Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 49 FRÉTTIR Neytendasamtökin fagna því að ekki verður af samruna NEYTENDASAMTÖKIN hafa sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu um samruna innanlandsflugs Flug- leiða og Flugfélags Norðurlands: „Vegna nýlegs úrskurðar sam- keppnisráðs um samruna innan- landsflugs Flugleiða og Flugfélags Norðurlands vilja Neytendasamtökin minna á þá staðreynd að í dag búa íslenskir neytendur við fákeppnis- markað í flugi eins og skýrt kemur fram í gögnum samkeppnisráðs með úrskurðinum. Þrátt fyrir að gefa eigi flugrekstur fijálsan síðar á þessu ári er ljóst að erlend flugfélög muni ekki hefja flug á flugleiðum innan- lands um ófyrirsjáanlega framtíð. Umræddur samruni hefði því enn aukið á fákeppnina. Neytendasam- Starfsemi Borgarholts- skóla kynnt BORGARHOLTSSKÓLI, fram- haldsskólinn í Grafarvogi, býður íbúum Grafai-vogshverfa og Mos- fellsbæjar að koma og kynna sér starfsemina sunnudaginn 13. apríl kl. 13-17. Skólinn hóf starfsemi sína í nýju og glæsilegu húsnæði haustið 1996. Þar fer fram fjölbreytt bóklegt og verklegt nám og skólinn leggur sig fram um að hver nemandi fái nám við sitt hæfi. Brautir skólans eru Ijölmenntabraut, félagsfræðibraut, náttúrufræðibraut og tungumála- braut, félagsþjónustubraut, versl- unarbraut, iðnnám á sviði bíl- og málmiðna, námsbraut fyrir þroska- hefta/ijölfatlaða og eins árs fornám. Borgarholtsskóli er að stíga sín fyrstu skref og hafa íbúar Grafar- vogshverfa og Mosfellsbæjar ekki átt þess kost að kynnast því fjöl- breytta starfi sem þar fer fram. Opna húsið á sunnudaginn veitir þeim tækifæri til að skoða fram- haldsskólann sinn. Salka Valka í Mosfellsbæ Hveragerði. Morgunbiadið. LEIKRITIÐ Salka Valka eftir Hall- dór Kiljan Laxness í flutningi Leikfé- lags Hveragerðis verður sýnt í Bæj- arleikhúsinu Mosfellsbæ í kvöld, laugardagskvöld, klukkan 20:30. Leikritið hefur verið sýnt í Hvera- gerði undanfarið og hlotið mjög góða dóma. Leikstjóri er Inga Bjarnason en með helstu hlutverk fara Svala Karlsdóttir, Magnús Stefánsson, Sólveig Jónsdóttir, Sævar Helgaspn, Sigurður Blöndal og Margrét Ás- geirsdóttir. Aðeins verður um þessa einu sýn- ingu að ræða á höfuðborgarsvæðinu. Gengið á milli mannvistar- minja í Eld- varpahrauni ÚTIVIST stendur fyrir gönguferð á milli staða í Eldvarpahrauni á Reykjanesi sunnudaginn 13. apríl þar sem mannvistarminjar hafa fundist. Um er að ræða hellisskúta, smá- gerðar húsatóftir, rétt o.fl. Stutt frá eru fornleifar þ. á m. tvær alfara- leiðir milli Járngerðastaðahverfis og Staðarhverfis og Njarðvíkurfitja. Farið verðu með rútu frá Umferð- armiðstöðinni kl. 10.30 og frá Fitja- nesti í Reykjanesbæ kl. 11.15. Ganga hefst við Orkuverið í Svarts- engi kl. 12. tökin fagna því að ekki verður af þessum samruna. Raunar er það skoðun Neytenda- samtakanna að með vísan í 18. gr. samkeppnislaga hefði samkeppnis- ráð átt að banna með öllu þennan samruna. Það var hins vegar niður- staða samkeppnisráðs að setja skil- yrði fyrir samrunanum, skilyrði sem flugfélögin sætta sig ekki við og hafa hætt við sameiningu. Því ber að fagna. Jafnframt lýsa Neytendasamtökin yfir undrun sinni á viðbrögðum sam- gönguráðherra. Neytendasamtökin minna á að kjörnir fulltrúar almenn- ings eiga að gæta hagsmuna al- mennings en ekki einstakra fyrir- tækja.