Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 10
10 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Veiðimálastofnun
Fram-
kvæmda-
stjóri
ráðinn
Landbúnaðarráðherra hefur
skipað Sigurð Guðjónsson
fiskifræðing í stöðu fram-
kvæmdastjóra Veiðimála-
stofnunar, en frá 1. júní er
stofnunin aðskilin frá emb-
ætti veiðimálastjóra, sem
verður sjálfstætt stjórnsýslu-
embætti. Sjö sóttu um stöð-
una sem skipað er í til fimm
ára, og mælti stjórn Veiði-
málastofnunar með þeim Sig-
urði Má Einarssyni og Sigurði
Guðjónssyni.
Sigurður Guðjónsson er
fæddur í Reykjavík 5. ágúst
1957. Hann lauk prófi í lif-
fræði frá Háskóla íslands
1980, meistaragráðu í líffræði
með áherslu á fiska frá Dahlo-
usie University, Nova Scotia
í Kanada 1983 og doktors-
prófi í fiskifræði frá Ríkishá-
skólanum í Oregon í Banda-
ríkjunum 1990. Sigurður hef-
ur starfað samfellt á Veiði-
málastofnun frá 1985 og síð-
ustu árin hefur hann gegnt
stöðu deildarstjóra vistfræði-
deildar stofnunarinnar.
Flogið með
veikan íslend-
ing frá Namib-
íu til íslands
EINKAFLUGVÉL forseta
Namibíu lenti á Reykjavíkur-
flugvelli í gærmorgun eftir langt
sjúkraflug frá Namibíu með
millilendingum. Um borð var
m.a. alvarlega veikur íslending-
ur sem hefur starfað sem ráð-
gjafi ríkisstjórnarinnar í Namib-
íu. Engar upplýsingar voru veitt-
ar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur um
líðan mannsins. Ráðgert var að
áhöfn flugvélarinnar hvíldi sig
hér á landi í einn dag.
Morgunblaðið/Halldór
Utanríkisráðherra um innlimun Schengen í ESB
Ekki ástæða til svart-
sýni af hálfu Islands
Glæsilegt sumarhús
á eignarlóð
Glæsilegt sumarhús, byggt 1988 (merkt nr. 53) (Vaðneslandi. Eignin skiptist í 3
svefnherb., stofu, eldhús, baðherbergi með sturtu, einnig geymsla. I einu
herberginu er skápur. [ tveimur herb. eru kojur. Spónarparket er á öllu húsinu,
grenipanell á veggjum og i lofti. Tveir inngangar. Stór verönd kringum húsið
á tvo vegu. Allur frágangur innanhúss og utan er til fyrirmyndar. Heitur pottur
er viö husið. 10 fm geymsluhús byggt 1995 er við hlið hússins og er hann mjög
snyrtilegur. Lóðin er 1,4 ha gróin eignarlóð. Hitaveita og rafmagn. Húsið er stutt
fra ánni. Húsið er klætt að utan með röstuðum krossvið. Fallegt útsýni. Glægileg
eign f alla staði á góðum stað. Eigendurverða á staðnum um helgina.
Fasteignamiðstöðin ehf.
Skipholti 50B, sími 552 6000.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir ekki ástæðu til
svartsýni á framhald samstarfs ís-
lands við aðildarríki Schengen-
vegabréfasamstarfsins. Halldór,
sem staddur er á fundi utanríkis-
ráðherra Atlantshafsbandalagsins
og samstarfsríkja þess í Portúgal,
segir að nýjasta samningsuppkast-
ið frá ríkjaráðstefnu Evrópusam-
bandsins styrki hann í þessari af-
stöðu og viðræður hans við starfs-
systkin frá ríkjum ESB háfi jafn-
framt verið jákvæðar.
íslenzk stjórnvöld hafa sett sig
upp á móti því að Schengen-sam-
starfið verði flutt í svokallaða
fyrstu stoð ESB og þar með undir
yfirþjóðlegar stofnanir. Halldór
segir að Island hafi fyrir hálfum
mánuði fengið frá Evrópusamband-
inu uppkast að þeim ákvæðunnpnd-
urskoðaðs stofnsáttmála sam-
bandsins, sem fjalla um innlimun
Schengen-samningsins í stofnsátt-
málann. Brugðizt hafi verið skjótt
við og sendar bréflegar athuga-
semdir, sem Danir og Svíar hafi
jafnframt komið á framfæri. Þar
hafi verið lýst ýmsum erfiðleikum,
sem ísland teldi því samfara að
færa vegabréfasamstarfíð í fyrstu
stoðina.
Nýi textinn miklu betri
Halldór segir að nýi samnings-
textinn, sem íslenzk stjórnvöld
fengu sendan á fimmtudag, sé
miklu betri en sá fyrri og sýni að
tekið hafi verið tillit til sjónarmiða
íslands á fundum samningamanna
á ríkjaráðstefnu ESB, hvort sem
það sé beinlínis vegna bréfs ríkis-
stjórnarinnar eða ekki.
„Þar kemur fram að Schengen-
samstarfið eigi í öllum aðalatriðum
að verða milliríkjasamstarf innan
þriðju stoðar, en sumir málaflokkar
þó færðir í fýrstu stoð, eins og til
dæmis reglur um hæli, innflytj-
endamálefni og ytri landamæri,"
segir Halldór.
WllimMI
Nýjar á söluskrá m.a. eigna:
Góð íbúð - gott verð - gott lán
Sólrík, rúmgóð 3ja herb. íbúð á 2. hæð í steinhúsi við Njálsgötu.
