Morgunblaðið - 12.04.1997, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Andstaða við skyldulífeyrisgreiðslur í sameignarsjóði
Verið að leggja sér-
eignarsjóðina niður
Vilhjálmur Egilsson vill breyta >
umfangi skyldutryggingar
Tryggingu
verðisett
ákveðin mörk
FORSVARSMENN séreignarlíf-
eyrissjóða bregðast hart við
ákvæðum í lífeyrisfrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar, að öllum verði gert
skylt að greiða 10% lágmarksið-
gjald af launum í sameignarlífeyr-
issjóði.
„Það er mikil reiði meðal félaga
í séreignarsjóðum enda er verið
að leggja séreignarsjóðina niður
með þessu frumvarpi, og gera þá
að geymslustað fyrir peninga,"
sagði Sigurður R. Helgason stjórn-
arformaður Ftjálsa lífeyrissjóðsins
um fyrirhugað frumvarp ríkis-
stjórnarinnar.
En samkvæmt frumvarpinu
geta séreignarsjóðir breytt starf-
semi sinni í samtryggingarsjóð, og
verða þá að loka séreignarhlutan-
um, eða þeir mega taka við viðbót-
arlífeyrissparnaði umfram 10% af
launum launþega.
Bergsteinn Gunnarsson
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
Tæknifræðingafélags íslands tek-
ur í sama streng en sjóðurinn
hefur verið séreignarsjóður frá
stofnun. „Það er verið með þessu
að stroka yfir sjóðinn okkar sem
hefur starfað í yfir 30 ár,“ sagði
Bergsteinn.
Hann sagði að um 1.100 manns
ættu aðild að sjóði tæknifræðinga.
„Það hefur aldrei mér vitanlega
verið ágreiningur um að hafa þetta
form á sjóðnum. Menn hafa haldið
mjög vel utan um sína inneign
enda hefur verið góð ávöxtun af
sjóðnum og tiltölulega lítill rekstr-
arkostnaður," sagði Bergsteinn.
Breið samstaða
Að sögn Sigurðar R. Helgasonar
eru á milli 13 og 15 þúsund manns
félagar í séreignarsjóðum og breið
samstaða er meðal þeirra gegn
þessum frumvarpsákvæðum.
„Þarna er í raun verið að reyra allt
í sama mótið fyrir undarlegustu
uppákomu, sem varð í kjarasamn-
ingunum. Og það er eins og menn
hafi ekki haft fyrir því að aðlaga
greinargerð frumvarpsins að
breytingunum, því í greinargerð-
inni segir að auka eigi valfrelsi og
samkeppni í lífeyrismálum," sagði
Sigurður.
Verðbréfafyrirtækin hafa flest
séreignarsjóði innan sinna vébanda.
Þegar Sigurður var spurður hvort
andstaða við frumvaipsákvæðin
stafaði af því að fyrirtækin myndu
missa spón úr aski sínum sagði
hann að hagsmunir fyrirtækjanna
og sjóðfélaganna væru sameigin-
legir og endurspegluðu vilja mark-
aðarins. „Það er mjög stór hópur
fólks sem hefur valið sér sér þessa
leið og þau fyrirtæki sem gæta
hagsmuna þessa stóra hóps hafa
auðvitað hag af því.“
Undirbúningshópur að stofnun
landssamtaka fijálsra lífeyrissjóða
hélt fund í gærmorgun og er ann-
ar fundur fyrirhugaður á sunnu-
dag. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun þessunr sam-
tökum m.a. ætlað að betjast gegn
því að lífeyrisfrumvarpið fari gegn-
um Alþingi óbreytt.
VILHJÁLMUR Egilsson þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis kveðst telja frumvarpið um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda
fela í sér réttmæta eiginleika, en
hann sé hins vegar algjörlega mót-
fallinn því að umfang skyldutiygg-
ingarinnar sé jafn mikið og lagt er
til í frumvarpinu.
„Ég er þeirrar skoðunar að pró-
sentan sem miðað er við núna henti
ekki nema að takmörkuðu leyti, og
í stað hennar eigi að vera þak á
skyldutryggingunni, ákveðin upp-
hæð, sem miðast til dæmis við
150-200 þúsund krónur á mánuði,"
segir Vilhjálmur.
