Morgunblaðið - 31.05.1997, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 31.05.1997, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 1997 53 Göngu- og kynningar- dagur Ferða- félagsins GÖNGUDAGUR Ferðafélagsins er haldinn í 19. sinn sunnudaginn 1. júní en að þessu sinni er hann til- einkaður 70 ára afmæli félagsins. Farið verður í fjölskyldugöngu um Esjuhlíðar og er brottför með rútu kl. 10.30 frá Ferðafélagshús- inu að Mörkinni 6 en þátttakendur geta einnig mætt á eigin farartækj- um á bílastæðið við Mógilsá. Farin verður 1,5-2 klst. ganga um göngustíga, þar á meðal skógar- stíga í hlíðum Esju og höfð áning með léttum veitingum í skógarreit við Tilraunastöð Skógræktarinnar. Þátttakendur munu fá merki göngudagsins. Áætlað er að koma til baka í Mörkina kl. 14. Milli kl. 14 og 17 verður opið hús í Mörkinni 6 þar sem Ferðafélagið mun kynna starfsemi sína, nýút- komna úrbók, sumarferðir og af- mælisárið en þar munu einnig verða fyrirtæki er kynna ýmislegt sem snertir ferðalög og gönguferðir, svo sem ferðaútbúnað, landakort, rútur, framleiðslu úr íslenskum fjallagrös- um o.fl. Skátar munu sjá um leik- tæki fyrir unga sem aldna á opna húsinu og kl. 14.30-15 munu félag- ar úr lúðrasveitinni Svani leika ættjarðar- og göngulög. Á göngudaginn verður einnig í boði gönguferð yfir Esju kl. 9 en með þeirri ferð verður minnst fyrstu Esjugöngu félagsins er farin var árið 1933. Lessmiðja fyrir börn í Borg-ar- bókasafni í SUMAR verður starfrækt les- smiðja fyrir börn í Borgarbókasafni Reykjavíkur. Smiðjan er einkum ætluð börnum á aldrinum 8-11 ára og kostar ekkert að taka þátt. Tilgangur smiðjunnar er að efla lestur og lestrarskilning og minna á það fjölbreytta úrval bókmennta sem söfnin veita aðgang að. Lesnar verða bækur af ýmsu tagi, spjallað um þær og ýmis verkefni unnin. Boðið er upp á þennan sumarlestur í aðalsafninu í Þingholtsstræti, Borgarbókasafni í Gerðubergi, Bústaðasafni, Seljasafni í Hólmaseli og Foidsafni í Grafar- vogi. Smiðjan verður á þriðjudögum og fimmtudögum í júní, eina og hálfa klst. í senn, og fá þau börn sem verða með frá byijun afhent viður- kenningarskjal í lok námskeiðsins. Viðfangsefni smiðjunnar eru breyti- leg eftir útibúum; í aðalsafni verður þemað t.d. Reykjavík í víðu sam- hengi og verða m.a. lesnar gamlar og nýjar þjóðsögur úr Reykjavík, spennusögur úr borginni, Reykjavík- urljóð og fjallað um náttúru í borg- inni o.fl. Nánari upplýsingar eru veittar í hveiju safni fyrir sig og þar fer skráning einnig fram. Fyrirlestur um sjón og sjón- hverfingar ÞORSTEINN J. Halldórsson, eðlis- fræðingur, flytur laugardaginn 31. maí fyrirlesturinn Sjón og sjón- hverfingar. Fyrirlesturinn er sá síð- asti í fyrirlestraröðinni Undur ver- aldar sem haldin er á vegum Raun- vísindadeildar Háskóla Islands og Hollvinafélags hennar. Fjallað verður m.a. um eðli sjón- skynjunarinnar. Hvern hluta af raunveruleikanum við skynjum með augunum og hvemig sjónin einnig blekkir. Einnig verður greint frá nýrri þróun í myndtækni, sýndar- veruleika og gervisjón. Fyrirlesturinn hefst kl. 14 í sal 2 í Háskólabíói. