Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 51
SKÓLASLIT
NEMENDUR brautskráðir frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ vorið 1997 ásamt Gísla Ragnarssyni,
skólameistara og Kristínu Bjarnadóttur, aðstoðarskólameistara.
INGA Rósa Sigurðardóttir, Áslaug Þorbjörg Guðjónsdóttir og
Arna Þóra Káradóttir nýstúdentar frá FG.
52 nemendur út-
skrifaðir frá FG
FIMMTÍU og tveir nemendur voru
brautskráðir frá Fjölbrautaskólan-
um í Garðabæ laugardaginn 24.
maí sl. Athöfnin fór fram í Vídal-
ínskirkju. Gísli Ragnarsson, settur
skólameistari, flutti ávarp og af-
henti nemendum prófskírteini.
Skólameistari ræddi um marg-
víslegan vanda sem steðjar að ung-
mennum. Hann hvatti nemendur
til að trúa á sjálfa sig og fylgja
sannfæringu sinni.
Þá nefndi skólameistari að skól-
inn flytur í nýtt húsnæði hinn 1.
ágúst nk. Undirbúningur undir
flutninga er í fullum gangi. Nýja
skólahúsið stendur við Skólabraut
í austanverðu Arnameslandi.
Þórður Ingason, formaður
skólanefndar, flutti nemendum
hvatningu, Jón Árnason flutti
kveðjur frá tíu ára stúdentum og
Hermann Páll Jónsson hélt ræðu
fyrir hönd nýstúdenta.
Hlaut ágætiseinkunn
í 58 námsáföngum
Kristín Bjamadóttir, aðstoðar-
skólameistari, Ingvi Þorkelsson,
áfangastjóri, og deildarstjórar í ein-
stökum greinum afhentu verðlaun
fyrir góðan námsárangur. Ema
Jónsdóttir var dúx skólans með
ágætiseinkunn í 58 náms-áföngum
á hagfræðibraut, markaðslínu.
Ema hlaut einnig viðurkenningu
fyrir bestan árangur í íslensku,
dönsku, hagfræðigreinum og íþrótt-
um. Kristbjörg Huld Kristbergs-
dóttir hlaut viðurkenningu fyrir
flestar námseiningar, 205, eða fleiri
einingar en nokkur nemandi hefur
tekið við skólann. Kristbjörg fékk
einnig viðurkenningu fyrir ágætan
námsárangur í ýmsum greinum.
Viðurkenningar veittar
Kvenfélag Garðabæjar veitti
Rögnu Gunnarsdóttur og Ingu
Rósu Sigurðardóttur viðurkenn-
ingu fyrir afburða árangur í fata-
og textílhönnun og Sóley Áma-
dóttir hlaut viðurkenningu fyrir
framúrskarandi námsárangur í
myndlist. Aðrir nemendur sem
hlutu verðlaun vora Hermann Páll
Jónsson, Sunna Guðný Pálmadótt-
ir, Emilía Guðmundsdóttir, Geir-
þrúður Sara Birgisdóttir, Bryndís
Edda Eðvarðsdóttir, Sigríður Guð-
mundsdóttir, Elsa Steinunn Hall-
dórsdóttir og Lóa Björg Bjöms-
dóttir.
Kór skólans söng við athöfnina
undir stjórn Hólmfríðar Friðjóns-
dóttur og Heiðdís Lilja Magnús-
dóttir lék með á píanó.
og bæði niðurgangi og harðlrfi.
KISELGEt.
Útskrift nemenda Fjöl-
brautaskóla Suðurlands
• ascom Hasier
• Frímerkjavél framtíðarinnar
• Stílhrein, falleg hönnun
• Svissnesk tækni og nákvæmni
SOFFÍA Sveinsdóttir, frá
Selfossi, dúxaði með glæsi-
brag og hlaut verðlaun í fjöl-
mörgum greinum.
, Morgunblaðið/Sig. Fannar.
47 STUDENTAR voru brautskráðir frá Fjölbrautskóla Suðurlands á önninni sem leið. Hér má líta föngulegan hópinn á útskriftardaginn.
Selfossi. Morgunblaðið
FJÖLBRAUTASKÓLI Suð-
urlands brautskráði á dögun-
um 95 nemendur. Eins og oft
áður eru í hópnum nemendur
úr öllum sýslum Suðurlands;
tveir Skaftfellingar, ellefu
Rangæingar, 39 Selfyss-
ingar og 35 annars staðar úr
Arnessýslu. Elsti nemandinn
er fæddur 1943 en sá yngsti
1980. Fjölmennastur er ár-
gangurinn 1977 eða 26 nem-
endur.
Brautskráðir nemendur
voru eins og áður sagði 95
talsins, þar af voru 47 stúd-
entar, 11 húsasmiðir, og 7
söðlasmiðir. Að útskrifa sjö
söðlasmiði á einni og sömu
önninni er örugglega íslands-
met. Af stúdentum braut-
skráðist 1 af eðlisfræðibraut,
4 af félagsfræðibraut félags-
fræðilínu, 12 af félagsfræði-
braut sálfræðilínu, 11 af hag-
fræðibraut, 6 af íþróttabraut,
5 af málabraut, 2 af málabraut
ferðamálalínu og 10 af nátt-
úrufræðibraut. Athyglisvert
er að af 47 stúdentum eru ein-
ungis 6 piltar.
Dúxinn að þessu sinni var
Soffía Sveinsdóttir frá Sel-
fossi, og náði hún glæsilegum
árangri og hlaut verðlaun í
fjölda greina.
J. ÁSMHDSSON HF.
Skipholti 33,105 Reykjavik, sími 533 3535.
vandamál?
t Sillcol *sf riáttíárufit&sU&Ufi
i&ittt virtriur ytyyrt -yitetftwn í 09 sslyfKir b^nidytífi
wj {Íkurriíaní; 09 bcin
«| S-IHf-ul vtífkiar ytjtjn brjótbVifth,
l m nábrl, v.'fyyum m.'íj.'jtíLrindum,
- ■§ vir irjy nyI, uppþfyrfrt/u
Silicol hentar öllum!
Silicol hjálpar
Vinsælasta heilsuefnið i Þýskalandi, Svíþjóð
og Bretlandi!
Silicol er hrein nóttúruafurð án hliðarverkana.
Fæst í apótekum.