Morgunblaðið - 12.04.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 12. APRÍL 1997 17
ÚRVERINU
ERLENT
Engir fundir í kjara-
viðræðum sjómanna og
útvegsmanna í 2 mánuði
ENGAR viðræður hafa farið fram
í kjarasamningum sjómanna og
útvegsmanna síðan í janúar sl.
Talsmenn sjómannasamtakanna
segja útvegsmenn ekki til viðtals
um þær hugmyndir um verðmynd-
un á fiski sem samtökin hafa lagt
fram. Sjómannasamband Islands
hefur vísað sínum málum til ríkis-
sáttasemjara_ og formaður Vél-
stjórafélags íslands telur að stefni
í átök enn á ný.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags íslands, segir viðræð-
ut' sjómanna og útgerðarmanna
vanalega ekki fara af stað fyrr en
aðilar á almennum markaði hafi
klárað sín mál. „Á þeim fundum
sem undan eru gengnir höfum við
engar undirtektir fengið við okkar
hugmyndir. Við óskum iíklega eft-
Stefnir í átök enn
á ný að mati for-
manns Vélstjóra-
félags Islands
ir viðræðum um leið og mesti kúf-
urinn er farinn af almenna mark-
aðnum en ég fæ ekki séð að það
verði orðið við okkat' óskum nema
við förum út í aðgerðir. Á Alþingi
liggur núna fyrir þingsályktunart-
illlaga þess efnis að allur fiskur
fari á markað og fróðlegt að vita
hvernig þingmennirnir bregðast
við því. Mér sýnist stefna í aðgerð-
ir gegn verðlagningu á fiski og
kvótabraski. Þó að við höfum feng-
ið jákvæðar niðurstöður í bæði
Hæstarétti og félagsdómi veit ég
ekki til þess að LIÚ hafi kynnt
þessa dóma meðal sinna manna
eða hvatt þá til að fara eftir þeim.
Mér virðist þeir því ekki hafa
áhuga á að leysa þessi mál,“ segir
Helgi.
Hafna öllum
hugmyndum
Sjómannasamband íslands hef-
ur vísað kjardeilu sinni til ríkis-
sáttasemjara en meginkrafa þeirra
er að allur fiskur verði seldur á
fiskmarkaði. „Útgerðarmenn hafa
hafnað öllum okkat' hugmyndum
um verðmyndun á fiski í viðræðun-
um og við sjáum því ekki ástæðu
til að boða til fundar á meðan svo
er,“ segir Sævar Gunnarsson, for-
maður Sjómannasambandsins.
Islensku skipin fara að
tínast á Reykjaneshryg’g’
Veiði erlendra skipa þar hefur verið með afbrigðum léleg
GERA MÁ ráð fyrir að íslensk
skip fari nú að hugsa sér til hreyf-
ings á Reykjaneshrygg þó að aflaf-
réttir þaðan hafi ekki verið góðar
síðustu vikurnar en samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
afli verið mestur um eitt tonn á
togtíma. Á milli 25-30 skip af
ýmsum þjóðernum eru nú á svæð-
inu eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst.
Heinaste hefur verið að veiðum
á Reykjaneshrygg í um mánuð og
segir Guðmundur Þórðarson, út-
gerðarstjóri Sjólaskipa sem leigja
skipið, veiði hafa verið með af-
brigðum lélega. Hann segir að í
Ijósi þess hafi brottför Haralds
Kristjánssonar HF á Reykjanes-
hrygg verið frestað. „Ástandið á
svæðinu þykir óeðlilegt enda hefur
alltaf fengist þokkalegur afli á
þessum árstíma," segit' Guðmund-
ur.
Tóku tvö hol og fóru
Baldvin Þorsteinsson EA, skip
Samheija hf. á Akureyri, leggur
af stað á Hrygginn á morgun.
Akureyrin EA fór á Reykjanes-
hrygg í síðustu viku en tók aðeins
tvö hol að sögn Þorsteins Vilhelms-
sonat', hjá Samhetja hf. „Afli var
mjög lélegur, aðeins um hálft tonn
á togtímann. Tvö síðustu ár hefur
verið ágætis afli um þetta leyti en
mestur kraftur verið í veiðunum
um og uppút' miðjum maí og fram
í júní. En fyrir þremur árurn vat'
mikil veiði alveg ft'á miðjum mars
og allan apríl. Ég tel að karfastofn-
inn á Reykjaneshrygg sé ofmetinn
og ráði alls ekki við það magn sem
nú er úthlutað á svæðið,“ segir
Þorsteinn.