“ Tónsmiðurinn Hermes í Ævin- týra-Kringlunni TÓNSMIÐURINN Hermes kemur í dag kl. 14.30 í Ævintýra-Kringluna og skemmtir börnum með hljóðfæra- leik og söng. Guðni Franzson klarí- nettleikari leikur Hermes en sér til aðstoðar hefur hann Daníel Þor- steinsson sem mætir með harmoník- una. Guðni Franzson hefur farið víða sem tónsmiðurinn Hermes. Hann byijaði í Gerðubergi með tónleika fyrir börn þar sem hann spilaði lög frá ýmsum löndum. Ævintýra-Kringlan er barna- gæsla og listasmiðja fyrir börn á aldrinum 2-8 ára á 3. hæð í Kringl- unni. Opið kl. 14-18 virka daga og kl. 10-16 laugardaga. „í sóttkví“ sýná í bíósal MIR RÚSSNESKA kvikmyndin „í sóttkví" __ (Karantín) verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, sunnudag- inn 13. apríl kl. 16. Myndin er frá áttunda áratugnum og ieikstjórinn, Ilja Frez, sá hinn sami og leikstýrði myndinni sem sýnd var sl. sunnu- dag, „Fyrstabekkjarbarni". Eins og sú kvikmynd fjallar „í sóttkví" um sitthvað sem á daga yngstu kynslóð- arinnar drífur. Enskir textar. Að- gangur ókeypis. Parkinson- samtökin opna reikning EVRÓPU SAMBAND Parkinson- samtaka hefur tilnefnt 11. apríl dag Parkinson-sjúklinga í Evrópu. í til- efni þess hafa Parkinson-samtökin á íslandi opnað reikning í Lands- banka íslands, Laugavegi 77, þar sem allir þeir sem vilja styrkja sam- tökin geta lagt inn á reikning nr. 0111-26-25. Parkinson-samtökin gefa út fréttabréf 5-6 sinnum á ári með upplýsingum til félagsmanna auk annarra upplýsingabæklinga. Sam- tökin hafa aðstöðu á Laugavegi 26. Hárið í Hvassa- leitisskóla LEIKFÉLAG Hvassaleitisskóla hef- ur í hálft ár æft. hluta söngleiksins Hárið. Söngleikurinn var sýndur þriðjudaginn 8. apríl á árshátíð skólans. Á sunnudaginn kl. 15 verð- ur opin sýning á Hárinu og er miða- verð 250 kr. Leikstjóri Hársins er Kristín Thors en hún leikstýrði einnig Rocky Horror sem var sett upp á árshátíð Hvassaleitis í fyrra. Bjartmar Þórðarson aðstoðaði leik- endurna við dans og „pósur“. NESKIRKJA í Reykjavík á vígsluafmæli um þessar mundir en hún var vígð 14. apríl 1957 af þáverandi biskupi Islands, herra Ásmundi Guðmundssyni. í tilefni afmælisins verður há- tíðarguðsþjónusta næstkomandi sunnudag kl. 14. Ræðumaður verður Þorsteinn Pálsson, kirkjumálaráðherra. Ritningar- lestra annast sr. Guðmundur Óskar Ólafsson og Kristín Bög- eskov djákni. Inga J. Backmann syngur einsöng. Orgelleik og söngstjórn annast Reynir Jónas- son. Prestarnir sr. Frank M. Halldórsson og sr. Halldór Reyn- isson þjóna fyrir altari. Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna undir sljórn Ingvars Jónassonar mun leika i hálfa klukkustund á undan guðsþjónustunni. Að henni lok- inni mun prófessor Guðmundur Magnússon, formaður sóknar- nefndar, flytja ávarp. _ Neskirkju teiknaði Ágúst Páls- son húsameistari. Kirkjan tekur um fimm hundruð manns í sæti ef lausir stólar eru nýttir, auk rýmis í safnaðarheimili þar sem fjölþætt starf fer fram alla daga vikunnar. Fjörutíu ár frá vígslu Neskirkju Afmælisganga Ferðafélags Islands Gengið á Valhúsahæð - Suðurnes í TILEFNI af 70 ára afmæli Ferða- félags íslands efnir félagið til fjöl- margra styttri eða lengri afmælis- ferða. Fyrsta ferðin er nú á sunnu- daginn kemur, 13. apríl, en þá er gengin fyrsti áfangi í léttri rað- göngu um útivistarsvæði höfuð- borgarinnar. Raðgangan er farin í 6 ferðum frá Seltjarnarnesi um göngustíga upp í Heiðmörk. Afmælisgangan á sunnudaginn er tileinkuð fyrstu Seltjarnarnesför Ferðafélagsins 13. apríl 1936. í göngunni verður farið um Valhúsa- hæð, framhjá Nesstofu og út á strönd Suðurness. Brottför er frá Ferðafélagshús- inu að Mörkinni 6, neðan Valhúsa- hæðar. Áætlaður göngutími eru 2 klst. og er ferðin tilvalin fjölskyldu- ganga. Verð 200 kr. fyrir fullorðna en ekkert fyrir 15 ára og yngri. Hótel- og matvælaskólinn Galakvöld- verður útskrift- arnema ÚTSKRIFTARNEMENDUR í Hót- el- og matvælaskólanum í Kópavogi verða með galakvöldverð sunnudag- inn 13. apríl sem samanstendur af 9 réttum og víni. í fréttatilkynningu segir að þarna verði þeir nemendur sem munu út- skrifast í vor að æfa sig fyrir prófið og hafi verið ákveðið að bjóða þeim sem áhuga hefðu á að koma og snæða kvöldverð með frábærri þjón- ustu. Aðeins 60 sæti eru í boði og er verðið 5.000 kr. fyrir mat og vín. ■ WHIPLASH á íslandi, samtök fólks með tognun í hálsi og baki, heldur fund __ mánudagskvöldið 14. apríl kÉ 20 í ÍSÍ hótelinu í Laugar- dal. Gestur fundarins verður Hall- gi-ímur Þ. Magnússon læknir. All- ir sem áhuga hafa eru velkomnir á fundinn. LEIÐRÉTT Málþingum klassíska menningu FÉLAG um átjándu aldar fræði heldur málþing sem ber yfirskrift- ina „Klassísk menning og ritstörf íslendinga á 17. og 18. öld“, í dag, laugardag. Málþingið verður haldið í Þjóðarbókhlöðunni, 2. hæð, kl. 13.30. Svavar Hrafn Svavarsson, forn- fræðingur, flytur erindi um latnesk fræði á 17. og 18. öld. Sigurður Pétursson, lektor, ræðir um klassísk áhrif í latínukveðskap íslendinga á 17. og 18. öld. Kristján Árnason, dósent, ræðir um ljóðaþýðingar úr latínu fyrir 1800 og Margrét Egg- ertsdóttir, bókmenntafræðingur, ræðir um klassískar fyrirmyndir í kveðskap á 17. og 18. öld. Fundarstjóri er Steinunn Inga Ottarsdóttir, bókmenntafræðingur. Rangfeðraður í TVÍGANG undanfarna daga hefur Morgunblaðið rangfeðrað Þorstein V. Þórðarson, innkaupa- og mark- aðsstjóra ísafoldar, sem hafið hefur innflutning á áburði, eins og fram kom hér í blaðinu í fyrradag og aft- ur í gær. I fréttunum var Þorsteinn sagður Þorvaldsson. Áréttað skal að Þorsteinn er Þórðarson og er hann beðinn velvirðingar á mistökunum. Sími á hvolfi í DAGLEGU lífi í gær á blaðsíðu B2 sneri mynd af síma, sem Katrín Pétursdóttir hannaði, öfugt. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Gisti ekki fangageymslu í FRÉTT sl. miðvikudag um ungl- ingsstúlkur sem struku frá meðferð- arheimili í Skagafirði, var sagt frá handtöku vinkonu einnar þeirra í húsi við Þórsgötu. Stúlkan hafði samband við blaðið og sagði það ranghermi í fréttinni, að hún hefði gist fangageymslu nóttina eftir. Kirkjuvika í Bústaða- kirkju VIKUNA 13.-20. apríl verður hald- in kirkjuvika í Bústaðakirkju þar sem leitast er við að hafa fjölbreytta dagskrá sem höfðar til sem flestra. Markmið kirkjuvikunnar er fyrst og fremst að kalla fólk til kirkjunn- ar, opna hana meir en ella og bjóða sóknarbörnum og velunnurum þátt- töku í starfinu. Dagskráin er fjöl- breytt alla daga vikunnar, segir í fréttatilkynningu. Ólafsstofa Hjaltasonar Við upphaf kirkjuvikunnar predik- ar biskupinn yfir ísiandi og fyrrum sóknarprestur Bústaðakirkju, hr. Ólafur Skúlason. í lok messunnar mun hann vígja altari í Ólafsstofu Hjaltasonar en Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður hefur byggt upp og myndskreytt altarið með gler- listaverki. Stofan ber nafn Ólafs Hjaltasonar sem var fæddur 19. janúar 1950 og lést 27. mars 1968. Hann var eitt fermingarbarna í fyrsta hópi Ólafs Skúlasonar þegar hann kom til þjón- ustu í Bústaðaprestakalli. Fjölskylda Ólafs Hjaltasonar hefur árlega gefið minningargjafir sem varið hefur ver- ið til uppbyggingar Ólafs-stofu. Af annarri dagskrá kirkjuvikunn- ar má nefna myndlistarsýningu ÆJU í kirkjunni. Mæðgna- og feðgakvöld Kynning á kristilegum barnabók- um verður í barnamessu sunnudag- inn 13. apríl þar sem Karl Helga- son, ritstjóri Æskunnar og abc, mun lesa ásamt fleiruin nokkra valda kafla úr kristilegutn barnabókum. Þessi kynning er í samvinnu við Félag íslenskra bókaútgefenda. Kirkjukór Bústaðakirkju verður með Schubertstónleika með fjöl- breyttri dagskrá og þátttöku ein- söngvara og tónlistarfólks. Þá verður mæðgna- og feðga- kvöld þar sem annars vegar mæður og dætur og hins vegar feður og synir koma saman til þess að efla tengsl og samband sín á milli. Kvenfélag Bústaðakirkju verður með fund á mánudagskvöldi og eru ungar konur í sókninni sérstaklega boðnar á þann fund. Æskulýðskvöld verður á föstudagskvöldið. Opinn AA fundur verður í kirkj- unni á laugardegi þar sem allir eru velkomnir og sérstaklega eru fjöl- skyldur AA manna og kvenna hvatt- ar til þátttöku. Kyrrðarstundir með orgelleik verða öll kvöld kirkjuvikunnar kl. 18. Kirkjuvikunni lýkur með guðs- þjónustu þann 20. apríl kl. 14 en að messu lokinni verður haldinn að- alfundur Bústaðasóknar. OPIÐ OLL KVOLD VIKUNNARTIL KL 21.00 HRINGBRAUT I 19, -VIÐ|L HÚSIÐ. Opiö alla daga vikunnar 22 LYFIA Lágmúla 5 Slmi 533 2300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.