Morgunblaðið - 22.03.1997, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBKÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
LAUGARDAGUR 22. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samtök iðnaðarins
Veiðigjaldi
verði komið
á í áföngum
HAGVAXTARNEFND Samtaka
iðnaðarins leggur til að veiðigjaldi
verði komið á í áföngum með þeim
hætti að útgerðin afskrifi árlega
5% af aflahlutdeild sinni, eins og
hún er á yfirstandandi fiskveiðiári,
og skili henni til hins opinbera.
Nefndin telur veiðigjald vera
bæði hagkvæma og virka leið til
sveiflujöfnunar í hagkerfinu og
hafa þann kost fram yfir almenna
skattlagningu að hún hafi ekki áhrif
á nýtingu framleiðsluþáttanna.
Skýrsla nefndarinnar ásamt tillög-
um var kynnt á Iðnþingi, sem hald-
ið var í gær.
Opinber aflaheimild
leigð til 8-12 ára
Nefndin leggur til að aflahlutdeild
hins opinbera verði leigð til 8-12 ára
í upphafí hvers kvótaárs og skuli
verðið ráðast af markaðsaðstæðum.
Gert er ráð fyrir því að tekjur af
veiðigjaldinu verði nýttar til að
greiða niður erlendar skuldir hins
opinbera og síðar til að lækka skatta.
■ Útgerðin/28
-----*—♦—«----
Bauð í sam-
kvæmi í
hús bæjarins
MIKLAR skemmdir voru unnar á
gömlu einbýlishúsi við Fífuhvamm
í Kópavogi aðfaranótt föstudags,
en húsið sem hefur staðið mann-
laust um tíma er í eigu bæjarins.
Eftir því sem næst varð komist
hafði nemandi í Menntaskólanum
í Kópavogi boðið til veislu í húsinu
eftir árshátíð, að sögn lögreglu.
Á sjötta tímanum var tilkynnt
um ólæti í húsinu. Þá var búið að
bijóta allar rúður og henda inn-
anstokksmununum út. Þrír menn,
sem voru sofandi í húsinu, voru
handteknir.
Fíkniefna
leitað
HÓPUR lögreglumanna úr rann-
sóknadeild og fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík réðst til inn-
göngu í veitingastaðinn Hafnar-
krána við Hafnarstræti upp úr há-
degi í gær og gerði húsleit vegna
gruns um að þar væru meðhöndluð
fíkniefni.
Samkvæmt upplýsingum lögregi-
unnar í Reykjavík fannst lítið magn
af fíkniefnum á staðnum. Vænta
má að árangur lögregluaðgerðar-
innar komi betur í ljós eftir yfir-
heyrslur en stefnt var að því að þær
hæfust seint í gærkvöldi.
Um 15 lögreglumenn og einn
fíkniefnaleitarhundur tóku þátt í
aðgerðinni.
Lögreglan handtók einnig í gær,
eftir mikinn eltingarleik, tvo menn
sem grunaðir eru um meðhöndlun
fíkniefna. Sú handtaka leiddi til
húsleitar í tveimur húsum í gær-
kvöldi.
■ Handteknir/2
Morgunblaðið/Sigurður Fannar
Páskalamb
á Geld-
ingalæk
ÆR bar lambi á bænum Geld-
ingalæk í Rangárvallasýslu á
hádegi í gær en það þykir
óvenjulegt fyrir þær sakir að
sauðburður er yfirleitt ekki
fyrr en í maímánuði.
Að sögn Lindu Reynisdóttur
húsráðanda á Geldingalæk er
fengitími veiyulega í desem-
ber, „en rúmum mánuði fyrir
þann tíma tókst einum hrútn-
um að stanga sér leið út úr
útihúsinu með látum og yfir til
rollnanna sem voru úti í haga.
Ein þeirra bar svo í gær og
önnur mun bera eftir nokkra
daga,“ segir Linda. „En lömb
sem fæðast fyrir venjulegan
sauðburð eru kölluð fyrirmáls-
fengi.“
Lambið braggast vel og er
farið að vappa um stíuna sína.
