Morgunblaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 09.04.1997, Blaðsíða 52
52 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Hvert mundir þú ferðast eftir að hafa unnið rúmlega 44 miiljónir í Víkingalottóinu? ATH! Aðeins 20 kr. röðin V I K I N G A L#TT# Til mikils að cinna! Alla miövikudaga fyrir kl. 16.00 MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP QUENTIN Tarantino ætlar aftur að setjast í leikstjóra- stólinn. Tarantino með nýja kvikmynd ► QUENTIN Tarantino ætlar loks að leikstýra kvikmynd aftur í fullri lengd en enginn mynd hefur kom- ið frá honum síðan „Pulp Fiction" árið 1994. Taran- tino hefur rætt við Samuel L. Jackson, Pam Grier og Bridget Fonda um að leika aðalhlutverkin í kvikmynd byggðri á skáldsögu El- more Leonard „Rum Punch“. Óstaðfestar fréttir herma að Sylvester Stallone hafi einnig sýnt áhuga á að leika í myndinni. Vinnutitill myndarinnar er „Jackie Brown“. Saga Leon- ards er um gleðikonu og tryggingarábyrgðarmann sem lenda upp á kant bæði við yfirvöld og glæpamenn þegar þau reyna að komast yfir góss vopnasala nokk- urs. Skáldsagan gerist á Flórída og Bahama-eyjum en Tarantino hefur í hyggju að sviðsetja mynd- ina á æskustöðvum sínum í South Bay í Los Angeles. MYNDBÖNP Dansatriðin best Dómsmáli Sidneys Pollacks vísað frá í Dan- mörku ► BANDARÍSKI kvikmynda- íeikstjórinn, Sidney Pollack kærði danska ríkissjónvarpið fyrir að sýna stytta og endur- unna útgáfu af mynd sinni, „Three Days of the Condor", árið 1991. Leikstjórinn héltþví fram að listrænn orðstír sinn hefði orðið fyrir tjóni og fór fram á 15.600 dollara í skaðabætur. Dönsku dómararnir samþykktu að listrænn réttur Pollacks hefði verið vanvirtur en sögðu að orða- lag samningsins við danska sjón- varpið fyrirgerði rétti leikstjór- ans. Málinu var þess vegna vísað frá. Samtök danskra leikstjóra, stéttarfélag evrópskra leikstjóra og bandarísku samtökin, Artists’ Right Foundation, studdu öll Pollack. „Three Days of the Condor“ var gerð fyrir breiðtjald en þegar hún var sýnd í danska sjónvarpinu fór hún í gegnum svokallað „pan and scan“-ferli sem sker myndramma niður um helming. Þetta ferli endurvinnur myndir þannig að það sem er í jaðri rammans hverfur og útlit myndar breytist að öðru leyti. Kvikmyndagerðarmenn studdu Pollack af því að þeir vilja fá lagavernd gegn því að kvikmynd- ir séu endurunnar á þennan hátt fyrir sjónvarp. Vantar þig VIN að tala við? Til að deila með sorg og gleði? VINALÍNAN 561 6464 • 800 6464 f (■!■)“) öll kvöld 20 - 23 Fatafellan (Stripte ase) Eggjandi spcnnumynd ★ ★ Framleiðandi: Castle Rock Enter- tainment. Leikstjóri: Andrew Berg- man. Handritshöfundur: Andrew Bergman eftir sögu Carl Hiaasen. Kvikmyndataka: Stephen Gold- blatt. Tónlist: Howard Shore. Dans- höfundur: Margurite Pomerhn Derricks. Aðalhlutverk: Demi Moore, Armand Assante, Ving Rha- mes og Burt Reynolds. 112 mín. Bandaríkin. Castle Rock Ent./Skíf- an 1997. Útgáfudagur: 2. apríl. Myndin er bönnuð börnum yngri en 16 ára. ERIN er gift geðveikum manni. Hún missir starf sitt, og forræðið yfir barni sínu. Hún fær sér vinnu sem fatafella, og þegar þingmaður nokk- ur fellur fyrir henni, sér hún þar möguleika til að geta endurheimt barnið, en það verður þó ekki auð- velt. Myndin er frekar misheppnuð, og stafar það helst af misræmi í leikstjórn og handriti. Höfundur virðist ekki hafa getað ákveðið hvers konar mynd hann var að gera, Ast og skuggar (OfLove and Shadows) ★ ★ Stolt Celtic - liðsins (Celtic Pride) ★ ★ 'h Töfrandi fegurð (Stealing Beauty) -k-k-k Eyja Dr. Moreau (The Island ofDr. Moreau) k 'h í hefndarhug (Heaven ’s Prisoner) ★ 'h Skriftunin (Le Confessional) kkkk Margfaldur (Multiplicity)-k k 'h Hættuleg ást (Sleeping With Danger) k Draumar og brimbretti (Blue Juice)-k k Draumurinn um Broadway og allan heildar- svip vantar á hana. Myndin hefði geta orðið fyndin, og virðist ■Burt Reynoids í hlutverki þing- mannsins vera inni á þeirri línu. Hann verður þó heldur fíflalegur og lítt trúanleg persóna. Fleiri per- sónur eru heldur ýktar, og er Erin sú eina sem er nokkurn veginn eðli- leg, þótt geislabaugurinn hennar sé aðeins of stór. Demi Moore leikur hana á dramatískum nótum, og þótt hún sé ekki mjög góð leikkona er hún ansi liðtæk sem fatafella. Myndinni verður að segja til hróss að dansatriðin mörg hver eru ansi góð, og vafalaust best heppnaði hluti myndarinnar. Ving Rhames er tískuleikari um þessar mundir, og er ágætur í sínu hlutverki, en því miður leikur hann alltaf sama karakterinn. Þótt titill myndarinnar og efni veki áhuga margra er mynd- in frekar ófrumleg, og sker sig eng- an veginn út úr öðrum bandarískum meðalmyndum. Hildur Loftsdóttir. (Manhattan Merengue) í nunnuklaustri (Changing Habits) ★ ★ Morðstund (A Time to Kill)k ★ ★ íbúð Joe (Joe’s Apartment) k'h Alaska (Alaska) k k Tryggingasvindl (Escape Clause) ★ ★ 'h Drápskrukkan (The KillingJar)k 'h Stóra blöffið (The Great White Hype)k k Hin fullkomna dóttir (The Perfect daughter)k 'h Englabarn (Angel Baby)k ★ 'h MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.