fyrirtæki og náð til Bandaríkj- anna og mikilvægra staða í Evrópu og Asíu. Sérfræðingar hafa lengi tal- ið C&W eðlilegan samstarfsað- ila Deutsche Telekom og France Telecom, en drógu í efa að C&W íhugaði kaup á 80% hiutabréfa í Sprint, sem eru ekki enn í eigu Frakka og Þjóð- veija. Prins í Saudi- Arabíu kaup- ir 5% í TWA Dubai. Reuter. AL-WALEED bin Talal, hinn auðugi prins í Saudi-Arabíu, hefur keypt 5% hlutabréfa í bandaríska flugfélaginu Trans World Airlines (TWA). í yfirlýsingu frá skrifstofu prinsins í Riyadh segir að hann hafi ekki áður látið að sér kveða á sviði flugiðnaðar, en hann á hluta í bandaríska bankarisanum Citicorp og Euro Disney auk alþjóðlegra hótela á borð við Georges V í París og Plaza Hotel í New York. Sagt er að um sé að ræða nýja stefnu í ijárfestingarmál- um prinsins sem er frændi Fahds Saudi-Arabíukonungs. London. Reuter. Formula One íhugar sölu hluta Viðskiptastofa íslandsbanka lægst í útboði 1.500 milljónir í h úsnæðisbréfum HÚ SNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur ákveðið að taka tilboði við- skiptastofu íslandsbanka í sölu á húsnæðisbréfum á öðrum fjórðungi þessa árs, en efnt var til útboðsins meðal allra verðbréfafyrirtækjanna. Um er að ræða 1.500 milljónir króna, sem boðnar verða út í þess- um öðrum áfanga, en samanlagt þarf Húsnæðisstofnun að afla sér 4,5 milljarða króna lánsijár á þessu ári með sölu húsnæðisbréfa vegna ijármögnunar félagslega íbúðakerf- isins. Um er að ræða tvo flokka hús- næðisbréfa, annan til 25 ára og hinn til 42 ára og verður selt jafn mikið úr hvorum flokki eða 750 milljónir króna. Styttri flokkurinn, sem er með meðallánstíma í kring- um tíu ár, verður boðinn til sölu miðað við meðalávöxtunarkröfu verðbréfafyrirtækjanna á húsbréf- um í flokknum 96/2 og lengri flokk- urinn, sem er með meðallánstíma 14-15 ár er boðinn til sölu miðað við sama flokk húsbréfa að frá- dregnum 0,23 prósentustigum eða 23 punktum, eins og það er orðað. Þetta er í sjötta skipti sem Hús- næðisstofnun efnir til útboðs á hús- næðisbréfum meðal verðbréfafyrir- tækjanna og hafa bréfin hingað til ætíð selst upp og ekki komið til kasta kauptryggingarákvæða í samningum stofnunarinnar við verðbréfafyrirtækin. Verðbréfafyr- irtækið Kaupþing var með fyrsta hluta útboðsins í ár og voru þá seld bréf fyrir einn milljarð króna. Félagsfundur Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félagsfund mánudaginn 24. mars n.k. á Hótel Sögu, Súlnasal kl. 20:30. Fundarefni: 1. Nýgerður kjarasamningur kynntur. 2. Allsherjaratkvæðagreiðsla um samninginn verður með eftirfarandi hætti: Á félagsfundinum 24. mars kl. 21:00-23:00 Þriðjudag 25. mars kl. 08:00-22:00 í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 á 1. hæð Miðvikudag 26. mars kl. 08:00-18:00 í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7 á 1. hæð Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.