Morgunblaðið - 12.04.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 13
Fyrsti áfangi
Giljaskóla
Tvö tilboð
TVÖ tilboð bárust í byggingu
1. áfanga Giljaskóla við
Kiðagil á Akureyri.
Verktakafyrirtækið SS
Byggir bauð 170.589.503
krónur sem er 93% af áætluð-
um kostnaði og SJS-verktakar
buðu 175.938.728 eða 96,1%
af kostnaðaráætlun, en hún
hljóðaði upp á 182.960.000
krónur.
Byggingin er samtals um
2.100 fermetrar, fyrri hluti
hennar er um 1.400 fermetrar
á þremur hæðum og á að vera
fullbúinn 15. desember næst-
komandi. Síðari hluti er um
700 fermetrar á tveimur hæð-
um og skal hann vera fullbú-
inn 1. ágúst árið 1998.
Um er að ræða flókið verk-
efni og mannfrekt, en til að
ná því að klára á tilsettum
tíma þarf að hafa um 30
manns í vinnu og þá lýkur því
á slæmum tíma fyrir bygging-
ariðnaðinn eða rétt fyrir ára-
mót. Að sögn Agústar Berg
hjá byggingadeild Akreyrar-
bæjar eru þetta helstu skýr-
ingarnar á því að fleiri verk-
takar sækjast ekki eftir að ná
þessu stóra verkefni.
Jasstríó og
Jóna sterka
JASSTRÍÓ Birgis Karlssonar
og Dixielandhljómsveitin Jóna
sterka leika í Blómaskálanum
Vín í Eyjafjarðarsveit annað
kvöld, sunnudagskvöldið 13.
apríl kl. 21. Menningarmála-
nefnd Eyj afj arðarsveitar
stendur að tónleikunum og eru
allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Héraðsdómur Norð-
urlands eystra
Varðhald og
réttindamiss-
ir fyrir ölv-
unarakstur
TÆPLEGA fertugur maður
hefur í Héraðsdómi Norður-
lands eystra verið dæmdur í
60 daga varðhald og sviptur
ökurétti ævilangt auk þess að
greiða allan sakarkostnað.
Var maðurinn ákærður fyrir
að hafa ekið bifreið undir
áhrifum áfengis, sviptur öku-
rétti, en bifreiðin hafnaði á
umferðarmerki og tijágróðri á
mótum Vestursíðu og Bugðus-
íðu á Akureyri. Atburðurinn
varð í október árið 1994. Mað-
urinn hafði alloft komið við
sögu lögreglu m.a. verið svipt-
urökurétti ævilangt árið 1990.
Aglowfundur
AGLOW - kristilegt félag
kvenna heldur fund í félags-
miðstöðinni Víðilundi 22 næst-
komandi mánudagskvöld, 14.
apríl ki. 20. Ræðumaður verð-
ur Ester Jacobsen. Mikill söng-
ur. Kaffihlaðborð selt á staðn-
um. Allar konur eru velkomn-
ar.
Endurskoðun tómstundamála á Akureyri kynnt í ITA og bæjarráði
Grunnskólar opnist
íbúum hverfisins
DRÖG að endurskoðun tómstunda-
mála á Akureyri voru lögð fyrir
íþrótta- og tómstundaráð í vikunni.
Skýrslan var unnin af Valgerði
Magnúsdóttur, félagsmálastjóra og
Eiríki Birni Björgvinssyni, íþrótta-
og tómstundafulltrúa. A fundi bæj-
arráðs á fimmtudag var skýrslan
einnig lögð fram til kynningar.
Markvisst forvarnarstarf
Lagt er til að tómstundastarf
byggist upp sem markvisst forvarn-
arstarf og að komið verði upp mið-
stöð tómstundastarfs, t.d. í iþrótta-
höllinni. Akureyrarbær styðji tóm-
stundastarf fijálsra félaga, m.a. með
samnýtingu á húsnæði og annarri
aðstöðu þegar þess er kostur.
Þá er lagt til að starfsfólk félags-
miðstöðva verði uppeldismenntað,
félagsmiðstöðvar eflist og verði í
öllum grunnskólum bæjarins.
