Morgunblaðið - 24.05.1997, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Bónus selur
aftur M&M
sælgæti
í DAG, laugardag, geta viðskipta-
vinir allra Bónusverslana keypt
sælgætið M&M, bæði hnetukúlur
og brúnar M&M töflur.
„Við ákváðum að setja M&M í
sölu aftur þvi við teljum að rikið
geti ekki bannað okkur að selja
vöruna hér í verslunum þegar það
selur sjálft M&M í fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli. Það eru sömu
lög sem gilda um hollustu fyrir
Reykjavík og Keflavíkurflugvöll,“
segir Jón Ásgeir Jóhannesson hjá
Bónusi. „Það er afar ósanngjamt
að einungis þeir sem hafa efni á
að ferðast til útlanda geti keypt
sér M&M sælgæti.“
- Nú seldist M&M síðast upp á
hálftíma í Bónusi. Eru birgðimar
nægar að þessu sinni?
„Við eram með miklu meira
magn núna en síðast. Við fengum
engar athugasemdir við söluna þá
svo við reiknum ekki heldur með
að athugasemdir verði gerðar
núna,“ segir Jón Ásgeir.
Hvað kosta pakkningamar og
hvað era þær stórar?
„Þetta era 200 grömm sem við
seljum á 229 krónur,“ segir hann.
Spurt og svarað um neytendamál
Hvers vegna fæst
hvergi melatónín?
í BANDARÍKJUNUM er hægt að
kaupa melatónín í stórmarkaði.
Hversvegna er hvergi hægt að fá
þetta efni hér?
Svar: „Bandaríkin era alveg sér
á parti með að selja lyfíð án lyfseð-
ils því annarsstaðar er melatónín
flokkað sem lyf“, segir Magnús
Jóhannsson prófessor í ly§afræði
við læknadeild Háskóla Islands.
Hann segir að í sumum tilfellum
sé hægt að fá hjá lækni undan-
þágubeiðni um innflutning á mela-
tóníni og sú undanþága gildi í heilt
ár.
Fyrir þá sem ekki vita hvað
melatónín er þá er um að ræða
efni sem heilaköngullinn myndar
^emantccMóið
Útskriftargjafir, glæsilegt úrval
Tráhærl ^uerá***.
DEMANTAHUSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
og virðist gagnast sumum við
svefnleysi. Magnús segir hinsvegar
að efnið hafí ekki verið rannsakað
ítarlega og því takmarkað hægt
að segja til um virkni þess að öðra
leyti eða hvort það geti verið skað-
legt í of stóram skömmtum.
„Þetta er lyf samkvæmt Evr-
ópskum og íslenskum lögum og
einstaklingar mega ekki flytja inn
lyf til eigin nota frá ríkjum utan
EES“, segir Guðrún S. Eyjólfsdótt-
ir forstöðumaður Lyfjaeftirlits rík-
isins. Hún segir að reglumar séu
settar til að gæta hagsmuna þeirra
sem lyfin nota, til að ganga úr
skugga um að þau séu af þeim
gæðum sem til er ætlast.
„Það gilda um lyf strangar inn-
flutningsreglur og það era ákveðin
fyrirtæki sem mega flytja inn lyf.
Meðan þessi vara telst lyf og kem-
ur utan þessa svæðis er bann á
henni.“ Guðrún segir að ekki sé
litið á Melatónín sem lyf í Banda-
ríkjunum heldur fæðubótarefni.
Gæðaeftirlit er ekkert með fæðu-
bótarefnum þar í landi og lítið vit-
að um gæði þessara efna þaðan.
Plato café
Bakaðar kartöflur
eða svartfuglssalat
EINN gesturinn kemur reglulega á
Plato café. Hann sest í homið sitt,
pantar sérríglas og finnur sér bók
til að lesa. Gísli Ingi Gunnarsson
eigandi Plato café segir að bækum-
ar séu einmitt í hillunum til að fólk
geti fundið sér lesefni og gluggað
í bækur um leið og það drekkur
kaffíbollann sinn eða fær sér kvöld-
mat.
Gísli rak um nokkurra ára skeið
Pizza 67 í Vestmannaeyjum en hef-
ur að undanfömu verið að gera upp
þetta húsnæði í Lækjargötunni.
„Margir segja að það sé óðs manns
æði að ætla að fara að opna eitt
veitingahúsið í viðbót. Ég hef hins-
vegar trú á þessu og er með ólækn-
andi áhuga á matargerð," segir
hann. Gísli hefur engar prófgfráður
í matreiðslu upp á vasann en segist
hafa lært af góðu fólki, hefur lesið
sér til og fíkrað sig áfram.
40 tegundir af grænmeti
Gísli ætlar að leggja áherslu á
fylltar kartöflur og fjölbreytileg
salöt. „Salatblandan sem notuð er
hefur að geyma um fjöratíu tegund-
ir af grænmeti og síðan er ég með
á listanum til að mynda heitt anda-
salat, heitt svartfuglssalat, tómat-
salat og svo framvegis. Líklega
koma salötin til með að endur-
spegla grænmetisúrval og fersk-
leika hveiju sinni.“
- Hvað með þessar fylltu kartöfl-
ur?