Reuter
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, og eiginkona hans
Norma heilsa upp á hrossin í Luca Camani-hesthúsunum í kjör-
dæmi Majors, Huntington.
Deilt á íhaldsmenn
1 Evrópumálum
London. Reuter.
EVRÖPUMÁLIN, sem hafa reynst
John Major, forsætisráðherra
Breta, erfiður ljár í þúfu, urðu enn
einu sinni tilefni pólitískra deilna
í gær, aðeins 20 dögum fyrir þing-
kosningat'. Tony Blair, leiðtogi
Verkamannaflokksins, réðst þá að
íhaldsflokknum vegna afstöðu
hans til sameiginlegs evrópsks
gjaldmiðils. Sagði Blair að annað-
hvort ætti Major að krefjast þess
að Angela Browning landbúnaðar-
ráðherra tæki aftur ummæli sín
um sameiginlegan evrópskan
gjaldmiðil sent fram komu í kosn-
ingabæklingi, eða að reka hana.
Búist er við að allt að þriðjung-
ur þingmanna íhaldsflokksins
muni hunsa stefnu Majors gagn-
vart gjaldmiðlinum, sem byggist á
því að „bíða og sjá“, og lofa kjós-
endum sínum því að þeir muni aldr-
ei samþykkja að stefna sterlings-
pundinu í hættu. Það er þó talið
mun hættuminna en hugsanleg
brottvikning t'áðherra. „I morgun
sáum við dæmi urn það sem fjár-
málamarkaðnum er verst við -
klofin ríkisstjórn undir veikri for-
ystu, óskipuleg og við það að leys-
ast upp vegna ágreinings urn
stefnu sína í Evrópumá!um,“ sagði
Blair.
í gærmorgun vitnaði dagblaðið
The Times í kosningarit Browning
til kjósenda sinna í Devon, þar sem
sagði að ef Bretar yrðu aðilar að
sameiginlegri evrópskri mynt, yrðu
þeir að afhenda gjaldeyrisforða
sinn sameiginlegum evrópskum
seðlabanka. Afleiðing þess myndi
verða „endir fullveldis þjóðríkisins,
og sé það í boði, hef ég gert það
alveg ljóst að ég mun ekki styðja
það,“ segir í riti Browning.
Major neitaði í gær að Browning
hefði gengið of langt, sagði sjónar-
mið hennar samræmast sjónarmið-
umm stjornarinnar og stefnuskrá
íhaldsflokksins.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson.
Tvíhlóðu trilluna
Vognm
ÞEIR Halldór Einarsson og Ivan
Frandsen seni róa frá Vogunum
á trillunni Fögruvík gerðu það
gott, nú rétt fyrir hrygningar-
stoppið, eða „fæðingarorlofið"
eins og gárungarnir kalla þar.
Þeir róa með net í Flóanum og
tvíhlóðu trilluna vænum þorski
eins og sjá má á myndinni og
lönduðu samtals fjóruni tonnum.
Frá starfsmannafélagi
Áburðarverksmiðjunnar hf.
Óheftur innflutningur á áburði í skjóli verndaðrar
grænmetisframleiðslu.
Áburðarsalan ísafold kynnir sig í auglýsingum sem fyrirtæki í eigu bænda.
í frétt Morgunblaðsins þann 9. apríl sl. segir sölustjóri ísafoldar að
garðyrkjubændur eigi ísafold og að þeir séu hinn nauðsynlegi bakhjarl
ril þess að ísafold geri náð til sín góðum hluta af áburðarmarkaðinum.
Missi Áburðarverksmiðjan stóran hluta af markaðinum mun það stefna
störfum starfsmanna hennar í hættu.
Áburðarviðskipti eru frjáls en garðyrkjubændur lifa og starfa í
skjóli ofurtolla. Eru störf starfsmanna Áburðarverksmiðjunnar
minna virði en störf garðyrkjubænda?
Starfsmenn Áburðarverksmiðjunnar hf.