Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 61

Morgunblaðið - 24.05.1997, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. MAÍ 1997 61 _____MYMDBOMP_ MYWPBÖMD Frábær skemmtun Næturkossinn iangi (The LongKiss Goodnight)_ Spennumynd ★ ★★ Framleiðandi: Forge. Leikstjóri: Renny Harlin. Handritshöfundur: Shane Black. Kvikmyndataka: Guillermo Navarro. Tónlist: Alan Silvestri. Aðalhlutverk: Geena Davis og Samuel L. Jackson. 115 mín. Bandarikin. New Line Cinema/Myndform 1997. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára. SAMANTHA er kennari og hús- móðir í litlum bæ. Hún hefur verið minnislaus frá því að hún fannst fyrir átta árum meðvit- undarlaus á strönd. Við áfall byrjar hún að sjá myndir úr fyrra lífi sínu og brátt er hún komin í mik- inn lífsháska ásamt einkaspæj- aranum Mitch. Þetta er besta bandaríska spennu- mynd sem ég hef séð í langan tíma og sérstaklega fyrir það að vera ólík þeim hasarmyndum sem ganga yfir mann og eru allar eins. Aðalpersón- umar tvær eru skemmtilegar; Davis er algjör töffari og Jackson er fynd- inn halloki (ísl. þýð. á „looser"). Hú- morinn er ágætur, þ.e.a.s. hann er öðmvísi og það kemur á óvart. Um- fram allt em það þó brellumar sem standa upp úr, þær em frábærar. Myndin er spennandi og fyndin, en á það einnig til að vera grátbrosleg og jafnvel sorgleg og þar af leiðandi einfaldlega skemmtileg. Þótt Harlin sé mjög góður spennumyndastjóri og hans hlið myndarinnar lýtalaus, þá em allar þessar nýju uppákomur handritinu mikið að þakka. í því er hvergi dauðan punkt að finna og framvinda sögunnar þýtur áfram. Jackson og Davis hafa þegar sannað sig margoft og gera það hér aftur í góðum samleik. Geena Davis er nátt- úmlega gella aldarinnar eftir þessa mynd, næst á eftir Anne Parillaud úr Nikitu hans Luc Besson. Ég ráð- legg því stúlkum sem sætta sig yfir- leitt við að fá útrás fyrir stráka- komplexana með því að reykja vindla og keyra stóra bíla, að stökkva út á leigu sem fyrst. Þær munu fá ærlegt kikk út úr þessari mynd. Hildur Loftsdóttir. Glettin eins o g vera ber i i i i i i Emma (Emma) ________________ Gamanmynd ★ ★ ★ Framleiðandi: Matchmaker Films. Leikstjóri og handritshöfundur: Douglas McGrath eftir samnefndri sögu Jane Austen. Kvikmyndataka: Ian Wilson. Tónlist: Rachel Port- man. Aðalhlutverk: Gwyneth Paltrow, Toni Colette, Greta Scacc- hi, Ewan McGregor, Alan Cumm- ings, Jeremy Northam og Sophie Thompson. 116 mín. Bretland. Miramax/Skifan 1997. EMMA Woodhouse er ung stúlka af heldri ættum. Eina áhugamál hennar er að para saman ættingja og vini. Þegar hún reynir að koma bestu vinkonu sinni saman við prest nokkum veðjar hún á rang- an hest. Hún held- ur þó áfram við iðju sína, og brátt er hún sjálf flækt i ástarmálin. Sögum Austen hafa verið gerð rækileg skil í kvikmynd- um og sjónvarpi á undanfömum missemm. Satt er að sögur hennar eru skemmtileg ádeila á yfirborðs- mennsku heldra fólksins í upphafi síðustu aldar í Bretlandi. Þær búa yfir ótrúlegri glettni og háðskum húmor miðað við tímann sem þær em skrifaðar á. Það verður hins vegar seint sagt að þær risti sérlega djúpt. Þessi kvikmynd um Emmu nær þessari glettni einstaklega vel. Oft tekst myndavélinni að túlka það sem hefði þurft nokkrar blaðsíður af orðagjálfri til að segja í bókinni. Handritið er einstaklega hnitmiðað og skemmtilegt. Leikaramir eru mjög vel valdir í öll hlutverkin, en drottningin er án nokkurs efa Gwyn- eth Paltrow í hlutverki Emmu. Hún er einstaklega heillandi og fullkomin í hlutverkið. Það væri gaman að sjá hana í fleiri bitastæðum hlutverkum brátt. Hér koma fram margar mjög skemmtilegar persónur eins og Séra Elton leikinn af Alan Cummings og Miss Bates leikin af Sophie Thomp- son. Stærri stjömur eins og Toni Colette og Ewan McGregor féllu al- gerlega í skuggann af þeim. Emma er skemmtileg og hlý mynd um mannlegar tilfinningar, sem ég mæli með fyrir alla. Hildur Loftsdóttir MYNDBÖND SÍÐUSTU VIKU Fræknar stúlkur í fjársjóðslelt (Gold Diggers: The Secret of Bear Mountain)-k k 'h Sú fyrrverandi (The Ex) k Lokaráð (Last Resort)'h Varðeldasögur (Campfire Tales)-k k Vörðurlnn (The Keeper)k Verndarenglarnír) (Les Anges Gardiens-k Reykur (Smoke)k k k 'h Eyðimerkurtunglsýkl (Mojave Moon)k k 'h Marco Polo (Marco Polo)k k Tækifærlshelvítl (An OccasionalHell)k k Adrenalín (Adrenalin) Golfkempan (Tin Cup)k ★ ★ Drekahjarta (Dragonheart)k k k Meðeigandinn (The Associatejk 'h Ráðgátur: Hverfull tíml (The X—Files: Tempus Fugit)k k 'h Kekklr (Curdled)k'h Strákar (Boys)k Líf eftlr Plcasso (Surviving Picasso)k 'h Stelpuklíkan (Foxfire)k k'h Nlðurtalning (Countdown)k k 'h Kappa PÁLL ÓSKAR kynnir KAPPA og áritar nýju plötuna sína í dag kl. 12-14. Áritaðar plötur fylgja öllum KAPPA íþróttagölum meðan birgðir endast. Músik og Sport Reykjavfkurvegi 60 Slmar 555-2887 og 555-4487 & ít *c. Það er alltaf vandi að velja réttu tölvuna og sérstaklega þegar þú ætlar að kaupa 40 stykki. Eftir mikla athugun varð Hyundai Pentium ATX tölvan frá Tæknivali fyrir valinu og við erum alsæl: Pentium ATX 3.5 FD með intel CPU 586DX 133MHz 32MB EDO innra minni 2110MB harðurdiskur 16X BTX geisiadrif 100 MBT intel netspjald 15 tommu SVGA súperskjár Við ertivn okkar... Hjá xnetis færðu aðgang að bestu fáanlegum tölvum og fylgibúnaði fyrir aðeins 400 krónur á tímann. Úrval hugbúnaðar á hverri net opnunartilboðin koma þér skemmti Opið alla Nóaatúni 17 - sími 562 903 . ..,.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.