Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR B/C 82. TBL. 85. ÁRG. LAUGARDAGUR 12. APRÍL1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Ofriðlegt í Hebron ÁTÖKIN milli Palestínumanna og ísraelskra hermanna halda áfram, ekki aðeins í Jerúsalem, heldur einnig víða á Vestur- bakkanum. Þessi mynd var tekin í Hebron í gær og sýnir Palest- ínumann kasta steini fyrir hús- horn á ísraelska hermenn, sem þar biðu. Um 16 Palestínumenn særðust í átökunum. ------» ♦------ Lögunum um Kúbu breytt? Brussel. Reuter. E VRÓPU S AMB ANDIÐ (ESB) kvaðst í gær hafa náð samkomu- lagi við Bandaríkjastjórn í deilu þeirra um bandarísk lög um refsi- aðgerðir gegn Kúbu. Samkomulag- ið gæti orðið til þess að lögunum yrði breytt. Sir Leon Brittan, sem fer með viðskiptamál innan framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, sagði að samkomulagið ætti að gera ESB kleift að fresta því að vísa deilunni til Heimsviðskiptastofnunarinnar. Peter Guilford, talsmaður Britt- ans, sagði að Bandaríkjastjórn hefði samþykkt að beita sér fyrir því að bandaríska þingið breytti lögunum gegn því að ESB legði ekki fram formlega kvörtun fyrir Heimsviðskiptastofnunina á mánu- dag eins og Evrópusambandið hafði hótað. Deilan snýst um svokölluð Helms-Burton lög, sem miða að því að einangra kommúnistastjórnina á Kúbu. Evrópusambandið leggst gegn því ákvæði laganna að banda- rískir ríkisborgarar geti höfðað mál í Bandaríkjunum gegn erlendum fyrirtækjum sem fjárfesta í eign- um, sem voru þjóðnýttar eftir bylt- inguna á Kúbu. Reuter Indlands- stjórn fallin Nýju-Delhi. Reuter. H.D. DEVE Gowda, forsætisráðherra Indlands, beið lægri hlut í atkvæða- greiðslu um traust á ríkisstjórnina á þingi í gær. Gekk hann strax á fund forseta landsins þar sem hann lagði fram afsagnarbeiðni og er búist við nýjum kosningum bráðlega. Indverska sjónvarpið sagði, að 292 þingmenn af 542 í neðri deild- inni hefðu greitt atkvæði gegn Gowda en 158 stutt hann. Haft er eftir þingmönnum, að Einingarflokkur Gowda og Kongr- essflokkurinn, sem áður studdi ríkis- stjórnina en snerist gegn henni, hafi reynt að komast að samkomulagi um nýjan forsætisráðherra til að komast hjá nýjum kosningum. Það mun ekki hafa tekist og ekki er búist við, að núverandi þing komi sér saman um aðra ríkisstjórn. Þýska sendiráðið í Teheran grýtt vegna niðurstöðu þýska dómstólsins Sendiherrar ESB-ríkj- anna í íran kallaðir heim Bonn, Brussel, Teheran. Reuter. FLEST Evrópusambandsríkin ákváðu í gær að kalla heim sendi- herra sína í Teheran en í fyrradag komst þýskur dómstóll að þeirri nið- urstöðu, að ráðamenn í Iran hefðu skipað fyrir um morð á flórum Kúrd- um í Þýskalandi. Hundruð manna grýttu í gær þýska sendiráðið í Te- heran en Akbar Hashemi Rafsanj- ani, forseti írans, sagði, að uppi- standið væri aðeins bylur, sem gengi fljótt yfir. Öll Evrópusambandsríkin nema Grikkland kölluðu heim sendiherra sína í Teheran og það sama gerðu einnig stjórnvöld í Astralíu og Nýja- Sjálandi. Þakkaði þýska utanríkis- ráðuneytið Evrópuríkjunum fyrir samstöðuna og franska stjórnin var- aði íransstjórn við að grípa til hefndaraðgerða gegn þýskum eða evrópskum hagsmunum. Um 3.000 manns söfnuðust. sam- an fyrir utan þýska sendiráðið í Teheran í gær, grýttu húsið og hróp- uðu ókvæðisorð um Þýskaland, Bandaríkin og ísrael. Rafsanjani, forseti landsins, reyndi hins vegar að gera lítið úr viðbrögðum Evrópu- ríkjanna við niðurstöðu þýska dóm- stólsins og sagði, að moldviðrið væri runnið