Morgunblaðið - 05.04.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 19
Aftökum
fjölgar í
heiminum
Ákvörðun Helmuts Kohls um framboð misjafnlega tekið
Stefnir í átök um kansl-
araefni jafnaðarmanna
Reuter.
Kohl Lafontaine Schröder
Genf. Reuter.
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN
Amnesty International sögðu í gær
að rúmlega 4.200 fangar hefðu
verið teknir af lífi í heiminum á
síðasta ári og aftökunum hefði
fjölgað verulega frá árinu áður.
Flestar voru aftökumar í Kína,
eða 3.500, og næst komu Úkraína
með 169 aftökur, Rússland með
a.m.k. 140, og íran um 110. Sam-
kvæmt óstaðfestum upplýsingum
vom 123 fangar teknir af lífi í
Túrkmenístan.
Amnesty sagði að aftökunum í
heiminum hefði fjölgað um 30% frá
árinu 1995 og dauðadómum úr
4.165 í 7.017.
45 aftökur í
Bandaríkjunum
Ályktun þar sem hvatt er til þess
að dauðarefsingar verði afnumdar
var samþykkt í atkvæðagreiðslu á
vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf
á fímmtudag. Bandaríkin vom eina
vestræna landið sem greiddi at-
kvæði gegn ályktuninni.
Amnesty sagði að 45 fangar
hefðu verið teknir af lífí í Bandaríkj-
unum á síðasta ári og að 3.150
bandarískir fangar biðu aftöku.
Alþjóðaráð lögfræðinga (ICJ)
hefur sakað bandaríska dómstóla
um tilviljanakennda dauðadóma og
misrétti gagnvart blökkumönnum.
Blökkumenn vom 40% þeirra fanga,
sem voru teknir af lífi í Bandaríkj-
unum á árunum 1973-95, og 44%
allra fanganna. Þeir eru hins vegar
um 6% íbúa Bandaríkjanna.
ÁKVÖRÐUN Helmuts Kohls, kansl-
ara Þýskalands, um að sækjast eftir
embættinu í fimmta sinn hefur vald-
ið því, að hart er lagt að jafnaðar-
mönnum að tilnefna sinn frambjóð-
anda. Ýmsir franskir stjórnmála-
menn hafa fagnað yfirlýsingu Kohls
og segja hana góðar fréttir fyrir
Evrópu og Frakkland. Samkvæmt
skoðanakönnun er þó meirihluti
Þjóðveija andvígur því, að Kohl verði
í framboði enn einu sinni.
Oskar Lafontaine, leiðtogi jafnað-
armanna, og Gerhard Schröder, for-
sætisráðherra Neðra Saxlands,
þykja líklegastir sem kanslaraefni
jafnaðarmanna en hvomgur þeirra
hafði sagt neitt um tilkynningu
Kohls þegar sólarhringur var liðinn
frá henni. Gerðu þó fréttamenn
harða hríð að þeim og framkvæmda-
stjóra flokksins, Franz Muntefering,
en hann svaraði því einu, að ákvörð-
un um frambjóðanda gæti beðið
flokksþings í apríl að ári.
Búist er við valdabaráttu innan
jafnaðarmannaflokksins vegna
framboðsmálanna en Lafontaine,
sem tapaði fyrir Kohl 1990, hefur
traust fylgi í flokknum en þýska
millistéttin hefur ímugust á honum.
Er því öfugt farið með Schröder en
hann á aftur undir högg að sækja
meðal eigin flokksbræðra.
Blendin ánægja
Flokksbræður Kohls, kristilegir
demókratar, CDU, hafa fagnað
ákvörðun leiðtoga síns en ýmsir
ungir menn í flokknum láta þó að
því liggja, að persónulegur stuðning-
ur þeirra við Kohl taki ekki til allra
stefnumála hans. Sumir þessara
„órólegu unglinga", frammámenn
kristilegra demókrata í samband-
slöndunum, sem hafa gagnrýnt Kohl
fyrir að hika við nauðsynlegar um-
bætur í skatta- og lífeyrismálum,
sögðu, að fiokknum væri mikill vandi
á höndum fyrir kosningamar á
næsta ári.
„Þær mega ekki verða til, að þess-
um málum verði ýtt til hliðar. Jafn-
vel í aðdraganda kosninga verða
flokkar að ræða stefnumótun í brýn-
ustu málunum," sagði Giinther Ott-
inger, þingflokksformaður CDU í
Baden-Wurttemberg, og Peter Miill-
er, þingflokksformaður CDU í Saar,
sagði, að nú yrði Kohl að veita
flokknum meiri forystu og taka
meiri þátt í umræðum um þær um-
bætur, sem óhjákvæmilegar væru.
Það besta og versta
„Orrahríðin er byijuð“ var aðal-
fyrirsögnin í Bild, stærsta dagblað-
inu, en hrifningin var fremur lítil í
öðrum fjölmiðlum. „Kohl vill halda
áfram en hver vill Kohl?“ spurði
Abendzeitung í Miinchen og í Ex-
pæss í Köln var fyrirsögnin þessi:
„Ó, þú feiti Kohl.“ Berliner Zeitung
sagði ákvörðun Kohls það besta og
það versta, sem fyrir CDU gat kom-
ið.
„Með Kohl getur flokkurinn gert
sér vonir um kosningasigur og neytt
jafnaðarmenn til róttækra breytinga
en framboð hans mun hins vegar
tefla enn fyrir umbótum, sem eru
fyrir löngu orðnar tímabærar,“ sagði
blaðið.
Ýmsir franskir stjórnmálamenn
og margir fjölmiðar fögnuðu ákvörð-
un Kohls og sögðu hana tryggja
þátttöku Þjóðveija í væntanlegu
myntbandalagi og Jacques Chirac,
forseti Frakklands, hrósaði ákvörð-
un hans í heillaóskaskeyti, sem hann
sendi kanslaranum, en Kohl varð 67
ára í fyrradag.
í skoðanakönnun, sem WDR-sjón-
varpsstöðin lét gera eftir að Kohl
hafði tilkynnt um ákvörðun sína,
töldu 53%, að hann ætti ekki að
fara fram aftur; 34% voru því hlynnt
og 13% svöruðu ekki. Kváðust 40%
telja, að framboð hans myndi skaða
CDU í næstu kosningum en 37%,
að það myndi auka sigurlíkur hans.
Schröder efstur
Þegar spurt var hveijum fólk
treysti best til að stýra Þýskalandi
á þessum erfíðu tímum, nefndu að-
eins 25% Kohl en 31% Gerhard
Schröder. Lafontaine nefndu 16%.
Er spurt var um æskilegan fram-
bjóðanda jafnaðarmanna nefndu
59% Schröder og 23% Lafontaine
og hjá kjósendum jafnaðarmanna
voru hlutföllin 60% á móti 30%
Schröder í vil.
í könnuninni var einnig spurt um
fylgi flokkanna og fengu jafnaðar-
menn 40%, CDU 35%, græningjar
12% og fijálsir demókratar 5%.
CHEVROLET SUBURBAN
Aðeins ein
sýningarhelgí
SYNUM
BENSÍN 0G DÍSEL LAUGARDAG 0G
SUNNUDAG KL14-17.
KYNNUM EINNIG NYJAN CHEVROL