Morgunblaðið - 02.04.1997, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1997 57
SUMARBUSTAÐAEIGENDURNIR sem sóttu námskeiðið 15. mars sl.
Myndin er tekin í gróðurskála Garðyrkjuskólans.
Áhugasamir sumarbústaða-
eigendur sækja námskeið
GARÐYRKJUSKÓLI ríkisins í samvinnu við Land-
græðslu og Skógrækt ríkisins bjóða upp á fjögur
dags námskeið í skóg- og trjárækt fyrir sumarbú-
staðaeigendur næstu vikurnar. Fyrsta námskeiðið
var haldið laugardaginn 15. niars sl. fyrir 40 sum-
arbústaðaeigendur.
Sökum þess live þessi námskeið eru vel sótt
hefur verið ákveðið að halda tvö til viðbótar í
maí. Fyrra námskeiðið verður haldið í Félagsheim-
ilinu Borg í Grímsnesi laugardaginn 17. maí og
síðara námskeiðið í Félagsheimilinu Aratungu í
Biskupstungum. Leiðbeinendur á námskeiðunum
eru Björn B. Jónsson, skógræktarráðunautur
Skógræktar ríkisins á Suðurlandi, og Kristinn H.
Þorsteinsson, garðyrkjustjóri Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Ur dagbók lögreglu
26. til 31. mars
Annasamir páskar
hjá lögreglu
Iðnaðar- og
efnistækni
ESB kynnt
KYNNINGARMIÐSTÖÐ Evrópu-
rannsókna og Iðntæknistofnun efna
til kynningarfundar þar sem fjallað
verður um styrki sem Evrópusam-
bandið veitir til samvinnu í iðnaðar-
og efnistækni, innan BRITE-EUR-
AM rannsóknaáætlunarinnar.
Styrkir þessir eru veittir til þróunar-
verkefna, samstarfsneta, nýtingar
á rannsóknaniðurstöðum til rann-
sóknaþjálfunar og fleira. Einnig eru
veittir styrkir til undirbúnings þátt-
töku í rannsókna- og þróunarverk-
efnum, einkum til lítilla og miðl-
ungsstórra fyrirtækja.
A fundinum verður sérstaklega
fjallað um hvernig íslensk fyrirtæki
geta nýtt sér þá möguleika sem
standa til boða og farið yfir reynslu-
sögu Stjörnu-Odda hf. Fundurinn
er sérstaklega ætlaður stjórnendum
fyrirtækja og þeim sem stunda
rannsóknir og þróunarstarf. Fund-
urinn verður haldinn á Iðntækni-
stofnun 4. apríl kl. 9-11.
Á fundinum mun Nick Hartely,
sérfræðingur hjá framkvæmda-
stjórn ESB, segja frá Iðnaðar- og
efnistækniáætluninni og kynna
styrkveitingar til samstarfsverk-
efna. Ingóifur Þorbjörnsson, for-
stöðumaður efnistæknideildar Iðn-
tæknistofnunar, gerir grein fyrir
þátttöku íslendinga í áætluninni og
Sigmar Guðbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Stjörnu-Odda hf.,
segir frá reynslu sinni af umsóknum
um áætlunina.
Tónleikar
í Borgarleik-
húsinu
STYRKTAR- og uppbyggingarsjóð-
ur SÁÁ stendur nú fyrir jazz- og
blúshátíð annað árið í röð í Borgar-
leikhúsinu. í fyrra var haldin fyrsta
landlæga jazz- og blúshátíðin. Nú
er haldin önnur landlæga jazz- og
blúshátíðin og verða haldnir tónleik-
ar í Borgarleikhúsinu í kvöld, mið-
vikudaginn 2. apríl kl. 21. Miðaverð
er 1.200 kr.
í fréttatilkynningu kemur fram
að margir af fremstu tónlistar-
mönnum landsins koma fram á
þessum tónleikum. Þeir gefa allir
vinnu sína og verður ágóðanum af
tónleikunum varið til að greiða
hluta af kostnaði við lifrarbólgu-
og eyðnirannsóknir og bólusetning-
ar gegn lifrarbólgu á sjúklingum
sem koma á Vog.
