Morgunblaðið - 05.04.1997, Side 32
32 LAUGARDAGUR 5. APRÍL1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 33 •.
JlltfgtiiiÞlafrife
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
PRENTARAFELAG
ALDARGAMALT
SUNNUDAGINN 4. apríl 1897 stofnuðu 12 prentarar
Hið íslenzka prentarafélag í þeim tilgangi „að efla
og styrkja samheldni meðal prentara á íslandi; að koma
í veg fyrir að réttur vor sé fyrir borð borinn af prent-
smiðjueigendum; að styðja að öllu því, er til framfara
horfir í iðn vorri, og að svo miklu leyti sem hægt er að
tryggja velmegun vora í framtíðinni". Hið íslenzka prent-
arafélag, en arftaki þess er Félag bókagerðarmanna,
varð þvi 100 ára í gær.
Prentlist á íslandi á sér langa sögu. Um 1530 flutti
Jón Arason biskup á Hólum inn til landsins prentsmiðju
frá Þýzkalandi, upphafslandi prentlistar í heiminum, þar
sem Jóhannes Guthenberg hafði um hálfri öld áður fund-
ið aðferð til að prenta bækur með lausaletri í pressu.
Með henni kom til landsins fyrsti íslenzki prentarinn,
séra Jón Matthíasson, sem nefndur var hinn sænski.
1534 kom út latnesk handbók fyrir presta, elzta rit, sem
vitað er að prentað hafi verið á Islandi.
Stéttarvitund efldist mjög á síðari hluta síðustu aldar
og þar kom að slík hreyfing barst til Islands. Prentarar
voru meðal þeirra, sem fyrstir stofnuðu stéttarfélag og
voru löngum í forystu meðal starfsstétta í kjarabaráttu.
Þeir stóðu fast á kröfum sínum og voru t.d. fyrstir til
að fá viðurkenndan 8 stunda vinnudag.
Gífurleg tæknibylting hefur orðið í prentlist, handsetn-
ing er nú svo til horfin og þunglamalegar blýsetningavél-
ar. Tölvuöldin hefur algjörlega umbylt prentlistinni á
svo skömmum tíma, að enn eru fjölmargir prentarar að
störfum, sem í raun lærðu upphaflega allt aðra iðn.
Meðan á þessum byltingatímum stóð, fjölgaði félögum
bókagerðarmanna, unz þau sameinuðust að nýju í núver-
andi samtökum þeirra, Félagi bókagerðarmanna, árið
1980.
Fullyrða má, að prentarar hafa tekið mjög skynsam-
lega á hinni miklu tölvubyltingu, sem gjörbreytt hefur
þeirra daglegu störfum. Þeir hafa þróast með breyting-
unum og tileinkað sér nýja tækni í stað þess að streit-
ast gegn framþróuninni. Fyrir það eiga þeir mikið lof
skilið. Morgunblaðið, sem í áratugi hefur haft í þjónustu
sinni hundruð prentara, óskar þeim til hamingju með
afmælið og óskar þeim alls hins bezta á nýrri öld fram-
fara í prentiðnaði.
MANNRÉTTINDABROT
í RÚSSLANDI
SKÝRSLA mannréttindasamtakanna Amnesty Int-
ernational um pyntingar í Rússlandi varpar skugga
á viðleitni stjórnar Jeltsíns forseta til að gera Rússland
að lýðræðis- og réttarríki.
Þegar Rússland fékk aðild að Evrópuráðinu í janúar
á síðasta ári skuldbundu rússnesk stjórnvöld sig til að
gerast aðilar að mannréttindasáttmála Evrópu, sem
bannar m.a. pyntingar. Skýrsla Amnesty International
sýnir hins vegar að lítið hefur orðið um efndir. Fjöldi
manna er enn beittur grimmilegum pyntingum í fangels-
um Rússlands, í gæzluvarðhaldi hjá lögreglu og í hernum.
Aðstæður í rússneskum fangelsum eru sömuleiðis svo
slæmar að Amnesty segir það „jafngilda pyntingum".
Samtökin greina frá því að fangar hafi látizt vegna
þrengsla, súrefnisleysis og skorts á hreinlæti. Það segir
sína sögu að eftir að rússnesk stjórnvöld hættu aftökum
vegna skuldbindinga sinna gagnvart Evrópuráðinu, báðu
sumir dauðadæmdir sakamenn um að fá að deyja frekar
en að þurfa að þola fangelsisvist.
