Morgunblaðið - 09.04.1997, Page 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Kínverjar segjast harma yfirlýsingar Dana í mannréttindamálum
Óvíst um áhrif á samskipti
Kínveria við aðrar þjóðir
Peking, Kaupmannahöfn. Reuter.
KINVERSK yfirvöld kváðust í gær
harma að Danir héldu fast við þá
yfirlýsingu sína að leggja til að
Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna í Genf fordæmi mannréttinda-
brot Kínveija. ítrekuðu þeir að þetta
myndi hafa áhrif á samskipti þjóð-
anna en gengu hins vegar ekki svo
langt að fullyrða að samskipti þeirra
við önnur lönd sem styddu tillöguna
myndu bíða skaða af. ísland verður
að öllum líkindum eitt þeirra ríkja.
Charles Millon, varnarmálaráðherra
Frakklands, sem er í Kína til við-
ræðna við kínversk yfirvöld, sagðist
í gær vona að banni sem Evrópusam-
bandið (ESB) hefur sett á vopnasölu
til Kínveija verði aflétt. Þeir eru ein
fjögurra ESB-þjóða sem er andvíg
tillögu Dana.
Shen Guofang, talsmaður kín-
verska utanríkisráðuneytisins, sagði
í gær að vildu önnur lönd standa
fyrir ályktunum sem beint væri gegn
Kínveijum myndi það „að sjálfsögðu
hafa einhver áhrif á samskipti og
eðlileg skoðanaskipti hvað mann-
réttindi varðaði. Þegar Shen var
spurður hvort annarra stuðnings-
þjóða tillögunnar biði hið sama og
Dana, svaraði hann því eingöngu til
að slíkt væri í þágu hvorugs aðilans.
Nils Helveg Petersen, utanríkis-
ráðherra Dana, sagði þá standa fast
við ákvörðun sína um að krefjast
fordæmingar á mannréttindabrotum
Kínveija, þrátt fyrir að þeir síðar-
nefndu hefðu nú heitið því að undir-
rita sáttmála SÞ um efnahagsleg,
félagsleg og menningarleg réttindi.
Frakkar vilja bæta
samskiptin við Kína
ESB hefur lagt bann við hvers
konar vopnasölu til Kínveija frá því
að þeir brutu á bak aftur friðsamleg
mótmæli á Torgi hins himneska frið-
ar í júní 1989 en Frakkar vonast til
að því verði aflétt. Ræddi Millon
möguleika á því að skiptast á upplýs-
ingum um hemaðartækni o.fl. við
Kínveija. Hann sagði ferð sína tii
Kína þó fyrst og fremst vera til að
undirbúa opinbera heimsókn Jacques
Chirac Frakklandsforseta þangað í
næsta mánuði. Frakkar eru sú Evr-
ópuþjóð sem helst hefur sýnt Kín-
veijum stuðning þegar ástand mann:
réttindamála hefur borið á góma. í
síðasta mánuði lýstu Frakkar því
yfír að viðræður við Kínveija væru
líklegri en pólitískur þrýstingur og
þvingunaraðgerðir til að bæta
ástandið í mannréttindamálum þar.
„Gráúlfa“ fylgt til grafar
Brasilía
Mannrétt-
indastofnun
sett á fót
Brasilíu. Reuter.
YFIRVÖLD í Brasilíu tilkynntu á
mánudag, að þau hefðu ákveðið
að setja á fót stofnun, sem hefði
það hlutverk að fylgjast með mann-
réttindamálum í landinu og að
rannsaka meint mannréttindabrot.
Þetta skref var stigið í kjölfar þess
að í liðinni viku voru sýnd í brasil-
ísku sjónvarpi myndbandsupptökur
af fólskulegu ofbeldi lögreglu-
manna.
Fáeinum klukkustundum eftir
þessa tilkynningu sýndi sjónvarps-
stöð nýjar upptökur af lögregluof-
beldi, þar sem liðsmenn herlögregl-
unnar lumbruðu á hópi ungra
manna í fátækrahverfi i Rio de
Janeiro. Beittu þeir kylfum, ólum
og trédrumbi við barsmíðarnar.