Fram koma: Arni Þór Sigmunds-
son, Blúskompaníið, Einar Kristján
Einarsson, Ellen Kristjánsdóttir,
Gísli Kr. Skúlason, Gulli Briem,
Halldór Halldórsson, Jón Skuggi,
Kormákur Geirharðsson, Berglind
Björk, Bubbi, Eiríkur Pétursson,
Eyþór Gunnarsson, Guðmundur
Pétursson, Gunnlaugur Kristfinns-
son, Jóhann Ásmundsson, KK,
Kristinn Árna, Bjarni Ara, Ragnar
Bjarnason, Sveinn Bjarki, Ruth
Reginalds, Súkkat, Reynir Jónas-
son, Ragnar Jónsson, Pálmi Gunn-
arsson og Magnús Eiríksson.
Fyrirlestrar
um menntun
til framtíðar
DR. SUNITA Gandhi forstöðumað-
ur Global Concept stofnunarinnar í
New York flytur fyrirlestur mið-
vikudaginn 2. apríl á vegum sam-
takanna Heimilis og skóla í Hótel
Sögu, þingstofu A, 2. hæð, kl. 20.30
og Rannsóknarstofnunar Kennara-
háskóla Islands fimmtudaginn 3.
apríl kl. 16.15 í stofu M-301. Fyrir-
lestrarnir nefnast: Menntun til
framtíðar.
„I fyrirlestrunum mun Sunita
fjalla um menntun barna út frá
heildrænni sýn, þar sem tekist er á
við breytta heimsmynd, aukið vit-
undarsvið barna og það viðhorf að
börnum er nauðsynlegt að öðlast
þekkingu og skilning á þeim þáttum
sem samfélag okkar byggist á. Til
skýringar á máli sínu mun Sunita
gera grein fyrir árangri City Mont-
essori School í Luknow á Indlandi,
en sá skóli hefur í áratugi stuðst
við þessa leið í menntun," segir í
fréttatilkynningu.
Þar segir ennfremur: „Dr. Sunita
Gandhi hefur starfað til margra ára
við Alþjóðabankann og tekist á við
fjölda samfélagslegra verkefna á
hans vegum. Hún hefur tekið sér
árs leyfi frá störfum við bankann
til að helga sig menntunarmálum.
I þessu viðfangi leitar hún lausna
i heildrænni, skapandi menntun
sem á að auka skilning, þekkingu
og víðsýni,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fyrirlestrarnir verða fluttir á
ensku og eru ölium opnir.
„Ihaldssemi“
í úrslitum
mælskukeppni
í JANÚAR sl. hófst undirbúningur
fyrir mælskukeppni grunnskóla
með því að nemendur úr 14 skólum
í borginni hófu keppnina sem var
með útsláttarfyrirkomulagi. Eftir
harða og tvísýna keppni milli skól-
anna í vetur er komið að stóru
stundinni.
Hagaskóli og Rimaskóli keppa
til úrslita í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 2. apríl, í Ráðhúsi Reykja-
víkur kl. 20. Umræðuefnið verður
„Ihaldssemi“. Þessir sömu skólar
lentu einnig í úrslitum í fyrra en
þá sigraði Hagaskóli eftir skemmti-
lega keppni.
Hópþjálfun
Gigtarfélagsins
HÓPÞJÁLFUN Gigtarfélags ís-
lands hefst aftur núna strax eftir
páska og er öllum velkomið að vera
með. Reynslan sýnir að hreyfing
og rétt þjálfun er gigtarfólki og í
raun öllum afar mikilvæg, segir í
fréttatilkynningu.
Boðið er upp á nokkra hópa sem
eru miserfiðir. Má þar nefna létta
leikfimi, alhliða líkamsþjálfun,
hrygggigtarhóp, vefjagigtarhóp og
vatnsleikfimi. Markmiðið er að
bjóða upp á leikfimi fyrir alla, líka
fyrir þá sem lítið geta og vilja fara
rólega af stað. Þjálfunin fer fram
á mismunandi tímum dags og fer
fram í húsi GÍ að Ármúla 5 og
vatnsþjálfunin í Sálfsbjargarlaug-
inni í Hátúni. Skráning og nánari
upplýsingar eru á skrifstofu GÍ,
Ármúla 5.