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. FRÉTTIR LANGHOLTSKIRKJA Kirkjureið til Langholts- kirkju HESTAMENN verða sérstaklega boðnir velkomnir sunnudaginn 1. júní í Langholtskirkju. Hestamenn leggja af stað frá félagsheimili Fáks kl. 9.30 f.h. og kl. 10.30 frá hesthúsunum við Bústaðaveg. Hestamannafélagið Fákur setur upp rafmagnsgirðingu við kirkjuna og sér um gæslu hestanna meðan á messu stendur, Lesarar og hljóð- færaleikarar verða úr röðum hesta- manna og Gradualekór Langholts- kirkju syngur stólvers. Prestur er sr. Jón Helgi Þórarinsson og organ- leikari Jón Stefánsson. Eftir messu gefst kirkjugestum kostur á að kaupa sér kjötsúpu í safnaðarheimili kirkjunnar. Tutt- ugu ár eru síðan þessi siður var tekinn upp og hefur haldist nær óslitinn síðan. Skógræktar- dagur og stað- arskoðun í Sól- heimum EFNT verður til skógræktardags á Sólheimum laugardaginn 31. maí. Kynnt verður starfsemi skóg- ræktarstöðvarinnar Öiurs auk þess sem í boði verður ráðgjöf fyrir sumarbústaðafólk og aðra gesti sem hug hafa á gróðursetningu í sumar. Sólheimar eru vagga lífrænnar ræktunar á íslandi og skógræktar- stöðin Ölur vottuð sem lífræn skóg- ræktarstöð. Stöðin verður opin á laugardaginn frá kl. 10-18. Gestum er boðið upp á staðar- skoðun um Sólheima og hefst kynningin í íþróttaleikhúsi Sól- heima kl. 14. Sólheimar hafa verið útnefndir fyrsta sjálfbæra samfé- lag á íslandi af alþjóðasamtökun- um Global Eco-Village Network og verður gestum kynnt saga stað- arins og störf aðmmhverfismálum. Einnig verða verslunin Vala og Listhús Sólheima opið um helgina eins og aðrar helgar í sumar. Allir eru velkomnir. * Islandsmót í handflökun í dag OPIÐ íslandsmót í handflökun verður haldið laugardaginn 31. maí í hafnartjaldinu á miðbakka Reykjavíkurhafnar. Mótið hefst kl. 11. Það er nú haldið í fjórða sinn. Ræsir mótsins að þessu sinni er Björn Grétar Sveinsson, formaður V erkamannasambandsins. Til mótsins var í upphafi stofnað til að hefja til vegs þá verkþekk- ingu og verklag sem góðir flakarar búa yfir. Þátttakendur í ár eru þegar orðnir 24, en enn er hægt að skrá sig. Skipt er í hópa og keppa fimm í einu. Dæmt er eftir hraða, nýtingu og gæðum. Verð- laun eru veitt þeim sem skarar fram úr í hveiju þessara atriða, en Islandsmeistari er sá Islending- ur sem er með besta útkomu sam- anlagt. Þrír efstu keppendur fá ferðavinninga. Frá upphafi hafa erlendir þátttakendur verið meðal keppenda og svo er einnig nú. Áhorfendur eru velkomnir á keppnina. Forsetahjónin á sjómannadegi í Grindavík FORSETAHJÓNIN herra Ólafur Ragnar Grímsson og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir verða við- stödd hátíðarhöld sjómannadagins í Grindavík eftir hádegi sunnudag- inn 1. júní nk. Hátíðarhöldin hefjast með sjó- mannamessu kl. 13, að messu lok- inni verður lagður blómsveigur að minnisvarða um drukknaða og týnda menn. Að því loknu byijar dagkráin við höfnina. Blásarasveit Grindavíkur leikur, flutt verða ávörp, heiðrun aldraðra, viður- kenning vegna björgunarafreks, verðlaunaafhending, leikir s.s. björgunargallasund, koddaslagur, kararóður o.fl. Sjómannakaffi er á vegum Kvenfélags Grindavikur í Festi milli kl. 15 og 18. Um kvöldið verður síðan hátíðardansleikur í Festi. Hljómsveitin Saga-Class leikur fyrir dansi, veislustjóri verð- ur Rósa Ingólfsdóttir og Laddi skemmtir. Hyundai-sýning BIFREIÐAR og landbúnaðarvélar halda sýningu á 1998 árgerð af Hyundai Accent. Bíllinn hefur tek- ið nokkrum breytingum og má þar nefna rennilegri framhluta með innbyggðum þokuljósum í stuðara, breyttan