Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 46

Morgunblaðið - 31.05.1997, Page 46
46 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 MINNINGAR MORG UNBLAÐIÐ JÓN TRA USTI VALDIMARSSON + Jón Trausti Valdimarsson fæddist á Brand- skarði í A-Húna- vatnssýslu 11. jan- úar 1921. Hann lést á Sjúkrahúsi Sauð- árkróks 22. maí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Valdimar Benediktsson og Kristín Sigfúsdótt- ir. Valdimar drukknaði árið 1925, þá flutti Kristín í Blöndu- hliðina og var Jón Trausti þar allar götur síðan en hann bjó á Úlfsstöðum í Skagafirði. Jón Trausti átti þrjú systkini, tvær systur eru á lífí, Lilja, búsett í Reykjavík, og hálfsystir hans Erla Einars- dóttir, búsett á Akureyri. Jón Trausti verður jarðsung- inn frá Miklabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Kæri vinur. Ekki áttum við von á því er við komum saman fyrir um það bil mánuði að það yrði okkar síðasta samverustund. En eins og þú hafðir svo oft á orði þá „liggja vegir til allra átta“. Reyndar hafði vetur- inn verið þér erfiður og þú stundum ansi veikur, en alltaf hresstist þú aftur og varðst óðar en ekki orðinn gamli góði Trausti á ný. Enda var það ekki að þínu skapi að láta aðra hafa of miklar áhyggjur af þinni heilsu. Einnig var sauð- burður í hámarki og annir sumarsins á næsta leiti. Þetta var sá tími sem þú varst svo sannarlega í essinu þínu og þó svo þú værir að mestu hættur útiverkunum þá fylgdistu með öllu af mikilli athygli og var þá ekki ónýtt að eiga glæsilegan útsýnisglugga, þar sem þú gast fylgst með hverri hreyfingu. Þú vissir alltaf upp á hár hvað hver og einn hafði fyrir stafni, jafnvel þótt fjölmennt væri á Úlfsstöðum, einkum yfir sumartímann. Þetta var þín árstíð sem þú elskaðir öðrum fremur. En enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Það verður erfitt að þurfa að sætta sig við að þú ert ekki lengu til staðar eins traustur hlekkur og þú varst í hugum okkar allra í fjöl- skyldunni enda hafðir þú verið sam- ferðarmaður okkar í aldarfjórðung eða allar götur frá því mamma og pabbi keyptu Úlfsstaði árið 1972. Reyndar hafðir þú hálfpartinn fylgt með í kaupunum þar sem þú hafðir verið lausamaður hjá fyrri ábúend- um. Það var því ekki ónýtt fyrir hina nýaðfluttu fjölskyldu að geta notið liðsinni þinnar þar sem þú varst öllum hnútum kunnugur á jörðinni og hjálp þín ómetanleg. Það fór líka svo, að það sem upphaflega átti að verða nokkurra mánaða að- stoð varð að áratuga samfylgd. Okkur leið öllum vel í návist þinni þar sem þín létta lund, smitandi hlátur, lítillæti og listin að sjá björtu hliðar tilverunnar fóru fremst í flokki. Það verður líka einkennilegt fyrir barnaböm mömmu og pabba að fínna þig ekki lengur í herberginu þínu. En það var fastur punktur hjá smáfólkinu að banka uppá hjá þér og spumingin, Hvar er Trausti? heyrist oft hjá þeim núna, og þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Nú, þegar að leiðarlokum er kom- ið, langar okkur að þakka þér allar góðu stundimar sem við áttum með þér, þær munum við geyma í minn- ingasjóði okkar um ókomin ár. Nú þegar þú ert kominn á æðri staði þar sem þú munt eflaust hella uppá kaffíð með reisn, biðjum við Guð að styrkja mömmu og pabba því missir þeirra er mikill. Blessuð sé minning þín. Sigríður Jónína og Qölskylda. Helsingjarnir koma. Það vorar. Hægt en örugglega. Sunnanáttin kemur. Helsingjamir fara. Og Trausti okkar er farinrn Ég hugsa til baka. Ég sé hann standandi á tröppunun á Ulfsstöðum er við rennum í hlað. Á vinnuskyrtu í gallabuxum, lágvaxinn, grannur, með hendur í vösum og eilítið sposk- ur á svip. „Blessaður góði,“ sagði hann er við heilsuðumst, bölvaði veðrinu örlítið, sneri sér að bömun- um og heilsaði þeim með meiri virkt- um og öðrum athugasemdum og dreif okkur síðan í bæinn. Ef húsráð- endur voru ekki heima dró hann fram veitingar, við annað var ekki komandi. Svo var drukkið kaffí og spjallað. Sagðar vom nýjustu fréttir úr fjölskyldunni og sagt frá uppá- tækjum