PÁSKARNIR voru nokkuð anna-
samir hjá lögreglunni. í dagbókinni
um páskana eru 602 færslur. Af
þeim eru 12 líkamsmeiðingar, 41
innbrot, 21 þjófnaður og 27 eigna-
spjöll. Afskipti þurfti að hafa af 42
vegna ölvunar á almannafæri og
vista þurfti 60 manns í fanga-
geymslunum.
I umferðarmálum ber hæst 37
tilkynnt umferðaróhöpp, auk þess
sem 33 ökumenn voru kærðir fyrir
of hraðan akstur, 13 fyrir að nota
ekki ökuljós i akstri, 2 fyrir að
nota ekki stefnumerki þegar það
átti við, 10 fyrir að leggja ólöglega,
20 fyrir að hafa ekki ökuskírteini
meðferðis og 11 ökumenn og 4 far-
þegar voru sektaðir fyrir að nota
ekki bílbelti.
Mörg óhöpp á skírdag
Ellefu ökumenn eru grunaðir um
ölvunarakstur, en þeir voru 10 um
páskana í fyrra. Kvartanir vegna
hávaða og ónæðis voru 50 talsins.
Þar af voru 36 kvartanir vegna
hávaða og ónæðis innan dyra.
Skýrslur vegna eftirlits með veit-
ingahúsum voru 7 talsins.
Á páskum í fyrra, en þá voru
þeir í byijun apríl, gerði vonskuveð-
ur á skírdag. Þá varð ófært á mörg-
um leiðum út úr borginni. Af 38
umferðaróhöppum urðu 28 þennan
eina dag. Af 37 umferðaróhöppum
nú urðu flest annan í páskum, en
þá tók að snjóa eftir annars ágætt
veður.
Aðfaranótt skírdags þurftu lög-
reglumenn að aka manni á slysa-
deild eftir slagsmál í Lækjargötu.
Þá var stúlku, sem hafði ristar-
brotnað þar, einnig ekið á slysa-
deild, sem og manni er hlotið hafði
skurð á hnakka eftir átök á veit-
ingahúsi. Á skírdagsmorgun var
bifreið ekið á staur við Suðurlands-
braut. Ökumaðurinn var grunaður
um ölvunarakstur. Hann hlaut
minniháttar bakmeiðsli og var því
fluttur á slysadeild. Eftir hádegi
varð stúlka á reiðhjóli fyrir bifreið
í Fellsmúla við Grensásveg. Öku-
maðurinn ók hins vegar á brott
eftir óhappið. Um var að ræða ljós-
bláa Dodge Aries fólksbifreið á
R-númeri. Stúlkan handarbrotnaði
við_ óhappið.
í innbrotunum var m.a. farið inn
í 6 fyrirtæki og verslanir á Seltjarn-
arnesi, söluturn við Hofsvallagötu,
fyrirtæki við Smiðshöfða, Höfða-
bakka og Skipholt, gistiheimilj við
Flókagötu, pylsuvagn við Ána-
naust, söluturn við Suðurströnd,
sumarbústað við Hafravatnsveg,
barnaheimili við Suðurlandsbraut,
geymslur húss við Stíflusel, þvotta-
hús við Asparfell, hús við Frosta-
skjól, Fannarfell og Njálsgötu, veit-
Vorhátíð
Þýsk-íslenska
á Suðurlandi
ÞÝSK-íslenska vinafélagið á Suður-
landi efnir til vorhátíðar í Hótel
Selfossi laugardagskvöldið 5. apríl.
Hefst hún með móttöku á vegum
þýska sendiráðsins í Reykjavík og
síðan stendur til boða hlaðborð.
Fram kemur þjóðdansaflokkur frá
Norður-Þýskalandi en í honum eru
milli 10 og 20 dansarar.
Hópurinn hefur sýnt listir sínar
í mörgum löndum í Evrópu og einn-
ig vestan hafs en stjórnandi hans
er Birgitte Hildebrandt. Þegar líða
tekur á kvöldið verður stiginn dans.
