Morgunblaðið - 04.06.1997, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Tóbaksiðnaður segir
verðstríð einu leiðina
Brussel. Reuter.
EVRÓPSKIR tóbaksframleiðend-
ur, -seljendur og -verkamenn hafa
vísað á bug gagnrýni heilbrigðis-
stjóra Evrópubandalagsins og
segja verðlækkun eina ráðið til að
auka söluna.
Padraig Flynn heilbrigðisstjóri
fordæmdi nýtt tóbaksverðstríð,
sem hann kallaði brellu til að fjölga
reykingamönnum og fara í kring-
um bann við tóbaksauglýsingum.
„Flynn hefur sagt tóbaksiðnað-
inum stríð á hendur,“ sagði Ro-
bert Toet, formaður sambands
vindlingaframleiðenda í Efna-
hagssambandinu (CECC).
„Ýmsir vilja tóbaksiðnaðinn
feigan," sagði hann í yfirlýsingu
og benti á tilraunir til að koma í
veg fyrir að tóbaksfyrirtæki kosti
íþróttaviðburði og tilraunir til að
afnema styrki til tóbaksbænda.
Toet sagði þetta á blaðamanna-
fundi til að kynna rannsókn, sem
sýnir að tóbaksiðnaðurinn gegni
mikilvægu hlutverki með því að
útvega fólki atvinnu og greiða rík-
inu háa skatta. Hann sagði að
Vísar gagnrýni
heilbrigðisstjóra
ESB á bug
verðlækkun væri eina ráð fyrir-
tækja úr því sem komið væri til
að keppa um viðskipti.
„Verðstríð
skelfilegt"
Remy Tritschler, forseti Evr-
ópusambands tóbaksseljenda
(CEDT), sagði að leyfa ætti vindl-
ingaverzluninni að njóta meiri
sveigjanleika.
„Verðstríð er skelfilegt og
þungbært," sagði hann. Reyking-
ar veita ánægju og eftirspurn mun
halda áfram.“
í Evrópusambandinu reykja
rúmlega 95 milljónir manna, þriðj-
ungur allra fullorðinna.
Samkvæmt rannsókninni á tób-
aksiðnaðinum starfa 1,42 milljónir
manna í tóbaksiðnaðinum, aðal-
lega í Grikklandi og á Ítalíu, og
þeir greiða skatta upp á um 51
milljarð ecu eða 58 milljarða doll-
ara. Tæplega 75% af kostnaði síg-
arettu er skattur sem reykinga-
menn greiða.
í yfirlýsingu í tilefni alþjóða-
dags gegn reykingum sagði Flynn
að 30% allra tegunda krabbameins
tengdust tóbaki, að reykingar yllu
þremur milljónum dauðsfalla á ári
í heiminum og að sex meiriháttar
rannsóknir hefðu leitt í Ijós að
óvirkar reykingar ykju hættu á
lungnakrabba, hjartasjúkdómum
og asma meðal barna.
Að gagnrýninni á verðstríðið
meðtalinni hefur hinn írski heil-
brigðisstjóri ESB ráðizt fjórum
sinnum á tóbaksfyrirtæki á tveim-
ur árum. Gagnrýnin verður rædd
á fundi heilbrigðisráðherra ESB í
vikunni.
Tóbaksframleiðendur gera lítið
með fyrirætlanir nýrrar stjórnar
Verkamannaflokksins í Bretlandi
um bann við tóbaksauglýsingum
og kostun íþróttaviðburða.
Samvinnusjóður íslands hf.
Almennt hlatafjárútboð
Utgefandi:
Sölutímabil:
Samvinnusjóður íslands hf.
4. júní - 31. júlí 1997.
Forkaupsréttur: Félagið sendir þeim hluthöfum forkaupsréttareyðublöð, sem skráðir
voru hjá hluthafaskrá félagsins 17. mars 1997, á aðalfundardegi.
Hluthafar hafa forkaupsrétt að hlutabréfum félagsins á tímabilinu 4. til
18. júní 1997. Þau hlutabréf sem óseld kunna að verða að loknu
forkaupsréttartímabili mun félagið selja á almennum markaði frá 23.
júní 1997.
Nafnverð hlutabréfa: Krónur 200.000.000 að nafnverði, sem er allt nýtt hlutafé.
Sölugengi: Sölugengi til forkaupsréttarhafa er 2,50, en 2,70 í upphafi almennrar
sölu. Gengið getur breyst eftir að almenn sala hefst.
Skilmálar: Skilmálar almennrar sölu eru eftirfarandi: Hlutabréf skulu staðgreidd
við kaup. Lágmarksupphæð er kr. 10.000 að nafnverði. Allt að kr.
