Morgunblaðið - 05.04.1997, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugmálayfirvöld í Þýskalandi bera til baka frétt í Bild um skort á flugöryggi
Enginn svartur
listi yfir erlend
flugfélög
ÞÝSK flugmálayfirvöld hafa borið til
baka fréttir sem fram komu í þýska
dagblaðinu Bild-Zeitung í gær um að
öryggi sé ábótavant hjá tíu flugfélög-
um og þau séu á svörtum lista, eng-
inn slíkur listi sé til. Voru íslensku
flugfélögin Atlanta og Flugleiðir
nefnd á þessum lista, einnig ítalska
félagið Alitalia og nokkur félög í
Austur-Evrópu. Byggðust upplýs-
ingar blaðsins á niðurstöðum athug-
ana þýska loftferðaeftirlitsins en í
yfirlýsingu þess í gær er sagt að þess-
ar niðurstöður gefi alls ekki ástæðu
til að úrskurða almennt um gæði og
öryggi þess flugfélags sem í hlut á.
Flugleiðir munu skoða þann mögu-
leika að höfða mái gegn Bild-Zeitung.
Alls fljúga 53 erlend fiugfélög til
Þýskalands og gera flugmálayfirvöld
þar eins og víðar margs konar
skyndiskoðanir og athuganir á skírt-
einum, skýrslum og öðru er tengist
flugrekstri þeirra. Niðurstöður slíkra
athugana eru kynntar viðkomandi
flugfélögum og flugmálayfirvöldum
tii að gefa þeim tækifæri á að bæta
úr því sem talið er ófullnægjandi.
„Ef komist væri að niðurstöðu um
flugöryggislega vankanta á flugvél
einhvers flugfélags, myndi það leiða
til flugbanns fyrir viðkomandi flug-
vél. Ef slíkir flugöryggislegir van-
kantar fyndust á öðrum flugvélum
sama flugfélags myndi því félagi
verða bannað að fljúga til Þýska-
lands. Þær upplýsingar sem Bild-
Zeitung byggir grein sína á eru ekki
grundvöllur til aðgerða af því tagi
sem að ofan er lýst,“ segir í yfirlýs-
ingu þýskra loftferðayfirvalda.
Hrein rangtúlkun
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
segir að sami háttur sé hafður á
hérlendis við eftirlit með flugfélög-
um. Hann kvaðst í gær hafa rætt
við flugmálastjóra Þýskalands og
hafi hann harmað þennan frétta-
flutning blaðsins enda sé hann hrein
rangtúlkun en hann hefði valdið
miklu ijaðrafoki í Þýskalandi í gær.
„Þetta var í fréttum um aila Evr-
ópu í morgun og hefur valdið okkur
stórskaða," sagði Einar Sigurðsson,
fulltrúi forstjóra Flugleiða, í samtali
við Morgunblaðið í gær og sagði mál
sem þetta valda álitshnekki þótt ekki
væri neitt athugavert við flugrekstur
eða flugöryggi félagsins.
Einar sagði að sjónvarpmenn hefðu
komið á flugvöllinn í Lúxemborg og
tekið viðtal við stöðvarstjóra Flugleiða
og nokkra farþega. „Það var vitnað
í þessa frétt víða í Evrópu og við
reyndum mæta því með okkar mönn-
um erlendis. Fréttastofurnar voru
famar að taka það upp með viðtölum
við okkar fólk í Lúxemborg og einnig
í gegnum Deutsche Press Abentur.
Flugleiðir var eina flugfélagið sem
haft var eftir í skeyti sem fréttastofan
sendi út kl. 14 í gær,“ sagði Einar.
Einar sagði að við venjubundna
skoðun þýskra flugmálayfirvalda 5.
mars, en slíkar skoðanir fara reglu-
lega fram á hleðslu og öðrum atriðum
flugrekenda, hefðu þýsk flugmálayf-
irvöld gert athugasemd við frakt-
hleðslu í einu af fjórum frakthólfum
þotu í Hamborg. „Heildarþungi
frakthleðslu í þessari tilteknu vél var
vel innan hámarka en sú athugasemd
var gerð við dreifingu fraktar í einu
af fjórum hólfum, að þar hefði átt
að dreifa eðlisþungum varningi meira
í hólfinu."