Skýrsla Amnesty hlýtur að verða tilefni harðrar gagn-
rýni á vettvangi Evrópuráðsins og á þingi þess, þar sem
margir fulltrúar höfðu á sínum tíma efasemdir um að
Rússland væri í stakk búið til að uppfylla þær skuldbind-
ingar, sem fylgja aðild að ráðinu. Vonandi tekst að nota
ráðið sem tæki til að þrýsta á Rússa að gera hreint
fyrir sínum dyrum hið snarasta. Vilji Rússland láta líta
á sig sem evrópskt lýðræðisríki verða stjórnvöld að grípa
í taumana og axla ábyrgð á ástandi mannréttindamála
í landinu.
Nýleg skipulagstillaga
um tvöföldun
Reykjanesbrautar
Urriðakots-/"
Hafnárfj
Urridakotsvatn
Setþerg \
Vatnshjíð
Iðja o g rafiðnaðarmenn hjá RARIK felldu samninga
Niðurstaðan kem-
ur forystumönn-
um ekki á óvart
KJARASAMNINGUR Raf-
iðnaðarsambandsins og
Ráfmagnsveitu ríkisins
var felldur með miklum
meirihluta, en almenni samningur
RSI við vinnuveitendur og samningur
við rafiðnaðarmenn hjá ríkinu voru
samþykktir með 80% atkvæða. Kjara-
samningar Iðju við vinnuveitendur
voru felldir alls staðar á landinu nema
í Hveragerði og Sauðárkróki. Yfir
72% þeirra sem greiddu atkvæði hjá
Iðju í Reykjavík sögðu nei.
Rúmlega 50% þátttaka var í at-
kvæðagreiðslunni hjá Iðju í Reykja-
vík. 212 eða 27,3% sögðu já, en nei
sögðu 561 eða 72,3%. 3 seðlar voru
auðir. Samningarnir voru sömuleiðis
felldir á Akureyri og hjá 12 af 14
deildum í verkalýðsfélögum úti um
allt land. Aðeins Iðjufélagar hjá Boð-
anum í Hveragerði og Öldunni á
Sauðarkróki samþykktu samninginn.
„Þetta er niðurstaða sem ég átti
von á. Eftir að við sömdum fór af
stað atburðarás sem var með þeim
hætti að ég gat varla ímyndað mér
annað en að þetta yrði fellt. Það sem
skipti sköpum var fundur í stóru
samninganefnd Dagsbrúnar og
Framsóknar sem felldi samning sem
var sambærilegur okkar samningi.
Samningurinn sem félögin undirrit-
uðu viku síðar var með nokkuð hærri
tölum og öðrum samningstíma og því
þótti mér einsýnt að þetta yrði fellt
hjá okkur,“ sagði Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Iðju.
Guðmundur sagði að samninga-
menn Iðju hefðu átt fund með vinnu-
veitendum í fyrradag og ekki væri
útilokað að frá nýjum samningi yrði
gengið á fundinum. Það lægju fyrir
drög að samningi sem hann hefði
fengið grænt ljós á að undirrita hjá
samninganefnd félagsins. Samnings-
drögin gerðu ráð fyrir að gildistíminn
yrði til ársins 2000, en ekki 1999
eins og fyrri samningur. Þá gerðu
þau ráð fyrir sömu launahækkunum
og aðrir hefðu samið um. Breytingar
á vinnutíma yrðu háðar samþykki
starfsmanna á hveijum ----------
vinnustað fyrir sig.
Vinnuveitendur
viðbúnir
Þórarinn sagði að sér
kæmi ekki á óvart að ................
samningurinn við Iðju hefði verið felld-
ur. „Eftir að samningar voru gerðir
við VMSÍ, sem voru gerðir til ársins
2000, hálfu ári lengra en Iðjusamning-
urinn og með hærri launabreytingum,
Fundur hjá
Dagsbrún og
Framsókn
skipti sköpum
voru brostnar forsendur fyrir Iðju-
samningnum. Þegar hann var gerður
benti allt til þess að VMSI og fleiri
félög ófaglærðra myndu ekki vilja
semja lengra en til haustsins 1999.
Þegar það breyttist og samið var um
meiri bækkanir var eðlilegt af hálfu
Iðju, að hafna þessari samningsniður-
stöðu. Við höfum því þegar tekið upp
viðræður um breyttan samning og ég
vænti þess að við getum leitt það til
niðurstöðu í fyrramálið."