afturstuðara, hlífðarlista í hurðum og nýja hjólkoppa. Bíllinn er fáanlegur þrennra, fernra og fimm dyra með 84 og 89 hestafla vélum. Allir bílarnir eru með lituðu gleri og í GS og GLS útfærslum eru rafknúnar rúðuvindur staðal- búnaður. Sýningin er frá kl. 10-17 í dag, laugardag, og á morgun milli kl. 12 og 17. Bíllinn er einnig sýndur hjá Bílval á Akureyri. Sumarbúðir fyrir stráka og stúlkur SUMARBÚÐASTARF ÆSKR, KFUM og K í Ölveri í Borgarfirði hefst næstkomandi mánudag. Sumarbúðirnar, sem staðsettar eru undir Hafnarfjalli í nágrenni Borgarness, eru fyrir drengi og stúlkur frá sjö ára aldri. Börnunum er boðið upp á fjöl- breytta útiveru, leiki, íþróttir og gönguferðir. Á staðnum er úrval nýrra leiktækja svo sem útileiktæki og heitur pottur til að busla í. Mik- ið er lagt upp úr uppbyggjandi samfélagi og eru samverustundir kvölds og morgna þar sem auk skemmtiatriða er Biblíulestur og hugleiðing auk mikils söngs. Ennþá eru nokkur pláss laus í sumarbúðirnar sem hefja starfsemi nk. mánudag hinn 2. júní. Afmælishátíð á Hrafnistu HALDIÐ verður upp á 40 ára af- mæli Hrafnistu í Reykjavík á sjó- mannadaginn 1. júní og 20 ára afmæli Hrafnistu í Hafnarfírði. Af þessu tilefni verður „opið hús“ á Hrafnistuheimilinu nk. sunnudag og þá gefst almenningi kostur á að kynna sér starfsemina. Meðal þess sem í boði verður er sýning og sala á handverki sem unnið hefur verið af heimilisfólki, og kaffisala í borðsölum Hrafnistu, og rennur allur ágóði til velferðar- mála heimilisfólksins. Harmoniku- leikarar munu halda uppi tilheyr- andi stemmningu. Sjómannadags- blað Reykjavík- ur og Hafnar- fjarðar komið út SJÓMANNADAGSRÁÐ Reykjavík- ur og Hafnarfjarðar hefur gefið út Sjómannadagsblaðið í 59. sinn. Rit- stjóri þess er Atli Magnússon. I blaðinu er meðal annars fjallað um víglu og blessun nýrrar sund- laugar og endurhæfingarstöðvar við Hrafnistu í Reykjavík. Þá er rætt við Rafn Sigurðsson, forstjóra Hrafnistu, í tilefni 20 og 40 ára afmælis Hrafnistuheimilanna. Að venju eru í blaðinu fjöldi frásagna gamalla sægarpa, sem samþættast öðrum frásögnum af skipum eða mönnum liðins tíma. Til að mynda eru frásagnir sjófarenda af tundur- duflaháska stríðsáranna. Minningaröldur við Fossvogskapellu Látinna sjómanna á síðasta ári er minnst og fjallað er um minning- aröldur Sjómannadagsins sem risið hafa við Fossvogskapellu en þar geta ættingjar þeirra sjómanna, sem ekki hafa komist í vígða mold, minnst sinna nánustu. Sjóminjasafn ís- lands opnað SJÓMINJASAFN íslands í Hafnar- firði verður opnað sunnudaginn 1. júní. Opið verður alla dga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Laugardaginn 31. maí verður i forsal safnsins opnuð sýning á 20 olíumálverkum eftir Bjarna Jóns- son. Allt eru þetta myndir um sjó- mennsku og sjávarhætti fyrri tíðar en segja má að hér sé um heimildar- myndir að ræða. Öll verkin eru til sölu. Einnig sýna gamlir sjómenn vinnu við lóðir, net, húta og splæs- ingar. Gestum gefst kostur á að æfa handtökin. Aðgangur er ókeyp- is í tilefni af hafnardeginum og degi ferðaþjónustunnar í Hafnar- firði. Verkleg sjóvinna hefur verið fastur liður í starfsemi safnsins undanfarin sumur. Á sjómannadaginn 1. júní leikur Þórður Marteinsson á harmoniku meðan á opnun stendur en aðgang- ur er ókeypis. Þriðja hæð safnsins hefur nú verið opnuð á ný og verða þar sýndar heimildarkvikmyndir af myndböndum í sumar. í safninu eru varðveittir munir og myndir er tengjast sjómennsku og siglingum fyrri tíma, þ.