Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 8

Morgunblaðið - 24.05.1997, Side 8
8 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kynnmgarmál R-Llstans 1 borginni Margt hefur misfarist -segir Ingibjörg Sólrún borgarstjóri ÞETTA verður ljúft Sigrún mín, við getum notað mest af gamla draslinu aftur . . . Fækka stangadögum í Laxáum 150 LAXÁRFÉLAGIÐ hefur fækkað stangadögum á veiðisvæðum sínum í Laxá í Aðaldal um 150 fyrir kom- andi sumar. Þetta er gert í tilraun- askini með tilliti til þess að veiði hefur farið minnkandi í Laxá síð- ustu sumur. Gera menn sér vonir um að hvoru tveggja gerist, að álag- ið á laxastofn árinnar minnki og veiðimenn fái meira í sinn hlut í bættri veiði. í gtað þess að veiða með tólf stöngum á svæðunum frá upphafí til enda veiðitímans verður nú veitt á átta stangir frá 20.-28. júní, 12 stangir frá 28. júlí til 19. ágúst, átta stangir frá 19.-31. ágúst og loks á sex stangir frá 31. ágúst til 9. september. „Þetta er 150 daga fækkun á stangadögum. Það hefur verið minnkandi veiði í ánni síðustu sum- ur og þó ég sé bjartsýnn á upp- sveiflu í sumar þá þykir okkur þetta sniðug hugmynd að skoða. Við þurfum að aðlaga þetta verðlaginu og breytum því nokkuð. Það verður hærra á dýrasta tímanum, en held- ÆÐARFOSS AR í Laxá í Aðaldal. ur lægra þar fyrir utan og tillit tekið til stangafjölda hveiju sinni. Útkoman er nánast óbreytt sölupp- hæð veiðileyfa. Nú fá menn stærri svæði til að veiða stóran hluta veiði- tímans og það eykur líkur á veiði. Hugmyndin er að hver og einn fái meira í sinn hlut á sama tíma og við minnkum álagið á ánni,“ sagði Orri Vigfússon formaður Laxárfé- lagsins í samtali við blaðið. Hafbeitarlax í Núpaá Landeigendur við Núpaá á Snæ- fellsnesi hafa fengið undanþágu hjá landbúnaðarráðuneytinu til að sleppa hafbeitarlaxi í ána til að drýgja veiði. Það hefur oft verið gert áður, en var bannað í fyrra eins og ann- ars staðar í kjölfarið á kýlaveikifár- inu í EUiðaánum og Kollafírði sum- arið 1995. Vitað er að leigutakar Laxár í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi hafa einnig fullan hug á að fá haf- beitarlax í ána, en þeir voru einnig á undanþágum til síðasta sumars. Laxinn er nú nær allur fenginn hjá Lárósi á Snæfellsnesi. Reykskynjarar í öll hús í Garði Garöi. Morgunblaðið. FÉLAGAR í Kiwanisklúbbnum Hofi hafa að undanfömu gengið í öll hús í þorpinu og fært húseigendum reykskynjara að gjöf. Þetta er gert í tilefni 25 ára af- mælis klúbbsins og er verðmæti skynjaranna 327.600 krónur. Fyrr á árinu færðu þeir börnum í bænum endurskinsborða og veifur á reið- hjól. Reykskynjaramir eru af bestu gerð, viðurkenndir af Bmnamála- stofnun ríkisins. Þeim fylgir fjögurra síðna bæklingur þar sem fram koma allar upplýsingar um staðsetningu, uppsetningu, viðhald og þjónustu. Félagar í Kiwanisklúbbnum Hofi em 21. Þeir bjóða mönnum að koma á fundi félagsins næsta vetur, en þeir eru haldnir hálfsmánaðarlega í Samkomuhúsinu. Formaður klúbbsins er Þorvaidur Kjartansson. Helzta tekjuöflun klúbbsins er flug- eldasala. Alfasala SAA um helgina Forvarnir í verkiog brosandi álfar Einar Gylfi Jónsson * ARLEG álfasala SÁÁ fer fram dagana 23. til 25. maí. Allur hagnaður af sölu álfanna rennur til forvarnadeildar SÁÁ. Starf deildarinnar miðar að því að veita þeim aðil- um fræðslu sem tengjast eða vinna með ungling- um, þar á meðal foreldr- um, kennumm og íþróttafélögum. Mark- miðið er að viðkomandi aðilar geti markað sér stefnu og öðlist þekkingu til að vinna að forvömum gegn áfengis- og vímu- efnaneyslu unglinga. Deildarstjóri forvarna- deildar er Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur. - Hveijar eru helstu áherslur forvarnadeildarinnar? „Fram til þessa hafa forvarnir fyrst og