Morgunblaðið - 04.06.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 4. JÚNÍ1997 21
I
I
)
)
I
ingu hægriflokkanna
París. Morgunblaðið.
NÝR forsætisráðherra Frakklands,
Lionel Jospin, birtir væntanlega
ráðherralista sinn í dag eða á morg-
un. Hann kvaðst í gær leggja
áherslu á að ráðherrar sínir hefðu
hreinan skjöld og tengdust engum
hneykslismálum eða öðru er gæti
veikt stöðu þeirra.
Jospin vildi ekki staðfesta neinar
vangaveltar um það hveijir munu
hljóta ráðherrastóla en Ijóst er að
Jacques Delors, fyrrum forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, verður ekki utanríkisráð-
herra, þar sem dóttir hans, Martine
Aubry, er líklegt ráðherraefni. Del-
ors gæti hins vegar orðið sérlegur
fulltrúi Frakklands í myntbanda-
lagsmálum. Næsta víst er að Laur-
ent Fabius, fyrrum forsætisráð-
herra, verði þingforseti en þingkon-
an Ségolene Royal sækist einnig
opinberlega eftir embættinu. Ljóst
er að stjórnarritarinn, pólitískt skip-
aður embættismaður í forsætis-
ráðuneytinu, verður lögfræðingur-
inn Olivier Schrameck, sem verið
hefur aðalritari stjórnlagaráðsins
frá árinu 1993.
Valdaskiptin í Matiognon, aðsetri
forsætisráðherrans, gengu fljótt
fyrir sig í gærmorgun. Athöfnin
stóð í aðeins fimmtán mínútur.
Jospin verður að birta málefnalista
stjórnar sinnar innan fimmtán daga
og búist er við að lagðar verði fram
breytingartillögur við fjárlög ekki
síðar en í næsta mánuði.
Þögn Jacques Chiracs forseta
hefur vakið athygli fjölmiðla. Dag-
blaðið Parisien sagði í fyrirsögn á
forsíðu í gær: „Chirac verður að tjá
sig“. Blaðið sagði þjóðina vilja vita
hug hans til væntanlegs samstarfs
við vinstristjórn. Óvissa væri óþol-
andi.
Sameining hægriaflanna?
Sumir talsmenn gamla stjórnar-
meirihlutans hafa í kjölfar úrslit-
anna viðrað hugmyndir um sam-
runa flokka á hægrivængnum. Dag-
blaðið Le Monde bendir á að hægri-
flokkarnir, að Þjóðarfylkingunni
meðtalinni, hafi stuðning meirihluta
Frakka. Vinstrimenn hafi náð að
sigra vegna þess að atkvæðin skipt-
ust á þijá vegu í síðari umferðinni,
Talebanar
endurheimta
mikilvæg
landsvæði
Pul-i-khumri í Afghanistan. Reuter.
HERSVEITIR Taleban-hreyfingar
múslima í Afganistan náðu í gær á
sitt vald bænum Jabal os-Siraj,
norður af höfuðborginni Kabúl.
Fréttastofan Afghan Islamic Press
í Pakistan greindi frá þessu í gær.
Bærinn stendur við helsta þjóð-
veginn frá Kabúl til norðurhluta
Afganistan, þar sem andstaða við
stjórn Talebana, sem ráða um tveim
þriðju hlutum landsins, er sterkust.
Er bærinn því hernaðarlega mikil-
vægur.
Ennfremur greindi upplýsinga-
málaráðherra stjórnar Talebana frá
því í gær að hersveitir stjórnarinnar
hefðu náð á sitt vald bænum Golba-
har og hluta nærliggjandi bæjar úr
höndum liðsmanna stjórnarand-
stæðingsins Ahmad Shah Masood.
Ekki hefur fengist staðfest af óhlut-
drægum aðilum hvort Golbahar
hafi fallið.
Liðsmenn Mashoods tóku báða
þessa bæi herskildi í síðustu viku
og hröktu Talebana á brott frá þeim.
á hægriflokkana, vinstriflokkana
og Þjóðarfylkinguna.
Talsmenn íjóðarfylkingarinnar
sögðu við Le Monde í gær að þeir
vildu taka þátt í að endurmóta og
styrkja samband hægriflokka. Einn
þingmanna flokks nýgaullista
(RPR) sagði sameiningu einungis
fræðilegan möguleika. Dagblaðið
Le Figaro sagði í forsíðugrein í gær
að nú skipti öllu fyrir hægrimenn
að sameina krafta sína. Frakkar
væru í raun flestir hægrisinnaðir,
líkt og forseti þeirra. Höfundur
greinarinnar, Alain Peyrefitte,
minnti á að kommúnistar, sem áður
þóttu álíka hættulegir og Þjóðar-
fylkingin nú, hafi átt aðild að ríkis-
stjórn í forsetatíð Francois Mitter-
rands. Georges Marchais, fyrrum
formaður Kommúnistaflokksins,
hafi samt verið stalínisti en núver-
andi formaður, Robert Hue, væri
mun hófsamari. Hann gaf þannig
í skyn að Þjóðarfylkingin gæti brátt
átt betri samleið með hinum hóf-
samari hægriflokkum. Formanns-
skipti væru fyrirsjáanleg.
Reuter
FRÁFARANDI forsætisráðherra, Alain Juppé, heilsar Lionel
Jospin sem tók við lyklavöldum í Matignon í gær.
a eignast
tarspil...
...meö Jóni Arnari
Magnússyni og
Snœfinni snjókarli.
Nú er kjöriö tœkifœri að
gerast félagi íÆskulínu
Búnaöarbankans.
Félagar sem leggja inn á
Stjörnubók Æskulínunnar í
júnífá Tugþrautarspiliö
aögjöf.
Snœfinnur snjókarl
lukkudýr Smáþjóöaleikanna
í Reykjavík 2. - 7. júní.
Beðið eftir ráðherralista Jospins
Kröfur um samein-