Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Málefni samkynhneigðra
til umræðu á Prestastefnu
DRÖG að samþykktum um málefni
samkynhneigðra voru kynnt á
Prestastefnu á Akureyri í gær. Séra
Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprest-
ur í Keflavík, sem farið hefur fyrir
þeirri nefnd sem vann að drögunum,
fiutti framsögu. í fyrirliggjandi
drögum er hvatt til þess að helgisiða-
nefnd verði falið að undirbúa bæn
og blessun fyrir samkynhneigt fólk,
sem staðfest hefur samvist sína.
Einnig er í drögunum hvatt til
að haldið verði áfram fræðsluátaki
á vegum íslensku þjóðkirkjunnar
um málefni samkynhneigðra, til að
eyða fordómum, ranghugmyndum,
fælni og til að efla skilning á sam-
kynhneigð. Minnt er á að bæði
kirkjuþing og leikmannastefna
þjóðkirkjunnar hafa hvatt til nær-
færinnar umræðu um málefni sam-
kynhneigðra.
Loks er hvatt til að samþykktir
og greinargerðir kirkjunnar um
þetta viðkvæma málefni verði
kynntar sérstaklega fyrir leik-
mannahreyfmgu þjóðkirkjunnar og
forstöðumönnum annarra trúfé-
laga, svo um það náist sem víðtæk-
ust samstaða.
Full alvara í málinu
Miklar umræður urðu um fyrir-
liggjandi drög og verður þeim fram
haldið í dag. í umræðunum kom
helst fram ágreiningur um þann lið
er snýr að helgisiðanefnd.
Ólafur Oddur sagði skipta miklu
máli hvernig Prestastefnan ályktar
um þetta mál og þá hvert framhald-
ið verður. „Það er full alvara í þessu
máli en þó getur verið nauðsynlegt
að taka þetta í áföngum, því bæði
þurfí þjóðin og kirkjan umþóttunar-
tíma. Menn vilja tryggja að þetta
mál fái farsæla lausn.“
I greinargerð með drögunum
kemur m.a. fram að biskup Islands
og þjóðkirkjan hafí lagt á það
áherslu að engum verði synjað um
fyrirbæn. „Talið er að um 5% karla
og kvenna á Vesturlöndum séu sam-
kynhneigð. Þessu fólki fínnst það
hafa goldið fyrir ósanngimi, for-
dóma, andúð og að mannréttindi
hafí verið brotin á því. Samkyn-
hneigðu fólki hefur oft verið hafnað
af eigin fjöldskyldum. Kristnir menn
hafa dæmt áskapaða kynhneigð þess
sem syndsamlega. Jafnvel hefur ver-
ið dregið í efa að samkynhneigðir
gætu starfað fyrir kirkjuna.
Læknar töldu það áður fyrr sjúkt
og lög gáfu í skyn eitthvað glæp-
samlegt. Það er fyrst og fremst á
síðustu árum að kirkjunnar þjónar
hafa sýnt samkynhneigðum aukinn
skilning. Þekking á eðli og mótun
samkynhneiðgar hefur opnað augu
æ fleiri fyrir að hneigðin er hvorki
synd né sjúkdómur," segir í greinar-
gerðinni.
Fjölmennt knattspyrnumót
Fjölgar um tvö
þúsund manns í
V estmannaeyj um
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
UNGIR knattspyrnumenn fjöl-
menntu til Vestmannaeyja í
gær þar sem næstu daga fer
fram árlega knattspyrnumót,
Shellmót IBV.
í gærkvöldi fór hópurinn í
skrúðgöngu að Hásteinsvelli
þar sem mótið var sett. Rúm-
lega 900 þátttakendur eru í
mótinu en forsvarsmenn móts-
ins reikna með að rúmlega
annar eins fjöldi fylgi þátttak-
endum. Það verða því um 2000
manns sem heimsækja Eyjarn-
ar um helgina sem er um 40%
aukning á fólksfjölda i Eyjum.
Mikil örtröð var hjá flutn-
ingsaðilum í gær vegna móts-
ins. Flugfélag Islands flutti um
500 farþega í 15 ferðum, Flug-
félag Vestmannaeyja flutti um
50 farþega frá Bakka og um
800 manns komu með Heijólfi
í tveimur ferðum í gærdag.
Mikið er pantað fram að helgi
en fleiri foreldrar og aðrir sem
áhuga hafa á að fylgjast með
mótinu eru væntanlegir þá.
Friðrik Pálsson
talar á ráð-
stefnu ESB
FRIÐRIK Pálsson, forstjóri Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna, flytur
erindi og tekur þátt í pallborðs-
umræðum á ráðstefnu, sem Evrópu-
sambandið heldur í Brussel í dag og
á morgun. Friðrik er eini fulltrúinn
utan ESB sem heldur framsögu-
erindi á ráðstefnunni, sem fjalla mun
um framleiðslu sjávarafurða, áætl-
anir og viðfangsefni henni tengd.