Einar sagði að í kjölfar athuga-
semdanna hefði málið verið skoðað
ofan í kjölinn og hert á reglum til
að koma í veg fyrir að slíkt misræmi
í hleðslu komi ekki fyrir aftur. „Við
erum að koma þessum upplýsingum
á framfæri erlendis, Flugleiðir hafa
ekkert að fela í þessu og erum tilbún-
ir að sýna þessi gögn hvenær sem
er,“ sagði Einar ennfremur.
„Þessu er stillt upp sem svörtum
lista en þýsku flugmálayfirvöldin
segja þetta ekki vera slíkan lista,
heldur reglubundnar skoðanir sem
gerðar séu á öllum flugfélögum og
að oft séu þá gerðar einhverjar at-
hugasemdir." Sagði Einar að þessi
væri sú eina sem Flugleiðir hefðu
fengið.
Einar sagði að verkefni næstu vik-
urnar yrði að koma á framfæri upp-
lýsingum um málið því Bild hefði
slitið ákveðin atriði óþyrmilega úr
samhengi „Við höfum engar ákvarð-
anir tekið um málsókn gegn Bild en
við höfum heyrt af því að það séu
vangaveltur í þá átt meðal annarra
flugfélaga. Við munum sjálfsagt
skoða þann möguleika. Okkur sýnist
af frétt þýsku fréttastofunnar að
flugmálayfirvöld í Þýskalandi séu að
íhuga eitthvað svipað,“ sagði Einar.
Engar athugasemdir
við Atlanta
Guðmundur Hafsteinsson, skrif-
stofustjóri Atlanta, tjáði Morgun-
blaðinu að engar athugasemdir um
öryggismál félagsins hefðu borist frá
þýskum flugmálayfirvöldum eins og
gefið sé í skyn í frétt Bild-Zeitung.
Segir hann skyndiskoðanir gerðar
af og tii af þýska loftferðaeftirlitinu,
þær hafi verið framkvæmdar um
borð í flugvél Atlanta án þess að
nokkrar athugasemdir hafi verið
gerðar í kjölfarið.
„Við vinnum eftir ströngustu regl-
um og kröfum og íslensk flugmálayf-
irvöld eru mjög virk í eftirliti sínu og
hvorki Atlanta né önnur flugfélög hér
myndu komast upp með að fara á
svig við reglur,“ sagði Guðmundur.
„Flugfélagið Atlanta hefur ætíð starf-
að samkvæmt ýtrustu kröfum um
flugöryggi undir yfírsýn og í góðu
samstarfi við íslensk loftferðayfirvöld.
Því harmar Atlanta ofangreinda frétt
þar sem vegið er aivarlega og án nokk-
urs tilefnis að félaginu og starfsemi
þess,“ segir í yfirlýsingu frá Atlanta.
Gróf og gáleysisleg einföldun
„Bakgrunnur málsins er sá að
dagblaðið Bild hefur sennilega undir
höndum innanhússlista frá skrifstofu
okkar í Frankfurt, en það er í raun
ekkert hæft í þessu máli,“ sagði Joch-
en Pieper, blaðafulltrúi þýskra flug-
málayfirvalda. „Um er að ræða tíu
aðskildar kannanir þar sem einhveiju
var ábótavant en réttiæta hins vegar
ekki að þessi flugfélög séu vænd um
skort á öryggi með þessum hætti.“
Pieper fór hörðum orðum um
umfjöllun Bild um málið og sagði að
þetta væri ekki í eina skiptið sem
vandræði hlytust af fréttaflutningi
þess. „Þetta var gróf og ég myndi
segja gáleysisleg einföldun, að nota
afmarkað tilfelli til þess að mismuna
fyrirtækjum með þessum hætti,“
sagði Pieper.
Flugmálayfiivöld hafa sérstakt
símanúmer sem borgarar geta hringt
í og hefðu 100 flugfarþegar spurst
fyrir um frétt Bild. Þeir hefðu allir
fengið þau svör að ekki væri nokkur
ástæða til að ætla að hætta væri á
ferðum.
„Varúð, ferðamenn“
ÞÝSKA dagblaðið Bild birti í gær frétt undir fyrir-
sögninni „Oryggi ábótavant hjá 10 flugfélögum" og
nefnir þar meðal annars íslensku flugfélögin Atl-
anta og Flugleiðir. Fylgir frétt þýska blaðsins hér
í íslenskri þýðingu:
„Varúð, ferðamenn. Sá, sem nú er að bóka flug-
far, ætti að hugsa sig um tvisvar áður en hann
ákveður með hvaða flugfélagi hann vill fljúga.
