Morgunblaðið - 05.04.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 21
'
i
I STUTT 1
Sáttatónn
í Tyrkjum
TYRKNESKA stjórnin lýsti í
gær yfir því að hún bæri fullt
traust til þýska réttarkerfisins.
Skeytin hafa gengið á milli
tyrkneskra og þýskra stjórn-
valda að undanförnu vegna
íkveikja í húsum tyrkneskra
innflytjenda í Þýskalandi, sem
Tyrkir segja til marks um ekki
sé gripið til aðgerða gegn vax-
andi andúð á Tyrkjum. Þjóð-
veijar hafa vísað þessu á bug,
og segja að flest bendi til þess
að síðasta íkveikjan á heimili
Tyrkja í Þýskalandi hafi verið
verk heimilisföðurins.
Afnema um-
deild lög
PERÚSKA þingið samþykkti
á fimmtudag, með yfirgnæf-
andi meirihluta, að fella úr
gildi lög frá árinu 1924 sem
kveða á um að nauðgari kemst
hjá refsingu, kvænist hann
fómarlambinu. Lét þingið und-
an þrýstingi ýmissa kvenna-
samtaka sem kröfðust þess að
hin úreltu lög yrðu felld úr
gildi, þar sem nauðgarar
neyddu fórnarlömb sín oft til
að giftast sér, svo að þeir
kæmust hjá refsingu.
Ritskoðun af-
létt í Serbíu
SERBNESKA stjórnin kynnti
í gær fmmvarp til laga, sem
hún segir að taka eigi gildi í
maí og aflétti þeim hömlum
sem verið hafi á tjáningar-
frelsi fjölmiðla. Serbneska
stjórnarandstaðan hefur þrýst
mjög á um að ritskoðun verði
aflétt, sem verður væntanlega
raunin, verði lögin samþykkt
óbreytt.
Hvatt til
kjarnorku-
vopnabanns
FUNDUR samtaka óháðra
ríkja (NAM) hófst í Nýju De-
hli í gær, en hann sækja full-
trúar yfir 100 þjóða. Hvatti
utanríkisráðherra Indlands,
Inder Kumar Gujral, fulltrú-
ana til að hvetja kjarnorku-
veldin fimm til að eyða öllum
kjarnorkuvopnum þeirra. Ind-
veijar eru hins vegar eina rík-
ið sem neitar að undirrita sátt-
mála um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Eiturlyfja-
smyglari
hálshöggvinn
JÓRDANI var í gær hálshögg-
vinn í Saudi-Arabíu fyrir að
smygla heróíni til landsins. Er
hann 20. maðurinn sem Saudi-
Arabar hafa líflátið á árinu
fyrir eiturlyíjasmygl.
Góð aðókn á
stíðssýningu
YFIR 90.000 manns hafa séð
sýningu í Miinchen um stríðs-
glæpi Þjóðverja í heimsstyij-
öldinni síðari. Er ástæðan fyr-
ir góðri aðsókn talin hörð
mótmæli nýnasista og annarra
sem telja rangt farið með
i sögulegar staðreyndir. Á sýn-
ingunni kemur fram að ekki
aðeins nasistar, heldur einnig
* óbreyttir þýskir hermenn voru
sekir um stríðsglæpi.
ERLENT
Verkalýðsfélög á Spáni snúast gegn meintum „árásum“ sljórnvalda
Aðgerðir til varn-
ar menntakerfinu
Mala^a. Morgunblaðið.
TVO stærstu verkalýðsfélög Spán-
ar hafa ákveðið að hefja aðgerðir
til að veija menntakerfið gegn því
sem þau telja vera „aðför“ stjómar
Jose Maria Aznar, forsætisráð-
herra landsins.
Verkalýðsfélögin tvö, UGT og
CCOO, eru hin langstærstu í land-
inu en einnig munu taka þátt í
aðgerðum þessum landssamtök
námsmanna og Landssamband
foreldra skólabarna. Félögin tvö
hafa löngum tengst stjórnarand-
stöðunni á Spáni, kommúnistum
og Sósíalistaflokknum, PSOE, sem
hélt um stjórnartaumana frá 1982
allt þar til í fyrra er hægri menn
mynduðu stjórn eftir nauman sigur
í þingkosningum.
