Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 45

Morgunblaðið - 24.05.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 24.MAÍ1997 45 SIGURÐUR SIGURMUNDSSON + Sigurður Sigur- mundsson var fæddur í Reykjavík 10. mars 1971. Hann lést á Sjúkra- húsi Reykjavíkur 14. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Hugborg Sig- urðardóttir, f. 4. júlí 1949, og Sigur- mundur Arin- björnsson, f. 2. júní 1949, skipstjóri á Eyrarbakka. Systk- ini Sigurðar eru Arnrún, f. 13. mars 1969, hennar maður er Guð- mundur Marteinsson, f. 11. júní 1968, þeirra dóttir er Hugborg, f. 3. nóvember 1986, Ágúst, f. 20. mars 1973, Lena, f. 8. mars 1976, hennar sonur er Sigur- mundur, f. 1. júní 1995. Sigurður var ókvæntur og barnlaus og bjó hjá foreldrum sinum á Eyrarbakka. Útför Sigurðar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd, og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf, er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (V. Briem.) Þetta bænavers sálmaskáldsins frá Stóra-Núpi kom í huga mér, þegar fjölskylda Sigurðar stóð við dánarbeð hans að kveldi 13. maí sl. til að kveðja hann hinstu kveðju. Dauðinn kom svo óvænt, óásættan- legur og engum vörnum komið við þegar holskefla harmsins reið yfir og sópaði allri von í burt. En sorg- in er heilög, Guði vígð tilfinning, skírð í afli saknaðar og tára eins og smyrsl til að draga úr mesta sviðanum eftir sáran missi og veita nýja von. Það er erfítt að kveðja hann Sig- urð okkar, vita hann horfinn í blóma lífsins og eiga aldrei framar von á að sjá hann eða heyra. Hann var þó ekki oft samvistum með okkur. Stuttan tíma var hann á heimili okkar þegar hann var að undirbúa sig fyrir starf kokks og alltaf var hann jafn ljúfur og hæg- ur í allri umgengni við okkur. Starf hans á stuttri ævi var á sjónum og þeir hafa ekki verið háir í loft- inu, bræðumir, þegar þeir fóm fyrst á sjó með pabba sínum. Sjómennskan hefur verið honum í blóð borin og þar fann hann sinn starfsvettvang. Nú síðast var hann kokkur á bátnum Andey, sem gerð- ur er út frá Þorlákshöfn. Það var svo merkilegt með hann Sigurð að hvort sem hann var á sjó eða landi, var hann háður einhverri veiði- mennsku. Hann var ekki búinn að vera lengi í landi, þegar hann tók veiðistöngina sína og fór vestur að á til að veiða, og marga stundina hefur hann unað við að renna fyrir sjóbirting í Ölfusánni. Ég má til með að minnast á annan þátt í lífs- starfí Sigurðar, en það var sjálf- boðastarf hans í björgunarsveitinni „Björg“ á Eyrarbakka. Þar var hann góður liðsmaður og alltaf boðinn og búinn að veita það lið sem hann gat. Starf björgunar- sveitar í litlu sjávarþorpi verður aldrei metið eins og vert er, og þar finna ungir menn verðugt verkefni til að láta gott af sér leiða. Og minningu Sigurðar verður best haldið á lofti með að styrkja og efla það starf sem þar er unnið. Hann Sigurður okkar var ekki maður fjöldans og að sumu leyti fannst mér hann einfari í lífi sínu. Þó veit ég að hann eignaðist sína vini. Fáa, en góða vini, sem tóku þátt í störfum hans og leikjum og sýndu hon- um trú og hollustu sprottna af einlægu vinarþeli. Oft leit hann inn til okkar, þegar við vorum í litla húsinu okkar austur á Eyrar- bakka, gaf okkur sitt hlýja bros, þótt hann stæði stutt við. Hann gleymdi ekki hejdur að líta til hennar Ágústu, langömmu sinnar, meðan hún dvaldi á Sólvöllum á Eyrar- bakka, það sagði hún okkur sjálf. Og svo er kveðjustundin allt í einu runnin upp. Kveðjustund, sem okkur fannst svo órafjarri, en verð- ur ekki