Yfír 200 fulltrúar og sérfræðingar
á sviði sjávarútvegs koma til með
að taka þátt og flytur Emma Bon-
ino, framkvæmdastjóri sjávar-
útvegsmála á vegum ESB, opnun-
arræðu ráðstefnunnar, sem er sú
fyrsta sinnar tegundar, en ekki sú
eina þar sem að ESB hefur á pijón-
unum fleiri slíka fundi með þjóðum
og landssvæðum, sem eiga mikið
undir sjávarútvegi.
Markmið fundaherferðarinnar er
að freista þess að fá heildarsýn yfir
núverandi stöðu og þróun greinar-
innar svo og að meta þá umbreyt-
ingu, sem til þarf, til að auðvelda
og styrkja samræmingu hinna ýmsu
hagkerfa. ESB leggur fram sem
svarar 600 millj. ECU á árabilinu
1994-1999 til að bæta samkeppnis-
hæfni fískiðnaðar innan bandalags-
ins til að auðvelda greininni að kom-
ast yfír þá erfiðleika, sem við blasi.
í þessu tilliti er sérstök áhersla lögð
á svæði, sem byggja mikið á físk-
veiðum og vinnslu.
♦ ♦ ♦----
Rallkappar fá
2 milljónir
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
styrkja verkefnið Rallí Reykjavík um
2 milljónir króna.
Atvinnu- og ferðamálnefnd hefur
samþykkt þróunaráætlun um fram-
kvæmd Rallí Reykjavík, sem Lands-
samband ísl. akstursíþróttamanna
stendur fyrir. í áætluninni felst að
verkefnið verði styrkt með 800 þús.
króna framlagi á árinu 1997 og 1,2
millj. á árinu 1998. Lagði stjórn
Atvinnu- og ferðamálanefndar til að
borgarráð samþykkti áætlunina.
EIGNAMEÐUMN
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, sölustjóri.
Sími 55555 9(»9() • Fax 555« 9095
SíAimuila — I
Garðastræti - hæð og ris
Vorum að fá í einkasölu fallega 215 fm hæð og ris
í þessu húsi. Hæðin er með mikilli lofthæð og
skiptist í hol, eldhús, bað, 3 herb. og 2 saml. stofur.
í risi eru 3 herb. og snyrting. Góður bílskúr. Góð
eign á vinsælum stað. Verð 14,0 millj. 7725.
Nefndafundir Norðurlandaráðs
Niðurskurður á
fjárlögum líklegur
Ok á ljósa-
staur og
þrjár bif-
reiðar
UNGUR ökumaður missti
stjórn á bíl á Gerðavegi í Garði
í gærmorgun, eftir gáleysisleg-
an akstur. Hafnaði bíllinn á
ljósastaur og síðan á þremur
kyrrstæðum bifreiðum. Urðu
verulegar skemmdir á þremur
ökutækjanna, en engin slys á
fólki. Samkvæmt upplýsingum
lögreglu viðurkenndi ökumað-
ur að hafa ekið á tæplega 100
kílómetra hraða og var sviptur
ökuleyfi til bráðabirgða.
VALGERÐUR Sverrisdóttir, for-
maður íslandsdeildar Norðurlanda-
ráðs og fulltrúi í forsætisnefnd ráðs-
ins, býst við því að niðurskurður á
fjárlögum Norðurlandaráðs fyrir
árið 1998, verði einhveijir tugir
milljóna króna, en samstarfsráðherr-
ar Norðurlandaráðs, sem nú funda
í Svíþjóð, munu leggja fjárhagsáætl-
unina fyrir forsætisnefndina í dag
til umsagnar.
Þetta kom m.a. fram í samtali
Morgunblaðsins við Valgerði í gær
í tilefni af því að þá hófust nefnda-
fundir Norðurlandaráðs á Grand
Hótel í Reykjavík, en áætlað er að
þeim ljúki á föstudag. Um 140
manns taka þátt í fundunum og er
þetta í fyrsta sinn sem sameiginleg-
ir nefndafundir Norðurlandaráðs eru
haldnir hér á landi.
Að sögn Valgerðar mun fyrmefnd-
ur niðurskurður ekki þýða róttækar
breytingar á samstarfinu innan Norð-
urlandaráðs, því ekki sé verið að tala
um að leggja niður stofnanir. Hins
vegar gæti þetta haft áhrif á íjárveit-
ingar til sérstakra verkefna.
Fimm nefndir starfa nú innan
Norðurlandaráðs og eru þær auk
forsætisnefndar, Norðurlandanefnd,
grannsvæðanefnd, Evrópunefnd og
eftirlitsnefnd, en nefndarfyrikomu-
lagi ráðsins var breytt haustið 1995.
Morgunblaðið/Birla Rós Amórsdóttir