Morgunblaðið - 22.03.1997, Síða 45

Morgunblaðið - 22.03.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997 45 VALTYR SÆMUNDSSON + Valtýr Sæ- mundsson var fæddur á Stóru- Mörk, V-Eyjafjalla- hreppi, hinn 16. desember 1907. Hann lést á lyúkr- unarheimilinu Sól- vangi 12. mars síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Víðistaðakirkju 20. mars. Lágt eru vinirnir lagðir, leikbræður raínir. Hljótt er á flötinni fógru. Þar forðum við hljópum. (Guðraundur Guðmundsson) Hinn 20. mars sl. var bemskuleik- félagi minn lagður til hinstu hvíldar í Hafnarfírði. Hann hefur lokið löng- um og farsælum ævidegi. Við ól- umst upp í sama túni í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Þar var þríbýli og bæimir kallaðir Vesturbær, Há- bær og Austurbær. Valtýr átti heima í Vesturbæ en ég í Hábænum, mið- bænum. Samgangur var mikill milli bæjanna enda örstutt leið að ganga. Ejölmennt var á Merkurbæjunum á fyrri hluta þessarar aldar og fólk á öllum aldri. Það skorti því aldrei leik- félaga en fremur frítíma, því að börn fóm ung að hjálpa til við bú- störfín. Þau fengu störf sem hæfðu aldri og getu. Valtýr var elstur 13 systkina, eitt lést ungbam. Krakkar og unglingar notuðu hveija frístund sem gafst til leikja og samvem. Á veturna var jafnvel gripin stundin milli gjafa og brynningar í einhverju fjósinu að kvöldi til. Ég man að eitt sinn gátum við Valli smeygt okkur inn á þannig samkomu hjá stóru krökkunum í Vesturbæjarfjósinu. Þar var verið að ræða um hvað gera ætti. Við fundum að lítið væri varið í að fá svona smápeð í úrvalslið. Við þorð- um ekkert að segja. Loks var afráð- ið að syngja og að við mættum vera með ef við kynnum þá eitt- hvað. Þarna voru sungin ættjarðar- ljóð af hjartans lyst og kryddað með Gamla Nóa og Fyrr var oft í koti kátt. Það kunnum við, en mest var gaman að fá að vera með í þessum glaða hópi sem lék sér að því að læra og syngja ljóð góðskáidanna. Þá var það ekki álitið kval- ræði að læra ijóð. Svona æfíngar hafa verið góður undirbún- ingur fyrir að ganga í ungmennafélagið sem flestir unglingar gerðu. Þar var mikið sungið á öllum fundum. Þangað hefur leið Valla legið, því að löngu síðar frétti ég að á ungmennafé- lagsskemmtun hefði hann leikið Jeppa á Fjalli svo vel að lengi var í minnum haft af þeim sem sáu. Þá var ég farin að heiman. Ekran var á milli bæja okkar. Þessi fagurskapaði hóll var með rennislétta flöt á kollinum. Þar var oft farið í slagbolta á vorbjörtum kvöldum. Valli átti erfíðara að hlaupa eins hratt og við hin, en okkur fannst það ekkert saka því að betri leikfélaga var ekki hægt að hugsa sér, alltaf glaður, prúður og hrekkti aldrei né stríddi. Ámi bróðir Valla og Ásta systir mín voru líka góðir félagar okkar, nokkm yngri. Við íjögur unnum mikið saman i smalamennsku og við Ámi gengum saman til kinda, sem kallað var, nokkur vor. Það varð að gæta að ánum um sauðburðinn. Aðalstarfíð þar var að hlaupa uppi lömbin og bregða marki á eyru þeirra svo ekki færi á milli mála hver eigandinn væri. Sum _ lömbin gátu verið ærið spræk. En Ámi fór létt með að fanga þau. Hann var meiri hlaupagarpur en ég. Við lögð- um okkur fram að leysa þetta starf vel af hendi, samstaðan brást aldr- ei, okkur fannst það heillandi og skemmtilegt. Við vomm svo lánsöm að þetta gekk allt með eindæmum vel. Ef til vill fundum við ósjálfrátt að okkur var tiltrúað og við það fengið styrk. Það er bjart yfír þess- um æskuminningum frá leik og starfí okkar Ástu systur minnar og bræðranna Valla og Áma. Aldurs- munur var lítiil og enginn munur gerður á strákum og stelpum í leikj- um og útistörfum. Breytingamar síðan em ævintýralegar. Enginn leikur sér framar á Ekrunni. Hún er horfín. ELIAS ORN KRISTJÁNSSON + Elías Örn Kristjánsson fæddist í Reykjavík hinn 1. ágúst 1966. Hann lést af slys- förum við skyldustörf hinn 5. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 21. mars. ARNIPETUR JÓHANNS- SON + Árni Pétur Jóhannsson fæddist í Reykjavík 27. ág- úst 1960. Hann lést í Landspít- alanum 8. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans eru Jóhann Guðbjörnsson og Emilía Krist- jánsdóttir. Árni átti tvo bræð- ur, Krislján og Guðbjörn. Börn Árna eru Erla Ingi- björg, f. 2.2. 1983, og Haukur, f. 13.7. 1984. Útför Árna fór fram frá Fossvogskapellu 21. febrúar. Nýlega var til grafar borinn fé- lagi okkar Elías Ö. Kristjánsson sem lést við skyldustörf um borð í vs. Ægi sem var við björgunarstörf við Þjórsárósa. Elías hóf ungur störf hjá Land- helgisgæslunni og hafði unnið sig upp í bátsmannsstarf og leysti það vel af hendi. Það er erfítt - ð þurfa að sætta sig við að björgunaraðgerðir þurfí að taka svo stóran toll sem orðið er. Þó er huggun harmi gegn að vita til þess að hann skuli vera kominn til ástvina sinna sem hann saknaði svo mjög. Við þökkum Elíasi fyrir góð kynni og minning um góðan dreng mun lifa. Kristín, megi öll æðri máttarvöld vaka yfír þér og börnum ykkar og veita ykkur styrk. Ahöfnin á varðskipinu Tý. Á milli bæjanna var gagnkvæm hjálpsemi svo sjálfsögð og eðlileg og gekk fyrir öllu ef í nauðir rak, t.d. ef sækja þurfti lækni, ljósmóður eða búpeningur veiktist, o.m.fl. Þegar Guðbjörg móðir Valtýs lagð- ist á sæng bað hún ævinlega móður mína að vera hjá sér þar til ljósmóð- irin kæmi. Samband þeirra grann- kvenna var traust og gott og örlög þeirra merkilega samofín því að banaleguna háðu þær í sömu sjúkrastofu á Sólvangi og kvöddu þar sína jarðvist á sama ári, 1961. Ég sá Valla stundum hjálpa móður sinni í eldhúsverkum. Það var ekki algengt þá að strákar störfuðu í matargerð. Hann vandaði þetta eins og allt sem hann lagði hönd á. Handlagni hans kom vel í ljós þeg- ar hann fór að vinna við smíði Markarfljótsbrúarinnar og var hann síðan eftirsóttur i alls konar smíða- vinnu. En leiðir liggja til allra átta. Ég fór að búa í Hafnarfírði 1945. Nokkrum árum síðar settist Valtýr að á Öldugötu 9, hér í Firðinum, og þá með sinni mikilhæfu og góðu konu, Maríu Guðnadóttur, ættuð líka undan Eyjafjöllunum. Það var yndislegt og gaman að koma til þeirra á Öldugötuna og við það urðu góð kynni enn betri. Þau hjón hafa síðan sýnt mér og ijölskyldu minni einstæða góðvild sem aldrei gleymist. Bjarni, maður minn, virti þau mikils. Þau veittu okkur góðan stuðning í hans veikindum. Þeirra tryggð hefur aldrei brugðist. Það var þeim þægilegt að búa á Öldugötunni af því að árum saman vann Valtýr í Rafha, þar skammt frá. Þau hjón hafa verið einstaklega samhent í löngu og farsælu hjóna- bandi og þeirra var gæfan mesta að eignast dótturina vænu og vel- gefnu, Kristbjörgu Jónínu, og svo hennar fjölskyldu. María hefur orð- ið að beijast við erfíðan augnsjúk- dóm. Það hefur hún gert með frá- bæru æðruleysi og dugnaði og alls staðar komið fram eins og ekkert væri að. Hún skrifar sérstaklega fallega rithönd og kann einnig að skrautrita