Þórarinn sagði að það hvarflaði
ekki að sér að þessi niðurstaða hefði
áhrif á atkvæðagreiðslur um aðra
kjarasamninga sem nú eru að hefjast.
Ágreiningur um ferða-
og fataskiptagjald
128 greiddu atkvæði um samning
--------- Rafiðnaðarsambandsins
við RARIK eða 93% þeirra
sem voru á kjörskrá. 39
eða 30,4% sögðu já, 86 nei
eða 67,2% og 3 seðlar voru
auðir eða ógildir.
' Atkvæði voru talin um
tvo aðra samninga RSÍ í gær. 518
greiddu atkvæði um almennan samn-
ing RSÍ við VSÍ og Vinnumálasam-
bandið, en 1.263 voru á kjörskrá. 418
sögðu já eða 80% og 95 nei eða 19%. ■
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐMUNDUR Þ. Jónsson, formaður Iðju, og Gylfi Arnbjörnsson,
hagfræðingur ASÍ, bera saman bækur sínar í samningastappinu.
5 skiluðu auðu. 72 greiddu atkvæði
um samning RSÍ við fjármálaráðu-
neytið, en 140 voru á kjörskrá. 57
sögðu já eða 80% og 15 nei eða 20%.
Við gerð kjarasamnings RSI við
RARIK voru gerðar talsverðar breyt-
ingar á launakerfinu og dagvinnu-
taxti hækkaður um tæplega 30%.
Færð voru inn í dagvinnulaun hluti
af starfsaldurs- og stjórnunarálögum.
Einnig var fært inn í dagvinnutaxta
svokallað ferða- og fataskiptagjald.
Meðaltals upphafshækkun var liðlega
5% en hún var yfir 13% hjá þeim
launalægstu hjá fyrirtækinu.
Samskonar breyting var gerð á
öllum fastlaunakerfum í kjarasamn-
ingum Rafiðnaðarsambandsins. Hjá
öðrum en RARIK hefur ferða- og
fataskiptagjald verið greitt út með
launum en hjá RARIK hefur vinnu-
vikan verið stytt sem því nemur. Við
. kynningu á samningnum kom í ljós
að mjög skiptar skoðanir voru meðal
starfsmanna á því hvernig ætti að
túlka breytingar á tímaskrifum vegna
þess að ferða- og fataskiptagjaldið
var fært inn í dagvinnutaxtann og
gat haft veruleg áhrif á hver raun-
veruleg launahækkun yrði. Kom það
til vegna þess að útfærslan var mjög
mismunandi á starfssvæðum RARIK.
Samninganefndir RSÍ og VSÍ hitt-
ast á morgun til að ræða þessa stöðu.
Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSl,
sagði að ágreiningur væri
um mjög afmarkað mál
sem snerti ferða- og fata-
skiptagjald. Hann sagðist
telja góðar líkur á að menn
myndu komast að samkomulagi um
málið á morgun og verkfalli yrði þar
með frestað.
Guðmundur Gunnarsson, formað-
ur Rafiðnaðarsambandsins, var ekki
eins bjartsýnn á að deilan leystist
fljótt. Mjög þung orð hefðu fallið um
málið á síðustu dögum. Hann sagði
að úrslit atkvæðagreiðslu um al-
menna samninginn og samninginn
við ríkið hefðu verið eins og hann
bjóst við. Hann benti á að RARIK-
samningurinn og samningurinn við
ríkið væru eins, en þeir hefðu verið
túlkaðir með mismunandi hætti og
það hefði ráðið úrslitum í atkvæða-
greiðslunni.
Atkvæðagreiðslur um aðra
samninga að hefjast
Mjög mismunandi er hvernig félög-
in standa að atkvæðagreiðslu um
nýgerða samninga. Sum félög eru
með opinn kjörfund þar sem félags-
menn koma og greiða atkvæði. Önnur
eru með póstatkvæðagreiðslu þar sem
atkvæðaseðill er sendur til félags-
manns og hann sér síðan um að koma
honum til skila.
Ef um póstatkvæðagreiðslu er að
ræða skiptir þátttaka í atkvæða-
greiðslunni ekki máli varðandi niður-
stöðuna. Ef atkvæði eru greidd á kjör-
fundi eða félagsfundi verða a.m.k.
20% félagsmanna að taka þátt í at-
kvæðagreiðslunni. Ef þetta lágmark
næst ekki telst samningurinn sam-
þykktur óháð því hvað margir sögðu
já eða nei.
