Morgunblaðið - 31.05.1997, Síða 30
r o YPPt-ÍAT/1 T P W1 *' a r 'c i W1
30 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐÍÐ '
ALFAR
Fóa feykirófa
NÝLEGA opnaði verslunin
Fóa feykirófa á Skólavörðu-
stíg la. Þar eru til sölu leik-
föng, bæði íslensk og erlend.
Islenska framleiðslan er að
stærstum huta úr smiðju Fóu
sjálfrar og er hún trédýr af
ýmsu tagi, íslenskir fuglar,
húsdýr og þjóðsagnaverur,
samtals 30 tegundir. Þjóð-
sagnaverurnar, t.d. draugar,
tröll, mardvergar og englar
eru auk þess gerðar sem mjúk-
dýr og handbrúður. Fóa fram-
leiðir leikhús, virki, dúkkur,
dúkkurúm, kubba og ýmislegt
fleira. Leitast er við að nota
sem mest náttúruleg efni í
framleiðslunni.
Hjá Fóu fást líka tréleikföng
frá Laugalandi, tágavöggur og
fíflar af Vesturgötunni og
pijónadúkkur úr Ljósheimum.
Þá eru leikföng flutt inn af
Fóu, vísindadót, tindátar,
þrautir og leikir. Fóa feykirófa
er með opið frá 11-18 á virkum
dögum og frá 10-14 á laugar-
dögum. Eigandi Fóu feykirófu
er Sigrún Kristjánsdóttir.
Nýtt
Nýjung hjá Efnaverk
smiðjunni Sjöfn hf.
EFNAVERKSMIÐJAN Sjöfn hf.
býður nú fyrst málningarframleið-
enda upp á þá nýjung, að húseig-
endur geta komið með mynd af
húsi sínu og séð það málað í tölvu
í þeim litasamsetningum sem þeir
óska. Með því geta húseigendur
séð fyrirfram hvemig hús þeirra
mun líta út í ákveðnum litum.
Ennfremur verður hægt að koma
með teikningu af húsi og sjá það
í þeim litasamsetningum sem ósk-
að er eftir. Þessi nýjung mun auð-
velda fólki mjög val á litum áður
en húsið er málað. Ef húseigendur
sjá sér ekki fært að koma með
mynd af húsinu getur fulltrúi
Sjafnar komið á staðinn og tekið
mynd af húsinu.
Tekið verður á móti myndum á
flestum sölustöðum Sjafnar, en síð-
ar verður auglýst hvenær fulltrúi
Sjafnar verður í hverri verslun til
að velja liti á hús með húseigend-
um.
Efnaverksmiðjan Sjöfn vonar að
fólk kunni að meta þessa nýjung
og eigi eftir að nýta sér hana í
framtíðinni.
AÐ FORNU OG NÝJU
Dagskrá stakra fyrirlestra á íslenska söguþinginu
laugardaginn 31. maí í Hátíðarsal Háskóla íslands.
Aðgangur er öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
9:00-10:00 Jesse L. Byock prófessor við UCLA:
Egils saga and Social Memory
10:15-11:00 Guðmundur Hálfdanarson dósent
Þjóð og minningar
11:15-12:00 Steian Karlsson forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar
íslensk bókagerð á miðöldum
13:30-14:15 Þórhallur Vilinundarson prófessor emeritus
Örnefni og saga
14:30-15:15 Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðingur
Konur og kirkja. Menningarheimur og trúarsýn
bændakvenna á 19. öld
15:30-16:30 Jóhannes Nordal fv. seðlabankastjóri
Um efnahagslegt sjálfstæði íslendinga
V
NEYTENDUR
Nýgræðingar í flórunni
Innfluttar plöntur - saga, áhrif, framtíð
DAGANA 21. og 22.
febrúar síðastliðin
stóð Félag garðyrkju-
manna fyrir ráð-
stefnu um innfluttar
plöntur — sögu, áhrif
og framtíð. Ráðstefn-
una sóttu 200 manns
og hlýddu á 22 fyrir-
lesara. í framhaldi af
henni var ákveðið að
vinna rit sem inni-
heldur alla fyrirlestr-
ana og pallborðsum-
ræður sem fram fóru
á ráðstefnunni. Ritið
ber heitið Nýgræð-
ingar í flórunni.
Að sögn Auðar
Ottesen, garðyrkjufræðings og rit-
stjóra blaðsins, var áberandi í
máli allra fyrirlesara hversu mikil-
vægt þeir teldu aukið samstarf
aðila innan græna geirans vera.
Flestir vildu þeir sjá
meiri samvinnu í gerð
landnýtingaráætlana,
hvort sem þær áætlan-
ir miðuðu að landbún-
aði, skógrækt, virkj-
anaframkvæmdum,
vegagerð og fleiru.
