Morgunblaðið - 04.06.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNl 1997 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Jóhann Guðni Reynisson
GEIRI Péturs á strandstað í Húsavíkurhöfn sl. sunnudag. A myndinni sést hvar báturinn Guðrún
Björg reynir að draga hann á flot.
Ófremdarástand í höfninni á Húsavík
Geiri Péturs strand-
aði á sandrifi
ÓFREMDARASTAND er í hafnar-
málum Húsvíkinga, að mati Stef-
áns Stefánssonar hafnarvarðar,
sem var um borð í Geira Péturs
sem strandaði í höfninni á sjó-
mannadaginn. Um 150 manns voru
um borð í skipinu þegar það tók
niðri á sandrifi en ætlunin var að
fara í skemmtisiglingu í tilefni
dagsins. Báturinn Guðrún Björg
togaði í skipið en það losnaði síðan
af sjálfsdáðum á flóði um tveimur
tímum síðar. Segir Stefán að ekki
hafi orðið vart við skemmdir á skip-
inu.
„Það er ófremdarástand í höfn-
inni og það verður að dýpka hana
talsvert. í fyrra var dýpi innri hafn-
arinnar mælt, þar sem fiskiskip
leggja að, og kom í ljós að dýpið
var rúmir fimm metrar en ætti að
vera yfir sex metrar. Ef það verður
ekki gripið í taumana strax koma
bátar ekki hingað inn til þess að
landa,“ sagði Stefán.
Kostnaður 20-30 milljónir kr.
Hafnarnefndarfundur var á
mánudag á Húsavík og sat hann
m.a. fulltrúi Siglingastofnunar. Þar
var ákveðið að reyna að fá tæki
til þess að grafa úr höfninni.
Stefán segir að það þurfi að
sprengja í höfninni því móhella sé
þar. Rætt er um að kostnaður við
framkvæmdirnar sé á bilinu 20-30
milljónir kr. Fengist hefur leyfi til
þess að flýta þessum framkvæmd-
um en Húsavíkurhöfn þarf að fjár-
magna framkvæmdirnar þar til
fjármunir fást frá hinu opinbera til
verksins. Vandamálið mun hins
vegar það að engin tæki eru til í
landinu til þess að vinna verkið.
Þau tæki sem hægt væri að nota
til verksins eru í notkun í Grinda-
vík og við holræsaframkvæmdir í
Reykjavík.
„Okkur er sagt að það liggi fyr-
ir að fara í dýpkunarframkvæmdir
í Vestmannaeyjum og á Djúpavogi
og nú þarf að fá tæki til landsins.“
Um er að ræða pramma með
skóflu og segir Stefán að stjórn-
völd þyrftu að stuðla að því að slík
tæki væru fengin til landsins. „Það
á að byggja hér gijótgarð í haust
og fram á næsta ár en það er ekk-
ert vit í því að veija höfnina ef
enginn bátur kemst hvort eð er inn
í hana. Nú er búið að kaupa hingað
Pétur Jónsson og ætli það verði
ekki að landa úr honum með þyrlu.
Hann fer ekki hingað inn nema á
flóði og þá aðeins að Norðurgarðin-
um og þá þarf að stilla komu hans
upp á hafskipakomurnar því hér
er ekki pláss fyrir alla,“ sagði Stef-
án.
Sjúkrahús Siglufjarðar
Engar umsóknir
um læknisstöður
Siglufirði - Útlit er fyrir að læknis-
laust verði á Siglufirði frá og með
1. ágúst nk. takist ekki að ráða
nýja lækna fyrir þann tíma. Þegar
hefur verið auglýst eftir læknum í
þær þijár stöður sem lausar eru við
sjúkrahús og Heilsugæslustöð
Sigluljarðar en án árangurs enn
sem komið er.
Jón Sigurbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahúss og
Heilsugæslustöðvar Sigluijarðar
segir að vel sé búið að læknum á
Siglufirði. „Þessir þrír læknar koma
til með að skipta jafnt með sér vökt-
um og vegna samreksturs sjúkra-
húss og heilsugæslu er vaktþjón-
ustu lækna mjög stillt í hóf og því
mjög hentugt starfsumhverfi fyrir
samrýnda lækna. Hér eru þrír mjög
vel búnir læknisbústaðir sem bíða
nýrra ábúenda og ég tel að læknar
hljóti að sjá að hér er gott tæki-
færi til að skipta um umhverfi og
kynnast lífinu á landsbyggðinni og
því sem það hefur upp á að bjóða.