Miðstöð tómstundastarfs
í íþróttahöllinni
Félagslegri þjónustu á vegum
sveitarfélaga er ætlað að fást við
margskonar forvarnarstarf. Þar
koma tómstundatilboð að veigamikl-
um notum og hér í bænum hefur
verið unnið í þessum anda, segir í
skýrslunni. Má nefna verkefni eins
og að koma í veg fyrir að börn og
unglingar ánetjist áfengi, tóbaki og
öðrum vímuefnum, koma þeim til
hjálpar ef þau ánetjast, koma í veg
fyrir óæskileg og neikvæð áhrif at-
vinnuleysis og stuðla að því að aldr-
aðir geti sem lengst búið utan stofn-
ana.
Eins og fram kemur í tillögum
skýrsluhöfunda er lagt til að til verði
miðstöð tómstundastarfsins og að
þejrri starfsemi verði fundinn staður
í íþróttahöllinni. Þar verði umsjón
með daglegum rekstri, uppbygging
og þróun starfseminnar, þungamiðja
sérhæfðs tómstundastarfs og þess
sem krefst dýrra tækja. íþróttahöllin
er miðsvæðis í bænum, sem er ótví-
ræður kostur, að mati skýrsluhöf-
unda.
Félagsmiðstöðvar í alla
grunnskóla
Nú eru starfandi félagsmiðstöðv-
ar í þremur grunnskólum og auk
þess stundað tómstundastarf í Dyn-
heimum. Lagt er til að í framtíðinni
verði félagsmiðstöðvar í öllum
grunnskólum, þannig að nemendur
þurfi ekki út fyrir sitt hverfi til að
fara í félagsmiðstöð. Jafnframt að
starfsemi Dynheima dragist saman
fyrir þennan aldurshóp og miðist
við dansleiki eða diskótek í fáein
skipti á ári.
Skólar á Akureyri eru nánast
orðnir einsetnir og því telja skýrslu-
höfundar æskilegt að tómstunda-
starf í skólum, námskeiðahald og
annað, tengist samfellda skóladegin-
um. Námskeið væru þá í boði í beinu
framhaldi af stundaskrá og væri að
jafnaði lokið fyrir kvöldmat. Tóm-
stundastarf á að vera valfijálst og
ekki í samkeppni við nám. Kvöld-
og helgarstarf þarf að taka tillit til
útivistarreglna eins og nú er. Nauð-
synlegt er að nýta félagsmiðstöðv-
arnar sem best í fyrirbyggjandi til-
gangi á „spennutímum", þegar vitað
er að unglingarnir hópast helst sam-
an og neyta áfengis, t.d. í lok sam-
ræmdu prófa.
Tómstundastarf fyrir
16-20 ára
Lagt er til að gerð verði tilraun
með að opna félagsmiðstöðvarnar -
húsnæði grunnskólanna í auknum
mæli fyrir íbúa hverfisins eftir ósk-
um þeirra og áhuga. Þannig má
tengja tómstundastarf skólabarn-
anna við það sem aðrir í hverfinu
hafa áhuga á að gera. Hér er lagt
til að tilraun af þessu tagi verði
gerð í Oddeyrarskóla. Þar er land-
fræðilega afmarkað hverfi með
minnsta hverfisskólann.
Einnig er í tillögum skýrsluhöf-
unda lagt til að gerð verði tilraun í
2 ár til að byggja upp í Dynheimum
tómstundastarf fyrir ungt fólk,
16-20 ára. Byija þyrfti á því að
kanna meðal þessa aldurshóps hvort
áhugi er á starfsemi af þessu tagi
Morgunblaðið/Kristján
LAGT er til að gerð verði til-
raun í 2 ár til að byggja upp
tómstundastarf í Dynheimum
fyrir ungt fólk, 16-20 ára.
og ef svo er þyrfti að afla upplýs-
inga um hvað þessi markhópur vill
helst taka sér fyrir hendur í félags-
miðstöð af þessu tagi og hvernig þau
sjáif vilja hugsanlega koma að
rekstrinum.
Þá er lagt til að gerðar verði til-
raunir með að draga úr aðgreiningu
fólks í tómstundastarfi, t.d. eftir
aldri. Vel má hugsa sér að sett
væru upp námskeið sem litlir hópar
innan fjölskyldna gætu komið sam-
an á, t.d. að krakkar og afi og
amma lærðu að taka myndir á sömu
námskeiðum. Loks er lagt til að
tómstundastarf eldri borgara miðist
við að auka sjálfstæði og lífsgæði
þeirra og uppfylli sem best þá stefnu
Akureyrarbæjar að gera fólki kleift
að búa á eigin vegum sem lengst.