bamanna. Trausti hlustaði og sagði ,já, ég veit það,“ og svo hló hann. Með augun full af §öri hló hann þessum skemmtilega hlátri og allir hlógu. Og hann sagði okkur fréttir úr sveitinni. Og hló meira. Stóð svo skyndilega á fætur og gekk um gólf, raulaði fyrir munni sér gömul vísubrot. Spjallaði við bömin og virtist hafa gleymt fullorðna fólk- inu. Og skyndilega vom bömin orð- in þæg eins og lömb. Það hafði ver- ið eitthvað gott í skúffunni hjá Trausta. Ef lítið var í skúffunni var Trausti hálfeyðilagður og fengu bömin þá skotsilfur sem hefði nægt til að fylla skúffuna góðu. Og það var dmkkið mikið kaffi í eldhúsinu á Úlfsstöðum. Þar vildi hann vera. Hjá fjölskyldunni sem hugsaði svo vel um hann. Hann var heima. Og er við horfum niður að Vötnunum og ræðum veiðiskapinn þá segi ég við hann: „Jæja Trausti minn. Nú kemur þú bara með okk- ur suður og verður hjá okkur í nokkra daga.“ „Hvaða bölvuð vit- leysa er í þér,“ segir hann hvasst. „Láttu ekki svona, ég kem ekki neitt.“ Lét ekki stjórna sér, lét ekki segja sér fyrir verkum. Siðaði mann bara til í staðinn. En kannski eftir nokkra mánuði var hringt og sagt: „Ég er að koma.“ Við hittum Trausta okkar í síð- asta skipti núna um páskana. Vet- urinn hafði verið honum erfíður. Spurðum um heilsufarið. Hann sagðist vera óttalega lélegur. Það hafði ég ekki heyrt áður. Hann vinkaði til okkar í gegnum gluggann er við fómm. Ekki með látum, bara ein sveifla. Horfði svo á eftir okkur niður veginn. Eyþór, Sigríður og börn. SIGURÐUR GUTTORMSSON + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÞÓRA JÓNSDÓTTIR fyrmm húsfreyja á Haligilsstöðum, Brekkugötu 29, Akureyri, lést fimmtudaginn 29. maí á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Stefán Jónsson, Jósefína Stefánsdóttir, Birgir Stefánsson, Sigrún Stefánsdóttir, Guðrún Stefánsdóttir, Finnur V. Magnússon, barnabörn og barnabarnaböm. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁRNI BALDUR BALDVINSSON frá Þórshöfn, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn 2. júní kl. 13.30. Grétar Árnason, Þráinn Árnason, Petrfna Bára Árnadóttir, Hrönn Árnadóttir, Elinóra Ágústa Conway, Arnþrúður B. Árnadóttir, Þórdís Herbertsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, öm Randrup, Charies Conway, Óskar Bjami Ingason, barnabörn og barnabamabörn. + Þökkum af alhug alla samúð, hlýhug og virðingu við andlát og útför SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR bifreiðastjóra, Dynskógum 26, Hveragerði. Helga Baldursdóttir. Margrét Björg Sigurðardóttir, Ingvar Geir Guðbjörnsson. Baldur Sigurðsson, Vigdís Heiða Guðnadóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Jón Ögmundsson, Guðmundur Sigurðsson, Sigríður Björk Sigurðardóttir, Hulda Sigurðardóttir. barnabörn og barnabamabarn. + Sigurður Gutt- ormsson fædd- ist á Stuðlum í Reyðarfírði 6. júní 1921. Hann lést á Sjúkrahúsi Nes- kaupstaðar 20. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Þórey Stefánsdóttir og Guttormur Ein- arsson búfr. á Reyð- arfirði. Systkini hans eru Stefán, látinn, og Elín- björg, búsett á Reyðarfirði. Hálf- systkini hans eru Einar, Sigfús, Guðlaugur og Bergjjót Gutt- ormsbörn, öll látin. Hinn 11. febrúar 1947 giftist Góðvinur minn til margra ára er af heimi horfínn. Ennþá hefur gest- urinn me_ð ljáinn gist garð sveitunga minna. Á einu misseri hafa fímm kærir samferðamenn kvatt. Nú er það Sigurður minn Guttormsson sem hefur lífsgöngu lokið, en aðeins eru rúmir tveir mánuðir frá því að bróðir hans Stefán var allur. Enn einu sinni leitar því hugur á heimaslóð og margt góðra minn- inga sækja muna heim, horfin tíð verður svo hugumkær. Heima þekktu allir alla og hver burtkvaðn- ing snart streng í bijósti allra bæj- arbúa. Allt það fólk sem á þessu eina misseri hefur horfið okkur sjónum yfír móðuna miklu átti ævigöngu sína alla eða nær alla heima á Reyð- arfírði og lét þar eftir sig lífsgöngu góða, allt aldrað fólk á okkar mæli- kvarða, en þó höfðu þrjú þeirra ekki náð áttræðisaldri, Sigurður yngstur þeirra og allt þar til nú Sigurður eftirlif- andi konu sinni Helgu Sveinsdóttur. Þau eignuðust finun börn sem eru á lífi: 1) Guðlaugur Sveinn, f. 30.7.1947. 