Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 31. MAÍ1997 25
Deilt um
dularfullt
tyggjó
Jerúsalem. Reuter.
PALESTÍNSKUR embættis-
maður hefur sakað ísraela um
að hafa sett ástar- og ófijó-
semislyf í tyggigúmmí sem
ætlað var Palestínumönnum.
Pakkar með því fundust á
mörkuðum í Gaza og á Vestur-
bakkanum.
Eftirlitsmenn sjálfsstjórnar-
svæða Paiestínumanna rákust
á tyggigúmmíið við reglubund-
ið eftirlit. Utan um það voru
myndir af kynferðislegum toga
og var varað við því að gefa
börnum það. Er tyggigúmmíið
var sent á rannsóknarstofu
kom í ljós að það innihélt kyn-
ferðislega örvandi hormóna og
kann að valda ófijósemi.
Segja Palestínumenn
tyggjóið vera frá ísrael og að
það hafi átt að „skapa vanda
í palestínsku þjóðfélagi og
ganga af íslömskum og pajest-
ínskum gildum dauðum.“ ísra-
elar þverneita þessum ásökun-
um og segja þær fráleitar.
Palestínumönn-
um boðin 40%
V esturbakkans?
Jerúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, for-
sætisráðherra ísraels, hyggst
bjóða Palestínumönnum yfirráð
yfir um 40% lands á Vesturbakk-
anum í lokaáfanga friðarvið-
ræðna þjóðanna, að því er fullyrt
er í dagblaðinu Haaretz. Fréttir
af þessum áætlunum hafa vakið
mikla reiði á meðal Palestínu-
manna sem hafa gert ráð fyrir
því að lokasamkomulag, sem á
að liggja fyrir í maí 1999, veiti
þeim yfirráð yfir nær öllum
Vesturbakkanum, sem ísraelar
náðu á sitt vald árið 1967.
Talsmenn Palestínumanna,
þeirra á meðal aðstoðarmaður
Yassers Arafats, leiðtoga sjálf-
stjórnarsvæðanna, voru ómyrkir
í máli er þeir gagnrýndu meint
tilboð Netanyahus og kröfðust
þess að ísraelar ræddu yfirráð
Vesturbakkans við Palestínu-
menn í stað þess að leika sér að
tölum.
Netanyahu viðurkenndi í út-
varpsviðtali í gær að hann hefði
ákveðnar hugmyndir um loka-
samkomulagið við Palestínumenn
en neitaði því jafnframt að nokk-
urt landakort væri til. Annað ísra-
elskt dagblað, Yedioth Ahronoth
hefur fullyrt að til standi að af-
henda Palestínumönnum 60%
Vesturbakkans.
ísraelar hafa látið af hendi
stóra hluta Gazasvæðisins, sjö
borgir og bæi á Vesturbakkanum
og hluta þeirrar áttundu sam-
kvæmt friðarsamkomulagi við
Palestínumenn. Yfir tvær milljón-
ir Palestínumanna búa á Gaza og
Vesturbakkanum.
TILBOÐ ÍSRAELA
Benjamin Netanyahu,
forsætisráðherra ísraels,
hyggst bjóða Palestínumönnum
yfirráð yfir um 40% Vestur-
bakkans í lokaáfanga friðar-
samninganna, að því er fullyrt
var í dagblaðinu Haaretz í gær.
REUTERS
Rætt um hvort leyfa eigi hass til lækninga
Fylgja Danir í fót-
spor Kalifomíubúa?
UMRÆÐA er nú hafin í Dan-
mörku um hvort leyfa eigi hass í
lækningaskyni. Afstaða lækna
virðist hafa breyst hratt að undan-
förnu og síðustu daga hafa nokkr-
ir virtir læknar lýst yfir áhuga á
því að nota hass til lækninga, auk
þess sem lesendabréf streyma til
dagblaða þar sem menn lýsa fjálg-
lega ágæti kannabisefna, að því
er segir í Aftenposten.
Fylgjendur þess að hass verði
leyft í lækningaskyni vísa til
Bandaríkjanna en samkvæmt lög-
um í Kaliforníu er krabbameins-
og alnæmissjúklingum leyfilegt
að kaupa kannabisefni. Lögin eru
hins vegar afar umdeild þar sem
þau bijóta í bága við alríkislög.
„Ef það [hass] hefur góð áhrif
munum við gera tilraunir með
það. Við getum ekki hafnað því,
eingöngu vegna þess að það er
ólöglegt,“ segir Per Sjogren, yfir-
læknir við Bispebjerg-sjúkrahúsið
í Kaupmannahöfn, en Sjogren
stýrir þar deild fyrir kvalastillandi
meðferð.
