Morgunblaðið - 05.04.1997, Side 61

Morgunblaðið - 05.04.1997, Side 61
f MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 61 MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVARP * MYNDBÖND Góður húmor Stóra blöffið (The Great White Hype)___ Gamanmynd ★ ★ Framleiðandi: 20th Century Fox Leikstjóri: Reginald Hudlin. Hand- ritshöfundur: Tony Hendra og Ron Shelton. Kvikmyndataka: Ron Garcia. Tónlist: Marcus Miller. Að- alhlutverk: Samuel L. Jackson, Jeff Goldblum, Peter Berg og Damon Wayans. 99 mín. Bandaríkin. 20th Cent. Fox/Skífan 1996. Útgáfudagur: 24. mars. SÉRA Fred Sultan er umboðs- maður svartra hnefaleikara, og ger- ir hvað sem er til að komast yfir meiri peninga. Þegar áhuginn á íþróttinni dvínar grefur hann upp eina hvíta manninn sem hefur sigr- að þungavigtarmeistarann. Nú hefst mikil auglýsingaherferð, og allir bíða spenntir eftir leiknum. Astæðan fyrir því að svona stór nöfn fengust til að leika í þessari mynd, er eflaust að húmorinn er góður, og hand- ritið hefur lík- lega verið mjög skemmtilegt af- lestrar. Hins vegar vantar sterkari áherslur í leikstjórnina, þannig að Jackson og Goldblum ná því varla að verða sannfærandi per- sónur. Fíflagangur á köflum eyði- leggur einnig fyrir annars góðum efniviði. Þetta er grínmynd með ádeilutóni á trúgirni og dýrkun Kanans á allt sem er „showbiz", og dýrkun stjarnanna á eigin stór- fengleika. Hér er ekkert nýtt á ferð- inni, en myndin er fín afþreying ef maður er í skapi til að líta fram hjá ýmsum göllum. Hildur Loftsdóttir. Anthony Edwards færir út kvíamar ANTHONY Edwards, sem sjónvarpsáhorf- endur þekkja scm lækninn Mark Gre- ene í Bráðavakt- inni, hefur stofnað eigið framleiðslu- fyrirtæki. Fyrir- tækið heitir Aviat- or en Edwards segir nafnið til- komið vegna mik- ils flugáhuga. Hann stendur ekki einn að fyrirtæk- inu og hefur sér til halds og trausts ANTHONY Ed- wards ætlar að leik- stýra og leika í „Us Belongs to You“. æskuvininn Dante Di Loreto sem er framleiðandi. Fyrsta verkefni þeirra félaga er rómantíska gaman- myndin „Us Belongs to You“. Edwards ætlar að leikstýra myndinni auk þess að leika aðalhlutverkið á móti Jenny Sea- grove. Sögusvið myndarinnar er London og eiga tökur að hefjast í júní. Fúlmennið Harrelson ►WOODY Harrelson og Elisa- beth Shue ætla að leiða saman hesta sína í sakamála- myndinni „Palmetto“. Hún segir frá góðum manni sem ákveður að verða illmenni. Michael Rapaport og Chloe Sevigny ætla einnig að fara með hlutverk í myndinni. Það er Castle Rock kvikmyndafyrirtækið sem framleiðir myndina. WOODY Harrelson iimim íslensk list falleg gjöf og vinsæl Gallerí MÍÐAR§§ SKAKT Skólavörðustíg l6a Sími 561 4090 MYNDBOND SÍÐUSTU VIKU Eyðandinn (Eraser) k ★ 'h Sporhundar (Bloodhounds) k Glœpur aldarinnar (Crime ofthe Century) ★ ★ ★ 'A Próteus (Proteus) k Svaka skvisa 2 (Red Blooded 2) k 'h Bardagakempan 2 (Shootfighter 2) k Ást og skuggar (OfLove and Shadows) ★ ★ Stolt Celtic - liðsins (Ceitic Pride) ★ ★ 'h Töfrandl fegurð (Stealing Beauty) kkk Eyja Dr. Moreau (The Island ofDr. Moreau) k 'h I hefndarhug (Heaven’s Prisoner) ★'A Skriftunln (Le Confessionai) kkkk Margfaldur (Multiplicity)’k k 'h Hættuleg ðst (Sleeping With Danger) k Draumar og brimbretti (Blue Juice)-k k Draumurlnn um Broadway (Manhattan Merengue) I nunnuklaustri (Changing Habits) ★ ★ Morðstund (A Time to Kill)-k ★ ★ Ibúð Joe (Joe’s Apartment) 'k'h Alaska (Alaska) ★ ★ Tryggingasvlndl (Escape CIause)-k k 'h Drðpskrukkan (The KillingJar)k 'h Ellismellir enn á ferð WALTER Matt- hau og Jack Lemmon eru að undirbúa fram- hald af „The Odd Couple". í fram- haldinu ferðast þeir saman I brúðkaup bama