Tíu flugfélög eru um þessar mundir á „svörtum
lista“ Flugumferðarstofnunar. Eftirlit á jörðu niðri
leiddi í ljós stórvægilega meinbugi („major defici-
encies") hjá Armenia Air, Belavia (Hvíta Rúss-
landi), Aviolmpex (Makedóníu), Transaero (Rúss-
landi), MIAT (Mongólíu), Crotaia Airlines, Lithuan-
ian Airleines (Litháen), Flugleiðir, Atlanta (bæði frá
Islandi).
Á listanum („ramp check activities“) er öllum
skorti á öryggi á tímabilinu október ’96 til mars ’97
gerð skil. Það gerist aðeins hjá fáum flugfélögum
að engu sé ábótavant. Hjá flestum fundust minni
meinbugir („minor deficiencies"), sem ekki hafa
merkjanleg áhrif á flugöryggi.”
Hröð gróðurframvinda í Surtsey
Fleiri tegundir en
í öðrum úteyjum
44 TEGUNDIR háplantna hafa
fundist í Surtsey frá 1965, þar af
níu frá hausti 1995. í mávavarpi
sem tók að myndast á suðurhluta
eyjarinnar um 1985, og hefur
stækkað ár frá ári, hefur gróður-
framvinda tekið stakkaskiptum
vegna áhrifa áburðar og aðflutn-
ings nýrra tegunda. Þetta kom
fram í erindi Borgþórs Magnússon-
ar á fundi sem Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins og Bændasamtök
íslands stóðu fyrir í gær í tilefni
af útkomu 10. heftis fræðiritsins
Búvísinda sem tileinkað er dr.
Sturlu Friðrikssyni.
Rannsókn á gróðurframvindu í
Surtsey var unnin af Borgþóri,
Sigurði H. Magnússyni og Jóni
Guðmundssyni. I erindi Borgþórs
kom einnig fram að fjöldi plöntu-
tegunda er nú orðinn meiri en í
öðrum úteyjum Vestmannaeyja og
í Surtsey finnast þrjár tegundir
sem hafa ekki verið skráðar ann-
ars staðar í eyjunum.
Fyrstu tvo áratugina í sögu
Surtseyjar námu tuttugu tegundir
land þar og voru flestar þeirra
strandplöntur og sandplöntur sem
bárust einkum með sjó eða fuglum
til eyjarinnar. Mikil aukning varð
á iandnámi á þriðja áratugnum en
þá fannst tuttugu og ein ný tegund
og voru þær allar utan ein í varpi
sílamávs og silfurmávs sem tók
að myndast í eynni á því tímabili.
Höfundar telja líklegt að mávarnir
hafi borið flestar þessar tegundir
til Surtseyjar en margar þeirra séu
algengar í fuglabyggðum í Vest-
mannaeyjum.
Morgunblaðið/Kristinn
FRIÐRIK Pálmason, ritstjóri Búvísinda, t.h., afhenti Sturlu
Friðrikssyni eintak af bókinni sem tileiknuð er Sturlu.
Hætt við Síð-
ustu freistingu
Krists
SJÓNVARPIÐ hefur ákveðið að
hætta við sýningu bandarísku kvik-
myndarinnar Síðasta freisting Krists
eftir Martin Scorsese, sem átti að
vera á dagskrá Sjónvarps í kvöld.
Kvikmyndin, sem gerð var 1988,
er byggð á bók gríska rithöfundarins
Nikosar Kazantzakis, þess hins sama
og ritaði um Grikkjann Zorba. Mynd-
in vakti mikið umtal og deilur á sín-
um tíma, og ásakanir heyrðust þess
efnis að hún innihéldi guðlast.
----------♦---------
Skartgripum
stolið
BROTIST var inn í skartgripaverslun
í Bankastræti í fyrrinótt og stolið
skartgripum fyrir hundruð þúsunda
króna.
Einnig var brotist inn í verslunina
Segul við Nýlendugötu og stolið raf-
magnsvörum. Þá voru unnar
skemmdir á hurðum og eilefu skápar
brotnir upp í Vesturbæjarskóla.