Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Samsteypusljórnin í Tyrklandi Erbakan missir þingmeirihluta Ankara. Reuters Reuter Talebanar á undanhaldi? RÍKISSTJÓRN Tyrklands missti þingmeirihluta sinn í gær er Yildi- rim Aktuna, þingmaður Sannleiks- stígsins, sagði af sér. Búist hafði verið við afsögn Aktuna um nokk- urt skeið en með henni fellur fylgi ríkisstjórnarinnar niður í 275 þing- sæti af 550. Ciller vill taka við „Samstarfsflokkurinn er að reyna að breyta grundvallargild- um lýðveldisins og notar trúar- brögð sem pólitískt verkfæri," sagði Aktuna, fyrrum heilbrigðis- málaráðherra, er hann tilkynnti afsögn sína á blaðamannafundi. Sagðist hann eiga von á að fjórir þingmenn Sannleiksstígsins til viðbótar, segðu af sér á næstu dögum en Aktuna er fimmti þing- maður flokksins sem segir af sér á innan við viku. HART er nú deilt um það innan Atl- antshafsbandalagsins (NATO) hve mörgum ríkjum eigi að bjóða inn- göngu. Á tveggja daga fundi utanrík- isráðherra NATO, sem lauk í Sintra í Portúgal í gær, skiptust menn í tvo . hópa og var meirihlutinn fylgjandi því að fímm ríki fengju inngöngu. I dagblaðinu The New York Times í gær sagði að ísland hefði verið eina ríkið, sem hefði lýst yfír stuðningi við að takmarka nýja félaga í NATO við þijú ríki, og þess utan hefði Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna verið einmana í málflutningi sínum. Níu ríki gerðu grein fyrir því á fundinum að þau væru fylgjandi því að Rúmenum og Slóvenum yrði boðin innganga í NATO auk þeirra þriggja þjóða, sem oftast eru nefndar, Pól- veija, Tékka og Ungveija. Þau voru Belgía, Frakkland, Grikkland, Ítalía, Kanada, Lúxemborg, Spánn og Tyrk- land. Bandaríkjamenn, Bretar, ís- lendingar og Þjóðveijar vilja að þrem- ur ríkjum frá Austur- og Mið-Evrópu verði hleypt inn í bandalagið, en vilja þó ekki útiloka að þau verði fleiri. Til stóð að Tansu Ciller, for- maður flokksins, hitti Erbakan, forsætisráðherra og formann samstarfsflokksins, á föstudag. Kvaðst hún ætla að leggja að Erbakan að láta sér eftir stöðu forsætisráðherra en samið hafði verið um að hún tæki við af hon- um á næsta ári. Ciller telur sig geta komið ríkisstjórninni út úr þeim ógöngum sem hún hefur ratað í undir stjórn Erbakans og Velferðarflokksins. Erbakan, sem er fyrsti íslamski forsætisráðherra Tyrklands, lenti milli steins og sleggju, í febrúar, er valdamenn innan hersins kröfðust þess að hann samþykkti aðgerðir gegn íslömskum áhrif- um. Óttast er að óstöðugleiki í efna- hagsmálum aukist mjög komi til stjórnarslita og kosninga. Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra staðfesti í samtali við Morgun- blaðið að á hádegisverðarfundi í fyrradag hefði stækkun NATO verið rædd og þótt áhersla hefði verið lögð á að ekkert yrði sagt frá honum hefði kvisast hvað þar gerðist. „Lýsti eindregnum skoðunum“ „Það er rétt að ég lýsti mjög ein- dregnum skoðunum á fundinum um það að stækkunin yrði sem minnst þannig að þremur ríkjum yrði boðin aðild, hugsanlega fjórum. Það vill svo til að síðar á fundinum kom í ljós að skoðanir okkar fara heim og saman við skoðanir Bandaríkjanna." Halldór sagði að hann hefði sagt að í fyrsta lagi yrði að hafa í huga þær kröfur, sem gerðar væru til þeirra, sem gengju í NATO. „Ef ekki verður stækkað í samræmi við þær kröfur mun það minnka álit aðila á bandalaginu," sagði ráðherr- ann. „Það er mjög mikilvægt að SVO virðist sem hersveitir Tale- ban-hreyfingarinnar í Afghanist- an séu á undanhaldi eftir hörð átök síðustu daga en andstæðar fylkingar hafa sent frá sér mót- sagnakenndar yfirlýsingar um gang stríðsins. Andstæðingar Talebana segj- ast hafa náð að umkringja her- sveitir þeirra norður af Kabúl þessi stækkun geti farið vel fram og ég er þeirrar skoðunar að verði of mörg ríki tekin inn í einu sé lík- legt að ekki muni takast jafn vel til.