á m. tveir árabátar, loftskeyta- og kortaklefi af togara, gúmbjörgunarbátur, kaf- arabúningur, skipslíkön, ýmis veið- arfæri, áhöld og tæki. Sýning á annarri og þriðju hæð safnsins hef- ur verið endumýjuð að mestu og að nokkm á þeirri fyrstu. Árbæjarsafn Nýtt hús tekið í notkun í TILEFNI af 40 ára afmæli Árbæj- arsafns mun húsið Lækjargata 4 verða opnað eftir viðamikla endur- byggingu sunnudaginn 1. júní. Þann dag hefst fjölbreytt sumar- dagskrá með opnun ljósmyndasýn- ingar sem ber yfirskriftina: Reykja- vík, ljósmyndir og ljóð. Þar verða sýndar ljósmyndir frá Reykjavík frá lokum síðustu aldar og til okkar daga ásamt ljóðum skálda sem yrkja um myndir og borgina við sundin blá. Vegleg sýningarskrá hefur að geyma ítarlega ritgerð eftir Garðar Baldvinsson bók- menntafræðing. Veitingsala í Dillonshúsi verður opnuð um leið og safnið, en í sum- ar mun Árný Hallvarðsdóttir og aðstoðarfólk hennar bera þar fram randalínur og ýmsa þjóðlega rétti. Húsdýr verða á safnsvæðinu í sum- ar og handverksfólk að störfum flesta daga auk þess sem sérstök dagskrá verður alla sunnudaga. Færeyska sjómannaheimilið. Færeyska sj ómannaheimilið Samkoma á sjó- mannadaginn HALDIN verður almenn samkoma á sjómannadaginn 1. júní í Fær- eyska sjómannaheimilinu, Brautar- holti 29, og hefst hún kl. 17. Þar verða sungnir færeyskir sálmar en ræðumaður verður Skúli Svavarsson, kristniboði. Allir eru hjartanlega velkomnir á samkom- una. LEIÐRÉTT Teigur áfram opinn í FRÉTT um sumarlokanir sjúkra- húsanna í Morgunblaðinu í gær, sagði að Teigur á Flókagötu yrði lokaður frá 29. júní til 5. ágúst. Þetta á þó aðeins við um sjúkrahót- elið þar, en dagdeildinni á Teigi verður ekki lokað og þar verður veitt full þjónusta yfir sumarið. Hlynur Hallsson Rangt föðurnafn VIÐ VINNSLU Morgunblaðsins á samtali Þórarins Stefánssonar við Hlyn Hallsson myndlistarmann, sem birtist í blaðinu í gær, misritað- ist föðumafn Hlyns. Beðizt er af- sökunar á þessum mistökum. Flugslysið í Héðinsfírði ÁSTÆÐA er til að árétta vegna greinar í blaðinu á fimmtudag um flugslysið þegar TF-ISI fórst í Hest- fjalli við Héðinsfjörð að það er mannskæðasta flugslys sem orðið hefur á íslandi. Einnig að einkenn- isstafír vélarinnar voru TF-ISI, en í frétt í blaðinu voru þeir sagðir TF-ÍSÍ. Þá var rangt farið með heimili Bryndísar Sigurðardóttur sem fórst í slysinu. Hún var til heimilis í Reykjahlíð í Mývatnssveit en ekki Reynihlíð. Em aðstandendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Sendiherrar í FRÉTT í blaðinu s.l. fimmtudag um hjálpartæki til Rússlands var ranghermt að Gunnar Gunnarsson væri fyrrverandi sendiherra íslandE í Rússlandi og Ólafur Egilsson nú- verandi sendiherra. Hið rétta er að Gunnar en núverandi sendiherra og Ólafur gengdi embættinu áður. Er beðist velvirðingar á þessum mis- tökum. Upplýsingamiðstöð ferðamanna í Hafnarfirði að Vesturgötu 8 í FRÉTTATILKYNNINGU í Mbl. i gær var sagt frá Hafnardegi í Hafn - arfírði sem haldin er í dag. Þar va* sagt að Upplýsingamiðstöð ferða- manna væri til húsa að Njálsgötu 8. Hið rétta er að hún er stödd að Vesturgötu 8 og er beðist velvirð- ingar á mistökunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.