Morgunblaðið - 09.04.1997, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 19
Skelfileg hungiirs-
neyð í N-Kóreu
Hermenn jafnilla haldnir og óbreyttir borgarar
Tókýó, Genf. Reuter.
„NORÐUR-Kórea er á hraðri leið
inn í skelfilega hungursneyð,"
sagði bandaríski þingmaðurinn
Tony Hall í Tókýó í gær en hann
er nýkominn úr ferð um landið.
Því hefur verið haldið fram, að
n-kóreski herinn væri látinn sitja
fyrir um matinn en Hall kvaðst
hafa séð hermenn, sem voru illa
haldnir af vannæringu. Stjórnvöld
í N-Kóreu hafa skýrt frá því, að
börn hafi látist úr hungri í landinu.
011 norður-kóreska
þjóðin sveltur
Hall, sem kynnti sér ástandið í
N-Kóreu dagana 4. til 7. þ.m. fyr-
ir bandarísk stjórnvöld, segist hafa
fengið óvenjulega frjálsar hendur
í ferðinni og hann gat fyrirvara-
laust ákveðið hvert hann vildi fara.
Kom hann meðal annars til borgar-
innar Sinuiju og segir, að þar hafi
jafnt hermenn sem almennir borg-
arar liðið hungur.
„Einkennisbúningarnir héngu
utan á skinhoruðum hermönnun-
um. Það er ljóst, að öll þjóðin svelt-
ur,“ sagði Hall á fréttamannafundi
í bandaríska sendiráðinu í Tókýó.
Kvaðst hann hafa séð beinaberar
konur og börn leita að einhvetju
ætilegu á landi þar sem búið var
að höggva hvert einasta tré í eld-
inn.
Mörg ríki hafa verið treg til að
veita N-Kóreu nauðsynlega hjálp
af ótta við, að matvælin færu fyrst
og fremst til hersins, sem tekur
tii sín fjórðung þjóðarútgjalda, en
Hail sagði, að stjórnin í Pyongyang
hefði fullvissað sig um, að hjálpar-
stofnanir og kirkjufélög gætu sjálf
annast dreifinguna.
Sameinuðu þjóðirnar tilkynntu í
síðustu viku, að þær ætluðu að
senda 203.000 tonn af matvælum
til N-Kóreu en talið er, að landið
þurfi að fá 2,3 milljónir tonna.
N-Kóreustjórn hefur samið við
bandaríska kornfyrirtækið Cargill
og fær hún 20.000 tonn af korni,
sem greitt verður fyrir með 4.000
tonnum af sinki, og ýmis trúfélög
og önnur samtök í Suður-Kóreu
ætla að senda 110.000 tonn af
korni til norðurhlutans.
Börnin deyja
Stjórnvöld i N-Kóreu hafa skýrt
fulltrúum alþjóðlegra hjálparstofn-
ana í Pyongyang frá því, að 134
börn hafi soltið í hel í landinu. Er
ekki vitað á hvaða tíma það gerð-
ist eða hvort talan er rétt en yfir-
lýsingin ein þykir merkileg.
Reuter
Matvæli verða æ
algengari smitleið
Genf. Reuter.
MATVÆLI verða æ algengari smit-
leið fyrir ýmsa sjúkdóma og er það
m.a. rakið til breyttra matarvenja,
tilbúinna rétta í stórverslunum og
til skyndibitastaðanna. Kemur þetta
fram í nýrri skýrslu frá WHO, Heil-
brigðisstofnun Sameinuðu þjóð-
anna.
í skýrslunni segir, að á síðustu
tveimur áratugum hafi komið fram
að minnsta kosti 30 smitsjúkdómar,
sem engin lækning er við, og er
ástæðan sögð aukin ferðalög, vöxt-
ur stórborga og skortur á hreinu
vatni og almennu hreinlæti.
Segja má, að tekist hafi að út-
rýma bólusótt en sjúkdómar eins
og malaría, barnaveiki og gulusótt
sækja fram í fátækrahverfum stór-
borganna og berklar, sem eru orðn-
ir ónæmir fyrir ýmsum lyfjum, eru
á uppleið.
Heilsufæði stundum varasamt
Matvæli eru meiri smitberi en
áður, aðallega vegna þess, að fólk
hefur ekki tíma til að matbúa en
rífur í sig einhvern skyndibita í
staðinn. Klaus Stohr, læknir í þjón-
ustu WHO, segir, að ásóknin í
heilsufæði sé líka ein af ástæðunum
fyrir auknum sýkingum af völdum
matvæla.
