Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TTL BLAÐSINS
v
Dýraglens
Grettir
mmm m m
Ljóska
Þú þarna í öftustu röðinni... viltu ekki taka ofan húfuna?
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Austur-Tímorbúar
vildu sjálfir
sameinast Indónesíu
Athugasemd vegna greinar um Austur-Tímor
Frá Mohamad Kamal:
GREIN um Austur-Tímor („Sjálf-
stæði Austur-Tímor bíður fráfalls
Suhartos"), sem var birt í Morgun-
blaðinu 15. apríl, er áhugaverð fyrir
þá, sem vita ekkert eða mjög lítið
um ástandið á Austur-Tímor, og vi-
llandi ef menn vilja vera vel að sér
um staðreyndirnar og þróunina nú
um stundir.
Fyrirsögn greinarinnar gerir
stefnu Indónesíu í Austur-Tímormál-
inu tortryggilega. Sameining Aust-
ur-Tímor og Indónesíu varð endan-
leg þegar leiðtogar eylandsins völdu
það hlutskipti árið 1976 að vera hluti
af Indónesíu og sendinefnd indónes-
íska þingsins, sem rannsakaði málið,
staðfesti þá niðurstöðu þeirra að það
væri einlægur vilji Austur-Tímorbúa
að sameinast Indónesíu, en við svo
búið iýsti þingið því yfir formlega
að Austur-Tímor væri 27. stjórn-
sýslueining Indónesíu. Þess vegna
er Austur-Tímor ekki háð uppgangi
eða falli einstaklinga á Indónesíu.
Morgunblaðið lætur hjá líða að
skýra frá ábyrgðarleysi Portúgala,
sem hlupust frá svæðinu án þess að
búa í haginn fyrir afnám nýlendu-
stjómarinnar með tilhlýðilegum
hætti, þrátt fyrir fjölda áskorana og
beiðna Indónesa og nágrannaríkj-
anna um að Portúgalar gerðu viðhlít-
andi ráðstafanir til að binda enda á
400 ára vægðarlausa nýlendustjórn.
Það voru Portúgalar sem vopnuðu
stjórnmálaflokk Ramos Horta, Fre-
tilin, sem hvatti minnihlutaflokk
hans til að lýsa einhliða yfir sjálf-
stæði Austur-Tímor og virða aðra
stjórnmálaflokka (meirihlutann á
Austur-Tímor) að vettugi. Fretilin
heijaði á pólitíska andstæðinga sína
af mikilli grimmd og varð þúsundum
manna að bana.
Það hefur aldrei verið hagsmuna-
mál fyrir Indónesíu að Austur-Tímor
verði hluti af ríkinu. Það er söguleg
staðreynd, sem menn geta greiðlega
gengið úr skugga um, að Indónesar
hvöttu ítrekað til þess að Austur-
Tímormálið yrði leyst, jafnvel fyrir
flótta portúgölsku nýlenduherranna
frá Austur-Tímor.
Horta hefur verið einn um að
hagræða staðreyndunum til að villa
um fyrir þjóðum heims, lýst sér sem
baráttumanni í þágu frelsis meðan
þúsundir Austur-Tímorbúa, sem lifa
enn, hafa orðið vitni að grimmdar-
verkum Fretilin. Horta hefur verið
einn af leiðtogum Fretilin.
Þar sem Morgunblaðið er trúverð-
ugt, virt og ábyrgt dagblað er ég
viss um að það mun sjá sér fært að
birta þetta bréf og gefa þannig les-
endum sínum kost á frásögn og
skoðun, sem gefur réttari mynd af
staðreyndunum.
Vilji blaðið eða lesendur þess fá
frekari upplýsingar um Austur-
Tímormálið geta menn haft samband
við mig.
MOHAMAD KAMAL
upplýsingadeild sendiráðs Indónesíu í
Ósló.
Opið bréf til áhuga-
fólks um hljóðfærasafn
Frá Tryggva V. Líndal:
VÖNTUN er á vísi að einhveiju því
hljóðfærasafni, sem væri skilgreint
á landsgrundvelli. Er þar efiaust
fyrst og frernst um að kenna að-
stöðuleysi. Útkoman er þó sú, að
aðeins eru til: persónuleg hljóðfæra-
söfn í eigu einstaklinga, safn gam-
alla hljóðfæra hjá Þjóðminjasafninu,
og söfn hjá tónlistarskólum og
hljómsveitum, sem og hljóðfæri inn-
an um aðra safngripi hjá stofnunum
og fyrirtækjum.
Hugmynd mín er að setja ’nér með
í gang vísi að slíku Hljóðfærasafni
íslands, til að frekari þátttaka geti
þannig kannski vafið upp á sig.
Til að slíkur vísir sé með minnsta
og hagkvæmasta móti, býðst ég til
að halda utan um trompetdeild slíks
safns, sem varðveiti og skrái aðsend
trompetmunnstykki, og að sýna þá
gripi sem eru í minni vörslu, er eft-
ir því er leitað.
Þessi byijun er ekki svo fráleit:
Trompetið er með algengustu hljóð-
færunum hérlendis: hvort heldur
sem er í hljómsveitum, tónlistarskól-
um eða meðal einstaklinga. Tromp-
etið á sér langa sögu; í djassi, klas-
sík, poppi og þjóðlögum, og er af
ýmsum tegundum og stærðum.
Safn af slíkum munnstykkjum
gæti og lengi rúmast í einni tösku.
Nú er því mögulegt fyrir alla tón-
listarhópa í landinu að gefa munn-
stykki í safnið, og að skilgreina sig
um leið sem gjafafélaga að þessu
safni. Um leið geta einhveijir aðrir
tekið að sér að safna með sama
hætti öðrum hljóðfærum eða hljóð-
færahlutum, í samráði við mig. Að
lokum yrði svo vonandi hægt að vista
safnið í opinberri byggingu; helst
fyrr heldur en seinna.
Einnig mætti tengja hópinn við
samtök safnara, og við söfn er varð-
veita og flokka gögn um tónlistar-
sögu Islands, svo sem þjóðdeild fjóð-
arbókhlöðu og íslensku tónverkam-
iðstöðina. Að ekki sé talað um kynn-
ingarstarf í skólum og á öðrum vett-
vangi tónlistar og menningarmála.
Ég læt þessi hvatningarorð
nægja í bili, og vonast til að þetta
örsmáa frumhlaup mitt geti orðið
hvati til skipulagðrar sóknar í þess-
um vanrækta safnageira okkar
landsmanna allra.
Með sumarkveðju,
TRYGGVIV. LÍNDAL,
Skeggjagötu 3, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.