Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 50
■„ 50 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
t
Morgunblaðið Jón Svavarsson
Sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um allt land
Fjölbreytt dagskrá til
heiðurs sjómönnum
SJÓMANNADAGURINN verður
haldinn hátíðlegur á morgun um
land allt og er dagskráin víðast
hvar afar vegleg. Dagskrá 60.
sjómannadagsins í Reykjavík
hefst formlega með því að fánar
verða dregnir að húni á skipum í
Reykjavíkurhöfn, á Höfn í Horna-
fírði með hópsiglingu báta, í Vest-
mannaeyjum með sjómannamessu
í Landakirkju og einnig með sjó-
mannamessu í Grindavík klukkan
13 að viðstöddum forseta íslands,
Ólafí Ragnari Grímssyni og eigin-
konu hans, Guðrúnu Katrínu Þor-
bergsdóttur.
Víða heflast hátíðarhöldin í dag
með ýmsum hætti og dansleikir í
tilefni sjómannadagsins eru
haldnir á mörgum stöðum í kvöld.
Dagskrá hátíðarhalda á Akureyri,
í Grindavík, Höfn, Neskaupstað,
Reykjavík og Vestmannaeyjum
verður með eftirfarandi hætti:
Reykjavík
Kl. 8.00 Fánar dregnir að húni á
skipum í Reykjavíkurhöfn.
Kl. 10.00 Sjóminja- og smiðju-
munasafnið í Súðarvogi 4 opnað
almenningi. Aðgangur ókeypis.
Kl. 11.00 Minningarguðsþjónusta
í Dómkirkjunni. Biskupinn yfir
íslandi, herra Ólafur Skúlason,
minnist drukknaðra sjómanna.
Sr. Jakob Hjálmarsson þjónar
fyrir altari. Órganisti Marteinn
H. Friðriksson. Sjómenn að-
stoða við messuna. Lagður
blómsveigur á leiði óþekkta sjó-
mannsins í Fossvogskirkjugarði.
Útihátíðarhöld við
Reykjavíkurhöfn
Kl. 13.00 Skemmtisigling frá Faxa-
garði með skólaskipi Slysavama-
skóla sjómanna „Sæbjörgu" og
skemmtiferðaskipinu „Amesi“
inn um sund og eyjar. Merki
dagsins gildir sem aðgöngumiði.
Ókeypis fyrir böm yngri en 12
ára, en verða að vera í fylgd fuli-
orðinna. Klæðist vel.
Á Miðbakka hafnarinnar
Kl. 13.30 Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur ættjarðar- og sjómannalög.
Kl. 14.00 Samkoma sett. Þulur
og kynnir Hannes Þ. Hafstein,
fyrrv. forstjóri Slysavarnafélags
íslands. Afhjúpun styttunnar
Horft til hafs. Ávarp, Guðmund-
ur Hallvarðsson, formaður Sjó-
mannadagsráðs. Gylfi Þ. Gísla-
son, fv. menntamálaráðherra,
afhjúpar styttuna. Borgarstjór-
inn í Reykjavík, frú Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, flytur ávarp.
Ávörp: Fulltrúi ríkisstjómar,
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra. Fulltrúi útvegsmanna,
Hjörleifur Jakobsson, form.
Sambands ísl. kaupskipaútg.
Fulltrúi sjómanna, Jónas Garð-
arsson, formaður Sjómannafél.
Reykjavíkur. Guðmundur Hall-
varðsson, form. Sjómannadags-
ráðs veitir afreksbjörgunarverð-
laun og sæmir sjómenn heiðurs-
merkjum Sjómannadagsins.
Aðrar heiðranir.
Kl. 15.30 Ýmis skemmtiatriði og
uppákomur: Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sýnir björgun og
Björgunarsveitir SVFI sýna
ýmis atriði varðandi björgun og
björgunarbúnað. Kappróður
skipshafna ásamt landsveitum
karla og kvenna. Koddaslagur
og flekahlaup. Farand-hermir-
inn og farþegar ávallt slysa-
tryggðir. Margar tegundir af
botndýrum og sjávargróðri til
sýnis í sælífskerum á Marbakka.
Athygli skal vakin á því að
Heimir Amar Sveinbjömsson
mun þreyta Viðeyjarsund ef
veður leyfir á milli kl. 13 og 15
og taka land við Grófarbryggju.