Að sögn embættismanna undir-
ritaði Henrique Cardoso, forseti
Brasilíu, tilskipun um Mannrétt-
indastofnun ríkisins og staðfesti
fyrstu lögin, sem gera pyntingar
refsivert athæfí í Brasilíu.
Foringja
TUGIR þúsunda Tyrkja söfnuð-
ust saman við mosku í Ankara í
gær vegna útfarar þjóðernis-
sinnans og hægrimannsins Alp-
arslans Turkes, foringja „Gráúlf-
anna“ svokölluðu. Turkes lést af
völdum hjartaáfalls á laugardag,
áttræður að aldri.
Turkes stefndi að því að sam-
eina allar tyrkneskar þjóðir frá
Balkanskaga til Kínamúrsins og
stuðningsmenn hans tóku þátt í
daglegum drápum og bardögum
við öfgasinnaða vinstrimenn á
götum tyrkneskra borga á átt-
unda áratugnum. Átökin kostuðu
5.000 manns lífið og leiddu til
valdaráns án blóðsúthellinga árið
1980. Turkes var þá handtekinn
en var kjörinn á þing 1991 eftir
að tiu ára bann við starfsemi
flokks hans var afnumið.
Á myndinni fylgja Gráúlfar
kistu Turkes í Ánkara og mynda
merki hreyfingarinnar með
fingrunum.
Reuter
Viðræðurnar um frið í Zaire
Sammála um
þörf á vopnahléi
OSKAR Lafontaine (t.v.) og Gerhard Schröder.
Kanzlaraefni þýzkra jafnaðarmanna
Kjósendur telja
Schröder hæfastan
Pretoríu, Genf. Reuter.
FULLTRÚAR hinna stríðandi fylk-
inga í Zaire í friðarviðræðunum í
Suður-Afríku sögðust í gær vera
sammála um að þörf væri á vopna-
hléi í landinu en sögðu ekkert um
hvernig hægt yrði að koma því á.
Fulltrúar Mobutu Sese Seko, for-
seta Zaire, og Laurent Kabila, leið-
toga uppreisnarmanna, gerðu hlé á
friðarviðræðunum í gær, ijórum
dögum eftir að þær hófust í Pretor-
íu. „Báðir aðilar samþykktu viðræð-
ur til að semja um friðsamlega og
pólitíska lausn á átökunum," sagði
í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra.
„Þetta útheimtir algjört vopnahlé
og frekari ráðstafanir í samræmi
við friðaráætlun Sameinuðu þjóð-
anna og Einingarsamtaka Afríku.“
Uppreisnarmenn sakaðir
um fjöldamorð
Thabo Mbeki, varaforseti
Suður-Afríku, sagði Zaire-menn-
irnir hefðu gert hlé á viðræðunum
til að geta ráðfært sig við leiðtoga
sína. „Andi gagnkvæms trausts er
að skapast," sagði Mbeki, sem
stjórnaði viðræðunum ásamt
Mohamed Sahnoun, fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna og Einingar-
samtaka Áfríku.
Roberto Garreton, mannréttinda-
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Zaire,
sakaði í gær uppreisnarmennina,
sem eru flestir tútsar, um að hafa
myrt þúsundir þorpsbúa og rúand-
íska hútúa í austurhluta landsins.
Hann hvatti Sameinuðu þjóðirnar
til að skipa nefnd til að rannsaka
fjöldamorðin og undirbúa réttarhöld
yfir sakborningunum.
Garreton skrifaði 16 síðna
skýrslu með lista yfir 40 staði þar
sem talið er að uppreisnarmennirnir
hafi framið morðin og sagði að svo
virtist sem ekkert lát væri á morð-
unum. „Það er óumdeilanlegt að
því fer fjarri að uppreisnarmennirn-
ir hafí staðið við loforð sín um að
virða mannréttindi," sagði í skýrsl-
unni.
Laurent Kabila sagði í gær að
uppreisnarmennirnir, sem hafa náð
fjórðungi Zaire á sitt vald, væru
nú komnir í Babundu, mikilvægan
bæ sem er 270 km norðvestur af
höfuðborginni, Kinshasa.