Það var nokkuð stórt við fæð-
ingu og því þurfti að aðstoða
ána, Elsu Hrönn, við að koma
því í heiminn, en Linda segir
að lömbin sem fæðist á Geld-
ingalæk séu veiyulega langt
yfir meðalþyngd.
Ekki er enn búið að gefa
lambinu nafn, en að sögn Lindu
munu heimilismenn á bænum
koma sér saman um það á
næstunni.
Á myndinni heldur Kara
Borg Fannarsdóttir á litla
hrútnum og við hlið hennar
stendur Hlíf Hauksdóttir.
Verkamannasambandið boðað til viðræðna hjá sáttasemjara í dag
Ovissa um fund með
Dagsbrún og Framsókn
Morgunblaðið/Júlíus
LÖGREGLAN gerði húsleit í
Hafnarkránni við Hafnar-
stræti í gærdag.
S AMNIN G ANEFNDIR Verka-
mannasambandsins hafa verið boð-
aðar til sáttafundar með vinnuveit-
endum hjá sáttasemjara kl. 14 í
dag. Fyrir hádegi munu Dagsbrún
og Framsókn halda áfram vipræð-
um við Reykjavíkurborg. Óvissa
ríkti um það í gærkvöldi hvort tæk-
ist að hefja á ný formlegar viðræð-
ur milli vinnuveitenda og verkalýðs-
félaganna tveggja.
„Eg sé ekki tilganginn í því, það
er það langt á milli manna,“ sagði
Halldór Bjömsson, formaður Dags-
brúnar, í gærkvöldi. Hann sagði að
þrátt fyrir óformleg samtöl milli
deiluaðila hefðu viðsemjendur enn
sem komið væri hreyft sig það lítið
í átt til þess sem Dagsbrún og
Framsókn teldu sig geta samið um
að það þjónaði litlum tilgangi að
setjast að samningaborðinu.
Viðræður við borgina
Samiðn hélt áfram viðræðum
með viðsemjendum í gær og hefur
landssambandið verið boðað aftur
til fundar á sunnudag. Einnig var
i gær reiknað með að samninga-
nefndir Landssambands verslunar-
manna yrðu kallaðar til fundar hjá
sáttasemjara á sunnudag.
Fulltrúar Dagsbrúnar og Fram-
sóknar áttu í gær fund með launa-
nefnd Reykjavíkurborgar. Fátt
markvert gerðist á fundinum að
sögn talsmanna deiluaðila en
ákveðið var að halda viðræðum
áfram kl 10 í dag og á þá að hefja
umræðu um launabreytingar, að
sögn Sigríðar Ólafsdóttur, vara-
formanns Dagsbrúnar.
„Við höfum unnið mest að undan-
förnu að gerð heildstæðs samnings
við Reykjavík, Kópavog og Seltjam-
ames en það hefur gengið frekar
hægt. Við viljum núna fara að ræða
um kaup og kjör,“ sagði Sigríður.
„Reykjavíkurborg hefur sett
fram sínar áherslur og ein þeirra
er að kostnaður vegna samning-
anna verði ekki meiri en almennt
gerist. Innan þess ramma er borgin
svo með áherslur á hvernig útfæra
má hækkun lægstu launa,“ sagði
Jón G. Kristjánsson, starfsmanna-
stjóri Reykjavíkurborgar.
■ Bensínið/6
Tveir samningar
undirritaðir
NÝR kjarasamningur flugum-
sjónarmanna og Flugleiða var
undirritaður í gær hjá ríkissátta-
semjara. Samningurinn gildir til
15. febrúar árið 2000 og kveður
á um 4,7% hækkun við undir-
skrift, 4% hækkun 1. janúar
1998 og 3,65% 1. janúar 1999.
Verkalýðsfélag Húsavíkur
undirritaði í gær kjarasamning
við fyrirtæki tíu löndunarstarfs-
manna á Húsavík. Samningur-
inn kveður m.a. á um að kaup-
tryggingargrunnur hækkar úr
60 þúsund kr. á mánuði í 80
þúsund við undirskrift, um 5000
kr. 1. janúar 1998 og aftur um
sömu upphæð 1. janúar 1999.
Samningurinn gildir til 15. mars
1999.