Hrafnista í Reykjavík 40 ára
Kl. 13.30-17.00Opið hús. Handa-
vinnu-, sögu- og sölusýning,
harmoníkuleikur, söngur. Kaffí-
hlaðborð. Allur ágóði rennur til
velferðarmála heimilisfólks.
Hrafnista Hafnarfirði 20 ára
Kl. 13.30 Handavinnu-, sögu- og
sölusýning.
Kl. 13.30-17.00 Kaffísala. Allur
ágóði rennur til velferðarmála
heimilisfólks.
Höfn í Homafirði
Kl. 10.30 Sjómannamessa í
Hafnarkirkju. Að lokinni
messu verður lagður blóm-
sveigur að minnisvarða sjó-
manna í Óslandi. Karlakórinn
Jökull syngur.
Kl. 13.30 Hátíðadagskrá á Hótelt-
úni. Lúðrasveit. Ávarp í tilefni
dagsins. Kvennakórinn. Heið-
ursmerki afhent. Verðlaunaaf-
hending. Magnús Ver. Kara-
melluregn.
Neskaupstaður
Kl. 8.30 Skip og bátar setja upp
flögg og fána.
Kl. 9.00 Hópsigling. Eigendur
smábáta eru sérstaklega hvattir
til að taka þátt í hópsiglingunni
á bátum sínum. Böm verða að
vera í fylgd með fullorðnum.
Talstöðvarsamband verður á rás
12.
Kl. 14.00 Hátíðarmessa í Norð-
fjarðarkirkju. Sr. Þorgrímur
Daníelsson sóknarprestur mess-
ar. Ræðu flytur Freysteinn
Bjamason útgerðarstjóri. Kór
Norðfjarðarkirkju syngur, ein-
söngvari Ingveldur Hjaltested,
undirleikari Ágúst Á. Þorláks-
son. Sjómenn aðstoða við mes-
sugerð. Eftir messu fara fulltrú-
ar Sjómannadagsráð út í kirkju-
garð og leggja blómsveig við
minnisvarðann um óþekkta sjó-
manninn.
Kl. 15.00-19.00 Kaffísala í húsi
Björgunarsveitarinnar Gerpis
(allur ágóði rennur til björgun-
arstarfa sveitarinnar).
Kl. 15.30 Hátíðarhöld við sund-
laugina: Hátíðarræðu flytur
Magni Kristjánsson skipstjóri.
Aldraðir sjómenn heiðraðir.
Verðlaunaafhending fyrir kapp-
róður, dorgveiðikeppni og
handflökun. Stakkasund,
blöðmslagur, reiptog o.fl. Lúð-
rasveit Tónskóla Neskaupstaðar
leikur milli atriða.
Kl. 23.00 Sjómannadansleikur í
Egilsbúð, hljómsveit Friðjóns
Jóhannssonar leikur fyrir dansi.
18 ára aldurstakmark.
V estmannaeyjar
Kl. 13.30 Sjómannamessa í
Landakirkju, ritningalestur
Hilmar Rósmundsson og
Haukur Hauksson. Við
missisvarðann að messu
lokinni. Snorri Óskarsson.
Kl. 15.30 Stakkagerðistún.
Lúðrasveit Vestmannaeyja
leikur. Ræðumaður dags-
ins, Þorsteinn Pálsson,
sjávarútvegsráðherra.
Heiðranir og verðlauna-
afhendingar. Snorri Óskar-
sson. Litlu lærisveinamir
syngja. Hljómsveitin Skíta-
mórall leikur létt lög. Eyja-
stemmning.
Kl. 18.00 Sjómannamessu er
útvarpað á FM 104.
Akureyri
Kl. 08.00. Fánar dregnir að húni.
Kl. 11.00 Hátíðarguðþjónusta í
Akureyrar- og Glerárkirkju.
Heiðranir og athöfn við minnis-
varða sjómanna við Glerárkirkju
að guðsþjónustum loknum.
Kl. 13.30 Fjölskylduhátíð á
hafnarsvæðinu við Oddeyrar-
bryggju.
Ávarp Steingríms J. Sigfúss-
sonar, alþingismanns og for-
manns sjávarútvegsnefndar Al-
þingis. Magnús Scheving bregð-
ur á leik með ungum og öldnum.
Keppt verður um Smugubikar-
inn og í fleiri þrautum. Fjöldi
leiktækja verður á svæðinu.
