Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Flugleiðir hætta flugi á Patreksfjörð
íslandsflug
fjölgar ferðum
JÓN Gauti Jónsson, bæjarstjóri í
Vesturbyggð, kveðst telja afar
slæmt íbúanna vegna að Flugleiðir
hafi hætt áætlunarflugi til Patreks-
fjarðar. Hann segir í samtali við
Morgunblaðið að heimamenn séu
varla búnir að átta sig á stöðunni,
breytingin sé það nýtilkomin. „Það
er ljóst að þetta þýðir að samkeppn-
in er farin og það er slæmt,“ segir
hann. íslandsflug er með áætlunar-
flug á Bíldudal og tekur svipaðan
tíma að fara frá Patreksfirði á Bíldu-
dalsflugvöll og á Patreksfjarðarflug-
völl. íslandsflug mun frá og með nk.
mánudegi bæta við tveimur ferðum
á Bíldudal.
„Við þurfum að fara alveg fyrir
fjörðinn til að komast á Patreksfjarð-
arflugvöll og þó að leiðin norður úr
til Bíldudals sé eitthvað lengri í kíló-
metrum talið er hún greið og fljótfar-
in,“ segir Jón Gauti.
íslandsflug bætir við tveimur
ferðum á Bíldudal
Hann segir samkeppnina hafa
gagnast mjög vel og að þjónusta við
svæðið hafi verið mjög góð þar til
nú, þegar Flugleiðir hætta að fljúga
á Patreksfjörð.
Að sögn Ómars Benediktssonar,
framkvæmdastjóra íslandsflugs,
mun félagið auka þjónustuna á
Bíldudal frá og með næsta mánu-
degi. „Við höfum flogið daglega á
Bíldudal gegnum ísafjörð og Flat-
eyri en nú verður beint flug á Bíldu-
dal daglega. Auk þess setjum við inn
kvöldflug tvisvar í viku,“ segir hann.
Frá og með mánudeginum verður
beint morgunflug alla daga nema
sunnudaga og að auki kvöldflug
miðvikudaga, föstudaga og sunnu-
daga.
„Þegar við byrjuðum að fljúga á
Bíldudal vorum við með um 3.000
farþega á Bíldudal og Flugleiðir voru
með um 6.000 á Patreksfjörð. Nú
hefur þetta snúist við og þeir eru
með um 2.500 og við 6.500. Þetta
er eiginlega eini staðurinn á landinu
þar sem við höfum mátt keppa óheft
við Flugleiðir á markaðnum. Því þó
að hér sé um sitthvorn staðinn að
ræða, þá er þetta sami markaðurinn
og þar höfum við náð góðum ár-
angri. Ég held mér sé óhætt að segja
að við höfum sinnt markaðnum
þama mjög vel og fólk á suðurfjörð-
unum getur staðfest það,“ segir
Ómar.
FRETTIR_________________________________
Útskrift stúdenta frá Verslunarskóla íslands
BIRKIR Rúnar Gunnarsson, 3. efsti á stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla íslands, og umsjónarkennari hans, Ingi Ólafsson.
Birkir
3. efsti á
prófum
BIRKIR Rúnar Gunnarsson varð
3. efsti á stúdentsprófi frá Versl-
unarskóla Islands, við útskrift
sem fram fór í gær. Meðalein-
kunn hans var 8,64 og er Birkir
fyrsti og eini blindi nemandinn
sem útskrifast frá skólanum.
Aðspurður segist Birkir fyrst
og fremst þakka árangurinn
góðri skipulagningu. Birkir er
mikill sundmaður og keppti á
Ólympíuleikum fatlaðra sl. haust
með frábærum árangri. Hann
segist þó hafa minnkað við sig
sundæfingarnar nú í vetur til að
geta einbeitt sér betur að nám-
inu. Segir hann skólann hafa út-
vegað sér glósur og annað á
tölvudiskum og að góð aðstoð
kennaranna hafi gert honum
kleift að stunda námið á jafnrétt-
isgrundvelli við aðra nemendur
skólans. Hann segir flesta þá sem
svipað sé ástatt fyrir kjósa að
stunda nám við Menntaskólann
við Hamrahlíð vegna stuðnings-
kennslunnar sem þar er í boði
en persónulega hafi hann ekki
séð ástæðu til að eltast við hefð-
ir og valið þá námsleið sem hon-
um hugnaðist best.