umflúin. Og eftir standa foreldrar hans, elsku Diddi minn og Hugga, systkinin, ömmur og afar og hvað er hægt að segja þeim til huggunar? Hvað er hægt að gera til að sefa sorg þeirra og söknuð? Eftir lifir minning um góð- an dreng. Eftir lifir vonin um endurfund. Við ljúkum þessum fá- tæklegu kveðjuorðum með versum úr sálminum hans Valdimars Briem. Og þegar blessuð bömin frá oss deyja, í bæn og trú þá kenn þú oss að þreyja, og seg við hvem, er sorgin þyrmir yfir: Þinn sonur lifir. Já, þegar sjálfír vér til heljar hnígum og hinsta fetið lífsins þreyttir stígum, í sjálfum dauða sagt það verði'oss yfír: Þinn sonur lifir. (Vald. Briem.) I þeirri trú og von kveðjum við Sigurð okkar og biðjum Guð að blessa minningu hans og styrkja foreldra hans, systkini og aðra ættingja í þeirra miklu sorg. Kveðja frá afa og ömmu í Álfheimum. Elsku frændi okkar er dáinn. Hvemig getur það verið, þú sem varst svo ungur og áttir eftir að gera svo margt við líf þitt. Það er svo óendanlega sárt að þurfa að kveðja þig, elsku Sigurður okkar. En minningarnar eru margar og ljúfar. Á uppvaxtarárunum var mikill samgangur milli systranna Huggu og Beggu og þar af leið- andi urðum við frændsystkinin eins og stór systkinahópur. Ófáar voru heimsóknir bakkakrakkanna til okkar í Votó og var þá margt brall- að. Þú varst alltaf svo blíður og góður, svo rólegur og sagðir ekki margt. Orð þín geymdir þú í huga þínum og leyfðir lífinu í kringum þig að ganga sinn vanagang. Þú varst svo tillitssamur og vildir öll- um vel. Ég man eftir þér þegar þú varst ekki nema 4-5 ára. Eg var nýbúin að skúra og sat inni í eld- húsi með ptjónana mína þegar ég heyrði að þú varst að ávíta frænk- ur þínar, þær Siggu og Jóhönnu, og Ágúst bróður þinn. Þið höfðuð öll verið að leika ykkur í ófrágeng- inni lóðinni á Heiðmörk 6 og voruð á leið inn. En þá stoppaðir þú hers- inguna og sagðir að Begga frænka væri nýbúin að skúra og þess vegna ættu allir að fara úr stígvélunum. Ég man alltaf hvað ég var hissa á því að svona lítill pjakkur hefði hugsun á þessu. Þegar við urðum eldri urðu sam- verustundirnar færri, en þá sjaldan við hittumst var það alltaf jafngam- an og voru ósjaldan einhveijar bernskuminningar riQaðar upp. Eins og þegar þið Agúst tókuð ykkur til og kláruðuð súkkulaðið úr jóladagatölum okkar systkin- anna, okkur til mikillar gremju þá en hláturs í dag. Þetta sem upp er talið er bara lítið brot af þeim minningum sem við eigum um þig. Ekki kæmi okk- ur það á óvart að þú værir nú hjá honum Sigurmundi langafa þínum eitthvað að stússast, þið voruð svo miklir vinir þegar þið voruð hér. Við gleymum aldrei fallega brosinu þínu, hvernig augun pírðust og fallegu spékopparnir komu í kinn- arnar. Við elskum þig öll og gleym- um þér aldrei. í dimmum skugga af löngu liðnum vetri mitt ljóð til þín var árum saman grafið. Svo ungur varstu, er hvarfstu út á hafíð, hugljúfur, glæstur, öllum drengjum betri. Og því varð allt svo hljótt við helfregn þína sem hefði klökkur gígjustrengur brostið. Og enn ég veit margt hjarta, harmi lostið, sem hugsar til þín alla daga sína. En meðan árin þreyta hjörtu hinna sem horfðu eftir þér í sárum tega, þá blómgast enn, og blómgast ævinlep þitt bjarta vor í hugum vina þinna. Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki um lífsins perlu í pllnu augnabliki. (Tómas Guðmundsson.) Elsku Hugga, Diddi, Arnrún, Ágúst og Lena. Það eru ekki til þau orð sem ná að segja það sem í hjarta okkar býr til að sýna ykk- ur samhug okkar. Við biðjum Guð að styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Bergrún, Sigríður, Jóhanna og Gunnar. Sú mynd við mér brosir, þó burtu sért þú. Ó, svo björt er þín minning. Hún lýsir mér nú. (Iðunn Steinsdóttir) Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig í þér. Sálin vaki, þá sofnar lif, sé hún ætið í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson.) Minning þín eru perlur í hjarta okkar. Ekki getum við munað neitt slæmt sem þú gerðir, allt lífíð var eins og gleðileikur, allt gekk upp í hlátri og gríni. Þú varst einn af þeim sem virkilega voru til staðar. Ég hugsaði alltaf að Bakkus myndi koma ykkur í koll einhvem- tímann, en aldrei bjóst ég við því sem gerðist. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skina glaðast, þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi, það kveikti ást og yndi með öllu sem það kvaddi þótt burtu úr heimi hörðum nú hverfí ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik G. Þórleifsson.) Efst er mér í huga þegar þú sást ekkert nema systur mína, þá daga varstu eins og heimalningur, þeir dagar voru yndislegir. Því að einn af þínum bestu hæfíleikum var að fá fólk til að hlæja og það gerð- irðu þessa daga. En ekkert varð úr áætlunum þínum en þið urðuð mjög góðir vinir enda hættir þú ekkert að koma. Dóttir okkar hændist mjög að þér enda var erfítt að líka ekki vel við þig. Það var eitthvað við þig sem dró til sín fólk, e.t.v. hvað þú varst opinn. Nú sit ég hérna, vinur, og blaðið ekki orðið blautt því ég er ekki ennþá búin að átta mig á þessu. Ég var að tala við hann vin okk- ar, Gumma, og við skildum þetta ekki alveg, hvers vegna þú. Við eigum svo margar minningar saman, t.d. þegar við fórum hring- inn saman og skemmtum okkur svo vel. Nær alltaf þegar við höfum spjallað vel saman eftir það hefur verið minnst á hringferðina frægu. Ég man vel þegar við fórum snemma vors í Veiðivötn með tjald og ætluðum að tjalda, það rigndi svo mikið að við hefðum eins getað tjaldað í vatni, svo við fengum leyfi til að hýrast í gömlum kofa sem míglak reyndar en var annars gott skjól gegn roki og kulda. Þama vorum við reyndar ekki til að sofa svo þetta skipti ekki máli. Veiðidellan átti hug þinn allan og svo var það í þetta skiptið líka. Aflinn var reyndar ekki mikill í þetta sinn. Aflann skildi nú vefja í plast og geyma í snjóskafli þar til farið yrði heim. Á heimferðar- degi skyldi aflinn sóttur, ekki var nú glæsilegt um að litast í skaflin- um, allt sundurtætt og ógeðfellt, var nú veiðibjallan búin að halda veislu og lítið varið í leifarnar. Svona var margt í okkar vina- hópi, það var ekki svo „nojið“ ef það bara gekk upp. Eins og þegar við grilluðum á teinakoppnum í Skaftafelli hérna um árið og pyls- urnar vom allar úti í gráu krómsp- reyi. Það er margs að minnast og alls góðs, ég vil þakka fyrir samfylgd- ina, góði vinur. Eg gæti haldið áfram lengi, lengi að rifja upp minningar um ævin- týri okkar en mun eiga þau í minn- ingunni um góðan dreng með létta lund og bros í hjarta. Elsku Diddi, Hugga, Arnrún, Gústi, Lena og aðrir aðstandendur, góður guð styrki ykkur í ykkar miklu sorg. Þín er sárt saknað, vin- ur. Ingólfur og Ragna. Elskulegur bróðir okkar og mág- ur, Sigurður Sigurmundsson, sem lést 14. maí síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju í dag. Það er erfítt til þess að hugsa að við eigum aldrei eftir að sjá hann aftur eða hlusta á veiðisög- urnar hans. Sigurður var mikill veiðimaður og var búinn að und- irbúa sumarið vel, það sáum við SNORRI GUÐJÓNSSON ■4- Snorri Guðjónsson fæddist • í Garðshorni, Glerárþorpi, 5. desember 1921. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 8. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Akureyrarkirkju 18. mars. Það togar, það seiðir, hið salta haf, þó sjóði þar títt á keipum og stormurinn hristi hrimgað traf og hrikti í siglu og reipum, og Rán vilji fleyin færa í kaf í freyðandi öldusveipum. Þá vaknar hin forna víkingslund og vorþrá í sjómanns barmi. hann kveður allt heima á hljóðri stund með húmbyrgða dögg á hvarmi, og ótrauður snýr á Ægisfund, þó ei fyrir dögun bjarmi. Hann leysir festar, og landi frá hann legpr í drottins nafni. Hans hönd er örugg, en orðin fá — er ávallt hinn sami og jafni. Hans afkomuvon og aflaþrá er eggjandi fyrir stafni. Er sædrifnir leita heim í höfn af hafinu vaskir drengir, og glottir að baki dökkbrýn dröfn og duna við kólgustrengir, er bjart um garpanna brimfáð nöfn, - þá birtir og daginn lengir. (Guðmundur E. Geirdal.) Takk fyrir allt og allt, kæri frændi. Hjalti, Friðjón Már og Snorri. þegar við litum inn í herbergið hans. Hann var búinn að hnýta margar flugur sem hann hefur ætlað að nota í veiðina í sumar. Hann hafði mjög gaman að allri veiði. Það er sárt að hugsa til þess að maður eigi aldrei eftir að sjá hann bera veiðistangirnar sínar út í bíl eins og hann gerði nær dag- lega þegar hann var ekki á sjó. Eða þegar hann var að koma úr veiðiferð og var að bera úr bílnum, fisk, gæs eða rjúpur. Hann var mikið fyrir að veiða og vera úti og stundum fórum við systkinin með honum. Oft tók hann Hugborgu frænku sína með sér og þegar þau komu til baka kom Hugborg og sagði frá veiðiferðinni, hvert þau fóru og hvað þau veiddu. Sigurður var líka mikill kokkur og bauð okk- ur stundum í mat og það var þá ýmist villibráð eða fiskur sem hann hafði eldað handa okkur. Sigurður var mjög gjafmildur hvort sem var á sjálfan sig eða annað. Hann var alltaf svo ánægð- ur þegar hann kom til okkar og færði okkur afrakstur veiðinnar. Sigurður var félagi í Björgunar- sveitinni Björgu á Eyrarbakka og starfaði mikið með henni. Það sýn- ir vel hversu hjálpsamur og góður hann var. Það er stórt skarð höggvið í systkina- og vinahópinn nú þegar hann er farinn. Okkur langar að þakka Sigurði fyrir allar góðu stundimar í gegnum árin sem voru allt of fá. Sigurður var góður bróð- ir og vinur. Elsku Sigurður, hafðu þökk fyrir allt og allt. Þú lifir i hugum okkar um alla eilífð. Arnrún, Guðmundur, Ágúst og Lena. Elsku Sigurður minn, nú ertu dáinn og kominn upp til Guðs. Það er svo skrítið að þú skulir vera farinn frá okkur, þú sem varst allt- af svo góður. Þú tókst mig stundum með að veiða þó að ég hefði ekki sömu þolinmæði og þú við veiðina. Þú varst líka duglegur að passa mig þegar ég var minni og mamma var í skólanum. Hálsmenið sem þú gafst mér í jólagjöf síðustu jól ætla ég að passa og geyma vel. Elsku Sigurður minn, ég veit að englarnir passa þig núna. Þín frænka, Hugborg. Frágangur afmælis- ogminning- argreina MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentun- inni. Það eykur öryggi í texta- meðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfí (5691115) og í tölvu- pósti (MBL@CENTRUM.IS). Auðveldust er móttaka svo- kallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS- textaskrár. Þá eru ritvinnslu- kerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úr- vinnslu. Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfílegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfund- ar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.