Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 31. MAÍ1997 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDÁSTJÓRI RITSTJÓRAR Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Skiptar skoðanir um fiskveiðistjórnun Færeyinga Færeyingar AUKINN ÁHUGIÁ SKIPULAGSMÁLUM FÓLK ER orðið sér mjög meðvitandi um skipulagsmál. íbúar í Seljahverfi boðuðu á miðvikudagskvöld til borg- arafundar til að mótmæla áformum um að tengja Jaðarsel við Fífuhvammsveg í Leirdal, en tillaga um tengingu þessa er gerð í aðalskipulagi Reykjavíkur 1996 til 2016. Um er að ræða stofnbraut samkvæmt skipulagi, en á fundinum í fyrrakvöld skoruðu fundarmenn á borgaryfirvöld að falla frá fyrirhugaðri tengingu, en huga hins vegar að tengingu austan Vatnsendahvarfs, þar sem aðstæður séu betri. Árekstrar vegna skipulags- og byggðaþróunar hafa ítrekað komið upp á yfirborðið og hefur fólk mótmælt kröft- uglega áformum sveitarfélaga um lagningu vega og öðrum framkvæmdum. Fyrir fáum dögum var umferð stöðvuð um Miklubraut, því að íbúar þar og í Hlíðum vildu mótmæla áformum borgaryfirvalda, sem talin voru ófullnægjandi, um að færa umferð í stokk undir Miklubraut til að draga úr mengun. íbúarnir vilja að stokkurinn nái lengra í austur. í febrúar mótmæltu íbúar við Reykjanesbraut tvöföldun hennar fyrir Setbergslandi og töldu að breyttar forsendur rýrðu verðmæti íbúða þeirra. í upphafi árs 1996 urðu há- vær mótmæli vegna nýs skipulags í Garðabæ vegna vegar út Álftanes og tengivegar frá Arnarnesvogi. Mótmælt var vegi um Gálgahraun, sem er á náttúruminjaskrá, og er vinsælt útivistarsvæði. Loks má minna á miklar deilur í borgarstjórn, sem spruttu af byggingu íbúðarhúsa við Sæbraut. Rætt var um hávaðamengun frá umferð og urðu lyktir málsins, að húsin voru lækkuð um 3 til 4 hæðir og viðunandi hljóðvist tryggð. Eins og sést af þessum dæmum eru það mengunarmál aðallega, sem fólk setur fyrir sig, bæði loft- og hljóðmeng- un, svo og þung umferð um íbúðahverfi en einnig eru dæmi um mótmæli vegna náttúruminja. Skipulagsyfirvöld verða greinilega að fara varlega og kollvarpa ekki fyrra skipulagi, sem var forsenda lóðaúthlutunar. Eignir geta rýrnað við aðgerðir skipulagsyfirvalda. KOSNINGAR í INDÓNESÍU STÓRSIGUR Golkar-flokksins í Indónesíu kom fáum á óvart. Flokkur Suhartos forseta hefur unnið allar þær sex kosningar örugglega, sem haldnar hafa verið frá því núverandi kosningakerfi var tekið upp í landinu árið 1971. Þótt Indónesum sé vissulega leyft að láta álit sitt í ljós í kosningum hefðu þessar kosningar vart talist lýðræðislegar í hinum vestræna heimi. Tveimur „stjórnarandstöðuflokk- um“ er leyft að bjóða fram og allir frambjóðendur verða að hljóta blessun yfirvalda, sem jafnframt hafa alla fjöl- miðla í járngreipum. Það er helst hið mikla ofbeldi, er einkennt hefur aðdrag- anda kosninganna, sem sýnir ákveðna undiröldu gegn stjórnarfari Suhartos. Verst hefur ástandið verið á Austur- Tímor, fyrrum portúgalskri nýlendu, er Suharto innlimaði í Indónesíu á áttunda áratugnum. Kröfur íbúa Austur- Tímor hafa verið barðar niður með ofbeldi og jafnvel pynt- ingum, líkt og greint var frá í frétt í Morgunblaðinu í gær. Myndir, er andspyrnuhreyfingin á Austur-Tímor hefur smyglað til Vesturlanda, sýna hrottalegar aðfarir indó- nesískra hermanna á eyjunni. Indónesía er eitt fjölmennasta ríki veraldar, íbúar eru 200 milljónir, og efnahagsþróunin hefur verið mjög ör þar undanfarin ár líkt og í fleiri Asíuríkjum. Hagvöxtur hefur verið allt að 7% og erlent fjármagn streymt inn í landið. Stjórnarandstæðingar og fulltrúar sjálfstæðissinna á Aust- ur-Tímor hafa sakað ríki utan Indónesíu um að loka augun- um fyrir stöðu mannréttindamála vegna ríkra efnahags- legra hagsmuna í landinu. Það er hins vegar líklegt að það verði einmitt hin efna- hagslega velgengni, sem að lokum muni verða Suharto að