“ Halldór sagði að yrði bandalagið stækkað mjög mikið fyrst í stað væri mjög líklegt að næstu umferð stækkunar seinkaði úr hófí fram og mundi gera að verkum að hið nýja Evrópu-Atlantshafssamvinnuráð verði ekki jafn kröftugt og ella og starfíð þar ekki jafn mikilvægt. Sagði ráðherrann mikilvægast af öllu að bandalagið yrði áfram sterk stofnun, sem gæti tekið ákvarðanir með skömmum fyrirvara. Með þjóðþingin í huga Halldór kvaðst einnig hafa lagt áherslu á þá skoðun að eftir því fleiri ríki fengju inngöngu yrðu minni líkur á að hægt yrði að samþykkja stækk- unina endanlega í þjóðþingunum, sem þurfa að staðfesta hana. „Það er lík- legra að þjóðþingin staðfesti tiltöiu- og segjast hafa náð tveimur mik- ilvægum borgum í norðri og norðvestri. Burhanuddin Rabbani forseti, sem verið hefur útlægur frá valdatöku Talebana, er sagður kominn til norðurhéraða Afg- hanistans. Segjast menn hans hafa náð sömu stöðu og fyrir 8 mánuðum. lega litla stækkun í byijun,“ sagði hann. „Síðan er um íjármálaleg rök, sem styðja minni stækkun, því að hér um að ræða veruleg útgjöld, sem leggjast á allar bandalagsþjóðirnar, og eftir því, sem fleiri ríki koma inn, þeim mun meiri verða útgjöldin." Halldór sagði einnig að það væri afar mikilvægt að það væri ljóst að bandalagið yrði áfram opið. „Við höfum verið ákveðið þeirrar skoðunar að Eystrasaltsríkin ættu að fá aðild og við getum ekki fallist á það að það verði einhver önnur skilyrði, sem þeim verði sett, en ýmsar aðrar þjóð- ir standa frammi fyrir. Þess vegna er það þeim í hag að stækkunin verði takmörkuð." Það kom á óvart hversu mikill stuðningur var við að fímm nýjum ríkjum yrði hleypt inn í bandalagið. Það sýnir að ekki ríkir sátt um hvern- ig NATO eigi að líta út í framtíð- inni. Javier Solana, framkvæmda- stjóri NATO, fær það verkefni að fínna málamiðlun. Tími hans er naumur því tilkynna á um hvaða ríkj- um verður boðin innganga á leiðtoga- fundi NATO í Madrid í júlí. Þýzka stjórnin og Bundesbank Enffin mala- miðlun Frankfurt. Reuter. ÞÝZKA stjórnin og seðlabankinn Bundesbank leituðu í gær mála- miðlunar í harðri deilu þeirra um endurmat á verðgildi gullforða bankans, sem ríkisstjórnin hefur uppi fyrirætlanir um en bankinn er andsnúinn. Að mati sérfræðinga er engin lausn á deilunni í sjónmáli. Lík- legast þykir þó að stjórnin neyti pólitísks aflsmunar til að ná vilja sínum fram þrátt fyrir harða gagnrýni fjölmiðla og áskoranir á fjármálaráðherrann Theo Wa- igel að segja af sér. Stjórnin kann þó að verða að greiða það dýru verði að hrinda áformum sínum í framkvæmd, þar sem með því mun hún senni- legast tapa miklu af því trausti sem ríkisstjórnir annarra Evr- ópusambandsríkja hafa borið til hennar. Sum þessara Evrópu- ríkja hafa gripið til vafasamra aðferða til að hagtölur landa þeirra nái að uppfylla skilyrði Maastricht-samningsins fyrir aðild að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu, EMU. Þýzka stjórnin hefur gagnrýnt þessar aðferðir oftsinnis. Ennfremur hættir stjórnin á að Bundesbank hætti stuðningi við myntbandalagið. Bankinn gæti jafnvel reynt að slá EMU- áformunum á frest eða koma þeim út af sporinu, af ótta við að hin nýja sameiginlega Evr- ópumynt verði of veik. Fámenn mótmæli í Kinshasa Kinshasa. Reuter. HERMENN gerðu vopnaleit á heimili eins af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Lýðveld- inu Kongó, áður Zaire, í gær, en engin vopn fundust. Leitin var gerð eftir að fullyrt var að lífverðir leiðtogans, Kibassa Maliba, hefðu skotið úr vélbyss- um út í loftið. Stuðningsmenn Etiennes Tshisekedis, fyrrver- andi forsætisráðherra, efndu til mótmælagöngu í Kinshasa í gær en aðeins nokkur hundruð manns tóku þátt í henni. Maliba var áður fylgismaður Tshisekedis en gekk úr flokki hans fyrir ári. Gerðu stuðnings- menn Tshisekedis hróp að líf- vörðum Maliba og hvöttu her- menn til til að gera leit að vopn- um hjá honum. Deilt um stækkun NATO á utanríkisráðherrafundi í Portúgal Níu aðildarríki gegn Islandi og Bandaríkjunum Halldór Ásgrímsson sagði að ekki mætti veikja NATO með því að taka inn of mörg ríki Prestskosningar í Garðaprestakalli §tuðningsfólk Hans Markúsar Hafsteinssonar vill þakka drengilega kosningabaráttu fyrir prestskosningar í Garðaprestakalli sem fara fram í dag. Það er von okkar að kirkjan standi heil eftir og safnaðarstarfið verði áfram öflugt og líflegt í Garða- prestakalli. Við sem þekkjum Hans Markús vitum að hann er maður sem þjónar íbúum Garðaprestakalls af heilindum og samviskusemi. í dag gefst tækifæri til að hafa áhrif. Ykkar skoðun skiptir máli, þegar gengið er til kosninga um þann prest sem þið viljið að þjóni ykkur næstu árin. Notið rétt ykkar. Stuðningsfólk Hans Markúsar Hafsteinssonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.