Morgunblaðið - 05.04.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 15
LANDIÐ
Félagsmenn Iðju
felldu nýgerða
kjarasamninga
FÉLAGAR í Iðju, félagi verksmiðju-
fólks, felldu nýgerða kjarasamn-
inga í atkvæðagreiðslu sem lauk á
fimmtudagskvöld.
Starfsfólk afurðastöðva í mjólk-
uriðnaði, starfsmenn Iðju í Mjólkur-
samlagi KEA, kolfelldi nýgerða
kjarasamninga. Alls voru 34 á kjör-
skrá, 31 greiddi atkvæði eða 91%,
27 eða 87,1% sögðu nei en já sögðu
4, eða 12,9%.
Líklega kosið aftur
Á kjörskrá vegna kjarasamnings
Iðju og Vinnuveitendasambands Is-
lands voru 440 manns, en þar af
greiddi 241 atkvæði. Alls 102 vildu
samþykkja samninginn, eða 41%,
en á móti voru 130, eða 56,2%. Sjö
seðlar voru auðir eða ógildir.
Þorsteinn E. Arnórsson, formað-
ur Iðju, sagði að á fimmtudag
hefðu vinnuveitendur boðið breyt-
ingar á samningum í samræmi við
það sem aðrir hópar sem síðar
sömdu höfðu fengið, en ekki unnist
tími til að kynna breytingar á kja-
rasamningnum auk þess sem at-
kvæðagreiðsiu félagsmanna lauk
þá um kvöldið.
Boðað hefur verið til félagsfund-
ar í Iðju á morgun, sunnudag, í
Alþýðuhúsinu og hefst hann kl. 14.
Þorsteinn sagðist ætla að heyra
hljóðið í félagsmönnum og hvað það
væri helst sem þeir hefðu við samn-
inginn að athuga. í ljósi breytinga
á kjarasamningnum taldi Þorsteinn
líklegt að kosið yrði að nýju í næstu
viku.
Leikfélag Menntaskólans á Akureyri
Sjö stelpur í
Samkomuhúsinu
LEIKFÉLAG Menntaskólans á Ak-
ureyri frumsýnir í kvöld, laugar-
dagskvöldið 5. apríl, leikritið Sjö
stelpur eftir Erik Torsteinsson. Leik-
stjóri er Guðbjörg Thoroddsen.
Leikritið ijallar um sjö stúlkur
sem dvelja á áfangaheimili í kjölfar
áfengis- og eiturlyfjaneyslu. Lífs-
hlaup þeirra er rifjað upp í leikritinu
og fjallað um samskipti þeirra á
milli og við starfsfólk heimilisins.
„Þetta er okkar innlegg í áróður
gegn vímuefnaneyslu," segir Hadda
Hreiðarsdóttir einn leikaranna.
Edda Hrönn Sveinsdóttir, Berg-
lind Gylfadóttir, Berglind Karlsdótt-
ir, Freyja Dögg Frímannsdóttir,
Hadda Hreiðarsdóttir, Hildur Frið-
riksdóttir og Steinunn Sigfúsdóttir
fara með hlutverk stúlknanna.
Harpa E. Haraldsdóttir leikur gæslu-
konu og þeir Grétar Orri Kristins-
son, Hólmar Örn Finnsson, Hilmar
Kristjánsson og Snorri Örn Clausen
leika starfsmenn heimilisins. Alls
taka um tuttugu manns þátt í upp-
færslu Leikfélags Menntaskólans á
Akureyri á Sjö stelpum.
Leikritið er sýnt í Samkomuhús-
inu á Akureyri. Önnur sýning verður
mánudagskvöldið 7. apríl, en sýning-
ar verða einnig 8., 9., 11. og 12.
apríl. Allar sýningar hefjast kl.
20.30. Miðaverð er 500 krónur.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
ÁRNI HaHdórsson bóndi í Garði í Mývatnssveit í fjárhúsunum með nýju ristunum.
Á minni myndinni má sjá stærðarhlutföllin í nýju járnristunum.
