Morgunblaðið - 31.05.1997, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 65
(
(
(
(
I
(
I
i
I
i
i
I
(
MYIMDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
Raunasaga 18.
aldar konu
Moll Flanders_________________
(Moll Flanders)
D r a m a
★ ★ ★
Framleiðendandi: John Watson,
Richard B. Levis og Pen Densham.
Leikstjóri: Pen Densham. Handrits-
höfundur: Pen Densham. Kvik-
myndataka: David Tattersall. Tón-
list: Mark Mancia. Aðalhlutverk:
Robin Wright, Morgan Freeman,
Stockard Channing, John Lynch.
118 mín. Bandaríkin. Sam Mynd-
bönd 1997. Útgáfudagur: 12 Maí.
Myndin er bönnuð bömum innan 12
ára.
„Moll Flanders" er lauslega
byggð á bók Daniel Defoe, sem er
án efa frægastur fyrir Róbinson
Krúsó. Þetta er
gífurlega um-
fangsmikil saga,
sem segir frá lífs-
hlaupi Moll
Flanders (Robin
Wright), sem
missir móður sína
rétt eftir fæðingu
og er alin upp í
klaustri. Þaðan
strýkur hún og lendir í ýmsum
hrakningum, t.d. þarf hún að
stunda vændi, þangað til hún fínnur
hamingjuna í formi málara nokk-
ums (John Lynch), en hamingjan
varir stutt við og Moll þarf að beij-
ast fyrir lífi sínu í hinum miskunn-
arlausa heimi Lundúnarborgar.
Rammi sögunar er sagan af dótt-
ur Moll, Floru, sem hlustar á vin
móður sinnar (Morgan Freeman)
lesa minningar hennar á leiðinni frá
Englandi til nýja heimsins, þar sem
dularfullur velgjörðarmaður bíður
Floru. Þessi rammi virkar í upphafi
myndarinnar en smám saman verð-
ur hann einungis sögunni til traf-
ala, og stærsti gallinn við þetta
afbragðsgóða búningadrama. Andi
Charles Dickens svífur yfir þessu
kvikmyndaverki, því eins og í „Oli-
ver Twist“ lendir hin hreina og
tæra persóna Moll í öllum þeim
slæmu aðstæðum sem hugsast get-
ur og er myndin með nokkrum und-
antekningum afskaplega mikil böl-
sýnismynd. Öll umgjörð myndarinn-
ar er til fyrirmyndar og sérstaklega
kvikmyndatakan, þó nokkuð af
glæsileik hennar glatist á sjón-
varpskjánum. Robin Wright skilar
hinu vandasama hlutverki Moll vel
af hendi og Stockard Channing,
sem ég tel eina vanmetnustu leik-
konu Bandaríkjanna, er frábær í
hlutverki frú Allworthy. Það eina
sem ég er ósáttur við er hlutverk
Morgan Freeman, en þessi ágæti
leikari fær aldrei að njóta sín. Þessi
mikilfenglega mynd nýtur sín mun
betur á stærra tjaldi, en þeir sem
misstu af henni í bíó ættu hiklaust
að leigja hana.
Ottó Geir Borg
Vingjamleg vofa
Draugurlnn Susle__________
(Susie Q)
Gamanmynd
★ 'Á
Framleiðendandi: James Shavick.
Leikstjóri: John Grant Weil. Hand-
ritshöfundur: Douglas J. Sloan og
Shuky Levy. Kvikmyndataka: Rob-
ert Fresco. Tónlist: Shuky Levy.
Aðalhlutverk: Justin Whalin, Amy
Jo Johnson og Shelley Long. 95
mín. Bandarikin. Bergvík 1997.
Útgáfudagur: 21. mai. Myndin er
öllum leyfð.
ZACK (Justin Whalin) átti fram-
tíðina fyrir sér í körfuboltaheimin-
um, en hryggilegur atburður olli
því að hann hætti algerlega að
spila. Þegar hann, systir hans og
móðir flytja í smábæ nokkum til
þess að byija nýtt líf, sækja draug-
ar fortíðar að honum og einnig
Susie Q. Brátt kemst Zack að því
að ekki er allt með felldu í bænum
og með aðstoð Susie reynir hann
að bjarga málunum.