„Flestir voru sammála
um að við allar stærri
framkvæmdir ætti
skilyrðislaust að fara
fram umhverfismat,
þar sem aukin gróður-
setning og innflutning-
ur plantna kæmi til
með að breyta um-
hverfi okkar og hafa
ófyrirséð áhrif á gróð-
ur- og dýraiíf í landinu," sagði
Auður.
Þetta framtak Félags garð-
yrkjumanna mæltist vel fyrir.
„Ráðstefnan gekk afar vel og voru
Auður Ottesen
garðyrkjufræðingur
allir sammála um að löngu væri
orðið tímabært að taka á þessum
málum og samræma vinnu þeirra
stofnana sem standa að innflutn-
ingi plantna og ásýnd íslands,"
sagði Auður.
Morgunblaðið/Ásdís
EIGENDUR Herragarðsins við opnun verslunarinnar.
Herragarðurinn
opnaður á Laugavegi
HERRAFATAVERSLUNIN
Herragarðurinn er flutt á Lauga-
veg 13, þar sem Habitat var til
húsa. Húsnæðið er 230 fm og er
það á tveimur hæðum. Húsið var
allt tekið í gegn „þetta er glæsileg-
asta herrafataverslun landsins“,
að sögn Siguijóns Arnar Þórsson-
ar, en hann er einn af þremur eig-
endum Herragarðsins. Á efri hæð-
inni býður Herragarðurinn uppá
mikið úrval af vönduðum herra-
fatnaði. Meðal vörumerkja Herra-
garðsins eru heimsfræg ítölsk
merki svo sem Armani Jeans, Nino
Danieli, Reporter og Cerutti frá
Ítalíu. Frá Þýskalandi koma meðal
annars hinar þekktu og vinsælu
Gardeur herrabuxur, straufríu bó-
mullarskyrturnar frá Eterna og
síðast en ekki síst Stellson herra-
fatnaður.
Á neðri hæð verslunarinnar
verður boðið upp á herrafatnað á
góðu verði. Glæsileg skódeild er í
búðinn og er þar boðið uppá allt
það nýjasta í skófatnaði, meðal
annars Mortons skó, Vagabound
frá Þýskalandi og Durness frá
Spáni. Eigendur verslunarinnar
kappkosta að standa fyrir vöru-
gæðum og góðri þjónustu.
Bónus opnar
nýja búð í
Grafarvogi
I DAG, laugardag, verður opnuð
ný Bónusverslun í Grafarvogi.
„Þetta er 600 fm verslun við Borg-
arholt," sagði Jón Ásgeir Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
Bónusverslananna. Verslunin
verður með svipuðu sniði og aðrar
Bónusverslanir. „í tilefni dagsins
bjóðum við mjög góð opnunartilboð
og margt verður til gamans gert,
Svalabræður ætla að mæta á svæð-
ið og fjöldi kynninga verður í
gangi,“ sagði hann.
í kringum 20. júní næstkomandi
ætla Bónusmenn að opna Apótek
á Seltjarnarnesi. „Við verðum með
lágt vöruverð fyrir vesturbæinga,"
sagði Jón.
IMýtt
Bitflugnavörn
ÍSLENSKA Innflutningsfélagið
ehf. er þessa dagana að kynna
bitflugnavörn sem heitir Mosqui-
tex. Mosquitex er borið á húðina
þar sem bitvargsins er von. Efnið
verður lyktarlaust 2-3 mínútum
eftir að það er borið á og heldur
flugunum í burtu í allt að 12
klukkustundir. Mosquitex fæst í
öllum apótekum.
Neytendablaðið
er komið út
NEYTENDABLAÐIÐ 2. tbl. 1997
er komið út. í
blaðinu er fjöl-
breytt efni og
má þar nefna
Markaðskönnun
á ryksugum,
upplýsingalögin
og upplýsinga-
skylda stjórn-
valda, nikótín-
lyfín, erfða-
breytt matvæli og margt fleira.
Landbúnaðarráðuneytið út á land
Vestlendingar athugið
Landbúnaðarráðherra, Guðmundur Bjamason,
verður til viðtals ásamt starfsmönnum
landbúnaðarráðuneytisins í heimavist
Bændaskólans á Hvanneyri, þriðjudaginn 3. júní
kl. 16.00-19.00.
Einstaklingar og aðrir sem érindi eiga við
landbúnaðarráðuneytið erú hvattir til að nýta sér
þessa þjónustu og koma og ræða málefni sín við
ráðherra eða starfsmenn ráðuneytisins.
Um kvöldið, þriðjudaginn 3. júní, boðar landbúnaðarráðherra
til fundar í Félagsheimilinu Brún, Bæjarsveit, kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Landbúnaðarráðuneytið.