Morgunblaðið - 09.04.1997, Qupperneq 56
•43YUNDAI
HÁTÆKNI TIL FRAMFARA
m Tæknival
SKEIFUNNI 17
SIMI550-4000 • FAX550-4001
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUjXÉNTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Samkeppnisráð setur margþætt skilyrði fyrir stofnun Flugfélags Islands
Flugleiðir hætta við
sameiningu að óbreyttu
EKKERT verður af sameiningu inn-
anlandsflugs Flugleiða og Flugfé-
lags Norðuj'lands undir merkjum
Flugfélags íslands hf. að óbreyttu
vegna strangra skilyrða Samkeppn-
isráðs fyrir sameiningunni. Innan-
landsflugið verður áfram hluti af
Flugleiðum að óbreyttum skilyrðum
og hefur félagið þegar hafið undir-
búning að nýjum rekstrar- og þjón-
ustuáætlunum.
f Samkeppnisráð ákvað á fundi
sínum í síðustu viku að setja marg-
þætt skilyrði fyrir sameiningunni í
þeim t.ilgangi að vernda virka sam-
keppni í áætlunarflugi innanlands.
í ákvörðun ráðsins er m.a. kveðið
á um að stjórnarmönnum og starfs-
mönnum Flugleiða og dótturfélaga
þess ásamt starfsmönnum fjölda
annarra fyrirtækja í tengslum við
félagið sé óheimilt að taka sæti í
stjórn Flugfélags íslands. Skulu öll
viðskipti milli Flugleiða og Flugfé-
lags Islands vera eins og um við-
skipti milli óskyldra aðila sé að
ræða.
Þá eru sett ströng skilyrði varð-
andi samstarf Flugfélags íslands
og Flugleiða um svonefnt vildar-
kerfi. Ef Flugleiðir heimila Flugfé-
lagi íslands að tengjast vildarkerfi
sínu skal jafnframt heimila keppi-
nauti í innanlandsflugi að taka
þátt í vildarkerfinu á sambærileg-
um kjörum, óski hann þess.
Skorður settar við
frímiðahlunnindum
Flugleiðum er ennfremur óheim-
ilt að veita starfsmönnum Flugfé-
lags íslands hlunnindi sem starfs-
menn Flugleiða njóta t.d. afsláttar-
og frífarseðla nema keppinautum
standi slík hlunnindi til boða.
Ýmis skilyrði eru sett varðandi
áætlunarleiðir, tíðni og aðstöðu á
flugvöllum. Þannig er Flugfélagi
íslands t.d. óheimilt að auka ferða-
tíðni sína í áætlunarflugi fram til
1. júlí árið 2000, ef tilgangur auk-
innar ferðatíðni er að hamla sam-
keppni frá núverandi eða tilvonandi
keppinautum.
Að mati Fiugleiða er útilokað
að sætta sig við þá stjórnunarlegu
íhlutun sem felst í ákvörðun Sam-
keppnisráðs. Fram kemur í frétt
félagsins í gær að áætlaður rekstur
Flugfélags íslands nemi tveimur
milljörðum króna og fjárfesting í
félaginu nemi rúmlega fjórum millj-
örðum. Flugleiðir beri ábyrgð á
þessum rekstri að tveimur þriðju
hlutum gagnvart um 5 þúsund hlut-
höfum, en fái ekki að stjórna félag-
inu. Það væri ábyrgðarleysi að
sætta sig við þetta skilyrði og óveij-
andi gagnvart því fólki sem lagt
hefur fé í rekstur Flugleiða.
„Kemur úr hörðustu átt“
„Mér finnst það koma úr hörð-
ustu átt ef Samkeppnisstofnun ger-
ir hvort tveggja með afskiptum sín-
um að koma í veg fyrir hagræðingu
í flugrekstri hér innanlands og tak-
marka frelsi manna til að vinna
að bættri þjónustu," sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra í gær
þegar leitað var álits hans á ákvörð-
un Samkeppnisráðs.
■ Skilyrði/28-29
Loðskinn
lækka
um 10%
LOÐSKINN lækka í verði á uppboði
sem nú stendur yfir í danska upp-
boðshúsinu í Kaupmannahöfn. Mikill
hluti íslenskra loðdýrabænda selur
þar framleiðslu sína.
Uppboði á refaskinnum er lokið í
Kaupmannahöfn og lækkuðu þau
um 10% frá síðustu uppboðum.
Skinnin fóru á um það bil 4.000 kr.
hvert en í september, í lok síðasta
sölutímabils, voru þau komin upp í
8-9 þúsund krónur. Arvid Kro, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
loðdýrabænda, segist ekki hafa skýr-
ingar á því að skinnin hafi lækkað
í verði. I lok siðasta tímabils hafi
verið spáð áframhaldandi góðu verði.
Heimsframleiðslan hefur hins vegar
aukist og eitthvert hik verið á kaup-
endum í Rússlandi og Austurlöndum.
Minkaskinnin virðast standa bet-
ur, þau hafa ekki lækkað eins mikið
að undanförnu. Uppboði á þeim var
ekki lokið í Kaupmannahöfn í gær
en það sem seldist fór á um 2.000
kr. stykkið sem er um 10% lækkun
frá síðasta uppboði.
^ Samheiji stærsta félag landsins
Hlutabréfin
hækka um 50%
VIÐSKIPTI með hlutabréf í Sam-
heija hf. fóru í fyrsta sinn fram á
Opna tilboðsmarkaðnum í gær.