Justin Whalin
sem leikur Zack
er hvorki líklegur
til stórafreka í
kvikmyndaheim-
inum né á sviði
íþrótta. Þessi
ofuráhersla leik-
stjórans á hina
ósýnilegu per-
sónutöfra Whalin
skemmir mikið fyrir annars ósköp
sætri lítilli gamanmynd. Aðrir leik-
arar verða sér ekki eins mikið til
skammar og Whalin, en Amy Jo
Johnson sleppur best frá þessu,
hún túlkar persónu Susie af mátu-
legu kæruleysi og frískleika, þó
hún sýni aldrei neinn stjömuleik.
Öll tæknivinnsla í myndinni er
undir meðallagi, þá sérstaklega
kvikmyndatakan sem er oft á tíð-
um skammarleg. Þessi mynd rétt
sleppur fyrir þá áhorfendur sem
minnstar kröfur hafa til kvik-
mynda.
Ottó Geir Borg
Kvikmynd um
Otis Redding
^ CUBA Gooding yngri
sést væntanlega bráð-
lega á hvíta tjaldinu í
mynd um Otis Redding,
sem ber titilinn „Blaze
of Glory“. Það er enginn
annar en Joe Eszterhas
sem skrifar handritið
fyrir ævisögumyndina.
Eszterhas heldur því
fram að þegar hann var
blaðamaður þjá Rolling
Stones hafi hann verið
sá síðasti er tók viðtal
við söngvarann fyrir
dauða hans.
Breski leikstjórinn
Iain Softley ætlar að
stjórna verkinu. Hann hefur m.a.
leikstýrt „Backbeat" sem fjallaði
„BLAZE of Glory“ fjallar
um Otis Redding.
um Bítlana áður en þeir náðu
heimsfrægð.
LAUGARDAGSMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Sjónvarpið ^21.05 - Sjá umfjöll-
un hér til hliðar.
Sjónvarpið ►22.45 Leikstjórinn
Jeannot Szwarc er fæddur í Frakk-
landi en hefur starfað mest í Holly-
wood og skilað þar frambærilegri
fagvinnu (Jaws 2, Somewhere in
Time o.fl.) en ekki sérstökum afrek-
um. í spennumyndinni Svik á svik
ofan (SchrecklicherVerdacht, 1995)
dúkkar Szwarc hins vegar upp í
Þýskalandi, þar sem er saga af
hremmingum leyniþjónustukonu að
njósna um hryðjuverkahóp innanfrá.
Umsagnir liggja ekki fyrir en í aðal-
hlutverkinu er Susanne Schaefer.
Stöð 2 ►l 5.00 Þijúbíóið er sem
oftast áður bandarísk fjölskyldu-
mynd. Strákapör (Sandlot, 1993)
er fyrsta leikstjómarverkefni Davids
Mickey Evans, ósköp snotur lítil
æskusaga um það hvemig nýi strák-
urinn kemst smám saman í horna-
boltaliðið. Strákarnir og samtölin eru
skemmtilega stíluð. Aðalhlutverk
Tom Guiry og Mike Vitar. ★ ★ 'h
Stöð 2 þ>21.05 Franskagaman-
myndin Indíáni f stórborginni (Un
indien dans la ville, 1994) sló ræki-
lega í gegn í heimalandi sínu - og
reyndar víðar, svo rækilega að nú
er búið að endurgera hana í Holly-
wood með Tim Allen í aðalhlutverk-
inu. Kaupsýslumaður leitar eigin-
konu sína uppi í frumskógum
Venezuela til að ganga frá skilnaðar-
pappírum en kemst að því að hann
á þar son sem orðinn er hálfur indí-
áni og þegar hann feijar hann með
sér til Parísar er fjandinn laus. Vin-
sældir þessarar klossuðu myndar eru
mér hulin ráðgáta. Aðalhlutverk
Thierry Lhermitte. Leikstjóri Herve
Palud. ★
Stöð 2 ►22.45 Kvennapólitísk
spennumynd með dulrænu ívafi var
The Stepford Wives (1975) um sér-
Hálfur milli
Á ÁRUNUM kringum
1980 leit út fyrir að
breski grínistinn Dudley
Moore gæti orðið arftaki
Peters Sellers með
blöndu af fágaðri kómík
og ærslaleik. Þessa
ályktun mátti draga af
leik hans í „10“ eftir
Blake Edwards (1979)
og svo Arthur (1981,
Sjónvarpið ►21.05), en
báðar þessar gaman-
myndir náðu miklum vin-