Einstaklega
móttækilegur
Tölvur og stærðfræði eiga hug
hans allan og hyggur Birkir á
framhaldsnám í tölvunarfræði í
Bandaríkjunum. Hann segir
framtiðina felast í tölvum og að
í þeim séu möguleikarnir fólgnir,
góð þekking í stærðfræði og á
tölvum geti nýst sem grunnur
undir hvað sem er. Aðspurður
segir hann ár sín við Verslunar-
skólann hafa verið frábær en
bætir við að reyndar séu öll ár
góð þegar litið er til baka.
Ingi Ólafsson, umsjónarkenn-
ari Birkis, segir hann mjög dug-
legan nemanda og einstaklega
móttækilegan. Það sé ótrúlegt
hvað Birkir geti meðtekið mynd-
ræna hluti og að það sé ekki síð-
ur lærdómsríkt fyrir kennarann
að Ieita nýrra leiða við að koma
námsefninu til skila. Það hafi
verið nauðsynlegt að fara sömu
leið og Birkir, loka augunum og
reyna að framkalla mynd í kollin-
um. „Hér eru allir velkomnir og
ef einhver hefur sérþarfir þá
tökum við á því þegar þar að
kemur,“ sagði Ingi.
Þjóðmálakönnun
46% myndu
kjósa lista
jafnaðar-
manna
SAMKVÆMT niðurstöðum þjóð-
málakönnunar Félagsvísindastofn-
unar Háskóla íslands fyrir þing-
flokk jafnaðarmanna myndu 45,7%
þeirra sem afstöðu tóku í könnun-
inni kjósa lista sameinaðra jafn-
aðarmanna ef í boði væru þrír list-
ar, þ.e. listi Sjálfstæðisflokks, listi
Framsóknarflokks og listi samein-
aðra jafnaðarmanna. 36,6% þeirra
sem afstöðu tóku sögðu að þeir
myndu kjósa lista Sjálfstæðisflokks
og 17,7% sögðu að þeir myndu
kjósa lista Framsóknarflokks.
í sambærilegri könnun sem gerð
var í nóvember og desember síðast-
liðnum svöruðu 39,5% aðspurðra
að þeir myndu kjósa lista samein-
aðra jafnaðarmanna, 37,5% svör-
uðu að þeir myndu kjósa lista Sjálf-
stæðisflokks og 23% svöruðu að
þeir myndu kjósa lista Framsóknar-
flokks.
Könnun Félagsvísindastofnunar
var gerð dagana 22.-29. maí síðast-
liðinn og var stuðst við slembiúrtak
úr þjóðskrá sem náði til 1.200
manna á aldrinum 22-75 ára af
öllu iandinu. Vegna mistaka við
töku úrtaks duttu aldurshóparnir
18, 19, 20 og 21 árs út og kann
það að hafa haft áhrif á meginnið-
urstöður.
jr
Skipt
um rúðu
SKIPT hefur verið um rúðu á
neðstu hæð Ráðhússins en eins
og sjá má var gamla rúðan illa
farin og sprungin. Að sögn
húsvarðar er ekki vitað hvað
gerðist en sennilegt er að mynd-
ast hafi lítil sprunga sem síðan
stækkaði ört.
Morgunblaðið/Ásdfs
Hlutabréf í Áburðarverksmiðjunni hf.
Tvö gild til-
boð bárust
Alþjóðlegt nám í MH
MENNTASKÓLINN við Hamra-
hlíð hefur gerst aðili að alþjóða-
samtökum IBO (International
Baccalaureate Organisation),
sem eru samtök 700 skóla í rúm-
lega 90 löndum. Þetta gerir hon-
um kleift að fara af stað með
alþjóðlegt nám, IB-nám, sem
viðurkennt er í háskólum víða
um heim, m.a. í Cambridge,
Harvard og víðar. Námið tekur
tvö ár eftir eins árs undirbúning
og fer það allt fram á ensku
utan áfanga í íslensku og öðrum
tungumálum.
