Morgunblaðið - 09.04.1997, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikið er lagt upp úr þægindum í grunnbúðunum á Everest-fjalli
Geng-u yfir djúpar
sprungur Khumbu
Everest-faramir eru
búnir að koma upp öðr-
um búðum í 6.100
metra hæð. Áður þurftu
þeir að fara yfír hrika-
legan Khumbu-skrið-
jökulinn. í honum
em sprungur sem em
allt að 10 metrar á
breidd og margir tugir
metra á dýpt.
VIÐ lögðum af stað kl. 6 í
morgun og var stefnan
sett upp Khumbu-ísfallið
og upp í búðir 2. Eftir
um klukkutíma gang komum við að
fyrstu sprungunum sem brúaðar
voru með stigum. Við höfðum æft
okkur áður í að skríða yfír stigana
en ákváðum nú að karlmannlegra
væri að reyna að labba yfir þá á
mannbroddunum. Við vorum
óöruggir yfir fyrstu stigana en eftir
því sem stigunum fjölgaði batnaði
tækni okkar og á endanum hægðu
stigamir lítið á okkur, þrátt fyrir
að sumar sprungurnar væru margir
tugir metra á dýpt og allt að þrír
til fjórir stigar væru bundnir saman
til að ná á milli sprungubarmanna.
Leiðin var stórfengleg og þræðir hún
fram og aftur um jökulinn og endar
í um 26 m slútandi jökulstáli þar
sem búið er koma fyrir löngum stiga
svo hægt sé að komast upp.“
Þetta er lýsing íslensku Everest-
faranna á ferðinni yfir Khumbu-
skriðjökulinn. „ísfallið er enn stór-
kostlegra en við höfðum gert ráð
fyrir. Veröldin þama er mögnuð.
Sprungurnar í jöklinum eru allt upp
í 10 metra breiðar og algeng breidd
er 5-8 metrar," sagði Bjöm Ólafs-
son, einn leiðangursmanna, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Bjöm sagði að ferðin upp hefði
gengið vel. Hún hefði tekið rúmlega
fjóra klukkutíma. Hann sagðist
finna það að íslendingamir byggju
yfir mikilli reynslu af göngu við
þessar aðstæður því að aðrir leiðang-
ursmenn hefðu verið að fara þessa
ferð á 8-10 tímum.
Leiðangursmenn sendu stærstan
hluta farangursins á und- ---------------
an sér til Nepal í fimm Hljómflutn-
tunnum. Tafir urðu á toll- ingstækin
afgreiðslu tunnanna og mikid notuð
þær fóru því síðar af stað
en þeir vonuðust eftir.
Pyrstu tvær tunnumar komu til
FJALLGÖNGUMENNIRNIR nota álstiga til að komast yfir sprungurnar í Khumbu-skriðjöklinum.
Sumar sprungurnar eru svo breiðar að binda þarf stigana saman til að þeir nái yfir.
í fjallið á föstudagsmorgun. Við
reiknum með að sofa í öðmm búðum
í þijár nætur. Það ræðst af veðri
og aðstæðum hvað við fömm hátt
í þessum áfanga. Það hefur snjóað
talsvert í fjallinu að undanfömu, en
við ætlum okkur að koma upp þriðju
búðum í 6.500 metra hæð og förum
svo aftur niður í gmnnbúðir," sagði
Bjöm.
Lífið í búðunum
í pistli Everestfaranna, sem finna
má á alnetinu (http://www.mbl.
is/everest), fjalla þeir m.a. um lífið
í grunnbúðunum.
„Nú er nokkuð um liðið síðan við
komum hingað í gmnnbúðir' og lífið
hér er að komast í fastar skorður.
Hér em gmnnbúðir kallaðar Base
Camp á öllum tungumálum, allt frá
indónesísku og japönsku til norsku
(og jafnvel íslensku í ógáti). Gmnn-
búðir eru staðsettar rétt neðan við
Khumbu-ísfallið sem steypist úr
Vesturdal á milli Everest og Nuptse
1.000 m niður og myndar þar
Khumbu-skriðjökulinn sem nær
15-20 km niður eftir dalnum. Búð-
imar standa því á jökli. Yfírborðið
er óslétt og mikið um hæðir og lægð-
ir en það sem setur fyrst og fremst
svip á svæðið er gijótið, stórir og
litlir steinar sem þekja búðasvæðið
og gera það að verkum að engu er
líkara en tjaldað sé í urð. Það er
því mikil vinna að gera hér tjald-
stæði, bæði þarf að ryðja burt gijóti
og líka að höggva stalla í ísinn. Til
þess dugir ekkert minna en haki og
skófla. Það er mikið álag
á lungun að reyna svo
mikið á sig þegar aðlög-
unin er ekki fullkomin.
Það er líka vita vonlaust
að
þeirra í gær og þeir vonast eftir að
hinar komi í dag. Poki með orku-
dufti í annarri tunnunni hafði
spmngið og duft dreifst í bækur,
fatnað, sólaráburð og fleira. Tals-
verður tími fór því í að þvo og
hreinsa búnaðinn.