sældum. í hlutverki titil-
persónunnar, fordekraðs
drukkins milljónamærings, átti Mo-
ore ýmis bráðfyndin tilþrif. Sagan
af togstreitunni milli þarfar Arthurs
fyrir meiri peninga og ástir gengii-
beinunnar Liza Minelli
verður í seinni hlutan-
um heldur vemmileg
en brandarar eru næg-
ir þangað til og John
Guilgud fer á Oscars-
verðlaunuðum kostum
í hlutverki einkaþjóns-
ins. Arthur var fyrsta
og eina mynd Steves
Gordon leikstjóra og
handritshöfundar sem
lést 1982. En Dudley
Moore átti eftir að
gera fjöldann allan af
gamanmyndum sem urðu því miður
slappari og slappari og gerðu að
engu þær vonir sem getið var um
hér í upphafi. ★ ★ ★
má
fífil
kennilegt samfélag í bænum Stepford
í Connecticut, byggð á sögu Ira Le-
vin. Þessi saga og mynd gátu af sér
tvær mun lélegri sjónvarpsmyndir og
nú er sú þricija komin, Eiginmenn-
irnir í Stepford (The Stepford Hus-
bands, 1996), þar sem aðkomuhjón
í Stepford komast að þvi að þar ger-
ast enn skrýtnir atburðir í hjónalíf-
inu. Umsagnir liggja ekki fýrir, en
leikstjórinn, Fred Walton, hefurgert
nokkrar frambærilegar spennumynd-
ir. Aðalhlutverk Donna Mills og Mic-
hael Ontkean.
Stöð 2 ►0.15 Ein umdeildasta
sakamálamynd seinni ára er Ógnar-
eðli (Basic Instinct, 1992), þar sem
Michael Douglas rannsóknarlögga á
ystu nöf leitar að morðingja - og
leitar mest að honum í klofinu á
Sharon Stone. Útlitið er óaðfinnan-
legt hjá Paul Verhoeven leikstjóra,
spennan töluverð, erótíkin líka, en
Joe Eszterhaas handritshöfund hefði
átt að senda heim með endalokin.
★ ★ ★
Sýn ^21.00 Sylvester Stallone
tekst ekki að skemma pottþéttan
hasarinn í Á ystu nöf (Cliffhanger,
1993), þótt ævinlega sé ömurlegt að
verða vitni að tilraunum hans til að
leika með andlitinu sem er eins og
sprunginn fótbolti. Renny Harlin
leikstjóri kýlir blessunarlega á hraða
atburðarás og stórfenglegar svið-
setningar í veikbyggðri sögufléttu
um tilraunir Sylvesters til að bjarga
kærustunni sinni úr klóm glæpahysk-
is undir forystu Johns Lithgow. Fín
afþreying. ★ ★ ★
Árni Þórarinsson
C
xa.tSllFURKO'iT
aM,S k A,7'J0
-veitir ótakmarkaðan tölvuaðgang út júní
-þegar töivur eru iausar
JHHn
Tölvunámskeið í boði næstu vikur
Mánudaqur Þriðjudagur Miðvikudagui ■ Fimmtudagur Föstudagur Laugardagur
kl. 13 Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur Grunnur
M. 15 Internet Internet Internet Intemet Intemet Intemet
M. 17 Grunnur Word Intemet
Unglinganámskeið í boði hem dag kl. 13.00-15.00 fyrir byrjendur og lærðari.
Erum nú að safna áhugasömu fólki á fjögur námskeið í heimasíðugerð.
Látið skrá ykkur og kennarinn mun hafa samband.
Við höldum námskeið í hverju sem er fyrir lágmark þrjá nemendur.
Tilvalið fyrir fyrirtækí og hópa.
Tveggja tíma námskeið aðeins 1.400 krónur.
Meira en 30 námskeíð í boðí í hverri viku við þitt hæfi.
Hámark 9 nemendur á hverju námskeiði - nettengdir við tölvu kennara.
Frábærir kennarar frá Töivuskóla Reykjavikur einfalda málin.
KEPPNISMÓT Í
QUAKE NETLEIK
'--
á sunnudaginn kl. 12.00 til að velja 15 manna
landslið islands sem leikur landsleiki
Keppt verður á þreföldu landsleiksborði í 30
nettengdum tölvum. Öllúi
skráning er hafin hjá xnet r
xuet.
Opið alia daga frá morgni
Nóatúni 17 - sími 562 9030 -