Reynir nýj a gerð af
járnristum undir sauðfé
Vaðbrekka, Jökuldal - Árni Hall-
dórsson, bóndi í Garði í Mývatns-
sveit, er að reyna nýja gerð af
járnristum undir sauðfé sitt. Árni
keypti á síðasta hausti nýjar sink-
húðaðar járnristar í öll fjárhúsin
hjá sér, þessar nýju ristar eru
með möskva 14 sinnum 50 milli-
metrar og 25 millimetra þykkar.
Þessir 25 millimetrar í þykkt-
inni eru járn sem ná í alla Iengd-
ina á ristinni og eru tveggja milli-
metra breið. hægt er að fá lengd-
ir áristunum eftir hentugleikum
en Árni lætur lengd ristanna ráð-
ast af breidd krónna hjá sér og
er með bæði 180 sentimetra og
240 sentimetra breiðar krær.
Grindurnar svigna ekki til baga
þótt þær séu 240 sentimetra lang-
ar,að sögn Árna.
Árni segir þessar nýju ristar
slíta klaufum fjárins hæfilega, og
séu ekki dýrari en fyrri gerðir
af ristum þegar upp sé staðið því
viðhald hafi verið mikið á gömlu
timburristunum. Þær hafi þurft
að endurnýja á 5-10 ára fresti og
eldri járnristar á 10 ára fresti.
Þessar nýju ristar eigi hinsvegar
að endast aldur fjárhúsanna.
Heynýting sé einnig góð á þessum
nýju ristum þar sem þær haldist
svo hreinar og þurrar að ærnar
éti allt hey upp af þeim sem nið-
ur á þær slæðist, sagði Árni.
FRÁ afhendingu mótmælaundirskriftanna. Á myndinni eru Jón-
asína Skarphéðinsdóttir, Jóhanna Aðalsteinsdóttir, Kristbjörg
Jónasdóttir og Guðmundur Bjarnason.
Þingeying--
ar mótmæla
niðurskurði
Húsavík - Þingeyingar, 1.143 að
tölu, hafa að tilhlutan Kvenfélags
Húsavíkur undirritað mótmæli gegn
þeim áætlunum ríkisstjórnarinnar
að rýra fjárveitingar til Sjúkrahúss
Þingeyinga frekar en orðið er.
Jóhanna Aðalsteinsdóttir afhenti
landbúnaðar- og umhverfisráð-
herra, Guðmundi Bjarnasyni, sem
hér var í heimahögum á Húsavík
um páskana, mótmælaundirskrift-
irnar sem hljóða svo:
„Við undirrituð mótmælum þeim
áætlunum ríkisstjórnarinnar að
rýra fjárveitingar til Sjúkrahúss
Þingeyinga frekar er orðið er.
Ef heldur sem horfír verður óhjá-
kvæmilega að draga svo úr þjón-
ustu á Sjúkrahúsinu að til vand-
ræða horfir fyrir sjúka, aldraða og
verðandi mæður. Má þá segja að
við séum verr sett hér en fyrir
30-40 árum. Þessum niðurstöðum
unum við ekki enda hætt við að þær
stuðli að fólksflótta frá Húsavík og
úr nágrannabyggðum."
Ráðherra tók við þessum undir-
skriftum með þeim orðum að mál
væru öll í athugun og nefnd frá
heilbrigðisráðuneytinu hefði nýlega
verið á Húsavík til að kynna sér
nánar ástand mála hér í héraði.
Hann sagðist mundi koma þessu
erindi í hendur viðkomandi aðila,
ríkisstjórnar og þingmanna kjör-
dæmisins.
Messur
Morgunblaðið/Egill Egilsson
MOKA þurfti frá slökkviliðsbílnum til að koma honum áfram.
Kviknaði í bókahillu
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í kirkjunni kl. 11 á morg-
un. Öll börn velkomin, munið kirkju-
bílana. Guðsþjónusta kl. 14, sr.
Svavar A. Jónsson messar. Aðal-
safnaðarfundur Akureyrarsóknar
eftir messu. Æskulýðsfundur í kap-
ellu kl. 17. Biblíulestur í safnaðar-
heimili kl. 20.30. á mánudagskvöld.