falli. Fjölmenn og auðug millistétt er orðin til í Indónesíu, er smám saman mun gera kröfu um pólitísk áhrif. Sátt kann að hafa ríkt um hið pólitíska kerfi Indónesíu er ríkið var fátækt þróunarríki. Það stenst hins vegar vart að við- halda stöðnuðu fjölskylduveldi og harðstjórn ætli Indónesía að skipa sér í hóp þeirra Asíuríkja, sem mestrar velgengni njóta. Dæmin frá Suður-Kóreu og Tævan sýna að um- skipti munu fyrr eða síðar eiga sér stað. leiðina Á síðasta árí vÖipuðu Færeyingar kvóta- kerfínu fyrír roða og tóku upp sóknar- stýringu í fískveiðum sínum. í Færeyjum ríkir nokkur sátt um fískveiðistjómunina en menn greinir þar á um hvemig kerfíð sé -t-------------------------5»-:--- best í framkvæmd. Helgi Mar Amason var í F æreyj um og ræddi við aðila innan sj ávarútvegsins um þessi mál. ASÍÐASTA ári tóku færeysk stjómvöld upp sóknarstýr- ingu í fiskveiðum sínum og lögðu til hliðar kvótakerfi sem verið hafði við lýði frá árinu 1994. Mörgum sýnist sitt um ágæti slíkrar fískveiðistjórnunar en almennt virðist ríkja sátt um hana í Færeyjum. Telja Færeyingar að þar með komi þeir í veg fyrir brottkast afla og ólög- legar Iandanir. Þó greinir menn á um hvernig eigi að ná sem mestri hagræð- ingu út úr kerfinu. Fyrir daga kvótakerfísins voru veið- ar Færeyinga nánast frjálsar og stýr- ing veiðanna fór aðeins fram með svæðalokunum. Árið 1990 fór að draga verulega úr þorskafla Færeyinga en þá varð afli þeirra um 13.500 tonn, samanborið við um 22.000 tonna afla árið áður. Enn dró úr veiðunum næstu tvö ár og náði lágmarki árið 1993 þegar aflinn varð aðeins um 6.000 tonn. Ljóst þótti að grípa þyrfti til nokkuð harkalegra aðgerða og kvóta- kerfí var komið á árið 1994. Heildar- þorskkvóti var ákveðinn 10.000 tonn. Árið 1995 kom hinsvegar í ljós að þorskstofninn var að rétta úr kútnum og meðafli þeirra skipa sem voru á ufsaveiðum, sem gengu vel á þessum tíma, var mikill. Afleiðingamar voru þær að talsvert var hent af þorski eða honum landað undir röngu nafni. Fljótlega kom því fram mikil and- staða við kvótakerfið í Færeyjum, einkum vegna þess að löggjöfín tak- markaði verulega flutning aflaheim- ilda milli skipa og því gátu menn ekki keypt kvóta fyrir þann meðalafla sem þau fengu. í framhaldi þessa var skip- uð nefnd sem fjalla átti um framtíð veiðistjórnunar við Færeyjar. Hana skipuðu fulltrúar fiskvinnslu, útgerð- armanna, sjávarútvegsráðuneytisins, auk fiskifræðinga. Nefndin komst síð- an að þeirri niðurstöðu að taka upp svokallað sóknarkerfi, þar sem skipa- flotanum yrði úthlutað ákveðnum dagafjöida til veiða. Veiðar skipanna vom óheftar á sóknardögum. Við ákvörðun dagafjölda var tekið mið af afla og sókn Færeyinga síðustu 10 árin og var flotanum skipt í fimm flokka eftir stærð, þar af var togurum skipt í tvo flokka. Þorskaflinn tvöfaldast Á síðasta ári varð sprenging í þor- skafla Færeyinga og nam veiðin í fyrra um 40.000 tonnum og hefur sjaldan verið meiri. Veiðin hefur jafn- framt gengið vel á þessu ári og bygg- ist einkum á tveimur árgöngum frá árunum 1992 og 1993, sem nú eru komnir inn í veiðistofnin. Fiskifræð- ingar höfðu ekki gert ráð fyrir þess- ari miklu veiði og svo virðist sem þessi mikla þorskgengd hafi komið þeim, se_m og sjómönnum, í opna skjöldu. Á sama tíma brást ufsaveiðin sem hafði svo gott sem bjargað Fær- John Petersen, sjávarút- vegsráðherra Færeyinga Dögum verður fækkað JOHN Petersen, sjávarútvegsráðherra Færeyja, segir að sóknardögum verði fækkað á næsta ári, samkvæmt til- mælum Alþjóða hafrannsóknar- áðsins (ICES), því líklega hafi of mörgum dögum verið úthlutað í upphafi. Hann segir að í kjölfar dagafækkunar verði að liðka fyrir framsali daga á milli skipa til að auka hagræðingu. „Að mínu mati hefur reynsla okkar af sóknarkerfínu til þessa verið mjög góð. En því er ekki að neita að líklega hefur hluti flotans fengið of