Morgunblaðið - 09.04.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 15
LAIMDIÐ
Verkalýðssaga Húsavíkur komin út
Fyrir neðan
bakkann
Húsavík. Morgunblaðið.
Á DÖGUNUM kom út saga verka-
lýðshreyfingar, atvinnulífs og stjórn-
mála á Húsavík 1885 til 1985, gefin
út af Verkalýðsfélagi Húsavíkur.
Bókin heitir Fyrir neðan Bakkann.
Á 75 ára afmælisári verkalýðsfé-
lagsins 1986 var ákveðið að gefa
út sögu þess, en skriður komst ekki
verulega á málið fyrr en 1991 að
Þór Indriðason stjórnmálafræðingur
var ráðinn til að skrifa söguna.
í upphafi var ákveðið að ekki yrði
eingöngu skráð saga verkalýðsbar-
áttunnar, heldur einnig saga at-
vinnulífs og stjórnmála á Húsavík,
því að þessir þrír þættir væru svo
samofnir félaginu, að sjálfsagt væri
að skrá þá alla. Og með því að taka
þessa þijá þætti saman yrði sagan
um leið merk heimild um þá þróun,
sem átt hefur sér stað. Höfundur
skoðar og metur þá sögu í ljósi þess
sem annars staðar gerist í þjóðfélag-
inu, svo og hver áhrif stjórnvaidsað-
gerðir hafa á hveijum tíma. Hann
veltir upp ýmsum flötum, dregur
ályktanir af sem jafnframt vekja
lesandann til íhugunar um það efni
sem um er íjallað.
Ritnefnd fyrir verkinu skipuðu
Siguijón Jóhannesson, Helgi Bjarna-
son, Kári Arnór Kárason og Stefán
F. Hjartarson. Prentverk Ás-
prent/POB annaðist prentun og út-
gáfu verksins.
Formaður Verkalýðsfélagsins,
Aðalsteinn Á. Baldursson, skýrði
blaðamönnum frá útgáfu verksins,
sagði að mjög vel hefði verið vandað
til útgáfunnar og kostuðu því bindin
öll 15.000 kr. en félagar fengju þau
á 8.000 krónur og væru þau nú fyrst
aðeins til sölu á skrifstofu verkalýðs-
félagsins. Hann sagði að þakka
bæri, auk höfundar, vandað verk og
Siguijóni Jóhannessyni fyrir mikla
aðstoð við útgáfuna. Einnig vildi
hann sérstaklega þakka Pétri Jónas-
syni ljósmyndara fyrir frábæra vinnu
en hann vann allár myndir undir
prentun og hefði hann með sniíld
og nýjustu tækni gert gamlar mynd-
ir mjög skýrar, þótt þær hafi verið
teknar með lélegum tækjum og við
misjafnar aðstæður.
Þetta 1.000 blaðsíða ritsafn er
ágætt heimildarrit um sérstakan
þátt í sögu Húsavíkur og er lofsvert
framtak verkalýðsfélagsins að hafa
látið skrá þessa sögu.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
JÓN Gunnar Ottóson, forstöðumaður Náttúrustofnunnar, Þor-
varður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS, og Geir Ágústsson,
oddviti Hraungerðishrepps, virða fyrir sér veggskreytingar.
SASS í nýtt húsnæði
Selfossi - Það var margt um
manninn þegar SASS, Samtök
sunnlenskra sveitarfélaga, tóku
formlega í notkun nýtt húsnæði
á Austurvegi 56 á Selfossi.
Húsnæðið er 480 fm að stærð
og mun hýsa Heilbrigðiseftirlit
Suðurlands, Atvinnuþróunar-
sjóð Suðurlands og Skólaskrif-
stofu Suðurlands. Auk þess er í
húsnæðinu stjórnunar- og skrif-
stofuaðstaða fyrir Sorpstöð Suð-
urlands. Allar eru þessar stofn-
anir greinar af sama meiði, þ.e.
í eigu sunnlenskra sveitarfé-
laga.
BJÖRN Gíslason, bæjarfulltrúi Selfossi, Drífa Hjartardóttir, at-
orkukona frá Keldum í Rangárvallasýslu, og Sigurður Jónsson,
formaður bæjarráðs Selfoss, ræða málin við vígsluna.
Heimabyggðin Bakkafjörður
Bakkafirði - í Grunnskólanum á
Fegursta stúlka
Austurlands valin
Egilsstöðum - Fegurðarsamkeppni
Austurlands var haldin í Hótel Vala-
skjálf á Egilsstöðum sl. laugardags-
kvöld. Það voru sex stúlkur sem
kepptu um titilinn Fegurðardrottn-
ing Austurlands.
Sú sem titilinn hreppti heitir Þor-
gerður Þórðardóttir, 21 árs frá
Vopnafirði. Ljósmyndafyrirsæta var
valin Guðlaun Kristbjörg Kristins-
dóttir, 19 ára, frá Eskifirði. Vinsæl-
ustu stúlkuna völdu keppendur sjálf-
ar úr eigin hópi og sú sem þann tit-
il hlaut heitir Bryndís Jónsdóttir fá
Hornafirði.
