Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 4
4 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞESSI sjón blasti við íslendingunum þremur þegar þeir stigu efst á Everestfjall
og þeir festu á mynd stórfenglegt útsýnið yfir Himalayafjallgarðinn.
íslensku fjallgöngumennimir komnir í grunnbúðir á Everest
Áfallalaus ferð
niður ísfallið
ÍSLENSKU fjallgöngnmenn-
imir Björa Ólafsson, Einar
Stefánsson og Hallgrímur
Magnússon komu í grunnbúð-
ir á Everestfjaili snemma í
gærmorgun að íslenskum tíma
eftir nokkurra klukkutíma
göngu úr þriðju búðum yfir
Khumbu-ísfallið.
Fjallgöngumennirnir náðu
tindi Everest á miðvikudags-
morgun en hafa síðan fikrað
sig niður á við. Björa sagði
þá alla vera við góða heilsu
og líta þokkalega út.
„Við höfum verið lengi á
leiðinni niður. Við hresstumst
þegar við komum í þriðju búð-
ir og vorum svo heldur
sneggri á leiðinni niður í dag
og komumst áfallalaust niður
af ísfallinu í síðasta skiptið,"
sagði Björa.
Hann sagði að ísfallið hefði
verið gerbreytt frá því þeir
fóru þar upp síðast og það
hefði verið ótrúleg sjón.
22 á tindinn í gær
Þegar rætt var við Björa í
gær biðu íslendingarnir frétta
af öðrum fjallgöngumönnum
sem fóru á tind Everest í gær.
„Við brutum ísinn ef svo
má segja. Ég vissi um 3-4 leið-
angra sem voru tilbúnir til
uppgöngu og um leið og frétt-
ist að við hefðum komist upp
ætluðu allir að reyna og flest-
ir voru að stíla inn á þennan
dag,“ sagði Björa. Gott veður
var á fjallinu í gær og var það
jafnvel talinn síðasti mögulegi
uppgöngudagurinn á þessu
ári.
Samkvæmt fréttaskeyti
iteuíers-fréttastofunnar náðu
22 fjallgöngumenn tindi Ever-
est í gær sömu Ieið og íslend-
ingarnir fóru tveimur dögum
áður. Er þetta næstmesti fjöldi
sem þangað hefur komist á
einum degi en flestir fóru upp
10. maí 1993 eða 40 talsins.
Einn þeirra sem kleif fjallið
í gær var Tashi Tenzing,
sonarsonur Sherpans Norgay
Tenzing sem komst fyrstur á
Everesttind ásamt Edmund
Hillary árið 1953. Tenzing,
sem er 32 ára gamall, býr í
Ástralíu. Afi hans lést árið
1986. Sonur Hillarys, Peter,
komst á Everesttind árið 1990.
I gær náðu einnig fjall-
göngumenn frá Bandaríkjun-
um, Finnlandi, Mexíkó,
Kanada og Malaysíu, á tindinn
ásamt fylgdarmönnum. Mala-
ysíska sjónvarpið sýndi beint
frá því þegar fjallgöngumenn-
irair reistu fána Malaysíu á
tindinum.
LÖGREGLAN handtók í fyrrinótt
tvo menn um tvítugt sem höfðu
verið stöðvaðir á bifreið er tekin
hafði verið í óleyfi af bílasölu
nokkru áður. Mennirnir reyndu að
hlaupa laganna verði af sér, en
náðust.
Um er að ræða svokallaðan
nytjastuld, en brögð hafa verið að
því sainkvæmt upplýsingum frá
lögreglu að bifreiðar hafí verið
fengnar að láni á bílasölum til
Eeuíers-fréttastofan sagði
einnig í sérstakri frétt frá
afreki íslendinganna þriggja.
í gær höfðu alls 35 fjallgöngu-
menn náð á Everesttind á
þessu ári Neapaimegin.
Á afmæli í dag
Talsvert langan tíma tók
fyrir íslensku Qallgöngu-
mennina að laga sig að þunna
loftinu í hlíðum Everst. Björn
sagði að ekki þyrfti sérstakan
aðlögunartíma þegar komið
væri niður.