Atkvæði eru greidd í hveiju félagi
fyrir sig í flestum félögum. Samkvæmt
vinnulöggjöfinni eiga samningsaðilar
að koma sér saman um tilhögun at-
kvæðagi-eiðslu. Vinnuveitendur ósk-
uðu eftir því að hvert landssamband
léti telja atkvæði úr einum potti, en
þau höfnuðu því. Atkvæði um samning
Samiðnar við ríkið og
Reykjavíkurborg verða þó
talin úr einum potti.
Dagsbrún og Framsókn
láta greiða atkvæði á kjör-
fundi. Það sama á við um
Hlíf í Hafnarfirði og
Viðrædur
þegar hafnar
um breyttan
samning
FRÚ Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Svanur Jóhannesson, heið-
ursfélagi Félags bókagerðarmanna, Sæmundur Árnason, formað-
ur FBM, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands.
„Ekkert er göfugra
en gott handverk“
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur. Eining á Akureyri og Verka-
lýðsfélag Húsavíkur viðhafa hins veg-
ar póstatkvæðagreiðslu. Það sama á
við um Félag jámiðnaðarmanna.
BOKAGERÐARMENN fögnuðu í
gær hundrað ára afmæli samtaka
sinna með veglegri afmælishátíð
í Borgarleikhúsinu. í kvöld verð-
ur hátíðarkvöldverður og dans-
leikur á Hótel Sögu. Dagana
22.-29. apríl nk. verður haldin
prentminjasýning í Ráðhúsi
Reykjavíkur í samvinnu við Ár-
bæjarsafn, síðar á árinu verður
gefið út frímerki í tilefni afmælis-
ins og sitthvað fleira hafa bóka-
gerðarmenn á prjónunum.
Svanur Jóhannesson, nýkjörinn
heiðursfélagi Félags bókagerðar-
manna, afhenti forseta íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni nýút-
komið afmælisrit og stéttartal
bókagerðarmanna í 400 ár. Stétt-
artalið, sem Þorsteinn Jónsson
ættfræðingur tók saman, er í
tveimur bindum og hefur að
geyma æviskrár 2.200 bókagerð-
armanna. Höfundur afmælisrits-
ins, sem ber nafnið „Samtök
bókagerðarmanna í 100 ár,“ er
Ingi Rúnar Eðvarðsson félags-
fræðingur. Bækurnar eru gefnar
út af forlaginu Þjóðsögu og
prentaðar í Odda.
Forsetinn þakkaði gjöfina sem
hann sagði að færi beint í bók-
hlöðuna á Bessastöðum, sem hefði
að geyma fjölmarga dýrgripi sem
félagsmenn hafa unnið að. Þá
afhenti Georg Páll Skúlason,
varaformaður Félags bóka-
gerðarmanna, Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarsljóra
afmælisritið og stéttartalið. Borg-
arstjóri minnti á að menningar-
saga borgarinnar væri samofin v
sögu prentara og raunar iðnaðar-
manna almennt og um leið og hún
þakkaði framlag bókagerðar-
manna til sögu Reykjavíkurborg-
ar sagði hún að sér þætti ekkert
göfugra en gott handverk.
Sem tákn um liðna tíma færði
Lúðvík Geirsson, formaður
Blaðamannafélags íslands, bóka-
gerðarmönnum áletraða blýstöng
og þakkaði traust og gott sam-
starf félaganna í hundrað ár, en
Blaðamannafélagið fagnar ein-
mitt aldarafmæli í lok þessa árs.
Sæmundur Árnason, formaður
Félags bókagerðarmanna, sagð-
ist í samtali við Morgunblaðið
vera geysilega ánægður með af-
mælishátíðina og það hversu
margir sáu sér fært að mæta í
Borgarleikhúsið. „Mér þykir dá-
lítið merkilegt og skenimtilegt
hvað það eru mikil ættartengsl í
röðum bókagerðarmanna, hér sér
maður feður, syni og dætur,
tengdadætur og jafnvel barna-
börn, sem öll starfa í faginu,“
sagði Sæmundur.