Dómnefnd skipuðu: Þórarinn Jón
Magnússon, Elín Gestsdóttir, Þór-
unn Lárusdóttir, Hólmfríður Jó-
hannsdóttir og Sigurður Mar. Fram-
kvæmdastjóri keppninnar var íris
Másdóttir og kynnir kvöldsins var
Ágúst Ólafsson.
Bæði fegurðardrottning Austur-
lands og ljósmyndafyrirsætan munu
taka þátt í keppninni um Ungfrú
ísland sem haldin verður í Reykjavík.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
NÝKRÝND fegurðardrottn-
ing Austurlands, Þorgerður
Þórðardóttir, 21 árs, frá
Vopnafirði.
Bakkafirði hafa nemendur unnið
í vetur að verkefnum sem þeir
hafa skýrt Heimabyggðin og eru
þau liður i tíu ára vígsluafmæli
skólans.
Nemendurnir hafa teiknað kort
af ströndinni við Bakkaflóann,
merkt inn á það öll býli sem þar
eru og hafa verið í byggð, einnig
öll helstu kennileiti sem hér eru.
Fréttaritara bar að garði þegar
10-12 ára nemendur voru að
leggja síðustu hönd á eitt af verk-
unum. Þau voru að merkja inn á
súlurit hvernig íbúaþróun hefur
verið frá 1930 til ársins 1995. Þar
tóku þau út þijú ár, árin 1930,
1992 og 1995, og studdust við
íbúaskrá en 1930 var stuðst við
frásagnir eldra fólks til glöggvun-
ar á fjölda íbúa í hreppnum. Þau
komust að því að árið 1930 bjuggu
um 300 íbúar í hreppnum, þar af
130 á aldrinum 0-18 ára, árið
1992 voru íbúar 132, þar af 35 frá
0-18 ára, og árið 1995 voru íbúar
138 og þar af 33 frá 0-18 ára.
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
NEMENDUR að vinna að súluriti um íbúafjölda í Skeggjastaða-
hreppi. F.v. Stefnir Elíasarson, Signý Pála Sigmarsdóttir, Járn-
brá Olafsdóttir og Birkir Ólafsson. Kennari með þeim er Val-
björg Jónsdóttir, skólastjóri.
Þessi verkefni eru meðal
og gamla og reyna einnig að átta
margra verkefna sem nemendurn- sig á því hvort eitthvað hafi verið
ir hafa verið að vinna að til að
kynnast betur sinni heimabyggð
og tengja betur saman nýja tíma
hægt að gera sér til gamans i
gamla daga þegar ekkert sjónvarp
var og engin tölva.
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
ÞÁTTTAKENDUR í eldri og yngri flokki.
Skólaskákmót Vesturlands
haldið í Borgarnesi
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
ÞAÐ rigndi mikið á Hellu í
fyrrinótt, eins og eigandi
þessa bíls mátti sannreyna,
en hann hafði orðið að skilja
hann eftir utan vegar eftir
að hafa misst sljórn á honum.
Missti stjórn
á bílnum
Hellu - Ökumaður Volvo-bifreiðar
sem var á leið austur Suðurlandsveg
missti stjórn á bifreið sinni aðfara-
nótt mánudags með þeim afleiðing-
um að hún hafnaði utan vegar.
Óhappið átti sér stað skammt vestan
við Hellu, en slabb og hálkublettir
voru á veginum. Ökumaðurinn slapp
við meiðsli en varð að skilja bíl sinn
eftir.
Ökumanninum brá í brún er hann
hugðist sækja bílinn í gærmorgun
en þá var hann næstum kominn á
kaf í rigningarvatn. Samkvæmt upp-
lýsingum veðurathugunarmanns á
Hellu var úrkoma næturinnar frekar
mikil, eða tæpir 18 millimetrar.
Grundarfirði - Skólaskákmót
Vesturlands var haldið í Borgarnesi
sl. laugardag. Fjórum bestu skák-
mönnum hvers grunnskóla gefst
kostur á taka þátt í svæðisbundnu
móti þar sem keppt er um réttinn
til þátttöku á landsmóti.
Siguvegari í yngri flokknum var
Páll Oskar Kristjánsson með 9 vinn-
inga af 9, í 2. sæti var Kristinn
Darri Röðulsson með 7 vinninga og
í 3. sæti var Stefán Halldór Jónsson
með Qlh vinning. I eldri flokknum
sigraði Sigurður Már Sturluson með
6 vinninga af 7, 2. varð Garðar
Bergmann Gunnlaugsson með 5'A
og 3. Ómar Freyr Sigurbjörnsson
með 5 vinninga.
Vinningshafarnir voru allir frá
Akranesi en þar hefur verið vel hlúð
að skákáhugamönnum í grunnskól-
unum. Við skólana tvo hefut' undan-
farin tvö ár starfað skákkennari í
hálfu starfi. Hann heitir Þröstur
Hreiðar Þráinsson. Þröstur segir
mikinn áhuga vera á skák meðal
skólanemenda og eru nemendur
hans um 70 talsins.
TOraN
DIESEL - RAFMAGNS - GAS BURDARGETA 1.
©DftEWOO
VERKVER Smidjuvegi 4B • Kópavogi • 567 6620