Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ
24 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
11
IM
Það styttist í að fyrstu laxveiðimennirnir gangi fram á ár-
bakkana, vaði út í og sveifli út fyrstu köstum nýrrar vertíð-
ar. Að vanda eru það Norðurá og Þverá í Borgarfirði sem
opna fyrstar, en sfðan koma hinar árnar allar í kjölfarið. Allt
frá því að síðustu vertíð Iauk undir lok september í fyrra
hafa áhugamenn um veiði velt vöngum yfir því hvemig muni
ganga í sumar og það ekki að ástæðulausu því margar hætt-
ur steðja að laxinum og skipta sköpum um hvernig árgöng-
unum reiðir af. Vikulokin ræddu við þrjá þrautreynda veiði-
menn, þá Orra Vigfússon, Þórð Pétursson og Þórarin Sig-
þórsson, og fékk álit þeirra og væntingar um veiðisumarið
sem í hönd fer.
LAXilMIM
ESSI umræða er eilífðarmál áhuga-
manna um veiði. Menn spá í út-
hafsveiðarnar sem Orri Vigfússon
hefur glímt við að uppræta síðustu árin,
ástand sjávar, bæði við strendur landsins á
þeim tíma sem gönguseiðin fara úr ánum og
ekki síður á hafbeitarslóðunum hvar sem
þær eru. Menn sá í seiðabúskap laxveiðiánna
og almennt ástand til lands og sjávar í víðu
samhengi. Beðið er eftir mati fiskifræðinga
sem geta ekki vikið sér undan að svara.
Stundum ganga spár þeirra eftir, en þær
hafa líka bilað illa og það eykur á spennuna.
Þegar stundin rennur upp á bökkum borg-
firsku stóránna frægu geta veiðimenn vart
þverfótað fyrir fjölmiðlum. Reynsla þeirra
Orra, Þórðar og Þórarins á árbökkunum
spannar vel á aðra öld og laxarnir sem þeir
hafa dregið á land úr flestum ám landsins
skipta þúsundum. Þeir hafa séð þetta allt áð-
ur, muna tímana tvenna og fátt kemur þeim
á óvart.
Ekki nakkur
hlutur staélist
„Það er afskaplega erfitt að spá í þetta og
ég verð að viðurkenna að ég hef ekki fylgst
nógu vel með seiðastatusinum. Þá hefur ekki
nokkur hlutur staðist sem spáð hefur verið
hin seinni ár. Það sem mér dettur þó til hug-
ar er, að vorið hefur verið kalt og göngur
gætu því orðið seinni en ella, sérstaklega
norðanlands og norðaustan," segir Þórarinn
Sigþórsson tannlæknir.
Þórarinn veltir einnig fyrir sér heildar-
myndinni: „Hvað sem gerist í sumar þá verð-
ur að fást svar við því hvað sé að gerast í
hafinu. Að hugsa sér að síðan árið 1975 hef-
ur heildarlaxveiði minnkað úr 4 milljónum
fiska í 800.000 fiska í fyrra og það þrátt fyr-
ir aukna friðun í sjó og aukið hlutfall af eld-
islaxi í heildaraflanum. Þetta eru ískyggileg-
ar tölur og ég tel alveg ljóst að laxinn veiðist
í miklu meira magni í hafinu en menn gera
sér grein fyrir og þá á öllum aldursstigum.
Stóraukið álag á árnar er einnig umhugs-
unarefni, veiðitími er lengdur og skotfærir
vegir eru lagðir fram með öllum bökkum.
Mér hefur lengi fundist að það ætti bara alls
ekki að veiða í september og friða mikilvæg
hrygningarsvæði eftir föngum eftir miðjan
ágúst. Að drepa hrygnu sem komin er að
hrygningu er eins og að skjóta gæs á eggj-
um. Ég er að vísu grimmur veiðimaður, en
það þarf að draga línur til þess að glóra sé
í sókninni. Haustveiði fer einfaldlega illa með
ámar,“ bætir Þórarinn við.
Orri Vigfússon
Tæpt meðaiiag_____________________
„Ég held að veiðin í sumar verði í tæpu
meðallagi. Það verði þokkalega góð veiði suð-
vestan- og vestanlands, en kuldinn sumarið
1995 valdi því að frekar lítið verði af stórlaxi
nyrðra framan af sumri. Aftur á móti á ég
von á því að smálaxagöngur verði góðar á
svæðinu, en komi ekki fyrr en í ágúst þar
sem árferði hefur verið óhagstætt á Norður-
landi í vor. Þá á ég von á því að Rangárnar
komi á óvart í sumar fyrir mikla veiði. Ann-
ars getur brugðið til beggja vona, því und-
anfarin ár hafa veiðar á villtum laxi í Norð-
ur Atlantshafi nánast hrunið þrátt fyrir
aukna friðun í sjó,“ segir Orri Vigfússon for-
maður Laxárfélagsins og Norður Atlantshaf-
slaxasjóðsins.