Mömmumorgunn frá kl. 10 til 12 á
miðvikudag í safnaðarheimili. Fyrir-
bænaguðsþjónusta í kirkjunni kl.
17.15 á fimmtudag.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
koma verður kl. 11 á sunnudag.
Foreldrar hvattir til að fjölmenna
með börnum sínum. Messa kl. 14
sama dag. Fundur æskulýðsfélags-
ins kl. 20 um kvöldið. Ath. breyttan
tíma. Kyrrðar- og bænastund kl.
18.10.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, unglinga-
klúbbur kl. 16, almenn samkoma kl.
20. Heimilasambandið kl. 16 á
mánudag. Krakkaklúbbur kl. 17 á
miðvikudag, biblía og bæn kl. 20.30
sama dag. Eilefu plús mínus kl. 17
á fimmtudag, hjálparflokkur kl.
20.30 sama dag. Allir velkomnir.
H VÍTASUNNUKIRKJ AN: Sam-
koma í kvöld, laugardagskvöld, kl.
20.30. Mike Bellamy forstöðumaður
Vinyard kirkjunnar á Keflavíkurflug-
velli mun predika orð Guðs. Safnað-
arsamkoma, brauðsbrotning kl. 11 á
sunnudag. Samkoma kl. 14, ræðu-
maður verður Mike Bellamy. Mikill
og fjölbreyttur söngur. Bænastundir
mánudags- miðvikudags- og föstu-
dagsmorgna, frá 6-7 í næstu viku.
Vonarlínan, sími 462-1210, símsvari
allan sólarhringinn með orð úr ritn-
ingunni sem gefa huggun og von.
KFUM og K, Sunnuhlíð: Almenn
samkoma kl. 20.30 á morgun,
sunnudag. Ræðumaður Skúli Svav-
arsson kristniboði. Allir velkomnir.
SJÓNARHÆÐ, Hafnarstræti 63:
Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl.
13.30 á morgun, sunnudaginn 6.
apríl. Almenn samkoma sama dag
kl. 17 á Sjónarhæð. Barnafundur á
Sjónarhæð kl. 18 á mánudag. Ungl-
ingafundur á Sjónarhæð kl. 20.30 á
föstudag.
Flateyri - Tilkynnt var um eld að
bænum Hóli í innanverðum Önund-
arfirði á páskadag. Reyndist eldurinn
vera í bókahillu. Slökkvilið ísafjarðar
og Flateyrar voru ræst út og voru
komin innan stundar á staðinn.
Fimm manns voru í húsinu og
urðu engin meiðsl á mönnum. Greið-
lega gekk að slökkva eldinn, og
voru húsráðendur búnir að ráða nið-
urlögum hans þegar slökkviliðið var
mætt á staðinn. Eldsupptök eru
ókunn.
Að slökkvistörfum loknum tókst
ekki betur til en svo að bíll frá
slökkviliði ísafjarðar komst hvergi
og þurftu menn því að grípa til skófl-
unnar og byrja að moka krapann
sem bíllinn stóð fastur í. Það hafð-
ist að lokum.
Talsverð
ófærð á
Ströndum
Litlu-Ávík - Allmikill snjór er
kominn hér í sveit sérstaklega eft-
ir síðasta hret 25. og 26. mars.
Þar af leiðandi hefur verið mikill
snjómokstur en reynt er að halda
veginum opnum frá Gjögursflug-
velli og til Norðurfjarðar helst
tvisvar í viku en þetta er um 20
km leið.
Þessi mokstur hefur tekist yfír-
leitt á einum degi með vélskóflu
og traktor með blásara en nú eftir
síðasta norðanáhlaup tókst að opna
á fjórða degi og kallast gott því
snjórinn var í miklum sköflum á
veginum og mikil göng víða eftir
moksturinn.
Dráttarvélin með blásaranum er
líka notuð við að halda flugvellin-
um opnum og hefur það forgang
fyrir vegmokstri.