Allt umfram frjálst
Hann bendir á að málum sé svo
háttað að launþegar detti á tilteknu
tekjubili út úr lífeyristryggingum
almannatrygginga, t.d. þegar þeir
eru með laun sem samsvara áður-
nefndri tölu, þ.e. á bilinu 150 til
200 þúsund krónur á mánuði. „Þá
skapast ákveðinn lífeyrisréttur sem
verður svo hár smám saman að
hann eyðir allri tekjutryggingu.
Tekjurnar sem skapa svo há lífeyr-
isréttindi að menn detta út úr al-
mannatryggingum, hljóta að vera
þau viðmiðunarmörk sem skyldu-
tryggingin miðast við og það sem
er umfram það á að vera algjörlega
fijálst," segir Vilhjálmur.
„Þegar launþegi er kominn upp
fyrir þetta þak í launum, getur pró-
sentan síðan fallið niður í til dæmis
3-5%, en hann greitt í séreignar-
sjóði eins og honum sýnist umfram
áðurnefnda upphæð.
Mér finnst einfaldlega svo að
þegar fólk er komið með svo háan
lífeyrisrétt að ríkið þarf ekki að
borga með því, sé engin ástæða til l
að skylda það að vera í samtrygg- |
ingarsjóði. Mér fínnst einnig eðli-
legt að það fólk sem nú greiðir í
séreignarsjóðina fái að vera þar
áfram eins og mögulegt er, en þess
í stað þurfa sjóðirnir að bjóða upp
á samtryggingu í leiðinni, upp að
vissu marki. Þá væri þetta nægjan-
lega öflugt til að vera eins og best
er á kosið.“
Vilhjálmur kveðst þeirrar skoð-
unar að þótt allir þurfi að greiða
til sameignarsjóða upp að ákveðnu
marki, telji hann að frjálst eigi að
vera_ í hvaða sjóði er greitt.
„Ýmsir séreignarsjóðir geta mjög
vel boðið upp á samtryggingu upp
að ákveðnu marki og þótt það gangi
á skjön við yfirlýstan tilgang frum-
varpsins, er ekki ýkja erfitt að
breyta því til að ná þessu fram. Það
er nú svo að hægt er að ná fram
samtryggingarskyldu með ýmsum ,
hætti, í stað þess að negla hana
algjörlega niður,“ segir hann.
Verður ekki óbreytt
Vilhjálmur segir hafa legið fyrir
frá upphafi málsins að hann setti
fyrirvara að þessu leyti og hann
muni koma þeirn sjónarmiðum á
framfæri innan efnahags- og við-
skiptanefndar.
Innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins séu mjög skiptar skoðanii' j
um þetta mál og hvaða leið sé hent-
ugust í því sambandi, sem hann
telji eðlilegt í Ijósi þess hversu víð-
feðmt það er. Hann telji því að
frumvarpið muni ekki ná óbreytt
fram að ganga.
Gunnlaugur Sigmundsson alfarið á móti frumvarpinu
„Skref til baka í
að minnka frelsi“
rrn -t 4 rn rrn 1 n~jn iárusþ.valoimarsson,framkvæmdastjóri
UUL I luU'DuZ lu/U JÚHflNNÞÚRBflRSON,HRL.IðGGIlTUBFASTEIfiNASALI.
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Stór og góð - gott vinnupláss
Við Kirkjuteig: 4ra herb. íbúð á 2. hæð 117,9 fm nettó. Nýtt gler o.fl.
Stórar stofur. Góður bílskúr (vinnupláss) um 40 fm. Ræktuð lóð með
háum trjám. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Á vinsælum stað í Laugarneshverfi
Sólrík 2ja herb. íbúð á 2. hæð 55,6 fm neðst við Kleppsveg. Nýir
gluggar og gler fylgir. Tilboð óskast.
Einbýlishús við Hrauntungu - Kóp.
Mjög gott steinhús 141,2 fm auk geymslu m.m. Góður bílskúr 33,6
fm. Ræktuð lóð með sólverönd og heitum potti. Tilboð óskast.
Vegna sölu að undanförnu óskast
Stór og góð 4ra herb. íbúð i lyftuhúsi, helst í vesturborginni eða á
Nesinu með bílgeymslu. Rétt eign greidd við kaupsamning.