2) Anna Þórey, f. 23.9. 1948. 3) Hulda Björg, f.18.12. 1951. 4) Arndís, f. 20.11. 1960. 5) Guttormur, f. 27.3. 1962. Bama- börnin eru 11 og barnabarnabörnin eru fimm. Sigurður ól allan sinn aldur á Reyðarfirði. Útför hans fer fram frá Reyðarfjarð- arkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. fyrir skömmu hress og hraustur að sjá. En skjótt skipast veður í lofti og við skæðan meinvald háð örðug barátta unz yfír lauk. Sigurður var einn þessara manna sem var óijúfanlegur þáttur í til- veru manns heima. Ég fékk að kynnast honum afar vel er hann sinnti húsvörzlu í skólanum hjá mér og ók skólabömum sveitarinnar til og frá skóla. Hann gekk vasklega fram í verkum sínum og vildi láta hlutina ganga. Hann átti heitt skap svo sannarlega, en skugga bar aldr- ei á samskipti okkar sem eðlilega voru þó mikil. Hann reyndist trúr í verkum sínum fyrir skólann, hafði þann metnað að allt skyldi verða eins og bezt varð á kosið sem hann átti að annast. Sveiflur í örri skap- gerð hans voru vissulega til, en okkur gekk ætíð jafnvel að jafna öll mál á æskilegan veg, sáttfýsi hans mikil og gjarnan í lokin á létt- ara hjal brugðið. Hann reyndist mér + Faðir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JÓN EIRÍKSSON fyrrv. yfirlæknir I Reykjavík, lést I Landspítalanum fimmtudaginn 29.maí. Ásdis V. Jónsdóttir, Þyrf Ágústa Jónsdóttir, Sigurður Þór Jónsson, barnabörn og Frfða Ástvaldsdóttir, barnabamabam. verkadijúgur og góður drengur í hvívetna. Við áttum oft langar sam- ræður um daginn og veginn og Sig- urður var viðmælandi góður, opinn og hlýr greindi hann mér frá ýmsum áformum sínum og minnisstæður er mér metnaður hans fyrir hönd eldri sonarins að honum mætti vel famast í því sem hann var þá að taka sér fyrir hendur. Hann sagði mér og frá sínum æskuvonum sem ekki hefðu allar gengið sem skyldi, en þó taldi hann sig mann mætrar gæfu. Hann var glaðsinna í innsta eðli sínu og sagði skemmtilega frá ýmsu skoplegu í umhverfí okkar, þessum smáu við- burðum sem eru eins og krydd í tilveruna þegar þeir eru færðir í búning léttrar gamansemi einnar enda hlógum við oft dátt saman. Sigurður var maður vasklegrar framgöngu, myndarlegur á velli og fríður sýnum. Hann hafði afar ákveðnar skoðanir og fyrir kom að í létta brýnu sló um landsmálin en Sigurður var mikill sjálfstæðismað- ur og fylgdi þeim flokki af einlægni. Lengst fékkst hann við bifreiða- akstur og famaðist þar vel, óvílinn í vetrarferðum, sem margar voru í ófærð og illviðri famar, snarpur í átökum öllum, ötull og vel verki farinn. Ég hefí oft hugsað til þess að verðugt væri að rita samgöngu- sögu Austurlands á bílaöld, en þar yrði hlutur reyðfirzkra bifreiðastjóra einstaklega góður og þar hefði Sig- urður sinn vísa og verðuga sess. Hann sagði mér oft að sér þætti vænt um þessa farkosti sína, fynd- ist oft sem ekki væri sama hvemig vikið væri að þeim, hvað þá hversu þeir væru meðhöndlaðir og um þá hirt. Oft hefði hann enda þurft að eiga á þeim allt sitt traust, þegar torleiði var mest og óveðrið þyrlaði upp fönninni, svo vart sást út úr augum. Sigurður fékkst við fleira m.a. átti hann ágætan fjárstofn sem hann sagðist njóta vel að mega annast, sagði stundum að líklega hefði hann orðið bóndi ef bifreiðin hefði ekki heillað. Auðna fylgdi einkalífí. Hann átti afbragðskonu góðra eiginleika og fimm efnisbörn. Gengin er á enda braut þessa jarðlífs og eftir það eitt að þakka fyrir samfylgd þekka um árabil. Við Hanna sendum Helgu, þeirri traustu og dugmiklu konu, svo og börnum þeirra og aðstandendum öðrum okkar einlægustu samúðar- kveðjur. Sjálfur þakka ég samskipti góð og sendi þökk í háa himinsali. Megi Sigurður vinur minn eiga ódá- insdvöl sem allra bezta. Blessuð sé minning hans. Helgi Seljan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.