„Margir leggja nú mikið upp úr
ósoðnum mat og halda, að hann sé
hollari en það er rangt. Það er ekki
að ófyrirsynju, að mjólkin er geril-
sneydd. Omeðhöndluð getur hún
orðið gróðrarstía fyrir bakteríur,"
sagði Stohr.
Fullnæging
með lyfjagjöf?
TVEIR vísindamenn sem starfa
við Rutgers-háskóla í Nýju
Brúnsvík í Bandaríkjunum hafa
greint frá því, að þeir telja sig
hafa uppgötvað efni, sem hægt
sé að framleiða lyf úr, sem fram-
kallað geti kynferðislega full-
nægingu hjá konum. Það ætti
jafnframt að geta þjónað sem
verkjástillandi lyf, að sögn vís-
indamannanna.
Vísindamennirnir, Barry Kom-
isaruk og Beverly Whipple, hafa
stundað rannsóknir á lömuðum
konum. Fram að þessu hefur
verið talið að útilokað sé að ein-
staklingar sem þannig er ástatt
fyrir geti upplifað kynferðislega
fullnægingu. Nú hefur þeim
Komisaruk og Whipple tekizt að
finna leið til að framkalla hana
með því að örva eina af tíu heila-
taugunum (nervus vagus), sem
liggur í gegn um h'kamann og
bijóstholið til heilans.
„Andstætt því sem menn hafa
haldið komumst við að því í til-
rauninni, að konur, sem voru
lamaðar fyrir neðan brjóst, gátu
öðlast fullnægingu," segir Kom-
isaruk í Dagens Nyheter.
í tilrauninni tókst að einangra
efnið, sem vísindamennirnir telja
að sé hinn efnafræðilegi boðberi
sem framkallar fullnægingartil-
finninguna í heilanum.
Minnkandi
verðbólga
innan ESB
Brussel. Morgunblaðið
VERÐBÓLGA innan Evrópusam-
bandsins (ESB) mældist 2% að
meðaltali í febrúar síðastliðnum,
samkvæmt nýrri samantekt Euro-
stat, hagstofu ESB. Þetta er
lægsta verðbólga sem mælst hefur
innan ESB og raunar einnig á evr-
ópska efnahagssvæðinu frá því
samræmdar mælingar hófust.
Verðbólga á ársgrundvelli í
janúar sl. mældist 2,2% og hefur
því dregið lítillega úr verðbólgu-
hraðanum innan aðildarríkja ESB.
Á sama tíma fyrir ári mældist verð-
bólgan 2,6%.
Verðbólga er innan við 2% í tíu
aðildarríkjum af 15, en einu að-
ildarríkin þar fyrir ofan eru ríki
Suður-Evrópu, þ.e. ítalia, 2,3%,
Portúgal 2,4%, Spánn 2,5%, auk
Grikklands en þar mælist verð-
bólga vera langmest innan ESB,
eða 6,5%.
Verðbólga mældist að meðaltali
sú sama á evrópska efnahagssvæð-
inu og í ESB í febrúar. Verðbólga
á íslandi mældist 1,9% á tímabilinu
en öllu hærri í Noregi eða 3,4%
og hefur verðbólga þar í landi auk-
ist verulega á undanförnu ári.
Lítill árangur á samningafundi í Noordwijk
Svíar gagnrýna tillögur
um samruna ESB og VES
LÍTILL árangur náðist á samninga-
fundi utanríkisráðherra aðildar-
ríkja Evrópusambandsins í Noord-
wijk í Hollandi um síðustu helgi,
en fundurinn var sá fyrsti í röð
samningafunda, þar sem á að reyna
að fækka óleystum vandamálum á
ríkjaráðstefnu sambandsins. Lena
Hjelm-Wallén, utanríkisráðherra
Svía, lagðist á fundinum eindregið
gegn tillögu sex ríkja um að ESB
og Vestur-Evrópusambandið verði
sameinuð í áföngum.
Hart var deilt á ráðherrafundin-
um um fjölda manna í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
og náðist ekkert samkomulag, að
sögn Reuters-fréttastofunnar.
Framkvæmdastjórnin hefur sjálf
lagt til að hvert ríki fái aðeins að
tilnefna einn fulltrúa í stjórnina.
