Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 6

Morgunblaðið - 31.05.1997, Side 6
6 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ Mikið tjón varð í Laugardalslauginni þegar vatn flæddi um lagnaganga Morgunblaðið/Ásdís ALLT var á floti við suðurhlið laugarinnar í gær. ir nokkrum árum. Laugin var full af vatni þegar rúðan gaf sig og vatnið streymdi undir laugarbakk- ana þar sem öll stjórntæki laugar- innar eru, þ.á m. rafmagnstæki og töflur og nýr vélarsalur sem gerður var fyrir grunnu laugina til þess að halda meiri hita á vatni í henni. Um miðjan dag í gær var enn verið að dæla vatni úr lauginni og því ekki farið að kanna skemmdir. „Þetta gerist á versta tíma. Það var allt tilbúið undir Smáþjóðaleik- ana,“ sagði Kristján. Omar Einarsson, framkvæmda- stjóri íþrótta- og tómstundsaráðs Reykjavíkur sagði í gærkveldi að menn væru frekar bjartsýnir á að hægt yrði að halda Smáþjóðaleik- ana samkvæmt áætlun í Laugar- dalslaug. í nótt átti að prófa allt rafmagn í húsinu ogbyija að hleypa vatni í laugina. „Útlitið var ekki bjart hér í morgun, en allir starfs- menn hafa í dag lagt hönd á plóg- inn og unnið geysimikið og gott starf. Sundmótið sjálft á ekki að hefjast fyrr en á miðvikudag og þá er stefnt að því að allt verði komið í lag,“ sagði Ómar. Rúðan átti að þola fjórfald- an þungann TALIÐ er að um 700 tonn af vatni hafi flætt úr Laugardalslauginni í lagnakerfi laugarinnar í kjallara. Næturvörður varð var við að vatns- borð laugarinnar hafði lækkað upp úr kl. sjö í gærmorgun og gerði hann forsvarsmönnum laugarinnar viðvart. Kristján Ögmundsson for- stöðumaður sundlaugarinnar segir að rúða í suðausturhorni laugarinn- ar, sem átti að þola fjórfaldan þunga þess vatns sem í lauginni er, hafi gefið sig. Ekki er vitað um orsakir þess. Óhappið getur sett strik í reikning Smáþjóðaleikanna en keppni í sundi á að hefjast í Laugardalslaug næstkomandi mið- vikudag en leikamir verða settir á þriðjudag. Hátt í eitt hundrað manns unnu í gær við að dæla vatni úr kjallara laugarinnar og lagfæra skemmdir. Kristján segir að mikið sé í húfi því sundæfingar hjá landsliðum sem taka þátt í Smáþjóðaleikunum áttu að vera á morgun, sunnudag og keppni átti að hefjast þriðjudag. Skotið var á neyðarfundi í gær með þátttöku fulltrúa frá borgarverk- fræðingi, íþrótta- og tómstundaráði og fleiri aðilum. Gerist á versta tíma Kristján segir að rúðan hafi ver- ið heil og engin sprunga í henni. Hún hafi verið sett í gluggann fyr- SLÖKKVILIÐ beitti stórum dælum til þess að koma vatni út úr lagnakerfi laugarinnar. Tillögur stefnumótunarnefndar um veigamiklar breytingar á íslenska skólakerfinu STEFNUMÓTUNARNEFND sem skipuð var í tengslum við endurskoð- un aðalnámskráa grunn- og fram- haldsskóla hefur skilað ráðherra til- lögum um stefnumörkun sem gæti haft veigamiklar breytingar í för með sér á íslensku skólakerfi ef til- lögur nefndarinnar ná fram að ganga. Veigamestu tillögurnar kveða á um að samræmd próf í grunnskóla verði haldin tvisvar á ári, í enda haust- og vormisseris ár hvert, að námsárum til stúdentsprófs verði fækkað um eitt og að breyting verði gerð á kennslu erlendra tungumála í grunnskóla. Enska fyrsta tungnmál Leggur nefndin til að enska verði gerð að fyrsta tungumáli og kennsla í ensku heflist í 5. bekk, þ.e. tveim- ur árum fyrr en nú er raunin. Aukin alþjóðasamskipti geri kröfu um góða tungumálakunnáttu, einkum meðal smáþjóða. Mörg börn hafí áhuga á og skilji nokkuð í ensku við upphaf skólagöngu. Sjálfsagt sé að virkja þennan áhuga í skólastarfi. Kennsla í dönsku á ekki að hefjast fyrr en í 7. bekk. í skýrslunni segir að endurskipuleggja þurfi dönsku- kennslu þannig „að heildarstunda- fjöldi verði sá sami og nú er, en nám- ið taki færri ár“. Með þessu aukist líkur á markvissu námi í dönsku. Þá leggur stefnumótunamefnd til að tryggja þurfí að fagmenntaðir dönsku- og enskukennarar beri ábyrgð á kennslu í grunnskólum. Samræmd próf tvisvar á ári Nefndin vill koma til móts við þann hluta nemenda sem lýkur fram- haldsskóla á sjö önnum án umtals- verðs hvata með því að samræmd próf í grunnskóla verði haldin tvisv- ar á ári. Með