Fimm sölur áttu sér stað, í tveimur
tilfellum voru seld hlutabréf á
genginu 13,75 og í þremur tilfell-
um á genginu 13,0. Heildarvið-
^skipti dagsins voru upp á rúma
eina milljón króna.
Miðað við sölugengi hlutabréfa
í Samheija í nýafstöðnu hlutafjár-
útboði, þar sem bréfin voru seld á
genginu 9,0, hækkuðu þau um 50%
í viðskiptum gærdagsins. „Þetta
gefur vísbendingu en menn geta
samt kannski ekki beinlínis byggt
á þessum tölum því viðskiptin eru
það lítil og menn vilja sjá meiri
viðskipti áður en hægt er að segja
til um hvert verðið verður á eftir-
markaðinum, hvort það stöðvast
við 13, hækkar eða lækkar, um
það er erfitt að segja með svona
lítil viðskipti,“ segir Sigurður Sig-
urgeirsson forstöðumaður Lands-
bréfa á Norðurlandi.
Lítið framboð en
mikil eftirspurn
Segir Sigurður þetta vísbend-
ingu um að menn hafi væntingar
til félagsins og bendir á að lítið
af bréfum Samheija sé komið í
sölu en eftirspurn mikil. „Þetta er
þó kannski sú hækkun sem menn
bjuggust við en hún kemur fram
í einu stökki og þess vegna er erf-
itt að segja hvað gerist í framhald-
inu,“ sagði Sigurður einnig.
Markaðsverðmæti Samheija er
um 18 milljarðar króna miðað við
gengi bréfanna í þessum viðskipt-
um. Er þá Samheiji orðinn stærsta
félag landsins en markaðsverð-
mæti Eimskips er rúmir 16 millj-
arðar króna.
'Grunur um undanskot
frá aflagjaldi til hafna
GRUNUR leikur á að hafnir lands-
ins verði af umtalsverðum tekjum,
sem skipta tugum milljóna króna
árlega. Astæðan fyrir því að þessi
mál eru komin upp nú er að bæjar-
félag á Suðurnesjum lét ráðgjaf-
arfyrirtæki gera úttekt á höfn
-J**bæjarins vegna endurskipulagn-
ingar á starfsemi hafnarinnar og
kom þá í ljós allnokkur mismunur
á aflaverðmæti og raunverulegu
skilaverði til útgerða, en aflagjald
til hafna á að reiknast sem 1% af
aflaverðmæti upp úr sjó.
Viðkomandi bæjarfélag hefur
jj.sent Hafnarsambandi sveitarfé-
laga erindi þess efnis, að það beiti
sér fyrir aðgerðum þar sem þessi
mál verði rannsökuð ofan í kjölinn
og mun sambandið að líkindum
taka málið upp við Fiskistofu í vik-
unni. Krafa er gerð um að raun-
verulegt aflaverðmæti liggi fyrir
áður en aflagjald er reiknað eða
að aflagjöld verði miðuð við meðal-
verð á fiskmörkuðum hvers mán-
aðar. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er hér um sameig-
inlegt vandamál hafna allt í kring-
um landið að ræða.
■ Hafnirnar hlunnfarnar/lB
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÁBURÐINUM landað í Þorlákshöfn. Við lestina standa þeir Garðar Halldórsson hjá KÁ, sem kaup-
ir hluta af farminum, og Kjartan Már Friðsteinsson og Þorsteinn V. Þórðarson hjá Isafold.
Fyrsti áburðarfarmurinn
FLUTNINGASKIP á vegum Áburð-
arsölunnar ísafoldar ehf. kom með
fullfermi af áburði til Þorlákshafnar
í gær. Er þetta fyrsti umtalsverði
innflutningurinn frá því áburðar-
innflutningur var gefinn fijáls fyrir
tveimur árum.
í skipinu sem kom í gær eru
1.700 tonn af áburði og annað skip
kemur með 1.500 tonn til Hafnar-
fjarðar í næstu viku, að sögn Þor-
steins Þorvaldssonar sölustjóra ísa-
foldar.
Þorsteinn stofnaði Áburðarsöl-
una ísafold fyrir rúmum tveimur
árum. Fyrirtækið er með umboð
fyrir áburðarverksmiðjuna _ Zuid-
Chemie í Hollandi. Hefur ísafold
boðið í áburðarkaup Landgræðsl-
unnar en ekki fengið þrátt fyrir að
vera með lægsta tilboð, að sögn
Þorsteins, og er unnið að því að fá
önnur ríkisfyrirtæki til að bjóða út
áburðarkaup sín. Áburður hefur
ekki verið fluttur inn á vegum fyrir-
tækisins fyrr en nú.
Bananasalan hf., fyrirtæki sem
garðyrkjubændur eiga að stærstum
hluta, keypti fyrr á þessu ári meiri-
hlutann í Áburðarsölunni ísafold
og bindur Þorsteinn vonir við að
með því hafi félagið fengið nauð-
synlegan bakhjarl til þess að ná til
sín góðum hluta af markaðnum.
Stefnt er að innflutningi 4-6 þúsund
tonna í ár en það er um 10% af
markaðnum. Áburðarverksmiðjan í
Gufunesi hefur hingað til setið ein
að markaðnum, nema hvað Kaupfé-
lag Héraðsbúa á Egilsstöðum hefur
flutt inn smávegis af áburði frá
Danmörku.