Frakkar vilja ganga lengra og
fækka framkvæmdastjórnarmönn-
um í tíu en tryggja að öll ríkin
geti komið framkvæmdastjórnar-
manni að með reglulegu millibili.
Norrænu aðildarríkin og írland
leggjast eindregið gegn frönsku
tillögunni.
Sameining VES og ESB
hindrun í vegi stækkunar?
Gagnrýni Hjelm-Wallén á tillög-
ur um sameiningu ESB og VES
er sú harðasta, sem heyrzt hefur
opinberlega frá ríkjum ESB, sem
standa utan hernaðarbandalaga.
Utanríkisráðherrann sagði að sam-
eining samtakanna gæti leitt til
þess að eingöngu þau Austur-Evr-
ópuríki, sem fengju inngöngu í
NATO, gætu fengið aðild að Evr-
ópusambandinu. Sem stendur eiga
aðeins aðildarríki NATO kost á
fullri aðild að VES. „Við höfum
ekki hugsað okkur að stækkunin
til austurs verði með þeim hætti,“
segir Hjelm-Wallén í Svenska Dag-
bladet. „Það er ekki rétt að önnur
samtök, á borð við NATO, geti
ráðið því hverjir fá aðild að ESB.“
Vonir bundnar
við kosningar í Bretlandi
Ríkisstjórn íhaldsmanna í Bret-
landi hefur að undanförnu gagn-
rýnt harðlega þá stefnu, sem ríkj-
aráðstefnan hefur tekið, og staðið
í vegi fyrir samkomulagi um ýmis
mál. Samningamenn annarra ríkja
á ráðstefnunni binda hins vegar
vonir við að árangur náist í viðræð-
unum, taki Verkamannaflokkurinn
við stjórnartaumum í Bretlandi eft-
ir kosningarnar í næsta mánuði.
Hjelm-Wallén sagði eftir utanríkis-
ráðherrafundinn að varla myndi
komast skriður á viðræðurnar fyrr
en eftir kosningarnar í Bretlandi.
Embættismaður, sem tekið hefur
þátt í samningaviðræðunum, sagði
í samtali við Morgunblaðið að búizt
væri við að ný ríkisstjórn Tonys
Blair myndi fremur reyna að Ijúka
samningaviðræðunum með hraði
fyrir miðjan júní en að bíða fram
á seinni hluta ársins og „galopna
samningsstöðu Bretlands," eins og
það var orðað.
Mannskæð-
ur eldsvoði í
Hong Kong
AÐ MINNSTA kosti sjö manns
biðu bana í eldsvoða á sjöttu hæð
20 hæða íbúðarbyggingar í
Hong Kong í gær. Tvö ung börn,
fjórar konur og karlmaður lét-
ust af völdum reykeitrunar. Að
minnsta kosti 38 til viðbótar
voru fluttir á sjúkrahús og þar
af voru tveir í gjörgæslu. Ekki
var vitað með vissu um eldsupp-
tökin en talið var að kviknað
hefði í út frá sígarettu. Að sögn
lögreglunnar er talið að eldur-
inn hafi breiðst hratt út vegna
þess að flestar eldvarnadyr
byggingarinnar voru opnar.
Margir íbúanna settust á
gluggakistur eða héngu á frá-
rennslisrörum byggingarinnar
meðan þeir biðu eftir slökkvilið-
inu.
WMestfrost
Frystikistur Staðgr.verð
HF 201 72 x 65 x 85 36.614,-
HF 271 92 x 65 x 85 40.757,-
HF 396 126x65 x 85 47.336,-
HF 506 156 x 65 x 85 55.256,-
Frystiskápar
FS 205 125 cm 49.674,-
FS275 155 cm 59.451,-
FS345 185 cm 70.555,-
Kæliskápar
KS 250 125 cm 46.968,-
KS 315 155 cm 50.346,-
KS 385 185 cm 56.844,-
Kæli- og frystiskápar
KF285 155 cm 70.819,-
kælir 199 Itr frystir 80 ltr 2 pressur
KF283 155 cm 61.776,-
kælir 199 Itr frystir 80 Itr 1 pressa
KF 350 185 cm 82.451,-
kælir 200 ltr frystir 156 ltr 2 pressur
KF355 185 cm 77.880,-
kælir 271 llr frystir 100 ltr 2 pressur
aa&GJ Í
Faxafeni 12. Sími 553 8000 I