Morgunblaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Myndasýning frá Græn- landi og Færeyjum MYNDAKVÖLD Ferðafélags ís- lands verður á miðvikudagskvöldið 9. apríl í félagsheimilinu í Mörk- inni 6. Fyrir hlé mun Jón Viðar Sig- urðsson jarðfræðingur sýna mynd- ir og segja frá ferð sl. sumar um afskekktar slóðir í norðvesturhluta Grænlands. Sagt verður frá gönguferð um eyjuna Nuugaatsiaq sem er norðan við Uummannaq og einnig siglingu norður til veiði- mannaþorpsins Kullorsuaq sem er 900 km norðan við heimskauts- baug. Eftir hlé sýnir Ágúst Guð- mundsson jarðfræðingur myndir víða að frá Færeyjum, bæði frá dvöl sinni þar á síðastliðnu sumri og frá árinu 1983. Kaffiveitingar verða í hléi en myndakvöldið hefst kl. 20.30 og eru allir velkomnir. Ferðafélagið efnir til göngu- ferðar á Suður-Grænland 8.-17. júlí og Færeyjaferðar 4.-12. júní. Upplýsingablöð fást á skrifstof- unni. Ferðafélagið minnir á heilla- óska- og áskriftalista vegna af- mælisrits Ferðafélagsins, Ferða- bók Konrads Maurens, en hægt verður að skrá sig á myndakvöld- inu. Næstkomandi sunnudag hefst raðganga í tilefni 70 ára afmælis Ferðafélagsins, gengið verður um Valhúsahæð og Suðurnes. Vinningar í Happdrætti Slysavarnafélags íslands Utdráttur 4. apríl 1997 Opel Vectra station 2.0I kr. 2.220.000 165302 Opel Astra station 1.61 kr. 1.540.000 125095 Opel Corsa 3ja dyra 1.41 kr. 1.120.000 6942 Lúxusferð f. 2 til Asíu kr. 400.000 37727 50914 Ferð f. 2 í 2 vikur til Mallorka eða Benidorm kr. 150.000 428 35407 53044 78242 112159 121003 132724 144510 148636 174442 13355 37226 56023 80041 112781 122831 133103 145110 149929 178572 17730 42867 59623 84900 116173 125686 139383 146751 156471 182512 21081 46073 71272 88862 118318 128184 141474 146965 158775 184355 31309 49052 75670 108854 118855 129129 141569 148550 159936 184613 Ferð f. 2 í 3 vikur til Mallorka eða Benidorm kr. 190.000 6516 34308 51809 65380 71785 80445 97977 110001 131299 163302 6750 42485 53229 66518 77504 87505 103963 111490 147540 170108 7583 51137 55936 71723 78990 88303 105431 125443 154112 185212 Ferð f. 2 í 3 vikur til Portúgai kr. 180.000 16467 25671 39365 62198 65077 70062 110537 125284 141389 148038 19128 31109 41761 63755 66918 94519 114759 126903 141421 175981 19500 38412 51477 63953 67809 106806 124634 137079 147873 181339 Ferð f. 2 til Kúbu 13.- 18. nóvember kr. 100.000 25667 49572 62525 73856 78595 82389 87488 96159 154766 168833 46293 51245 64196 77726 81416 87351 95649 98387 158614 186273 Ferð f. 2 á haustdögum til Dublinar kr. 60.000 1163 12819 46755 61341 74290 94644 111591 134372 152345 172662 1429 13254 49676 61631 75292 99822 116443 135377 157486 180845 2813 15543 49810 67759 76283 100558 117790 137851 158796 181243 2982 22859 50438 68186 77868 101842 121829 139555 159344 182542 5548 25539 54885 69871 79711 101863 122971 141936 161418 184594 5859 26239 54909 70091 80933 102612 127291 143912 166028 184766 7626 32494 55552 70430 83983 104040 127696 146780 166164 185406 9473 35678 59306 71344 84127 107458 128032 148667 169911 186016 10837 44503 59414 72149 85080 108033 130295 149123 171225 187646 12070 46016 61009 73987 85429 109493 131139 150448 171314 188217 Ferð f. 2 til Þýskalands með siglingu á Rín kr. 145.000 3853 36049 58554 65066 77519 81288 116868 120601 125476 159569 18173 49342 64645 66649 77672 95594 118981 123275 129089 169771 Vinningar í aukaútdráttum 5., 12., 19. og 26. mars Töfrar Dublinar að verðmæti kr. 60.000,- 6714, 7347, 32756, 34565, 41469, 85789,124216,143070 Mallorka, Benidorm að verðmæti 150.000,- 15949, 59271,80814,100904: Við þökkum góðar móttökur og veittan stuðning! HAPPDRÆTTI SLYSAVARNAFÉLAGS ÍSLANDS Grandagarður 14, sími: 562 7000 I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Lyklakippur frá Vara VARI hefur frá árinu 1992 selt lyklakippur með skráningamúmeri sem eru þannig að skilvís fmnandi slíkrar lyklakippur getur látið Vara vita eða skilað henni í næsta póstkassa og berst hún honum að kostnaðarlausu til Vara. Skráningarnúmerið í gagnagranni Vara vísar svo á réttan eiganda lykla- kippunnar. VARI lætur hann vita og eigandinn getur vitjað hennar tii Vara eða til finnanda. Yfir 1200 lyklakippur bera nú merki Vara og hver sitt skráningamúmer sem í tölvuskrám Vara era skráðar á eiganda og/eða staðgengils í flarveru hans. Margar lyklakippur hafa þannig komist til skila og endurfundimir orðið til að gleðja eigendurna. Þessi gangur mála er þó því aðeins virkur að eigandi lyklakippunnar hafí skilað til Vara upplýsingum um hvert á að hringja ef lykla- kippan berst Vara. Á því er nokkur misbrestur að eigaendur lyklakippanna hafi látið Vara vita hver er eigandi hvers skráning- amúmers en þar sem þær lyklakippur týnast jafnt og aðrar, og berst með póstin- um til Vara, hafa safnast nokkrar lyklakippur sem ekki er hægt að koma til skila. eigendum Vara- lyklakippna sem nú sakna þeirra er bent á að mögu- legt er að þær hafi borist til Vara. Þeir geta hringt í Vara í síma 552-9399 til að spyijast fyrir um hvort þeirra lyklakippa hafí skil- að sér. Sá sem sannað get- ur eignarrétt sinn á þeim lyklakippum sem nú era í vörslu Vara getur fengið hana afhenta höfuðstöðv- um Vara að Þóroddsstöðum í Skógarhlíð.^ Viðar Ágiistsson, framkvæmdastjóri. Grín að biblíusögnm VELVAKANDA barst eft- irfarandi bréf: „Við heitum Atli og Védís 9 og 6 ára. Við erum á móti því að það sé verið að gera grín að biblíusög- um, að síðustu kvöldmál- tíðinni og svoleiðis vegna þess að Jesú er heilagur og góður maður og grínið, það er sýnt á almannafæri úr Spaugstofunni. Grín að Jesú er yfirleitt rangt. Okkur fannst þetta ekkert fyndið." Átli Björn Helgason og Védís Alma Jónsdóttir, Hafnargötu 3, Vogum. Tapað/fundið Blár barnaskór fannst ÞRJÚ böm úr Langholts- skóla fundu stakan bláan barnaskó nr. 21 á girðingu við Grasagarðinn þann 7. apríl. Upplýsingar í síma 553-2185. Hálsmen tapaðist HÁLSMEN tapaðist 1. apríl í Laugardalssund- lauginni, í búningsklefa eða á bílastæði. Hálsmenið er með litlum steinum.^ Skilvís finnandi vinsam- lega hringi í síma 553-2090. Karlmannshjól fannst KARLMANNSHJÓL, ný- legt, fannst við Ægissíðu sunnudaginn 6. apríl. Upp- lýsingar í síma 551-2635. Dýrahald Svartur köttur fannst á Seltjarnarnesi SVARTUR köttur með hvítar hosur og hvítt trýni fannst á Víkurströnd á Seltjarnarnesi. Upplýs- ingar í síma 561-7214 eða 568-2900. Persnesk læða tapaðist PERSNESK læða sem heitir Þóra týndist í Foss- vogsdal laugardaginn 5. apríl. Kisan er eyrnamerkt en ólariaus. Upplýsingar í síma hjá Önnu 562-3251. SKÁK Umsjón Margcir Pctursson STAÐAN kom upp á New York Open skákmótinu sem lauk um um helgina. Carlos Cuartas (2335), Kólumbíu, var með hvítt, en Patrick Wolff (2575), Bandaríkjun- um, hafði svart og átti leik. 18. - Bxg3!! 19. Dxg3 - f4 20. Dc3 — exd4 og hvít- ur gafst upp. Eftir 21. Dxd4 - Dg4+ 22. Kf2 - Df3+ 23. Kel — He8+ er orðið stutt í mátið. 57 stórmeistarar kepptu á mótinu í New York, þar á meðal fjórir íslenskir. Röð efstu manna: 1,—2. Krasenkov, Póllandi og Bologan, Moldav- íu 8 v. af 9 möguleg- um. 3.-6. Oll, Eist- landi, D. Gurevich, Bandaríkjunum, Onísjúk, Úkraínu og Ibragimov, Rúss- landi 7 v. Jóhann Hjartar- son komst upp í 7.