Hann kvaðst sannfærður um
að félagið ætti eftir að breyta um
nafn í samræmi við breytta tíma
í faginu. „Ég myndi telja eðlilegt
að í framtíðinni yrði til einhvers
konar fjölmiðlasamband, þar sem
í væru blaðamenn, teiknarar,
hönnuðir og hreinlega allir þeir
sem vinna við prentmiðlana. Ég
tel að það sé verkefni næstu hund-
rað ára að stuðla að slíku sam-
bandi.“
Vegagerð og Garðabær um lagningu Reykjanesbrautar eða gerð Ofanbyggðarvegar
EIRÍKUR Bjarnason, bæjar-
verkfræðingur í Garðabæ,
segir að bæjarstjóm Garð-
arbæjar leggist gegn því
að Reykjanesbraut verði lögð sem
Ofanbyggðarvegur í Hafnarfirði með-
fram Urriðakotsvatni eða í gegnum
önnur viðkvæm útivistarsvæði. „Við
sjáum ekki að Reykjanesbrautin sé
eitthvað verr sett í gegnum Hafn-
arfjörð en í gegnum Reykjavík, Kópa-
vog eða Garðabæ. Hún skiptir alls
staðar byggð, það eru ekkert aðrar
aðstæður í Hafnarfirði en í hinum
bæjarfélögunum," segir hann.
Eiríkur segir að sjónarmið Garðbæ-
inga séu fyrst og fremst þau að úti-
vistarsvæði verði ekki eyðilögð með
Ofanbyggðarveginum og einnig hitt
að sá vegur muni fá sáralitla umferð
vegna þess að umferð á leið suður
úr endi mestöll í Hafnarfirði. „Það
er ekki gert ráð fyrir nema 7.500
bíla sólarhringsumferð sunnan Hafn-
arfjarðar í fullbyggðu höfuðborgar-
svæðinu þannig að 30.000 bíla um-
ferð er að langmestu leyti til Hafnar-
fjarðar. í reiknilíkani umferðar, sem
hefur verið keyrt fyrir höfuðborgar-
svæðið, fær þessi svokallaði Ofan-
byggðarvegur sáralitla umferð," segir
Eiríkur Bjarnason.
Fjallvegur eða jarðgöng
Hann sagði að teiknaður hefði ver-
ið vegur ofan byggðar upp í um það
bil 80 metra hæð, sem væri sama
hæð og Breiðholtið lægi í. Þá væri
bara upplandið fyrir ofan með ótak-
mörkuðu fóðri til að skafa ofan I
veginn á veturna. Á hinn bóginn
hefðu heyrst hugmyndir um að gera
6-800 metra jarðgöng. Sá veguryrði
betri en margfalt dýrari „og hann fer
í gegnum byggt svæði í Hafnarfirði,
ef ég man rétt.“
Eiríkur sagði að nú væri vinna við
endurskoðun aðalskipulags Garða-
bæjar á lokastigi. Þar væri því ekki
haidið opnu að í Ofanbyggðarveginn
væri ráðist. „Hins vegar er spurning
hvort Skipulgsstjórn ríkisins setur
einhvern fyrirvara.“
Morgunblaðið/Ásdís
BEKKURINN var þétt setinn í Borgarleikhúsinu
á afmælishátíð Félags bókagerðarmanna í gær.
Aldarafmæli samtaka bókagerðarmanna
Fjallvegnr eða jarðgöng
annars eina lausnin?
Bæjarverkfræðingur í Garðabæ segir að það
séu ekki aðrar aðstæður í Hafnarfírði en í
öðrum sveitarfélögum þar sem Reykjanes-
brautin skiptir byggð. Talsmaður Vegagerð-
arinnar segir að Vegagerðin geti ekki horft
upp á að tvö sveitarfélög staðfesti aðalskipu-
lag þar sem vegir standast ekki á.
„Vandinn í þéttbýlissveitarfélögum
er sá að menn eru alltaf að skipu-
leggja ofan í samgönguæðamar og
svo vakna menn upp við vondan
draum að samgönguæðarnar tmfla
byggðina," sagði Eiríkur. „Þess
vegna er áríðandi að menn geri sér
grein fyrir því löngu áður hvar sam-
gönguæðarnar eiga að vera og haga
skipulaginu með tilliti til þess.“
Guðmundur Arason, forstöðumað-
ur umhverfis- og skipulagsmála hjá
Vegagerðinni, sagði að Vegagerðin
teldi að áfram þyrfti að liggja stofn-
braut frá Garðabæ suður á Suðurnes.