undan riíjum Bandaríkja- manna og ísraela og myndi hjaðna fljótt. Minnti hann á, að Evrópuríkin hefðu kallað heim sendiherra sína vegna dauðadómsins yfir rithöfund- inum Salman Rushdie en síðan sent þá aftur „með afsökunarbeiðni". Talsmenn þýsku stjórnarinnar vildu lítið um málið segja í gær og kváðust hafa áhyggjur af 530 Þjóð- verjum í íran. Bandaríkjastjórn fagnar Mike McCurry, talsmaður Banda- ríkjastjórnar, sagði í gær, að niður- staða þýska dómstólsins væri í sam- ræmi við það, sem stjórnin í Wash- ington hefði lengi haldið fram, að íransstjórn stundaði hryðjuverka- starfsemi í öðrum löndum. Viðbrögð Evrópuríkjanna væru því eðlileg. Stjórn og stjórnarandstaða í Rússlandi hafa hins vegar samein- ast um að treysta böndin við Irani enn betur en áður. Kom það fram hjá Boris Jeltsín, forseta Rússlands, þegar hann tók á móti forseta ír- anska þingsins í Moskvu í gær. Þáttur þýsku leyniþjónustunnar Þýska dagblaðið Frankfurter All- gemeine Zeitung sagði í gær, að þýska leyniþjónustan hefði gert dómstólnum í Berlín kleift að kveða upp úr með, að íranskir ráðamenn, forseti landsins, æðsti trúarleiðtogi þess og ráðherra leyniþjónustumála, hefðu fyrirskipað morðið á fjórum kúrdískum andófsmönnum 1992. Hefði það tekist með víðtækum hler- unum á öllum fjarskiptum við ír- anska sendiráðið í Bonn og með upplýsingum frá „háttsettum heim- ildamönnum í íran“. Flutningar á fjölþjóðaliðinu til Albaníu hefjast eftir helgi * Italskur herflokk- ur til Durres Tirana. Rcuter. FYRSTU ítölsku hermennirnir komu til Albaníu í gær til að und- irbúa aðgerðir fjölþjóðlegra örygg- issveita sem eiga að greiða fyrir matvæla- og lyfjaflutningum til nauðstaddra Albana. Þetta er í fyrsta sinn frá síðari heimsstyrjöld sem Italir fara fyrir fjölþjóðlegum hersveitum. Gert er ráð fyrir að 6.000 hermenn frá sex ríkjum - Frakklandi, Spáni, Rúm- eníu, Tyrklandi og Grikklandi, auk Ítalíu - taki þátt í aðgerðunum. „Við vitum að aðgerðunum fylgir áhætta en við vonum að Albanir skilji að við erum hér til að hjálpa þeim,“ sagði yfirmaður 20 ítalskra hermanna sem gengu fylktu liði um bryggju í Durres. „Eru öll þessi læti út af 20 hermönnum?" spurði fimmtugur Albani, sem fylgdist með 40 erlendum fréttamönnum reyna að ná viðtölum við hermennina. Ekkert lát á átökum Rúmlega 200 manns hafa beðið bana og 700 særst frá því upp- reisnarmenn náðu suðurhluta landsins á sitt vald í liðnum mán- uði. Ekkert lát virðist enn á blóðs- úthellingunum og til átaka kom í bænum Fier þegar 15 vopnaðir menn reyndu að ráðast inn í t'áð- hús bæjarins. Rcuter ALBÖNSKU börnin tóku vel á móti fyrstu 20 ítölsku hermönnun- um, sem komu til hafnarborgarinnar Durres í gær, og heilsuðu þeim að hermannasið. Á mánudag hefjast eiginlegir liðsflutning- ar til Albaníu en alls verða 6.000 manns í gæsluliðinu. Lúðu- og steinbíts- eldi styrkt Ósló. Morgunblaóið. LÚÐA, skelfiskur og steinbít- ur eiga að verða nýju eldisteg- undirnar í Noregi og hafa stjórnvöld lagt fram 600 millj. ísl. kr. til að koma starfsem- inni af stað. Laxinn ber höfuð og herðar yfír allt annað í eldinu en norska stjórnin vill renna fleiri stoðum undir mannlífið á landsbyggðinni. Hefur hún ákveðið að styðja þá, sem vilja hefja eldi á lúðu, skelfiski og steinbíti, en í Nor- egi hafa farið fram miklar til- raunir með eldi þessara teg- unda. Verður styrkurinn veitt- ur á næstu fjórum árum til þeirra, sem vilja reyna fyrir sér með þessar tegundir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.