fagurlega og það hefur hún gert fyrir marga. Þau hjón hafa alltaf staðið hlið við hlið í blíðu og stríðu. María hefur nú með einstakri umhyggju og dugnaði létt manni sínum síðustu baráttuna, verið hjá honum langdvölum á Sólvangi, þar til yfír lauk. Söknuðurinn er sár en samstaða í góðri íjölskyldu gefur þrek og þerrar tár. Ég vil að leiðarlokum þakka af alhug einstaka vinsemd veitta mér og mínum. Að eiga svona trúnaðar- vini er öllu ofar þá á reynir. Við Rúna, hennar fjölskylda, og Helga systir vottum Maríu, Jónínu, Emil og dætrum þeirra okkar ein- lægustu samúðarkveðjur og einnig systkinum Valtýs. Minning um góðan dreng er huggun harmi gegn. Sigurbjörg Guðjónsdóttir. Sérfræðingar í blúmaskreytingum við úll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis. sími 551 9090 Vinur minn Árni Pétur er látinn. Við áttum góðar stundir saman til sjós og lands og við gleymum hon- um ekki og söknum hans allir. Blessuð sé minning hans. Daníel Agnarsson. t Eiginmaður minn, ARNGRÍMUR GÍSLASON, Höfn í Hornafirði, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju mánudaginn 24. mars kl. 13.30. Blóm afþökkuð, en þeim er vilja minnast hans er bent á Hafnarkirkju. Hrafnhildur Gísladóttir. GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON + Guðmundur Þóroddsson fæddist á Krög- gólfsstöðum í Olfusi 23. desember 1927. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 13. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Áskirkju 21. mars. Nýlega var til mold- ar borinn Guðmundur Þóroddsson tollfulltrúi, vinnufélagi minn og prívatvinur til margra ára, og vorum við mikið saman og á sömu vaktinni, skipa- og flugfé- lags lengst af, og sérílagi á Felixer- vaktinni svokölluðu, meðan hún var og hét því nafni. Guðmundur var alhliða greind- arnáungi, ættaður úr Ölfusinu. Hann setti gjarnan saman kvið- linga, ef svo stóð á. Það kom gjarnan fyrir að við fengum okkur saman „einn laufléttan", í vaktar- lokin, til að mýkja skapið. Eg hefi því ljúf- mannlegar minningar um Guðmund á vakt- inni og þess utan einn- 'g-. Ég vil svo með þess- um línum í lokin senda eftirlifandi eiginkonu hans Kristínu, og bömum þeirra hjóna, mínar dýpstu samúðarkveðjur vegna frá- falls Guðmundar frá okkur sem eftir lifum. Páll Hannesson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + SIGRÍÐUR ELÍSDÓTTIR fyrrverandi kennari, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir iaugar- daginn 15. mars. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. mars kl. 13.30. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á að láta líknar- félög njóta þess. Anna Elísdóttir, Gunnlaugur Elísson, Ragnar Elísson, Víglundur Elísson, Þorsteinn Elísson. t Ástkær eiginmaður og faðir, GUÐJÓN HAUKUR HAUKSSON, Holtsbúð 77, Garðabæ, lést á heimili sínu að morgni 21. mars. Álfheiður Emilsdóttir, Haukur Guðjónsson, írís Dögg Guðjónsdóttir. Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs sambýlismanns míns, ÞORVALDAR GUÐMUNDSSONAR prentara, Nóatúni 29. Sérstakar þakkir til Jóns Hrafnkelssonar og hjúkrunar- og læknisþjónustu Karitas. Guðrún Gísladóttir. og systkini hins látna. t Ástkær eiginmaður minn, JÓN EYJÓFLUR GUÐMUNDSSON bóndi, Þorfinnsstöðum, Þverárhreppi, verður jarðsunginn frá Vesturhópshólakirkju þriðjudaginn 25. mars kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Alma Á. Levý.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.