sinna. Ellismell- imir tveir hafa ekki gefið upp JACK Lemmon hvort þriðja „Grumpy Old Men“ myndin er væntanleg. LAUGARDAGSMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVAINIIMA ROBIN Williams - hófstillingin uppmáluð. Grafalvarlegur grínisti ROBIN Wiiliams er lygilega ólíkur Robin Williams í Njóttu lífsins (Seize The Day, 1986, Stöð 2 ►21.00), sem byggð er á ágætri sögu Nóbelshöf- undarins Sauls Bellow. Hann leikur þar Tommy Wilhelm, miðaldra mann sem misst hefur líf sitt í vaskinn og leitar hjálpar vel stæðs föður síns og braskara eins. í þessu erfíða hlutverki tekst Williams að forðast yfír- spenntan persónulegan leikstíl sinn og nær trúlega sínum besta árangri bæði fyrr og síðar í hnitmiðaðri, innlifaðri túlkun. Aðrir leikarar eru líka afar sterkir, Joseph Wiseman sem kaldlyndur faðir, Jerry Stiller sem svindlarinn, svo dæmi séu tekin. Vönduð mynd, vel leikin og vel gerð, sem af einhveijum ástæðum hefur ekki farið mikið fyrir, trúlega þeim að hún er framleidd utan við Hollywood-kerfið. Leikstjóri Fielder Cook. kkk'h Laugardagur Sjónvarpið ►21.40 Óskarsverð- launað handrit Bos Goldman leikur sér meistaralega með það sem er sannsögulegt og það sem er bara sögulegt í myndinni Melvin og Howard (Melvin andHoward, 1980), um hugsanlegan fund hvers- dagsmannsins Melvins Dummar og auðmannsins Howard Hughes. Tví- ræð og meinhæðin sýn á amerískt þjóðfélag undir öruggri stjórn Jon- athans Demme. Aðalhlutverk Jason Robards, Paul LeMat og Mary Ste- enburgen, sem sýnir bráðskemmti- legan - og Óskarsverðlaunaðan - leik. ★ ★ ★ Sjónvarpið ►23.15 Synir Kötu ElderfSons ofKate Eld- er, 1965).Þokkalegur en ekki frum- legur vestri um fjóra kúreka undir forystu Johns Wayne að hefna móður sinnar. Henry Hathaway leikstjóri skilar bærilegri skemmt- un. ★ ★ 'h Stöð 2 ► 15.00 Gamla góða fjöl- skyldutíkin Lassie lifír góðu lífí í Lassí (Lassie, 1994), prýðilega heppnaðri og fallegri afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Leikstjóri DanielPetrie. kkk Stöð2 ►21.00-Sjáumfjölluní ramma. Stöð 2 ►22.40 Michael Caine gerði það gott á 7. áratugnum í hlutverki hins svala njósnara Harr- ys Palmer í þremur myndum byggð- um á sögum Lens Deighton; sú fyrsta og besta var The Ipcress File. Nú hefur verið gerð tilraun til að blása lífí í stirðnaðan leikferil Caines með því að vekja Palmer aftur til lífsins. í Lestin til Peking (Bullet to Beijing, 1995) er Palmer, rétt eins og Caine, á lausum kili eftir lok kalda stríðsins en býðst nýtt verkefni, í Rússlandi. Mér er með öllu ókunnugt um árangurinn af þessari endurreisn þeirra beggja. Leikstjóri er George Mihalka. Stöð 2 ►00.20 Aldingarðurinn góði hefur breytt um svip í framtíð- arhasarnum Hin nýja Eden (New Eden, 1994), því myndin gerist á róstusamri fangaplánetu þar sem hinir vondu og hinir góðu berast á banaspjótum. Stephen Baldwin og Lisa Bonet eru Adam og Eva fram- tíðarinnar og sé hún í þeirra hönd- um lýst mér ekki á blikuna. ★ 'h Sýn ►21.00 Engar umsagnir finnast um sjónvarpsmyndina í fót- spor Flynns (In LikeFlynn, 1985) um starfskonu bókaútgáfu sem er sjálf einn af metsöluhöfundum hennar undir dulnefni. Árni Þórarínsson. Vilt þú gerast SKIPTINEMI í ÞÝSKALANDI næsta skólaár? Nánari upplýsingar á skrifstofu AFS á íslandi, Laugavegi 26, sími 552 5450. • Vilt þú öðlast dýrmæta reynslu sem endist þér ævilangt? • Vilt þú auka þekkingu þína, sjálfstraust og víðsýni? Nokkur sæti laus til Þýskalands, Bandaríkjanna og S-Ameríku með brottför í ágúst. Ef þú ert 16-18 ára, hafðu þá samband eftir helgi og fáðu nánari upplýsingar. AfS Á ÍSL4NDI Alþjóðleg fræðsla og samskipti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.