í dag halda sherpamir, sem em
innfæddir aðstoðarmenn leiðangurs-
manna, trúarhátíð sem vestrænu
fjallgöngumennimir fylgjast með.
„Það kemur munkur frá einu
klaustri sherpanna og blessar allt
og farið verður með bænir. Við tök-
um þátt í þessu og föram síðan upp
vegna þess að þá eiga menn minni
möguleika á að komast upp og svo
hitt að í yfir 5.000 m hæð er líkam-
inn mun lengur að ná sér eftir veik-
indi en við sjávarmál.
Góður matur
hreinsa tjaldstæðið
alveg af gijóti og egghvassir smá-
steinar eiga það til að stingast í
gegnum botninn á tjaldinu og
sprengja loftdýnurnar okkar.
Við höfum verið að bæta aðstöð-
una hér undanfarna daga. Hér var
risið eldhústjald og lítið matar- og
samkomutjald þegar við komum.
Við settum svo upp svefntjöldin, sem
em öll tveggja manna vetrartjöld, í
hólunum í kring. Hér er risið tjald
með fmmstæðri sturtu og kamar-
tjald. Hreinlæti er mjög mikilvægt
hér sem annars staðar. Það er mikil-
vægt vegna þess að menn mega
helst ekki verða veikir hér. Bæði
Við borðum þrisvar á dag, morg-
unverður er kl. 7-8, hádegisverður
er kl. 12 og kvöldverður er kl. 18.30.
Þessir tímar breytast fyrir þá sem
eru að fara upp í fjall en þeir leggja
af stað á tímabilinu 4-6. Maturinn
er góður. Áður en evrópski maturinn
fór að koma hingað í smáskömmt-
um, því hann lenti í tollavandræðum
eins og dótið okkar, náðu snilling-
amir í eldhústjaldinu samt að galdra
fram frábæran mat úr fábreyttu
hráefni. Núna er hins vegar allt til
alls hér og varla til sú matartegund
sem ekki er hægt að fá nema sæl-
gæti sem ekki á fulltrúa hér. Mikil-
vægt er að drekka mikið, því mikill
vökvi tapast við aukna öndun. Því
em hér alltaf sneisafullir brúsar af
heitu tei, bæði hvítu og svörtu, heitt
sítrónuvatn með sykri, orkusafí og
kaffi.
Hér í búðunum er lítil rafstöð, sem
notuð er til lýsingar og hleðslu á
hinum ýmsu rafeindatækjum svo
sem talstöðvum, símum og tölvum
og öðmm búnaði sem þarf til að
koma pistli af þessu tagi heim á
Frón. Ekki má þar gleyma ferða-
hljómflutningstækjunum í matar-
tjaldinu en það er sífellt umræðuefni
hvaða diskur eigi að fara í þau
næst. Reyndar komumst við að því
eftir að við vomm búnir ---------
að steikja tvo straum-
breyta að litla Hondan
okkar sem ekki lætur mik-
ið yfir sér framleiddi 370
V en ekki 220 V eins og
lög gera ráð fyrir. Sem betur fer
getum við snúið okkur að sólarork-
unni.
Þægindin nauðsynleg
Menn undrast kannski hversu
mikið er á sig lagt að hafa þægind-
in svona mikil. Á því em tvær skýr-
ingar. Sú fyrri er að menn em lengi
að heiman og varla hægt að ætlast
til að búið sé við frumstæðustu úti-
leguskilyrði allan tímann. Hin skýr-
ingin og sú mikilvægari er að fjall-
göngumennirnir leggja mikið á sig
hér ofar í fjallinu og koma oft ör-
magna niður, lystarlitlir og hvíldar-
þurfi. Það tekur langan tíma að ná
upp þreki aftur í þessari hæð og þá
skiptir öllu máli að allar aðstæður
og matur séu þannig að menn hress-
ist fljótlega, bæði líkamlega og ekki
síður andlega. Það er líka hætt við
að ef ekki er hægt að hlakka til þess
í kulda, roki og súrefnisleysi ofar í
fjallinu að komast í eitthvað betra
í gmnnbúðum, að menn hreinlega
gefist upp og fari heim.
Skjálfa í svefnpokunum
Veðrið hefur verið heldur leiðin-
legt síðan við komum. Hér er oft
bjart fram eftir morgni en svo fer
að þykkna upp og svo snjóar gjam-
an seinni partinn. Veturinn er ekki
búinn, en vorið nálgast og þá vænk-
ast okkar hagur. Hitastigið skríður
ekki upp fyrir frostmarkið á daginn
og fer niður í 15-20 stiga frost á
nóttunni. Við emm því orðnir lang-
eygir eftir fjallabúnaðinum okkar,
vetrarsvefnpokunum, dúnúlpum og
dúnbuxum. Þangað til það kemur
látum við okkur hafa það að sofa í
dúnsumarpokunum, sem gefnir era
upp fyrir 10 stiga frost. Það er ekk-
ert annað en að skjálfa sér til hita.
