Morgunblaðið - 05.04.1997, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
t*aá sem hug-
unnn girnist
ívar Páll brá sér í búðaráp og lét fallega hluti fanga augað. Hann
komst að því að mjúkar línur virðast allsráðandi í hönnun og ekki laust
vlð að hún minni á gamla tíma. Ljósmyndir tók Kristinn Ingvarsson.
PACO-lamplnn frá
Flos - Hannaður af
Rodolfo Dordoni fæst í
Casa Mörkinni 3 og
kostar
PAUL Smltti -
Gleraugnaum-
gjarðir hans
minna um
margt á sjötta
áratuginn og
fást íAuganu,
Kringlunni.
Efri umgjörðin
erá 19.150 kr.
og sólgleraugun
kosta 15.700 kr.
Draumurinn um hús
DRAUMSTAFIR Kristjáns Frímanns
í DRAUMI sérhvers manns er
hús; bústaður til langframa eða
íverustaður um stundarsakir. Það
getur verið opinber bygging eða
persónulegt kúluhús, torfbær eða
höll, fullbúið eða hálfkarað. Húsið
er ímynd dreymandans og sýnir
með tákni sínu eðli hans, sálrænan
vöxt, geðslag og líkamlegt atgervi
á hverjum tíma. Utlit og innviðir
segja til um andlegt og líkamlegt
ásigkomulag en húsgögn og munir
um sálræna fyllingu, þó táknin geti
skipt um ham og leikið önnur hlut-
verk. Það sem gerist á efri hæðum
og í risi má samsvara höfði, hálsi
og efra brjóstsvæði þar sem
draumar tengdir andlegum svið-
um, hugmyndum, geði og sál ger-
ast helst. I risinu er vegur vitund-
arinnar breiðastur, varðaður upp-
finningum og listrænum kennileit-
um sem hvíslast frá ýmsum skons-
um og vistarverum innsæis um
vinnustofur skapandi krafta og
geymslur sálrænna eiginleika í
helg vé andlegrar forsjálni. Leiðin
niður liggur um stiga eða lyftur
sem segja mikið um lífsferð dreym-
andans, en þaðan er farið um stof-
ur og svefnherbergi þar sem
draumar sambanda og tengsla við
aðra opinberast og skynjun dreym-
andans á honum sjálfum kristall-
ast. Þar er spurningum um ást og
kynlanganir svarað sem og
lífspursmálum. Eldhús og búr sýna
heilsu líkamans og almennt tíðar-
far tilfinninga. Forstofur, dyr,
hurðir og gluggar vísa til öryggis
sjálfs og sálar en einnig afstöðu til
annarra og sýnar á tilveruna.
Kjallarinn er verustaður fornra
minna; þar geta draummenn rakið
ættir sínar og sögu, fitlað við bæld-
ar kenndir og fiskað upp eiginleika
til bættra samskipta innri og ytri
manns. Draumurinn getur svo tek-
ið sig til og snúið öllu þessu við og
ruglað mann gjörsamlega í ríminu
en fyrmefnd skipting er samt al-
gengust.
Draumar lesenda
Draumurinn notar einskonar
hjástíls (súrrealisma) klippitækni
til að koma boðum sínum á fram-
færi, það er að segja, hann bland-
ar raunverulegum hlutum úr ólík-
um áttum á þann hátt að útkoman
verður óraunveruleg upplifun eða
fjarstæðukennd en samt „raun-
veruleg". Þetta er ekki ólíkt og í
kvikmyndum þar sem nýjustu
tölvutækni er beitt með teiknifor-
ritum til að auka á skynhrif áhorf-
andans og brengla raunveruleik-
ann, sem dæmi má nefna mynd-
irnar Mask og Casper. I eftirfar-
andi draumum er svipuð tækni
viðhöfð en áhrif fjölmiðla á
draumalífið geta snúið á draum-
svefninn í öflugum myndhrifum
sínum og gert mönnum erfiðara
um vik að greina kjarnann frá
hisminu.
Tyeir draumar
„ísjaka“
Dreymt í október 1996.
„Ég var óboðinn gestur í sæ-
dýrasafni. Það var búið að loka
safninu en ég fór samt að höfr-
ungalauginni. Þar var bara einn
höfrungur sem gaf frá sér venjuleg
höfrungahljóð, samt skildi ég allt
sem hann sagði. Ég stóð á bakkan-
um í rauðum sundbol og svörtum
strigaskóm, mér fannst ég vera 11
ára. Höfrungurinn bað mig um að
bjarga sér en ég þorði ekki út í, þá
hoppaði hann upp og kyssti mig (?)
og ég fór í laugina og við syntum
um og gerðum kúnstir. Þetta var
óeðlilega gaman en þá kom örygg-
isvörðurinn og dró mig upp úr.
Hann var reiður og skammaði mig,
en ég skildi hann illa, því hann tal-
aði tungumál sem ég kannaðist
ekki við. Þó vissi ég að það væri ís-
lenska. Hann ætlaði að henda mér
út en þá hoppaði höfrungurinn á
mig og ég féll á stéttina og hruflaði
hnén. Nú lá höfrungurinn á stétt-
inni og það þurfti að koma honum
út í vatnið, allt í einu varð ég gífur-
lega sterk eins og Lína Langsokk-
ur og bar hann út í laugina án þess
að blása úr nös. Vörðurinn gapti og
starði á mig en ég ætlaði ekki að
fara.“
Dreymt í febrúar 1997.