Parket, sérhiti. 40 ára húsnæðislán kr. 3,5 millj. Lítill bílskúr.
Eign sem ýmsir bíða eftir
Parhús suðurendi 76,4 fm við Hjallasel við þjónustumiðstöð.
Sólskáli, góð geymsla. Húsið er eins og nýtt.
Endurnýjuð - Hjallavegur - gott verð
2ja herbergja íbúð lítið eitt niðurgrafinn. Nýjir gluggar og gler. Nýtt
eldhús. Ný gólfefni. Nýtt þak á húsi. Sérinng. Laus nú þegar. Vinsæll
staður.
Reykjavík - Hafnarfj. - hagkvæm skipti
Glæsilegt nýlegt einbýlishús á útsýnisstað í norðurbænum í
Hafnarfirði. Stór bílskúr. Skipti æskileg á góðri íbúð með bílsk. í
gamla austurbænum eða í Hlíðunum.
Fjöldi fjársterkra kaupenda á skrá
Sérstaklega óskast eignir miðsvæðis f borginni, í vesturborginni, á
nesinu og stærri eignir i gamla bænum sem mega parfnast
endurbóta.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Gott verslunarhúsnæði
óskast við Laugaveg,
Bankastræti, nágrenni.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
UUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
Opið hús í Skaftahlíð 16
Til sýnis í dag, laugardag og á
morgun, sunnudag, glæsileg 4ra
herbergja íbúð ca 104 fm á 1.
hæð til vinstri. íbúðin skiptist í
forstofu, 3 svefnherbergi, stofu,
eldhús, sjónvarpshol og
baðherb. Kristín tekur á móti
áhugasömum kaupendum á milli
kl. 14.00 og 17.00 um helgina.
Áhvílandi húsnl. 3,5 millj. Verð
8,5 millj.
FASTEIGNASAIA
REYKJAVÍKlíR
TIL SÖLU LÓÐIR í SELASNUM
Undirritaður hefur til sölumeðferðar eftirtaldar lóðir.
Þeir sem áhuga hafa á kaupum sendi skriflegt
tilboð til undirritaðs fyrir 15. júní 1997.
Viðarás 1 465 m2, raðhús
Viðarás 3 465 m2, raðhús
Viðarás 5 465 m2, raðhús
Viðarás 7 _ 465 m2, raðhús
Skógarás18 l: 660 m2, einbýli
Skógarás 20 836 m2, einbýli
Skógarás 23 677 m2, einbýli
Ólafur Axelsson hrl.,
Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
Sími: 5871211. Bréfsimi: 5671270.
Lúxemborg
lofar samstarfi
Halldór segir að í viðræðum hans
við Jacques Poos, utanríkisráðherra
Lúxemborgar, sem tekur við for-
sæti ráðherraráðs ESB í byijun
júlí, hafi komið fram að menn séu
ekki bjartsýnir á að ríkjaráðstefn-
unni geti lokið á leiðtogafundinum
í Amsterdam um miðjan júní. Ýmis
vandamál séu óleyst, þar á meðal
staða Schengen-samstarfsins.
„Sennilegt er að ríkjaráðstefnunni
ljúki ekki formlega fyrr en í tíð
Lúxemborgar og reyndar hefur
einn utanríkisráðherra ESB sagt
mér að hann hafi ekki trú á að
ráðstefnunni ljúki fyrr en á næsta
ári, í formennskutíð Brettands,"
segir Halldór.
Hann segir að Poos hafi heitið
því að halda nánu samstarfi við
Island um málefni Schengen og
hafa hagsmuni landsins í huga.
Bretar og Svíar hlynntir
flutningi í þriðju stoð
í gær átti Halldór síðan fund
með Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, um Schengen-málið.
„Bretar og Danir leggjast eindregið
gegn því að þessi málaflokkur fær-
ist að einhverju leyti inn í fyrstu
stoðina og Cook segist vilja að
hann verði eingöngu í þriðju stoð,“
segir Halldór.
Hann segir að honum hafi borizt
til eyrna að Svíar væru þeirrar
skoðunar að Schengen-samstarfið
ætti heima í fyrstu stoðinni. „Þetta
kom mér á óvart og ég átti langt
samtal við Lenu Hjelm-Wallén, ut-
anríkisráðherra Svíþjóðar, sem
sagði að Svíar gætu fallizt á að
málið yrði leyst með þeim hætti,
sem nú liggur fyrir, en legðu þó
enga áherzlu á það,“ segir Halldór.
„Svíar vilja alveg eins að samstarf-
ið heyri undir þriðju stoðina. Við
höfum haft áhyggjur af meirihluta-
ákvörðunum í ráðherraráði ESB
um málefni vegabréfasamstarfsins,
í stað þess að samhljóða samþykki
þurfi fyrir ákvörðunum. Wallén
sagði mér að jafnvel þótt eitthvað
af Schengen-samstarfinu yrði fært
undir fyrstu stoðina myndu Svíar
ekki geta fallizt á að ákvarðanir
þar yrðu teknar með meirihluta."
„Mér sýnist eftir þessi samtþl,
sem ég hef átt hér undanfarpa
daga, að ekki sé ástæða til að vera
fullur svartsýni um þetta mál. Hins
vegar er ljóst að ýmislegt á eftir
að gerast. Samningaviðræður við
ísland og Noreg eru ekki hafnar,
en gert er ráð fyrir þeim í þeim
samningstexta, sem nú liggur fyr-
ir,“ segir Halldór.