mörgum dögum úthlutað í upphafi. Við höfum því alltaf gert ráð fyrir að dögum yrði fækkað, samkvæmt tilmælum Alþjóða hafrannsóknaráðsins. Miðað við 38.000 tonna afla á síðasta ári er það mitt mat að við þolum 30% niðurskurð á veiðunum," segir Petersen. Hann segist þeirrar skoðunar að sóknardagakerfi hafi marga kosti fram yfir kvótakerfí. „í sóknardaga- kerfinu kemur allur fískur að landi, brottkast aflans verður mun minna því sjómenn þurfa ekki að henda meðafla aftur í hafíð. Á meðan kvóta- kerfð var við lýði var þetta talsvert vandamál því þá höfðum við tiltölu- lega lítinn þorskkvóta. Þegar þorsk- gengd jókst við eyjarnar á ný var okkur Ijóst að eitthvað varð að gera því annars kæmust skipin- hreinlega ekki á sjó. Nú eru mörg svæði eru lokuð fyrir trollveiðum en handfæra- bátar eru sömuleiðis að fá góðan afla. Fiskifræðingar segja þorskstofn- inn í mjög góðu ástandi í dag. Við höfum farið vel yfir stöðu mála nú í vor og fiskifræðingar hafa viljað láta reyna á kerfið í eitt ár. Einu vanda- málin sem upp hafa komið tengjast minnstu bátunum en þegar kerfið verður komið í fastar skorður fá þeir líklega úthlutað um 100 dögum á ári. Togararnir eru nú með 243 daga en þeim verður að öllum líkindum fækkað samkvæmt þeim tilmælum sem komu frá ICES.“ Sóknarkerfið hentar Færeyingum betur Petersen segist samt sem áður ekki vilja halda því fram að sóknarkerfið sé eina lausnin, né heldur sé það mik- eyingum fyrir horn á hinum mögru árum þorskveiðanna. Hrygningar- stofn þorsksins við Færeyjar var sam- kvæmt mati færeyskra fiskifræðinga um 86.000 tonn og því ljóst að verið er að veiða nær helming áætlaðrar stofnstærðar. Alþjóða hafrannsókn- aráðið (ICES) hefur nýlega skilað af sér skýrslu um stöðu fiskistofna við Færeyjar og er þar lagt til að Færey- ingar dragi úr sókn sinni í þorskstofn- inn um 30%. Ennfremur var lagður til 30% niðurskurður í ufsaveiðum. Almenn sátt um sóknarkerfið í Færeyjum ríkir almenn sátt um sóknardagakerfið en þó greinir menn nokkuð á um hvernig kerfinu sé best hagað. Margir óttast að með úthlutun sóknardaga, verði afkastageta flotans aukin til muna og því erfitt að hafa stjórn á veiðunum og þannig gengið of nærri fiskistofnum. í tillögum nefndarinnar sem fjallaði um skipuiag sóknarkerfisins var gert ráð fyrir frjálsu framsali sóknardaga milli skipa. í meðferð þingsins var framsalið hinsvegar takmarkað veru- lega og er nú aðeins heimiit að fram- selja sóknardaga til fimm ára og er því ekki um varanlegt framsal að ræða. Þetta hefur verið gagnrýnt nokkuð í Færeyjum og spyija margir hvernig ná megi fram sem mestri hagræðingu með þessum hætti. ið betri lausn en kvótakerfið. „Þegar tilmæli koma um að veiða eigi til dæmis 50.000 tonn en það er svo metið að veiða megi 100.000 tonn, þá skiptir í raun ekki máli hvaða físk- veiðistjórnun er við lýði, sóknarkerfi eða kvótakerfí. Það sem skiptir pólí- tískt mestu máli er að halda sig við þau tilmæli sem eru gefín. Ef tilmæl- in eru 50.000 tonn þá á að fara eftir því. Þá hef ég trú á að sóknarkerfið sé betra en kvótakerfið. Þannig náum við best að tryggja að ekki sé veitt meira en leyfílegt er, því þá neyðast sjómenn eklri til að henda físki í sjó- inn, heldur koma með allan afla að landi.“ Þarf að gefa framsal sóknardaga frjálst Peterson segir almenna sátt ríkja í Færeyjum um að hafa þennan hátt á fiskveiðunum. „Þegar ég kynnti Iög- in í þinginu tóku allir flokkar afstöðu með sóknarkerfinu. Það þarf að koma fijálsu framsali sóknardaga inn í lög- in, því ef við þurfum að skera veru- lega niður sóknardaga, er ljóst að fækka þarf í skipaflotanum og því þarf að vera hægt að færa daga á milli báta svo hagkvæmnin verði meiri. Ef framsal á sóknardögum verður ekki gefíð fijálst, verður erfítt að hemja afkastagetu flotans," segir Petersen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.