Urriðakotsvatn
„Hafnfirðingar hafa
verið í hálfgerðum vand-
ræðum með þessa stefnu
Vegagerðarinnar og þeir
settu fram skipulagstillögu
Vegirnir
verða settir í
umhverfismat
fyrir
nokkrum árum þar sem þeir gerðu
ráð fyrir að þessi stofnbraut lægi
ofan byggðar í Hafnarfirði. Þetta
þýðir þá að hún þyrfti helst að koma
niður með Urriðakotsvatni en Vega-
gerðin mótmælti á þeirri forsendu að
það yrði ekki séð hvar stofnbraut
gæti komið annars staðar en á núver-
andi stað.“
Guðmundur sagði að segja mætti
að sú staða væri enn uppi en undan-
farið hefði Vegagerðin unnið að því
með tæknimönnum Hafnaríjarðar-
bæjar að koma þessum vegi á núver-
andi stað í stofnbrautarhorf svo að
unnt yrði að keyra þar um með 80
km/klst hraða um mislæg gatnamót
svo að þeir sem væru á
leið eftir Reykjanesbraut
suður á Suðurnes þyrftu
hvergi að stöðva.
Eins og fram hefur
- komð í Morgunblaðinu
gerir hin nýja aðalskipulagstillaga
Hafnaríjarðarbæjar, sem kallað hefur
á mótmæli íbúa í Setbergshverfi, ráð
Flóðahjalli
Syftiholt
N
%
Skipulagstillaga sem gerð var
fyrir nokkrum árum gerir ráð
fyrir stofnbraut sem liggur ofan
byggðar í Hafnarfirði
fyrir að þrjú hús og bensínstöð Esso
við Lækjargötu þurfí að víkja fyrir
tvöfaldri Reykjanesbraut með mis-
lægum gatnamótum og miðeyju, en
Guðmundur kvaðst telja að umhverfi
annarra bygginga í hverfinu ætti
ekki að versna mikið. „Að vísu aukum
við umferðarhraðann og því fylgir út
af fyrir sig svolítið meiri umferðar-
hávaði en í staðinn losna
menn við bið á ljósum og
loftmengun af því.“
Vegir sem standast
ekki á
Guðmundur sagði að Vegagerðin
hefði þó ekki endanlega fallið frá hug-
myndum um Ofanbyggðarveg „en við
getum ekki horft upp á að tvö sveitar-
félög staðfesti hvort sitt skipulagið og
vegimir standist ekki á á bæjarmörk-
um. Það er eiginlega svo einfalt.
Garðabær stefnir að því að leggja fram
skipulag þar sem stofnvegurinn liggur
þar sem núverandi Reykjanesbraut
liggjir og inn í Hafnarfjörð við Kapla-
krika. Meðan Hafnfírðingar sam-
þykkja ekki að þessi vegur verði stofn-
braut hlýtur Ofanbyggðarvegur að
vera uppi á borðinu."
Guðmundur sagði að ef Hafnfirð-
ingar samþykktu þær tillögur sem
nú væm fram komnar um að Reykja-
nesbraut verði stofnbraut verði Of-
anbyggðavegurinn ekki byggður
nema sem tengibraut.
Ákvörðun um framkvæmdir á þess-
um stað væri þó langt undan og sú
hönnunarvinna sem nú hefði verið
innt af hendi væri til að sýna mönnum
hvað þetta gæti haft í för með sér
fremur en það að fyrir lægju tillögur
að mannvirkjum. Hins vegar gætu
liðið innan við 10 ár þar til farið yrði
að breyta núverandi vegi sem liggur
I brekkunni við Kirkjugarð Hafnfírð-
inga en þar er hljóðvistarástandið
verst, að sögn Guðmundar, „og miklu
verra en í þessu nýja hverfí."
Um það hvað gerist ef Hafnfírðing-
ar samþykkja enn ekki Reykjanes-
braut sem stofnbraut sagði Guð-
mundur Arason að þá gæti það gerst
að báðir vegirnir - Ofanbyggðarveg-
urinn og vegurinn samkvæmt skipu-
lagstillögunni - yrðu settir í umhverf-
ismat og þá yrði væntanlega annarri
hvorri leiðinni hafnað. „Þá er spum-
ingin hvort yrði talið þyngra á metun-
um hagsmunir þessara íbúa, sem að
mínu mati versnar ekki ástandið hjá
yfírleitt, eða náttúruverndarsjónarm-
---------- ið við Urriðakotsvatn."
Guðmundur sagði að
þótt Urriðakotsvatn lægi:
Garðabæ hefði fólk sem
býr í Hafnarfirði mikil ítök
þar og því væri ekki víst
að verndun Urriðakotsvatns yrði ein-
göngu mál Garðbæinga ef þar að
kæmi.
Brautin skipt-
ir ails staðar
byggðinni