TILKYNNING Helmuts Kohls
Þýzkalandskanzlara í liðinni viku
um að hann væri ákveðinn í að
bjóða sig fram til endurkjörs í þing-
kosningunum haustið 1998 hefur
leitt til aukins þrýsings á þýzka
jafnaðarmenn að þeir taki af skar-
ið um hver leiði kosningabaráttu
þeirra og keppi um setuna á kanzl-
arastólnum kjörtímabilið 1998-
2002.
í nýrri skoðanakönnun, sem
vikuritið Der Spiegel birti í nýjasta
hefti sínu, hafa kjósendur þegar
gert upp hug sinn að þessu leyti.
Þeir vilja að Gerhard Schröder,
forsætisráðherra í Neðra-Saxlandi,
verði kanzlaraefni SPD. 62 af
hundraði þeirra sem þátt tóku í
könnuninni nefndu hann sem þann
sem þeir teldu hæfastan úr röðum
frammámanna SPD til að gegna
þessu hlutverki, en einungis 27%
töldu flokksformanninn Oskar La-
fontaine hæfa betur í hlutverkið.
Lafontaine var kanzlaraefni SPD í
kosningunum 1990, en þeim töpuðu
jafnaðarmenn sem kunnugt er.
Yiðskipta-
bann for-
dæmt
ROBERTO Robaina, utanrík-
isráðherra Kúbu, sagði í gær
samtök 113 óháðra ríkja for-
dæma einróma viðskiptabann
Bandaríkjanna gegn eyríkinu.
Samtökin þinguðu í Nýju-Del-
hi á Indlandi í gær og fyrra-
dag.
Minna at-
vinnuleysi
ATVINNULAUSUM í Þýzka-
landi fækkaði nokkuð í marz-
mánuði frá mánuðinum á und-
an, en þá var sett met í fjölda
atvinnulausra í landinu frá því
í kreppunni miklu upp úr 1930.
Samkvæmt tölum sem þýzka
vinnumálastofnunin birti í
gær, þar sem tillit er tekið til
árstíðabundinna þátta sem
áhrif hafa á atvinnuleysið,
voru 4,3 milljónir vinnufærra
manna atvinnulausar í mánuð-
inum, eða 11,7%. Heildarat-
vinnuleysi minnkaði milli mán-
aða um 190.000 manns, eða
úr mettölunni 4,67 milljónum
í 4,48 milljónir.
Kólumbía
lendir
BANDARÍSKA geimfeijan
Kólumbía lenti á Flórída í
gær, Qórum dögum eftir að
henni var skotið á loft. Binda
varð enda á geimferðina, sem
átti að standa í 16 daga, vegna
bilunar í rafölum.
Bandarísk
spilling í
Hong Kong
VERIÐ er að rannsaka ásak-
anir um spillingu á hendur
háttsetts embættismanns sem
starfaði að málefnum innflytj-
enda við aðalræðismannsskrif-
stofu Bandaríkjanna í Hong
Kong. Sérstök spillingarrann-
sóknarnefnd yfírvalda í Hong
Kong stendur að rannsókninni
í samstarfi við fulltrúa banda-
rískra stjórnvalda. Sá sem
rannsóknin beinist gegn, Jam-
es DeBates, var yfirmaður
þeirrar deildar ræðismanns-
skrifstofunnar, sem sér um
innflytjendamál. Fyrrverandi
samstarfsmaður hans, Jerry
Stuchiner, hefur þegar verið
dæmdur í 40 mánaða fangelsi
fyrir að hafa verið gripinn með
fölsuð vegabréf frá Hondúras
og er talinn hafa verið viðrið-
inn innflytjendasmyglhring.
Jörðin fer um
geimrykský
BREZKIR stjörnufræðingar
greindu frá því í gær, að í
nóvember á næsta ári muni
jörðin ganga í gegn um
geimrykský, sem halastjarnan
Temple-Tuttle hefur skilið eft-
ir sig í geimnum, og þegar það
gerist muni þúsundir smárra
loftsteina brenna upp í gufu-
hvolfínu og bjóða þannig upp
á mikið sjónarspil á nætur-
himninum. Segja stjörnufræð-
ingarnir að þetta gerist á 33ja
ára fresti.