„Ég var heima hjá mér inni í
herbergi, það var bankað á glugg-
ann. Úti var lítill strákur sem í
draumnum bjó á þriðju hæðinni.
Hann spurði mig hvort ég gæti
hjálpað sér að losa leikfangabyssu
sem hann hafði fest í snjónum, ég
sagði já, og ég kæmi bráðum.
Mamma kíkti út og við urðum báð-
ar vitni að því sem við héldum að
væri Ragnarök (tortíming al-
heims). Við urðum skelfingu lostn-
ar og hlupum inn í sjónvarpsher-
bergi. Pabbi lá í sófanum, systir
mín var þarna líka og við sögðum
frá atburðunum. Pabbi var ekkert
hræddur en ég sótti páfagaukinn
minn og setti búrið á símastólinn.
Þá var mér hugsað til drengsins
með leikfangabyssuna og var viss
um að hann væri dáinn. Eg fór út
en sá hann ekki en tók eftir að
flugvél hafði farið í gegnum blokk-
ina við hliðina og mikil sprenging
orðið (Ragnarökin?). Tveir blaða-
menn með hatta sem á stóð „The
Press“ stóðu fyrir neðan á
bílaplaninu og spurðu um vitni, ég
sagðist hafa séð þetta og þeir vildu
tala við mig. Allt í einu hélt ég á
tveim fjólubláum fjöðrum og hreyfi
þær upp. Blaðamennimir biðja mig
að hætta þessum fíflaskap og koma
niður og svara nokkrum spurning-
um en ég spurði á móti hvort allt
fólkið væri dáið og þeir svöruðu
játandi."
Mynd/Kristján Kristjánsson
IHUSI draums míns.
Ráðning
Fyrri draumur þinn „Isjaki“ er
undir miklum áhrifum fjölmiðla,
þar sem þú notar myndir úr sjón-
varpsþáttum og kvikmyndum til að
koma innri boðskap þínum á fram-
færi, þetta gerir drauminn rugl-
ingslegri til ráðningar. En á bak
við tjöldin er draumurinn að tala
um vissa erfiðleika sem þú átt í
samskiptum (þú skildir varla ör-
yggisvörðinn) við aðra, skilningi á
eigin þörfum (sundbolurinn, skórn-
ir og aldurinn) og tjáningarleið
(höfrungamál). Þetta skapar
tregðu til tjáskipta (þorðir ekki útí,
í óleyfi) og bælingu sjálfsins.
Draumurinn heldur svo áfram og
gefur í skyn að eitthvað krefjandi
(þú dettur á gangstéttina og hrufl-
ar þig) þurfi að gerast til þess að
þú takir á öllu þínu (sterk eins og
Lína Langsokkur) og snúir fram-
angreindu ferli við.
Seinni draumurinn áréttar þann
fyrri um vissa innri erfiðleika. Litli
drengurinn er þinn Animus eða
draummaður (hann bjó á þriðju
hæð, hæð hjartans) og hann vill
koma því á framfæri að bæling sál-
arinnar leiði til innri tortímingar
(tortímingar „innri“ alheims),
hrapi andans (flugvélin sem fórst)
og lífið verði eins og hjá „fugli í
búri“. Drengurinn bað þig að hjál-
pa sér að losa leikfangabyssu. sem
sat föst í snjónum, það bendir til að
erfiðleikarnir sem draumarnir tala
um séu ekki eins erfiðir og sýnist,
blaðamennirnir í draumnum ýta
undir þetta sem bendir til að leið til
losunar hafta sé opin tjáskipti
(hreinsun/fólkið sem dó). Igrundir
þú sjálfa þig og afstöðu þína til
annarra, muni snjórinn í hjartanu
bráðna, andinn taka flugið með trú
á hið góða (fjólubláu fjaðrimar,
fjólublátt er litur æðri tiúar) og
bældar tilfinningar (fólkið sem dó)
hverfa.
Draumur „Glóu“
„Mig dreymdi að ég var að horfa
á hægri hönd mína og sé að ég er
með 7-8 fingur á hendinni.
Aukafingurnir voru litlir eða van-
skapaðir. Einn aukafingur var í lóf-
anum ofarlega og tókst mér að ná
honum af (mér fannst eitthvað
óeðlilegt við þessa fingur og reyndi
því að ná þeim af), því hann var
laus og virtist ekki hafa fest rætur.
Ég reyndi einnig að ná fingri af við
þumalfingurinn en hann var pikk-
fastur með ræturnar."
Ráðning
Draumurinn talar um að þér sé
margt til lista lagt (aukafingurnir
7-8) og afkastageta þín sé mikil, en
líka að þú vanmetir hæfileika þína
(litlir fmgur og vanskapaðir) og
getu til framkvæmda. Aukafingur-
inn í iófanum og fingurinn við þum-
alinn virðast skipta sköpum og
gefa það í skyn að ræktir þú þessa
vannærðu hæfileika (sem þú virðist
þegar byrjuð á því fingurinn við
þumalinn hafði fest rætur) verðir
þú loðin um lófana í fleiri en einum
skilningi.--------------------
•Þeir lesendur sem viljil fd drnumn sfnn
birtn og ráðnn sendi þn mcð fullu nnfni,
fæðingnrdcgi og ári ásnmt heimilinfnngi
og dulnefni til birtingnr til:
Drnumstnfir
Morgunblnðið
Kringlunni 1