Lokaprófið er yfirfarið af er-
lendum prófdómurum. Gert er
ráð fyrir að taka inn 22-25
nemendur í IB-námið næsta
haust.
■ Meirihluti/31
ÞRJÚ tilboð bárust í hlutabréf
ríkisins í Áburðarverksmiðjunni hf.
og töldust tvö þeirra gild við fyrstu
yfirferð. Samkvæmt sölulýsingu
gafst bjóðendum kostur á að gera
tilboð í öll hlutabréf ríkisins að
nafnverði einn milljarður króna eða
minnihluta. Tilboðin skyldu miðast
við staðgreiðslu kaupverðs eigi síð-
ar en 20. júní næstkomandi.
Tvö af tilboðunum þremur hljóð-
uðu upp á staðgreiðslu. Þau voru
annars vegar frá Gufunesi ehf.,
sem bauð 725.000.725 kr. í öll
hlutabréfin, og hins vegar barst
tilboð upp á 617.000.000 kr. í öll
hlutabréfin frá Kaupfélagi Eyfirð-
inga, Kaupfélagi Skagfirðinga,
Kaupfélagi Árnesinga, Kaupfélagi
Þingeyinga, Sláturfélagi Suður-
lands, Bændasamtökum íslands,
Vatnsveitu Reykjavíkur, Hitaveitu
Reykjavíkur, Rafmagnsveitu
Reykjavíkur og Eignarhaldsfélag-
inu Álþýðubankinn hf.
Tilboðin voru opnuð hjá Hand-
sali í gær og verða þau nú yfirfar-
in af framkvæmdanefnd um einka-
væðingu og Handsali hf. Tillaga
verður svo gerð til landbúnaðarráð-
herra um hvaða tiiboði skuli tekið,
en samkvæmt sölulýsingu skal til-
kynna um niðurstöðu í síðasta lagi
6. júní 1997.
Sjómannadagurinn
haldinn í 60. sinn
Viðeyjar-
sund þreytt
á sjómanna-
daginn
SJÓMANNADAGURINN er hald-
inn hátíðlegur í sextugasta sinn.
íslandsmót verður í handflökun og
hefst kl. 11 í dag í tjaldi á Mið-
bakka Reykjavíkurhafnar og kl.
13 opnar Sjóminja- og smiðju-
munasafn Jósafats Hinrikssonar í
Súðarvogi. Ef veður leyfir verður
gerð tilraun til Viðeyjarsunds.
Heimir Arnar Sveinbjörnsson ætlar
að synda frá Viðey kl. 13 og taka
land við Grófarbryggju kl. 15. Sjö
sveitir frystiskipa ætla að keppa í
knattspyrnu og reiptogi á íþrótta-
svæði Leiknis í Breiðholti. Sjó-
mannahóf verður svo á Hótel ís-
landi um kvöldið.
Hin eiginlegu hátíðarhöld hefj-
ast svo á sjálfan sjómannadaginn
á morgun. Fánar verða dregnir að
húnum skipa í Reykjavíkurhöfn og
minningarguðsþjónusta verður í
Dómkirkjunni kl. 11. Þá verður
lagður blómsveigur á leiði óþekkta
sjómannsins.
Nöfn látinna sjómanna á
minningaöldur
Tíu nöfn látinna sjómanna verða
sett á minningaöldur Sjómanna-
dagsins sem voru reistar fyrir ári
við kapelluna í Fossvogi. Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
sjómannadagsráðs, segir að um
1.300 sjómenn hafi farist frá 1938
þegar sjómannadagurinn var hald-
inn hátíðlegur í fyrsta sinn. Þar
af liggi um 400 sjómenn í votri
gröf.
Utihátíðarhöld verða við Reykja-
víkurhöfn og hefjast þau kl. 13.
Þá verður opið hús í Hrafnistu
í Reykjavík frá kl. 13.30-17 sem
er 40 ára á þessu ári. Hrafnista í
Hafnarfirði er 20 ára á þessu ári
og verður opið hús þar einnig frá
13.30-17.
■ Fjölbreytt dagskrá/50