Þrengt að ríkisskólunum
Verkalýðsfélögin boða til að-
gerðanna til að veija ríkisrekna
menntakerfið gegn meintum
„árásum" stjórnvalda. Talsmenn
þessara tveggja landssambanda
segja að hægri menn hygli einka-
reknum skólum á kostnað hinna
ríkisreknu í þeim tilgangi að koma
hinum síðarnefndu á kaldan klaka
þannig að þeir geti ekki tryggt
nemendum menntun í sama gæða-
flokki og þeir sem eru í einkaeigu.
Af þessum sökum séu einkaskólar
t.a.m. teknir fram yfir hina ríkisre-
knu þegar fjármunum sé úthlutað.
í þessum tilgangi hefur verið
boðað til mótmælaverkfalls þann
24. þessa mánaðar í þeim tíu
héruðum Spánar sem lúta stjórn
menntamálaráðuneytisins í
Madrid. Fimm héruð, þ.ám. Ba-
skaland, Katalónía og Andalúsía,
sem njóta meiri sjálfstjómar, hafa
sjálf umsjón með menntakerfínu
og þurfa því ekki að taka við fyrir-
mælum frá miðstjórninni í Madrid.
í þessum héruðum verður hins
vegar boðað til fjöldafunda og
mótmælaganga.
Gert er ráð fyrir að aðgerðirnar
nái hámarki 17. maí þegar verka-
lýðsfélögin hyggjast efna til mót-
mælagöngu um Madrid.
ÍSLANDSþÚSUND ÁB
í fyrsta siim d ísiandi hefur horfiim heiimif forfedraana,
sem sóttu björ^ í bó ó opmim ófaskipum, vefid kvikmYudaduf.
Vélsíjórafélag íslands og Sparisjóður vélstjóra hvetja fólktil að koma og sjó hverju vélvœðingin
hefur komið til leiðarí íslenskum sjóvarútvegi.
Myiid fyrir alki fjölskYldimo.
Handrit, klipping og stjórn. Erlendur Sveinsson. Kvikmyndataka: Sig. Sverrir Pólsson. Leikmynd: Gunnar Baldursson. Hljóð: Þórarinn Guðnason, Sigfús Guðmundsson.
Þulur: Vilhelm G Kristinsson. Leikendur: Gunnar Leósson, Jarþrúður Ölafsdóttir o.fl. Framleiðandi: Kvikmyndaverstöðin.
Umsagnir gagnrýnenda:
.Fróðleg, óhrifamikil og vel gerð mynd, sem lýsir ekki bara horfnum
vinnubrögðum heldur arfleifð okkar.' *** ÓHT Rós 2, 26. 3. 97
„Þegar horft er ó þessa óhugaverðu, góðu kvikmynd, þó skilur maður betur
þegar gamla fölkið segir að Itfsbaróttan hafi verið ólíkl harðari óður fyrr.
fslands þúsund ór er gefandi kvikmynd fyrir alla þó sem óhuga hafo ó lífi
forfeðra okkar. Það er hverjum íslendingi hollt að sjð islands þúsund ðr, myndin
Sýningartími: 60 mín.
snertir þjóðarsólina, hún sýnir inn I horfinn heim sem oft var hœttulegur en
lífsnauosynlegur í harðbýlu landi." HK DV, 26. 3. '97
.Rcetur þjóðar. Islands þúsund ór er ekki aðeins fróðleg og merkileg heimild,
heldur nostrar smekkmaðurinn Erlendur við alla þœtti, störa sem smða. Erlendur
er starfinu vaxinn eins og óður hefur sannast. Tœknilega er Islands þúsund ór
ógœtlega unnin og Sigurður Sverrir skrósetur af listfengi, ekki síst örveröld
órabótsins í tröllslegu umhverfi.' SV Mbl., 25.3. '97.
Áii í ötíjurð
Eftir hlé er 4. hluti Verstöðvarinnar íslands endursýndur en nú í nýju samhengi.
Handrit, stjórn: Erlendur Sveinsson. Kvikmyndataka, klipping: Sig. Sverrir Pólsson. Sýningartími: 70 mln.
sýriin^txr! Hoskólobíó lau^arclcx^ sunnucla^ k). 14:30,
Myndirnar verða sýndar ófram. Fylgist vel með bíóauglýsingum Morgunblaðsins.
Heimildarmyndirnar íslands þúsund ór og Ár í útgerð sýna glöggt forsendur nýsköpunarinnar,
þegar vélaraflið tók við hlutverki óra og segla.
4
Vélstjórafélag Íslands
1$
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
kosta þessa auglýsingu
Leikin heimildarmynd um sjósókn fyrri alda. Sjálfstœttframhald
Verstöðvarinnar íslands.