■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í almennri
ingastað við Austurvöll, bifreiðar
við Mýrarsel, Austurberg, Tungu-
sel, Sólvallagötu, Dalaland, Búða-
gerði, Starengi og Funahöfða.
Líkamsmeiðingar á
veitingahúsi
Leit var gerð að 75 ára gömlum
manni í nágrenni Mosfellsbæjar á
skírdag. Hann skilaði sér heill á
húfi klukkustund eftir að leit hófst.
Kona datt utandyra í Ásunum. Tal-
ið var að hún hefði fótbrotnað. Hún
var flutt á slysadeild með sjúkrabif-
reið. Veist var að manni í söluturni
í Bergjunum. Hann hlaut minni-
háttar meiðsli. Vitað er hveijir áttu
þar hlut að máli.
Um kvöldið kom upp eldur í potti
á eldavél húss við Baldursgötu. Var
búið að slökkva eldinn þegar lög-
regla og slökkvilið komu á staðinn.
Slökkviliðið sá um að reykræsta
íbúðina. íbúum var ekki meint af
reyknum.
Barn lokaðist inni í herbergi húss
við Hjarðarhaga föstudaginn langa.
Lögreglumönnum tókst að opna og
varð barnið frelsinu fegið. Flytja
þurfti einn aðila á slysadeild eftir
slagsmál í Aðalstræti.
Um kvöldið varð maður fyrir lík-
amsmeiðingum á veitingahúsi við
Laugaveg.
Um miðnætti handtóku fótgang-
andi lögreglumenn í eftirliti þijá
pilta þar sem þeir voru að bijótast
inn í bifreið við Dyngjuveg. Þeim
tókst að handsama tvo þeirra. Þeir
voru í framhaldi af skýrslugerð
færðir til foreldra sinna, þar sem
rætt var við þá um atburð næturinn-
ar.
íkveikja við skóla
Bifreið var ekið á brúarstólpa við
Reykjanesbraut á brú yfir Elliðaár.
Flytja þurfti einn aðila á slysadeild.
Maður var handtekinn á veitinga-
stað við Lækjargötu eftir slagsmál.
Aka þurfti einum á slysadeild.
Á páskadagsmorgun datt ölvaðut-
maður af reiðhjóli á Bókhlöðustíg.
Hann meiddist í andliti og var því
fluttur á slysadeild með sjúkrabif-
reið. Síðdegis var bifreið ekið á
ljósastaur við Vesturlandsveg. Tveir
aðilar voru fluttir með sjúkrabifreið
á slysadeild.
Síðdegis annan dag páska datt
kona á hálku utan dyra við Neðsta-
berg og meiddist á fæti. Hún var
flutt á slysadeild með sjúkrabifreið.
Um kvöldið var kveikt í bréfarúllu
bakatil við skóla í Breiðagerði. Lög-
reglumenn slökktu eldinn og hlut-
ust engar skemmdir af að þessu
sinni. Á vettvangi fannst bensín-
brúsi. Brotist hefur verið inn í skól-
ann allnokkrum sinnum að undan-
förnu.
skyndihjálp sem hefst fimmtudag-
inn 3. apríl kl. 19-23. Aðrir
kennsludagar verða 7. og 8. apríl.
Námskeiðið telst verða 16 kennslu-
stundir og verður haldið í Ármúla
34, 3. hæð. Námskeiðið er öllum
opið 15 ára og eldri. Sérstaklega
er vænst þátttöku ungra ökumanna
sem hafa í höndum ávísun á nám-
skeið í skyndihjálp gefna út af
Rauða krossi Islands. Námskeiðs-
gjald er_4.000 kr., skuldlausir félag-
ar í RKÍ fá 50% afslátt. Hægt verð-
ur að ganga í félagið á staðnum.
LEIÐRÉTT
Halldór Hansen
NAFN Halldórs Hansen misritaðisf
í kynningu á grein sem hann birt
í blaðinu á skírdag um söngkonunc
Elly Ameling og er beðist velvirð-
ingar á þeim mistökum.