Pizza ’67 og slysavarnafélags-
konur sjá um veitingar. Götu-
leikhús Akureyrar skemmtir.
Kynnir á hátíðinni verður Skúli
Gautason, leikari og tónlistar-
maður.
Eftir klukkan 15 verður haldin
poppmessa í flugskýli FN á Ak-
ureyrarflugvelli á vegum æsku-
lýðsstarfs kirkjunnar.
Dansleikur hefst í íþróttahöll-
inni á Akureyri að kvöldi sjó-
mannadags, kl. 19. Húsið opnar
klukkan 18.30. Veislustjóri verð-
ur Gísli Rúnar Jónsson. Töfra-
brögð og þijár hljómsveitir spila.
Kjaradeila
leikskólakennara
Tilríkis-
sátta-
semjara
LAUNANEFND sveitarfélaga á enn
ósamið við nokkra viðsemjendur sína
og samkvæmt upplýsingum frá
nefndinni ber sérstaklega mikið á
milli í samningaviðræðum við Félag
íslenskra leikskólakennara. Þann 21.
maí sl. lagði launanefndin fram til-
boð sem félagið hafnaði og hefur
launanefnd því ákveðið að vísa þeirri
deilu til ríkissáttasemjara.
Launanefndin hefur gert kjara-
samninga við 24 bæjarstarfs-
mannafélög, Félag tónlistarskóla-
kennara og fjölmörg verkalýðsfélög
og skammtímasamning við stéttar-
félög grunnskólakennara á síðustu
tveimur mánuðum án atbeina ríkis-
sáttasemjara.
Þeir samningar sem launanefnd
sveitarfélaga hefur gert hafa verið
samþykktir af félögunum að undan-
skildum samningum við Starfs-
mannafélag Kópavogs og Starfs-
mannafélag Vestmannaeyjabæjar,
sem felldu samningana. Búið er að
semja aftur við Starfsmannafélag
Vestmannaeyjabæjar og sá samn-
ingur samþykktur, en viðræður
standa yfír við Starfsmannafélag
Kópavogs. Allir kjarasamningarnir
eru á svipuðum nótum og þeir
kjarasamningar sem gerðir hafa
verið í þjóðfélaginu að undanfömu.
----» ■♦"4--
Alþýðubandalagið
í Reykjavík
__ Gestur
Ásólfsson
endurkjörinn
formaður
Á AÐALFUNDI Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík sem haldinn var á
fímmtudagskvöldið 29. maí var
Gestur Ásólfsson einróma endur-
kjörinn formaður félagsins.
Fundurinn samþykkti eftirfar-
andi ályktun við kjarabaráttu
verkafólks á ísafírði: „Aðalfundur
Alþýðubandalagsins í Reykjavík
skorar á verkalýðshreyfínguna að
veita verkalýðsfélaginu Baldri á
ísafírði allan hugsanlegan stuðning
í þeirri kjarabaráttu sem nú stendur
yfír. Jafnframt lýsir fundurinn yfír
fullum stuðningi Alþýðubandalags-
ins í Reykjavík við baráttu verka-
lýðsfélagsins á ísafirði. Barátta fé-
laganna vestra snýst ekki einasta
um kjör þeirra sjálfra heldur um
sjálfsvirðingu verkalýðshreyfíngar-
innar í heild. Þess vegna skiptir
miklu að verkalýðshreyfíngin í heild
láti ekki líðast að barátta Isfírðinga
verði brotin niður.“
Þá samþykkti fundurinn eftirfar-
andi ályktun: „Aðalfundur Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík 1997 telur
að stefna beri að sameiningu þing-
flokka Alþýðubandalagsins og Al-
þýðuflokksins eftir næstu kosning-
ar til Alþingis með sameiningu
flokkanna í lok kjörtímabilsins enda
skapist til þess málefnalegar for-
sendur.“
Þá samþykkti aðalfundurinn
ýmsar ályktanir um innra starf fé-
lagsins. Ennfremur var félaginu
kjörin ný stjórn sem er að meiri-
hluta skipuð ungum félögum.
Stjórnin er þannig skipuð: Guðný
Magnúsdóttir, Kolbeinn Óttarsson,
Steingrímur Ólafsson, Margrét
Guðmundsdóttir, Sjöfn Kristjáns-
dóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir.
í varastjórn eru: Nanna Rögnvalds-
dóttir, Árni Þór Sigurðsson og Sjöfn
Ingólfsdóttir.