„Við verðum hér í grunn-
búðum í 2-3 daga og röltum
svo niður í 2.000 metra hæð.
Hins vegar er það svo, þegar
líkaminn er vanur þunna loft-
inu, að þegar maður kemur
úr svona ferðum þarf miklu
minni svefn fyrstu vikuraar á
eftir; þá duga 4-5 tímar,“
sagði Björa.
I dag á Hallgrímur Magnús-
son afmæli og verður 31 árs.
„Sjálfsagt höldum við eitthvað
upp á það og kannski bakar
strákurinn og gerir okkur ein-
hvern dagamun," sagði Björn.
reynsluaksturs án þess að þeir sem
það gera hafí verið beðnir um skil-
ríki og þeir hafí ekki skilað öku-
tækjunum aftur.
Bifreiðar hafa fundist annars
staðar, jafnvel á öðrum bílasölum,
þar sem önnur ökutæki hafa verið
fengin að láni í sama tilgangi.
Mennimir sem handteknir voru í
fyrrinótt eru grunaðir um að hafa
leikið þennan leik oftar. Lögreglan
hyggst fylgjast með bílasölum.
Kolbeinseyjardeilan
»Mjög
gagnleg-
ur“fundur
og annar
fijótlega
EMBÆTTISMENN frá ís-
landi annars vegar og Dan-
mörku fyrir hönd Færeyja og
Grænlands hins vegar héldu
samningafund í Kaupmanna-
höfn á þriðjudag um mörk
efnahagslögsögu ríkjanna.
Deilt hefur verið um lög-
sögumörkin milli íslands og
Grænlands annars vegar og
íslands og Færeyja hins vegar
en Danir viðurkenna ekki
Kolbeinsey og Hvalbak sem
grunnlínupunkta íslenzku lög-
sögunnar.
Að sögn Tómasar H. Heið-
ar, aðstoðarþjóðréttarfræð-
ings í utanríkisráðuneytinu,
var fundurinn „mjög gagnleg-
ur“. Tómas segir að aðilar
hafi gert ítarlega grein fyrir
rökum sínum og sjónarmiðum
í málinu. Þeir hafi orðið sam-
mála um að halda annan fund
fyrri hluta júní.
Auk Tómasar Heiðars tók
Róbert Trausti Ámason,
sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn, þátt í samninga-
fundinum fyrir íslands hönd.
Framkvæmd-
ir í Straums-
vík á undan
áætlun
Ztirich. Morgunblaðið.
ALUSUISSE tilkynnti í vik-
unni að stækkun álversins á
íslandi gengi betur en reiknað
var með og henni yrði lokið
nokkram mánuðum fyrr en
áætlað var.
120 af 160 einingum í nýju
keralínunni, keralínu 3, hefur
verið komið fyrir. Nýju kerin
verða tekin í notkun í júlí en
stækkun steypuskálans verð-
ur lokið í ágúst. Stækkuninni
átti að ljúka í árslok.
Formleg athöfn í tilefni af
stækkun ISAL verður vænt-
anlega haldin 17. október.
Framleiðslugeta álversins
eykst um 62.000 tonn við
stækkun verksmiðjunnar, eða
úr 100.000 tonnum í 162.000
tonn. Heildarkostnaður við
stækkunina er um 230 milljón
svissneskir frankar, eða 11,5
milljarðar ísl. króna.
Átta fundir í
Karphúsinu
ÁTTA stéttarfélög áttu fundi
með viðsemjendum sínum hjá
ríkissáttasemjara í gær.
Kennarar, Félag frétta-
manna, Félag starfsfólks í
veitingahúsum, Félag hjúkr-
unarfræðinga, Flugfreyjufé-
lag íslands, Sjúkraliðafélag
íslands, Félag flugmála-
starfsmanna Verkalýðs og
sjómannafélag Keflavíkur
vegna starfsmamia ríkisins
hjá Sjúkrahúsi Suðurnesja
áttu fundi með viðsemjendum
sínum í gær.
Fundur með hjúkranar-
fræðingum og viðsemjendum
þeirra er boðaður hjá ríkis-
sáttasemjara í dag.
Tóku bíla í óleyfi
á bílasölum