því væri nemendum gefinn kostur á að ljúka grunnskóla- námi um áramót og gætu hafið nám í framhaldsskóla í janúar. Auk hagræðisins sem fælist í styttingu námstíma í grunnskóla væri jafnframt um hvatningu að ræða fyrir nemendur og nemenda- fjöldi í framhaldsskólum yrði jafnari milli anna. Lagt er til að prófað verði sam- Leiðin stytt að stúdentsprófi Tillögur stefnumotunamefndar um endur- skoðun aðainámskráa á grunn- og fram- haldsskólastigi, sem kynntar voru sl. föstu- dag, fela m.a. í sér breytingar á samræmd- um prófum og tungumálakennslu. Pétur Blöndal kynnti sér málið. Morgunblaðið/J6n Svavarsson SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir, alþingismaður, Björn Bjarnason, menntamálaráðherra, og Stefán Baldursson, skrifstofustjóri menntamálaráðuneytisins, kynna nýju skýrsluna. ræmt í tveimur kjarnagreinum, ís- lensku og stærðfræði, og dregið verði hveiju sinni, þegar líður að prófum, um hvort prófað verði úr ensku eða dönsku annars vegar og samfélagsgrein eða raungrein hins vegar. Þá er lagt til að í framtíðinni verði prófað úr fimm greinum, verk- eða listgrein bætist við. Endurskoðun lýkur á næsta ári Björn Bjarnason, menntamálaráð- herra, sagði að stefnt væri að því að ljúka endurskoðun á námskránni á næsta ári, bæði fyrir grunn- og framhaldsskólana, enda væri það eitt aðalverkefni á verksviði ráðu- neytisins á þessu kjörtímabili. Hann sagðist hafa kynnt skýrsluna fyrir ríkisstjórninni í gærmorgun og jafn- framt lagt fram þríþættar tillögur sem hefðu fengist samþykktar. í fyrsta lagi hefði hann fengið umboð til að vinna að umræðum um samræmd próf og skipulag á þeim. Vinna við það myndi heíjast næsta haust. í annan stað til þess að leita allra leiða til þess að lækka útskrift- araldur úr framhaldsskólum um eitt ár, þannig að útskrifað yrði hér á landi á svipuðum aldri og tíðkaðist á nágrannalöndunum. í þriðja lagi samþykkti ríkisstjórn- in að kennsla í ensku hæfist í 5. bekk og kennsla í dönsku í 7. bekk. Sú breyting er því gengin í gegn og kemur til framkvæmda með nám- skránni. Björn Bjamason sagði ánægjulegt og mikilvægt að full samstaða hefði náðst um tillögur nefndarinnar vegna þess að í stefnu- mótunamefndinni ættu sæti fulltrú- ar allra stjómmálaflokka. Námskráin biblía skólanna „Við leggjum mikla áherslu á að námskráin verði skýr og aðgengileg og þannig að skólarnir fari eftir henni,“ sagði Sigríður Anna Þórðar- dóttir, formaður starfsnefndarinnar. „Það hefur viljað brenna við að hún sé plagg sem sé lítið notað. Hún þarf að vera þannig úr garði gerð að hún sé einhvers konar biblía skól- anna og alltaf í fullri notkun." Hún sagði að mikil áhersla væri lögð á samstarf foreldra og skóla í skýrslunni, á réttindi nemenda, að skýrar reglur væru um meðferð álitamála sem kæmu upp í skóla- starfinu og traust milli allra aðila í skólastarfinu, þ.e. foreldra, skólans og nemenda. Fækkun námsára til stúdents- prófs úr fjórum í þijú er gífurlega mikilvæg, að mati Sigríðar Önnu. Hún segir að margar leiðir séu fær- ar að því marki. Ein leið sé að lengja árlegan kennslutíma. Önnur leið sé að fækka greinum í framhaldsskól- um og gera meiri kröfur í hverri grein. Þriðja leið sé að færa hluta af námsefni framhaldsskóla niður í grunnskóla. Einnig væri hægt að blanda þessum leiðum saman. Nám yfir sumartímann í tengslum við fækkun námsára í framhaldsskóla er lagt til að hugað verði að möguleikum framhalds- skólanema til náms yfir sumartím- ann. Einnig er talið mikilvægt að samfella sé í námi á grunn- og fram- haldsskólastigi. Áður en að styttingu kemur telur nefndin nauðsynlegt að lenging skólatíma í grunnskólum verði komin að fullu til framkvæmda og reynsla komin af nýrri aðalnám- skrá. í menntamálaráðuneytinu er nú sem áður segir unnið að lokafrá- gangi námskrárstefnu fyrir grunn- og framhaldsskóla og byggist sú vinna m.a. á tillögum nefndarinnar en einnig á vinnu forvinnuhópa, starfi faglegra umsjónarmanna end- urskoðunarinnar, lögum um grunn- og framhaldsskóla, núgildandi nám- skrám, stefnu menntamálaráðherra og málefnasamningi ríkisstjórnar- innar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.