3ja-4ra herb. íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Bústaðaveg/ná-
grenni, Heimar - Sund/nágrenni.
Sérhæðir raðhús og einbýlishús á einni hæð í borginni og nágrenni.
Margskonar eignaskipti. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
• • •
Opið í dag, laugardag,
kl. 10-14.
Sérbýli óskast helst í
vesturborginni eða á Nesinu
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
GUNNLAUGUR M. Sigmundsson
þingmaður Framsóknarflokksins
kveðst alfarið vera mótfallinn frum-
varpi ríkisstjórnarinnar um skyldu-
tiyggingu lífeyrisréttinda, þar sem
gert er ráð fyrir að greiðendum
iðgjalda til séreignarsjóða verði
gert að greiða 10% lágmarksiðgjöld
af launum sínum til sameignar-
sjóða. Um fráleitar hugmyndir sé
að ræða.
„Mér finnst þessar hugmyndir
fela í sér átroðslu á einstaklings-
frelsi, því ég er þeirrar skoðunar
að fólk eigi að ráða því sjálft, hvern-
ig og hvar það festi lífeyrissparnað
sinn. Ég hef alla tíð verið þeirrar
skoðunar að fólk geti valið lífeyris-
sjóð á eigin spýtur, og finnst skref
aftur á bak að minnka það frelsi
sem hefur þó verið til staðar,“ seg-
ir Gunnlaugur.
Aðrar leiðir færar
Aðspurður um þau rök fjármála-
ráðherra að óviðunandi sé að sumir
taki þátt í félagslegri samtryggingu
en aðrir ekki, kveðst Gunnlaugur
telja að hægt sé að bregðast við
vanda af þessu tagi með öðrum
hætti, auk þess sem hann sé sann-
færður um réttmæti þess að auka
frelsi í lífeyrismálum frá því sem
nú tíðkast.
„Ráðherra er væntanlega að
meina að þeir sem greiða ekki til
sameignarsjóða geti leitað á náðir
ríkisvaldsins um eliilífeyri eða fé-
lagslega styrki eftir starfslok, án
þess að hafa lagt sitt af mörkum
til kostnaðar samfara þessu kerfi.
Ég er hins vegar þeirrar skoðunar
að hver eintaklingur beri ábyrgð á
sjálfum sér og á hverjum og einum
hlýtur að. brenna hvernig hann
hagar lífeyrissparnaði sínum. Ég
sé það ekki sem kröfu á ríkisvald-
ið, kjósi einhver að taka út lífeyris-
sparnað sinn á 15 árum frá því
hann nær sjötíu ára aldri en lifi
svo til níræðs eða lengur, heldur
verður viðkomandi einstaklingur
að axla ábyrgð gerða sinna,“ segir
Gunnlaugur.
Hann kveðst ekki hafa veitt þess-
um ákvæðum frumvarpsins athygli
þegar það var kynnt innan þing-
flokka stjórnarflokkanna, en hins
vegar hafi margir innan þingflokks
Framsóknar verið óánægðir með
að í því hafi ekki verið að finna
ákvæði um að miðað væri við 10
þúsund krónur á mánuði í sameign- k
arsjóði en viðbót gæti runnið til r
séreignarsjóða.
Afgreitt með hraði
„Frumvarpið var kynnt á sama
tíma og erfiðir kjarasamningar
stóðu yfir og gerð var krafa uni
að það væri afgreitt með hraði. Ég
gerði mér ekki grein fyrir því að
þetta ákvæði væri þarna inni og l
að verið væri að skerða rétt þeirra
sem nú eru í séreignarlífeyrissjóð-
um og harma þau mistök nú. Eink- |
um þykir mér það slæmt í ljósi 1
þess að ég get ekki barist gegn
þessu í efnahags- og viðskiptanefnd
af fullum krafti, þar sem ég verð
ijarri þingstörfum á næstunni af
persónulegum ástæðum," segir
Gunnlaugur.
Hann kveðst sannfærður um að
margir innan nefndarinnar hugsi |
til frumvarpsins með sama hætti
og hann, en hins vegar sé of
snemmt að segja til um hvernig
afgreiðslu þess þar verði háttað. *