Rök þeirra sem vilja leyfa hass
í lækningaskyni eru þau að hass
dragi úr ógleði sem margir finni
fyrir þegar þeir eru í lyfja- og
geislameðferð, auk þess sem það
dragi úr verkjum og auki matar-
lyst. Þá hefur verið fullyrt að hass
geti komið í veg fyrir að flogaveik-
ir fái köst.
Þeir eru þó margir sem eru and-
vígir hassinu, t.d. Ulla Tornæs,
þingmaður Venstre, sem segir
málið nú enn eina tilraun vinstri-
manna til að fá hass lögleitt.
Kínversk blaðakona fær frelsisverðlaun
Berst fyrir frelsi
kínverskra fjölmiðla
KÍNVERSKI blaðamaðurinn Gao
Yu tók nýverið á móti UNESCO/
Guillermo Cano-verðlaununum,
sem ætlað er að stuðla að frelsi
fjölmiðla í heiminum.
„Dómnefndin samþykkti sam-
hljóða að velja Gao Yu, sem árum
saman hefur barist fyrir frelsi §öl-
miðla í heimalandi sínu,“ sagði
franski blaðamaðurinn Claude
Moisy, formaður dómnefndarinnar.
„Hún hefur goldið og geldur enn
fyrir baráttu sína fyrir óháðum fjöl-
miðlum með frelsi sínu.“
Gao hóf feril sinn árið 1979 þeg-
ar hún gerðist blaðamaður hjá kín-
versku fréttaþjónustunni. Árið
1988 varð hún aðstoðarritstjóri
vikulegs hagfræðitímarits, sem
andófsmenn úr röðum mennta-
manna ráku. Hún vann einnig sem
lausamaður hjá fjölda dagblaða í
Kína og Hong Kong. I nóvember
1988 birti hún grein í Mirror
Monthly, sem gefið er út í Hong
Kong, og var gagnrýnd fyrir í Kína.
Kallaði borgarstjóri Peking hana
„óvin fólksins". Hún var handtekin
eftir mótmælin á
Torgi hins himn-
eska friðar árið
1989 og látin
laus 14 mánuð-
um síðar vegna
heilsuleysis.
Hún var hand-
tekin aftur 2.
október 1993 og
í nóvember 1994
var hún dæmd í
sex ára fangelsi fyrir að „leka ríkis-
leyndarmálum". Gao er 52 ára
gömul.
Að sögn Alþjóðasamtaka dag-
blaða (FIEJ) er Gao meðal að
minnsta kosti 35 rithöfunda og
blaðamanna, sem um þessar mund-
ir eru í haldi í Kína.
Verlaunin voru veitt fyrsta sinni
í ár og eru þau kennd við kólumb-
íska blaðamanninn Guillermo Cano
Isaza, sem var myrtur fyrir að
stunda atvinnu sína. Ætlunin er
að verðlaunin verði veitt árlega
héðan í frá á alþjóðlegum degi
fijálsrar blaðamennsku.
Gao Yu
Jnintf
í dag í versfun okkar að Funahöfða 19
frá kl. 13:00 - 17:00
Cancfccle/
Ævintýraleg innrétting
Eldhússtörfin geta verið ævintýri líkust ef
umhverfið er spennandi og andrúmsloftið rétt.
Candide-eldhúsinnréttingin, sem sameinar
frábært útlit og einstaklega þægilega vinnu-
■
aðstöðu, er hönnuð af Studio Granda og
framleidd í Trésmiðjunni Eldhús og bað.
Allir sem staðfesta pöntun á Candide-eldhús-
innréttlngu fyrir 1. júlí n.k. fá ókeypis spennandi
nýjung frá Candide með innréttingunni, auk
þess sem nöfn þeirra lenda í lukkupottinum
okkar.
Dregið verður eitt nafn úr pottinum og fær sá
heppni i vinning hinn glæsilega Ijósakassa,
„Birting," úr Candide.
Trésmiðjan Eldhús og bað er íslenskt fyrirtæki
sem sérhæfir sig í hönnun, smíði og ráðgjöf á
sviði innréttinga. Það hefur langa reynslu í að
leiðbeina fólki við val á innréttingum og leggur
áherslu á faglega ráðgjöf, hagstætt verð og
góða og lipra þjónustu.
Líttu inn og láttu okkur aðstoða þig.
Trésmiðjan
Funahöfða 19-112 Reykjavfk • Slmk 577 1600