Um „sína á, Laxá í Aðaldal", segir Orri: „Ég
vona að það verði þokkaleg aukning frá í
fyrra, kannski 1500 laxa veiði sem byggist á
líflegum smálaxagöngum." Orri er einnig
„heimamaður“ við Selá í Vopnafirði, en hann
reiknar með erfiðari tíð á þeim slóðum. „Ég
Þórður Pétursson
bjóst við miklu meiri veiði í fyrra en raunin
varð, væntingamar skiluðu sér ekki. Ég hugsa
að það verði svipað nú, svona 600-800 laxar.“
Lenda seiðin
í fluttrullunum ?
Þórður Pétursson hefur verið leiðsögumað-
ur og veiðieftirlitsmaður við Laxá í Aðaldal
um langt árabil. Hann segist vera „sæmilega
bjartsýnn með sumarið", eins og hann orðar
það. „Veiðin hefur að vísu verið á niðurleið í
Laxá síðustu sumur, en sérfræðingarnir
segja að seiðabúskapur í ánum hafi almennt
verið góður og mælingar í fyrra bentu til þess
að ástandið í sjónum hafi verið gott.
Ef sumarið verður ekki nokkuð gott þá ótt-
ast ég að eitthvað sé í gangi sem við höfum
ekki leyst og áttum okkur ekki á. Það hefur
hvarflað að mér að ein orsökin sé að seiðin
kunni að lenda í loðnuaflanum, sérstaklega
eftir að farið var að nota flottrollin. Það er
sagt að seiðin séu í fimm efstu metrunum og
því á svipuðum stað í fæðuleitinni og loðnan
auk þess sem gönguseiði eru mjög lík loðnu
og það getur verið erfitt að sjá seiðin í loðnu-
kösinni.
Kunningi minn einn var á loðnu í fyrravor og
hann tók eftir því að það komu fullorðnar gráslepp-
ur upp með loðnunni. Þegar hann fór að gæta bet-
ur að, fann hann slatta af grásleppuseiðum. Ég gæti
vel trúað því að rækjutrollin gætu tekið sitthvað
annað en rækju og þetta gæti þurft að athuga ef í
jjós kemur að laxinn skilar sér ekki þrátt fyrir gott
ástand til lands og sjávar,“ sagði Þórður.
Hvað er að marka drauma?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Hverjar eru skýring-
ar sálfræðinnar á draumum?
Hvaða merkingu er hægt að
leggja í þá? Geta þeir sagt fyrir
um óorðna atburði?
Svar: Hér í blaðinu eru reglu-
legir pistlar um drauma, þannig
að lesendur ættu að fá allnokkra
fræðslu um þetta fyrirbrigði.
Það sakar þó ekki að greina í
örstuttu máli frá kenningum og
rannsóknum í sálfræði, geðlækn-
isfræði og lífeðisfræði sem varp-
að geta ljósi á eðli og merkingu
drauma.
Draumar eru íslendingum
ákaflega hugstæðir og margt
hefur verið um þá skrifað. I ís-
lendingasögunum eru þeir mikið
notaðir til að leggja grunn að at-
burðarás í sögunum og oft hefur
verið greint frá draumum sem
þóttu hafa forspárgildi. Fræði-
menn hafa einnig lagt sitt af
mörkum. Björg Þorláksdóttir
Blöndal var ein af þeim fyrstu
sem lagði stund á sálfræði og
lauk doktorsprófi frá Svartaskóla
í París árið 1926. Doktorsrit
hennar nefnist Svefn og draumar
og var gefin út á íslensku sama
ár. Síðasta bók dr. Matthíasar
Jónassonar, prófessors í uppeld-
isfræði, (Eðli drauma, Rvík 1983)
er ítarleg umfjöllun um rann-
sóknir og kenningar um drauma,
og greinir bæði frá lífeðlisfræði-
legum og sálfræðilegum skýring-
um á þeim. A rannsóknarstofu
geðdeildar Landspítalans hafa
um nokkurra ára bil verið gerð-
ar rannsóknir á svefni samfara
lækningum á svefntruflunum.
Draumsvefn er eitt skeið svefns,
sem skýrt má sjá í mælitækjum,
svefnritum, sem þar hafa verið
hönnuð. Draumsvefn einkennist
af sérstökum heilabylgjum sam-
fara hröðum augnhreyfingum og
má þá sjá að að draumur er í
gangi. Gerist þetta nokkrum
sinnum á nóttu.
Hvað er það sem framkallar
draum og ræður efni hans? I
mörgum tilvikum má rekja
drauminn til einhvers atriðis eða
atburðar sem hefur verið í huga
dreymandans í vökuástandi
nokkru áður. Það þarf ekki alltaf
að virðast mikilvægt atriði og
gleymist jafnvel fljótt í vöku, en
hefur engu að síður grópast
þannig í undirvitundina að það
leiðir til draumferlis. Þá hefur
verið sýnt fram á með tilraunum
að áreiti í svefni eða svefnrofum
getur kallað fram draum. Það
einkennilega við drauma er að
okkur finnst þeir oft efnismiklir
og hljóta að taka langan tíma.