fremst beinst að því að ræða við unglinga og fá þá til að taka þá skynsamlegu ákvörð- un að nota ekki áfengi né önnur vímuefni. En fullorðna fólkið virðist hafa staðið hjá og ekki sinnt þessum málum sem skyldi. Við sjáum til dæmis hvernig úti- vistartímar ungmenna hafa þró- ast og hvernig opinská ölvun unglinga á almannafæri hefur verið látin afskiptalaus. Allir eiga þessir unglingar foreldra sem nauðugir viljugir láta þetta við- gangast. Við höfum því lagt megináherslu á að ná til hinna fullorðnu sem tengjast börnum og unglingum í Ieik og starfi, til dæmis foreldra, grunnskóla- kennara og íþróttaþjálfara. Sér- staklega beinum við athygli okk- ar að foreldrum ungra barna, en þar er oft um að ræða ungt fólk sem ennþá drekkur áfengi í óhófi. Það skapast varasamt ástand þegar foreldrar eru ófær- ir um að sinna börnum sínum vegna ölvunar, jafnvel um hveija helgi. Við viljum hvetja foreldra til að umgangast áfengi á ábyrgan hátt og vera börnum sínum til fyrirmyndar. Markmiðið er að skapa unglingum að- stæður þar sem ekki er rökrétt að drekka áfengi eða neyta ann- arra vímuefna. En auðvitað beinum við athyglinni líka að unglingunum sjálfum og viljum heyra þeirra viðhorf, það má ekki gleymast." - Hvaða verkefni eru á döf- inni? „Um síðastliðin áramót hófst víðtækt forvarnaverkefni sem við stöndum að í samvinnu við fimm meðalstór sveitarfélög, Akranes, Egilsstaði, Húsavík, Mosfellsbæ og Vestmannaeyjar. Þau hafa nú unnið að því að marka sér heildstæða stefnu í vímuvörnum og sett sér lang- tíma- og skammtímamarkmið. Vinna að þessum markmiðum er í höndum heimamanna, en undir handleiðslu og ráðgjöf for- varnadeildar. Við höfum tekið höndum sam- an við íþróttabandalag Reykja- víkur um að öll tíu hverfafélögin í borginni fái fræðslu fyrir stjórn og þjálfara yngri flokkanna um ► Einar Gylfi Jónsson er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1950. Hann lauk BA prófi í sálfræði frá Árósa- háskóla árið 1979 og starfaði eftir það hjá Félagsmálastofn- unum Reykjavíkur og Kópa- vogs. Hann var forstjóri Unglingaheimilis ríkisins um sex ára skeið, en starfar nú sjálfstætt sem sálfræðingur, auk þess að vera deildarsljóri forvarnadeildar SÁÁ. Einar er kvæntur Ingibjörgu Péturs- dóttur. áhrif áfengis á líkamann, hlut- verk þjálfara sem mótunaraðila og uppalenda, mikilvægi sam- starfs við foreldra og svo fram- vegis. Þjálfarar og forvígismenn íþróttafélaga á Akureyri og Ákranesi, í Grindavík og Kópa- vogi hafa einnig fengið slíka fræðslu og markmiðið er að auka enn frekar forvarnagildi íþrótta. Við stóðum í vetur fyrir þema- viku í grunnskólanum í Sand- gerði, þar sem skólastarfíð var meira og minna undirlagt um- fjöllun og verkefnavinnu um vímuefni. Við útveguðum fræðsluefni, bæði fyrir nemendur og kennara, og héldum fundi með foreldrum. Mikil ánægja var með hvernig til tókst og strax í byijun næsta skólaárs mun um tugur grunnskóla standa fyrir slíkri viku. Við erum einnig að byggja upp samstarf við heil- sugæsluna og stöndum fyrir námskeiðum fyrir starfsfólk í haust.“ - Hvaða þýðingu hefur álfa- salan fyrir starfsemina? „Álfasalan er ein mikilvæg- asta fjáröflunarleið SÁÁ, en samtökin kosta mjög mikilvæga þætti í starfsemi sinni sjálf, þar á meðal forvarnadeildina. Með því að kaupa álfinn gefst al- menningi kostur á að styðja for- varnastarfið. Sjálfboðaliðar munu ganga í hús og verða á fjölförnum stöðum eins og Kringlunni og ég hvet almenning til að taka sölufólkinu vel. Kjör- orð álfasölunnar að þessu sinni er: „Forvarnir í verki“ og álfur- inn er nú í fyrsta sinn brosandi, en það sýnir að við erum bjart- sýn á að starf okkar skili ár- angri.“ Ná til þeirra sem skapa unglingunum aðstæður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.