Þetta er tækifæri sem enginn ætti
að láta fram hjá sér fara og því er
ég ekki enn mjög áhyggjufuliur út
af læknisleysi og bíð bara vongóður
eftir upphringingu frá góðum lækn-
um.“
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Annatími hjá
sauðfj árbændum
Hrunamannahreppi - Sauðburð-
ur er nú víðast langt kominn og
sumsstaðar eru flestar ær born-
ar. Frjósemi er alls staðar mik-
il. Þetta er mikill annatími hjá
sauðfjárbændum en ærnar bera
nánast alls staðar inni og er lit-
ið eftir þeim dag og nótt. Hér
er Eiríkur Kristofersson á
Grafarbakka að marka lamb og
nýtur aðstoðar Hauks sonar
síns.
Morgunblaðið/Líney
KRAKKARNIR í grillveislu við grunnskólann.
Hjóladagur í grunnskól-
anum á Þórshöfn
Þórshöfn - Vorið er tími hjólanna
og því var haldinn sérstakur hjóla-
dagur í grunnskólanum hér á Þórs-
höfn í samvinnu við lögregluna.
Nemendurnir mættu á reiðhjólum
í skólann og þar fór lögreglan yfir
hjólin og búnað þeirra, athugaði
hjálma en síðan var farið í hjóla-
túr út fyrir þorpið.
Hjá flestum reyndust hjólin í
lagi en annað mjög mikilvægt var
í megnasta ólagi. Hjálmanotkun
er ekki eins almenn og hún ætti
að vera og þurfa margir að taka
sig verulega á varðandi það mál,
að sögn lögreglu.
Þrátt fyrir að mýmörg dæmi
sanna það að notkun reiðhjóla-
lijálma hafi oft komið í veg fyrir
alvarlega höfuðáverka þá eru allt-
af einhverjir sem ekki hirða um
höfuðið og hjóla um hjálmlausir -
of margir hér á Þórshöfn.
Grillaðar pylsur voru á boðstól-
um við grunnskólann þegar nem-
endur komu úr hjólaferðinni og
allir borðuðu úti í veðurblíðunni,
sem loksins gerir vart við sig á
norðausturlandi.
Skólaslit eru framundan og
sumarfrí tekur við hjá þeim yngri
en unglingarnir fara flestir í vinnu,
því að í sjávarplássum eins og hér
eru unglingar hluti af atvinnulíf-
inu.
Fræðslufundur Sögu-
félags Amesinga
Eyrarbakka - Sögufélag Árnesinga
hélt fjölsóttan fræðslufund um far-
manninn Bjarna Heijólfsson sem
lagði frá landi á Eyrarbakka fyrir
um það bil 1000 árum og hélt til
Ameríku.
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
flutti framsöguerindi og svaraði
spurningum heimamanna varðandi
siglingu Bjarna. Gerðu menn góðan
róm að máli Páls. Fundargestir komu
víða að úr Ámessýslu. Eyrarbakka-
hreppur bauð fundargestum kaffl-
veitingar. Þessi fundur var partur af
afmælishaldi Eyrbekkinga vegna 100
ára afmælis sveitarfélagsins.
Sýningin Saga bátanna er nú
tekin við af skjalasýningu að Stað.
Selur í túni
Borgarnesi - Þeim brá í brún
Borgnesingunum sem voru að
bera áburð á tún sitt ofan við
Borgarnes er þeir gengu fram á
dauðan sel á miðju túninu um 700
metra frá sjó.
Þarna var um fullorðinn sel að
ræða sem líklegast hefur leitað
upp á land í stærsta straumi.
Hann hefur líklegast baksast upp
frá sjónum eftir framræsluskurð-
um um 700 metra veg áður en
hann komst upp á fyrrgreint tún
þar sem hann gaf síðan upp önd-
ina. Eftir að áhugasamir Borgnes-
ingar á ýmsum aldri höfðu fengið
að skoðað selinn var honum tekin
gröf á miðju túninu og hann jarð-
settur. Að sögn fróðra manna eru
fleiri dæmi um að gamlir selir
leiti nokkuð langt upp á land til
þess eins að bera beinin.
Morgunblaðið/Theodór
STRÁKARNIR Heiðar Lind Hansson og Bjarki Kristjánsson
athuga hvort selurinn sé ekki örugglega dauður.