30.000.000 að nafnverði verða seldar með þeim hætti að hámarkskaup
hvers kaupanda verða kr. 100.000 að nafnverði. Sú upphæð sem óseld
kann að verða að loknum forkaupsrétti umfram það sem að framan
greinir verður seld án hámarks á hvem kaupanda.
Söluaðilar: Kaupþing hf. og Kaupþing Norðurlands hf.
Skráning: Áður útgefin hlutabréf Samvinnusjóðs íslands hf. eru á Opna
tilboðsmarkaðnum. Óskað er eftir skráningu hlutabréfa félagsins á
Verðbréfaþing íslands að útboði loknu, að því gefnu að markmið um
tilskilinn hluthafafjölda náist.
Umsjónaraðili útboðs: Kaupþing hf.
Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum og útgefanda.
KAUPÞING HF
löggilt verðbréfafyrirtœki
Ármúla 13a, 108 Reykjavík - Sími 515-1500, fax 515-1509
Heildarvelta 333
í verslunargreinum
janúar til febrúar 1996 og 1997
(í millj.kr., án vsk., á verðlagi hvers árs) jan.-feb. jan.-feb. Veltu-
Heildsöludreifing áfengis 1996 1997 breyting
og tóbaks, smásala áfengis *) Heildsölu- og smásöludreifing 1.312,0 1.303,3 j -0,7%
á bensíni og olíum 3.579,5 4.456,9 24,5%
Byggingavöruverslun 1.402,1 1.607,6 14,7%
Sala á bílum og bílavörum 2.689,5 3.131,0 16,4%
Önnur heildverslun 13.488,0 15.105,1 11,7%
Heildverslun samtals: 22.471,1 25.603,9 12,5f§g!
Fiskverslun 143,8 134,1 -6,7%
Kjöt- og nýlenduvöruverslun,
mjólkur- og brauðsala 4.363,5 4.777,8 9,5%
Sala tóbaks, sælgætis
og gosdrykkja 1.244,0 1.092,9 1-12,1%
Blómaverslun 199,2 199,4 0,1%
Sala vefnaðar- og fatavöru 842,8 879,7 | 9,4%
Skófatnaður 105,3 97,7 § -7,2%
Bækur og ritföng 550,4 630,5 14,6%
Lyf og hjúkrunarvara 724,1 740,1 12,2%
Búsáhöld, heimilis- tæki, húsgögn 1.427,2 1.450,7 1,6%
Úr, skartgripir, Ijós-
myndavörur, sjóntæki 151,3 152,4 0,7%
Snyrti- og hreinlætisvörur 88,2 171,7 94,7% KB
Önnur sérverslun, s.s. sportvörur,
leikföng, minjagripir, frímerki o. fl. 562,8 489,7 -13,0%
Blönduð verslun 4.205,1 4.315,1 |2,6%
Smásöluverslun samtals: 14.607,7 15.132,0 3,6%
VERSLUN SAMTALS: 37.078,8 40.735,9 9,9°/i
*) Tölur milli ára eru vart samanburðarhæfar vegna breytts fyrirkomulags
á innflutningi og dreifingu áfengis
Heimild: Þjóðhagsstofnun, skv. virðisaukaskattsskýrslum
NÝJAR Massey Ferguson 4200-dráttarvélarnar voru kynntar
um helgina hjá Ingvari Helgasyni hf.
Ný kynslóð Massey
Ferguson dráttarvéla
INGVAR Helgason hf. kynnti
um síðustu helgi nýja kynslóð
af dráttarvélum af gerðinni
Massey Ferguson. Nýju drátt-
arvélarnar bera heitið Massey
Ferguson 4200 og leysa af hólmi
vélar af 300-gerðinni sem verið
hafa í notkun hér á landi á und-
anförnum árum.
Nýju dráttarvélarnar eru
framleiddar í Coventry í Eng-
landi, þar sem verksmiðju fyrir-
tækisins hefur hefur verið gjör-
breytt til að takast á við þetta
nýja verkefni. Meginbreytingin
er á útliti dráttarvélanna, þar
sem hinar nýju vélar eru með
stærra hús með góðri yfirsýn
og auknu rými. Öll stjórntæki
eru hægra megin við ökumann-
inn, en svonefndum vendigír er
þó haldið vinstra megin við stýr-
ið, að því er fram kemur í frétt.
Rafgeymum hefur verið komið
fyrir frammi í vélarhlíf og hrá-
olíutankurinn er nú undir öku-
mannshúsi. Þetta auðveldar í
senn viðhald og áfyllingu. Enn-
fremur hafa verið gerðar breyt-
ingar á framöxli, beislisbúnaði
og vökvakerfi sem auka dráttar-
og lyftigetu. Massey Ferguson
hefur verið í notkun hér á Iandi
í 50 ár og nú eru fáanlegar allt
frá 16 til 250 hestafla dráttar-
vélar af þessari gerð.