Stundum geta þeir virst ná yfir
marga klukkutíma, jafnvel daga
eða ár, en í reynd vara þeir að-
eins skamma stund, jafnvel
nokkrar sekúndur. I bók sinni,
Furður sálarlífsins (ísl. þýðing,
Rvík 1963), segir norski sálkönn-
uðurinn, prófessor Harald
Draumfarir
Schjelderup, frá tilraunum sínum
með drauma. Ein tilraun hans
var á þessa leið: Maður í
dásvefni var sefjaður á þá leið
að áður en hann vaknaði
dreymdi hann ljóslifandi draum.
Draumurinn byrji á sama augna-
bliki og ákveðið hljóðmerki væri
gefið. Um leið og hljóðmerkið
hætti, mundi hann vakna og
muna drauminn. Schjelderup lét
síðan vekjaraklukku hringja í 1
sekúndu. Prófaður vaknaði strax,
og aðspurður sagðist hann hafa
sofið vel og dreymt heilmikið.
Hann var á ferð í enskum lög-
reglubíl, en þeir hafa einmitt
slíkan bjölluhljóm. Hann átti að
aka í honum á sjúkrahús til að
heimsækja einhvern og lá mikið
við. Hann lýsti leiðinni, m.a. um
Oxford Street í London, þar sem
hann tók eftir öllum verslum
þar. Þegar til sjúkrahússins kom
var sírenan tekin úr sambandi
og hann vaknaði. Að mati
dreymandans tók ferðin næstum
klukkustund, en í reynd varaði
draumurinn aðeins í 1 sekúndu.
Hugsunin lýtur ekki sömu lög-
málum í draumi og í vöku. Veru-
leikinn ræður ekki hugsuninni,
sem ei ruglingsleg og í draumi
ferðast maður í tíma og rúmi oft
án nokkurs rökræns samhengis.
f draumnum er maður ekki átt-
aður á stað og stund og að því
leyti líkist hann helst geðveikisá-
standi. Þegar menn vakna og
reyna að muna drauminn getur
það oft reynst erfitt, vegna þess
að hann er í engu rökréttu,
veruleikatengdu, samhengi. Þá
er eins líklegt að menn endur-
skapi drauminn í huga sér og
þannig getur hann orðið að skilj-
anlegri atburðarás og þá
kannske mun lengri en hann var
í raun og veru. Sálkönnun sem
kenning og lækningaaðferð
styðst mjög við drauma. Sál-
könnun skiptir sálarlífinu í tvö
meginsvið, Þaðið sem er dulvit-
að, órökrænt, stjómast af frum-
stæðum hvötum og lýtur ekki
lögmálum veruleikans, og Sjálfið
sem er rökrænt, veruleikatengt
og að mestu meðvitað. í sálkönn-
un er litið svo á að í draumum
megi skoða hið frumstæða, dul-
vitaða sálarlíf, og þeir séu lykill
að þeim öflum, löngunum og
kenndum, sem móta atferli okk-
ar, hugsun og tilfinningalíf.
Draumurinn sé því ekki annað
en dulvitaðar kenndir í frum-
stæðum og stundum táknrænum
búningi, sem sálkönnuðurinn
túlkar síðan fyrir sjúklingi sínum
og hjálpar honum þannig að
verða sér meðvitandi um hvað er
að gerast innra með honum.
Er berdreymi þá ekki til?
Hafa draumar ekkert forspár-
gildi? Þessu hefur sálfræðin enn
ekki getað svarað á óyggjandi
hátt. Rannsóknir í duíarsálfræði
hafa leitt líkur að því að sumt
fólk hafi hæfileika sem stundum
eru nefndir yfirskilvitlegir, t.d.
skyggnigáfu, fjarhrif og ber-
dreymi, en erfitt hefur reynst að
fá vísindalega staðfestingu eða
viðurkenningu á þessum niður-
stöðum. Eitt sinn las ég athygl-
isverða bók, þar sem höfundur-
inn setur fram þá kenningu að
tíminn sé afstætt hugtak og sé
ekki allur þar sem hann er séð-
ur. I daglegu lífi horfum við til
baka í tíma eins og minnið leyf-
ir, en við sjáum einnig svolítið
fram á við og högum gerðum
okkar í samræmi við það. Við er-
um á jafnsléttu og sjáum því
ekki lengra, en í draumnum er
eins og við höfum klifið upp á
fjall og við sjáum lengra
framundan og inn í framtíðina.
Hér er um skemmtilega samlík-
ingu að ræða, en röksemdafærsl-
an fyrir henni er flókin. Ekki
skal lagður dómur á það hvort í
henni felist sannleikskorn, en
það er líka svo margt sem við
vitum ekki enn.
• Lesendur Morgvnblaðsins gela spurt
sálfræðinginn um það sem þeim liggur i
hjarta. Tekið er á mótí spurningum d
virkum diigum milli klukkan 10 og 17 í
súna 569 1100 og bréfum eða súnbréf-
um merkt: Vikulok, Fax 5691222.