Við fömm snemma í háttinn, um
20 og vöknum kl. 7 nema þegar
farið er upp í fjall. Þegar klifrarar
em hér í gmnnbúðum líður dagurinn
við lestur, stúss í kringum búnað
og aðstöðu, skriftir og ófáir tímar
fara í að horfa upp í ísfallið hér
rétt fyrir ofan. Þar er mannskepnan
lítil og öfluga sjónauka þarf til að
eygja hvað þar er að gerast. Því
—----------------- miður sést hátindur Ever-
Átta leiðangr- est ekki héðan úr búðun-
ar á leið á um- Hann er hulinn sjón-
Everest um ves*-uröxl Everest
sjálfs. Hér er hins vegar
mjög gott útsýni yfir
Nuptse, ísfallið eins og áður segir
auk ótal annarra tinda hér í kring.
Hér er líka fjölskrúðugt mannlíf, því
hér á svæðinu em a.m.k. 8 leiðangr-
ar á Everest auk 2ja-3ja á Lhotse.
Það væri auðvitað skemmtilegast
að hafa fjallið alveg fyrir okkur en
um það er ekki að ræða því hæsta
fjall heims er takmark sem margir,
bæði einstaklingar og þjóðir, hafa
sett sér og því margir um hituna.
En við hugsum ekki um það. Öll
einbeitingin beinist að því að leysa
þau verkefni og erfiðleika sem upp
koma í okkar leiðangri og komast,
ef guð og gæfan lofar, á toppinn."
Hermaður
dæmdur
fyrir árás
ákonu
BANDARÍSKUR hermaður á
fertugsaldri var dæmdur til
þriggja ára fangelsisvistar í
bandarísku herfangelsi á
mánudag fyrir herdómstóli,
fyrir afbrot sem hann framdi
meðal annars hér á landi.
Hann var einnig lækkaður
í tign, úr stöðu liðþjálfa niður
í stöðu óbreytts, auk þess sem
hann verður rekinn úr herþjón-
ustu með skömm þegar fang-
elsisvist hans lýkur.
Lögmaður sá sem sat í for-
sæti dómsins kom hingað til
lands frá Bandaríkjunum en
aðrir dómarar voru tilnefndir
úr röðum varnarliðsins.
Þvinguð til meinsæris
Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa þvingað íslenska
konu sem kærði hann fyrir lík-
amsárás, til að fremja mein-
særi þegar réttað var yfir hon-
um fyrir um ári. Þá breytti
hún framburði sínum að hans
undirlagi, með þeim afleiðing-
um að hann var ekki sakfelld-
ur.
Hann var einnig sakfelldur
fyrir að hafa hundsað skipanir
yfirmanns síns um að halda
sig frá umræddri konu, að
hóta henni þrívegis og ráðast
á hana með líkamsmeiðingum
tvívegis. Hann var hins vegar
sýknaður af fjómm öðrum
kærum um árás á hendur kon-
unni.
Maðurinn var í tygjum við
íslensku konuna, sem er á þrí-
tugsaldri, en þegar brestir
komu í það samband beitti
hann hana fyrrgreindum hót-
unum og ofbeldi.
Dæmdur fyrir
framhjáhald
Hermaðurinn var kvæntur
og hlaut einnig dóm í fyrradag
fyrir að hafa haldið fram hjá
konu sinni. Samkvæmt banda-
rískum herreglum er framhjá-
hald refsivert, á þeim forsend-
um að geti hermaður ekki ver-
ið trúr maka sínum sé óvíst
að hann geti verið trúr yfir-
boðurum sínum og landi.
Maðurinn var dreginn fyrir
bandarískan herdómstóll sam-
kvæmt ósk bandarískra yfir-
valda, sem óskuðu eftir lög-
sögu yfir honum þegar kærur
konunnar komu fram í dags-
ljósið. Reikna má með að dóm-
urinn sem hann hlaut í fyrra-
dag sé mun þyngri en hefði
verið réttað yfír honum hjá
íslenskum dómstól.
Fastafulltrúi
í Strassborg
SVEINN Björnsson sendiherra
mun taka við störfum fasta-
fulltrúa íslands hjá Evrópu-
ráðinu í Strassborg um næstu
mánaðamót af Sverri Hauki
Gunnlaugssyni, sendiherra í
París. Sverrir Haukur gegnir
áfram störfum sendiherra í
París með tilheyrandi umdæm-
um.
Ákveðið hefur verið að setja
á stofn íslenzka fastanefnd í
Strassborg, en til þessa hefur
sendiherrann í París verið
fastafulltrúi hjá Evrópuráðinu,
auk þess sem sendierindreki
hefur verið á staðnum.
Stofnun fastanefndar teng-
ist því að ísland tekur við for-
mennsku í ráðherranefnd Evr-
ópuráðsins árið 1999 og vara-
formennsku á næsta ári.