—21. sæti með 6'A v. eftir slæma byijun á mótinu. Þeir Helgi Olafs- son, Þröstur Þórhallsson og Hannes Hlífar Stefánsson hlutu allir 5'A vinning og urðu í 47.-77. sæti. Fjórmenningarnir halda nú til Las Vegas í Nevada og tefla þar á öðru svipuðu móti um næstu helgi. ~ 1—________________ SVARTUR leikur og vinnur HÖGNIHREKKVÍSI Víkveiji skrifar... GAMALGRÓINN ÍR-ingur kom að máli við Víkveija í liðinni viku og hafði sitthvað að athuga við skrif Víkveija sl. miðvikudag, þar sem Víkveiji lýsti skíðaiðkun sinni um bænadagana og páska. ÍR-ingur- inn vildi í fyrsta lagi beina því til Víkveija og reyndar annarra, að nota ekki nafnorðið Hengiissvæði, þegar rætt væri um skíðaaðstöðu IR-inga og Víkinga í Hamragili og Sleggju- beinsskarði. Hann lagði rika áherslu á að þeir sem í áratugi hefðu byggt upp skíðaaðstöðu íþróttafélaga sinna í Hamragili og Sleggjubeinsskarði, væru viðkvæmir fyrir því, þegar menn tækju sig til og gæfu svæðinu nýtt nafn, Hengilssvæðið í þessu til- viki, sem væri rangnefni. Víkveiji reyndi að malda í móinn og sagðist m.a. hafa sínar upplýsingar af sím- svaranum í Bláfjöllum, þar sem veitt- ar eru upplýsingar um Bláfjöll, Skála- fell og Hengilssvæðið. ÍR-ingurinn svaraði að bragði, að margoft hefði verið reynt að fá umsjónarmenn Bláfjallasvæðisins til þess að leið- rétta rangnefnið, en slíkt hefði eng- an árangur borið. Raunar hélt hann því fram að þeim í Bláfjöllum væri heldur í nöp við aðstöðuna í Hamrag- ili og Sleggjubeinsskarði. EKKI var athugasemdum ÍR- ingsins lokið, þegar hér var komið sögu, heldur fékk Víkveiji orð í eyra, fyrir að hafa haldið því fram í liðinni viku, að veðrið á föstu- daginn langa hefði verið svo afleitt, að ekki hefði hundi verið út sig- andi. Kvaðst hann hafa verið í blíð- viðri á skíðum í Hamragili þennan dag, þannig að þótt ekki hafi viðrað til skíðaiðkunar í Bláfjöllum á föstu- daginn langa, hafi færi og veður verið með besta móti í Hamragili þann dag. Hér með er þessum at- hugasemdum ÍR-ingsins við skrif Víkveija komið á framfæri ogvon- andi gleymdist ekkert. XXX AÐ er eins og þjóðin geti ekki á heilli sér tekið, eftir páska- grín Enn einnar stöðvarinnar, því vart er um annað meira rætt. Vík- verji hallast þó að því, að það sé ekki allur almenningur, sem er svo upptekinn af þessum þætti þeirra Spaugstofumanna og eftirmála hans, heldur einkum þeir, sem eru fastagestir í Þjóðarsálinni - Vík- veija liggur við að nefna þann þátt „Þjóðarböl" en ekki Þjóðar- sál. Skyldu ekki margir vera þeirr- ar skoðunar, að þessi útvarpsþátt- ur hafi engu hlutverki að gegna lengur, eða jafnvel að hann hafi aldrei haft neinu hlutverki að gegna? Víkverji hefur síðustu ár ekki heyrt þáttinn nema mjög stopult og þá fyrir einskæra tilvilj- un. Þegar hann heyrir brot úr Þjóðarsálinni verður honum einatt hugsað til þess, að annað eins raus, röfl og blaður sé vandfundið - að nú ekki sé talað um persónu- legar svívirðingar og vandlætingu „hálfheilagra" manna, sem líta á sjálfa sig sem sjálfskipaða varð- hunda þjóðlífsins á öllum sviðum. Er það ekki einkennilegt, þegar hlustað er á svona spjallþætti í öðrum löndum, að þeir virðast vera á öðru og hærra plani? Það er eins og stjórnendum takist, með því að seinka örlítið á beinu út- sendingunni, að vinsa vitleysing- ana úr röðum viðmælenda úr, þannig að í flestum tilvikum kom- ist þeir aðeins í loftið, sem hafa í raun og veru eitthvað til málanna að leggja. Væri ekki ráð fyrir Þjóðarsálarmenn að kynna sér þetta „Delay-System“ svolítið?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.