„Fylltar kartöflur era tilbúnar á
mjög skömmum tíma ef fólk hefur
ekki mikinn tíma. Sumar era fylltar
Chili con carne-kartafla.
Láttu þægindin ganga íyrir!
■ -• • •
COSMO
(J) Þeir eru mjúkir
Þeir eru léttir
Þeir hafa „höggdeyfa"
Þeir passa fullkomlega
Fœturnir geta „andað“
ecco
með ostum, kjöti eða
físki og það getur verið
gott að fylla þær með
grænmeti og í raun öllu
hugsanlegu. Fólk getur
auðveldlega nýtt alls-
kyns afganga heima í
bakaðar og fylltar kart-
öflur. Þetta er spurning
um að láta hugmynda-
flugið ráða ferð.“
Pönnukökur
í morgunmat
Fram til þessa hefur
Gísli opnað Plato kaffí
klukkan ellefu á
morgnana en í næstu
viku opnar hann stað-
inn sinn klukkan rúm-
lega sjö á morgnana.
Hann ætlar nefnilega
að bjóða viðskiptavin-
um sínum upp á morg-
unmat. „Ég verð með
pönnukökur að hætti
Bandaríkjamanna,
spæld egg og beikon
og er með ýmislegt
fleira í pokahorninu.
Ég er viss um að þetta kemur til
með að henta ýmsum eins og til
dæmis vaktafólki og einnig útlend-
ingum."
Eftirréttaseðillinn hjá Gísla er
heimatilbúinn. „Allt er heimatilbúið
héma. Ég baka sjálfur kökumar
og bý til ísinn." Þá stendur til að
bjóða upp á sérstaka ostabakka.
„Við verðum með tvær tegundir af
ostabökkum til að byija með, sterka
osta og mildari. I þessu
sambandi verð ég í sam-
vinnu við Ostahúsið í Hafn-
arfirðinum. Ostamir era
tilvaldir í eftirrétt en fólk
á líka að geta komið við
iijá okkur í rólegheitum og
fengið sér rauðvínsglas og
osta.“
Við báðum Gísla að end-
ingu að gefa lesendum auð-
velda uppskrift að fylltum
kartöflum.
Hann segir að fylltar
kartöflur séu skemmtileg
tilbreytni. Lykillinn er að
setja kartöflumar ekki í
álpappír. Þær era einfald-
lega þvegnar og þerraðar
og þeim skellt í ofninn við
185°C í um 40-50 mínútur, eftir
því hvort kartöflumar era mjöl- eða
vatnsmiklar. Best er að stinga
pijóni í kartöfluna til að sjá hvort
hún sé tilbúin. Gísli segist ætíð
nota tvær kartöflur á mann því ís-
lenskar kartöflur séu minni en víða
erlendis.
Ostofyllt kartofflo
Auðveldast er að kaupa tilbúna
ostasósu þó lesendur geti líka
spreytt sig á að bræða osta saman
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GÍSLI Ingi Gunnarsson
eigandi Plato café.
í potti. Þegar kartaflan er búin að
vera í ofninum í 40-50 mínútur er
hún tekin út og skorin í sundur.
Best er að hafa ílát undir kartöfl-
una sem hún fellur ofan í eins lítinn
djúpan disk.
Fyllingin:
Mexíkósk ostasósa i dós (fæst í
stórmörkuðum)
1 tsk. basil
1 tsk. oregano
1 tsk. kjötkraftur
Þetta er látið malla saman í potti
uns farið er að sjóða vel. Hellt milli
kartöfluhelminganna og borið fram
með nýbökuðu brauði og salati.
Chili con (arne-kartaffla
500 g niðurskornir tómatar í dós
(Hunts)
500 g nautahakk sem búið er að
steikja
1 fíntsaxaðurlaukur
200 g útvatnaðar og soðnar
nýrnabaunir (mó sleppa)
5 brotin lórviðarlauf
1 tsk. chilipipar
_____________'Msk. salt__________
1 msk. kjötkraftur
rifinn Mozzarella ostur
Kartaflan er klofin í tvennt og
sett á lítinn djúpan disk.
Allt nema Mozzarella-osturinn er
látið malla saman í potti í um 15-20
mínútur. Fyllingin er síðan sett
milli kartöfluhelminganna og rifna
ostinum stráð yfír. Borið fram með
nýbökuðu brauði og salati. ■
KCHAPORTIÐ ^
Folaldagrillkjöt
á góda verdi
Folaldahryggjasneiðar á tilbóðsverði kr. 469,- kílóið
Hann Benni hinn kjötgóði er með gómsætt folaldakjöt á tilboðsverði um helgina
ásamt lambakjöti á sprengiverði sem tekið er eftir. Láttu sjá þig i hinni einu
sönnu Kolaportsstemmningu um hclgina.
^ompudí.?
ar
helgina
Opiðlaugardagaogsunnudagakl.11-17