Myndlistarskóli Arnar Inga
Sýning á verkum nemenda
SÝNING á verkum nemenda
í Myndlistarskóla Arnar Inga
verður sett upp í Klettagerði
6 á morgun, sunnudaginn 13.
apríl og verður hún opin frá
kl. 14 til 18.
A sýningunni verða u.þ.b.
50 verk aðallega unnin með
olíu- og pastellitum. Verkin
eru innrömmuð og vel frá
gengin og þó ekki sé um sölu-
sýningu að ræða hafa sýning-
argestir oft falast eftir verk-
um á fyrri sýningum.
Tvær vorsýningar verða að
þessu sinni, þar sem einn útskrift-
arnemandi, Guðfinna Guðmunds-
dóttir, sýnir verk sín sérstaklega
11. maí næstkomandi.
Uppýsingar og innritanir fyrir
sumarlistanámskeið og næsta
starfsár fara fram á báðum sýn-
ingum.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Æskulýðs-
fundur í kapellu kl. 20.30 í dag,
laugardag. Ath. tímann. Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimili á morg-
un, sunnudag, kl. 11. Allir velkomn-
ir, munið kirkjubílana. Guðsþjón-
usta kl. 14 á morgun, sr. Guðmund-
ur Guðmundsson héraðsprestur
prédikar. Biblíulestur í safnaðar-
heimili kl. 20.30 á mánudag. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 17.15 næsta
fimmtudag, bænaefnuin má koma
til prestanna.
GLERÁRKIRKJA: Barnasam-
koma verður í kirkjunni kl. 11. For-
eldrar eru hvattir til að fjölmenna
með börnum sínum. Tónleikar
barnakóra verða í kirkjunni kl. 16.30
á morgun. Fundur æskulýðsfélags-
ins kl. 20. Kyrrðarstund verður í
kirkjunni kl. 18 á þriðjudag, 15.
apríl.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, ungl-
ingaklúbbur kl. 16, almenn sam-
koma kl. 20. Heimilasamband ki.
16 á mánudag, krakkaklúbbur kl.
17 á miðvikudag, Biblía og bæn kl.
20.30 sama dag. Ellefu plús mínus
kl. 17 áfimmtudag. Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Al-
menn samkoma kl. 14 á morgun,
Guðmundur Ómar Guðmundsson
prédikar. Fórn tekin til Gídeonsfé-
lagsins. Andlegar þjálfunarbúðir kl.
20.30 á miðvikudag, unglingasam-
koma næsta föstudag kl. 20.30.
Mikill söngur, allir velkomnir. Bæna-
stund frá kl. 6-7 mánudags-, mið-
vikudags-, og föstudagsmorgna.
Vonarlína, með orð úr ritningunni
sem gefa huggun og von, sími
462-1210.
KAÞÓLSKA KIRKJAN, Eyrar-
landsvegi 26. Messa í dag, laugar-
dag, kl. 18 og á morgun, sunnudag,
kl. 11.
KFUM og K, Sunnuhlíð: Bæna-
stund verður kl. 20. á morgun,
sunnudag.
SJÓNARHÆÐ, Hafnarstræti 63.
Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl.
13.30 á morgun, almenn samkoma
á Sjónarhæð kl. 17. Barnafundur á
Sjónarhæð kl. 18 á mánudag og
unglingafundur kl. 20.30 næsta
föstudag.
Aðalsafnaðarfundur, Lögmannshlíðarsóknar
verður haldinn í Glerárkirkju sunnudaginn
20. aprílkl. 16.00.
Öll sóknarbörn Glerárkirkju hjartanlega velkomin.
Sóknarnefnd.
Utboð
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd bæjarsjóðs
Akureyrar óskar hér með eftir tilboðum í gatnagerð og lagnir í
áfanga V í Giljahverfi.
Tilboðið nær til gerðar 490 lengdarmetra af götum og 70 lengdar-
metra af stígum ásamt tilheyrandi holræsalögnum og jarðvinnu
fyrir vatnslagnir.
Heistu magntölur eru:
Uppúrtekt úr götum 4.300 m3.
Lagnaskurðir 560 m.
Lengd fráveitulagna 950 m.
Fylling 5.500 m3.
Skiladagur verksins er 27. júní 1997.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Tæknideildar Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, Akureyri, frá og með þriðjudeginum 15. apríl 1997 á
4.000 kr.
Opnun tilboða fer fram á sama stað föstudaginn 2. maí kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.