Morgunblaðið - 26.06.1997, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997 21
Um fimmtíu þúsund ný reiðhjól flutt til landsins síðustu þijú ár
Höfuðáverkar
vegna reiðhjóla-
slysa algengir
UNDANFARIN ár hefur hjólreiða-
notkun aukist mikið. Samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu íslands
voru á fyrstu fjórum mánuðum
þessa árs flutt tii landsins 10.806
reiðhjól. Sé litið til síðustu þriggja
ára er ekki fjarri lagi að álykta að
um fimmtíu þúsund hjól hafi bæst
við hjólaeign landsmanna á þeim
tíma.
Herdís Storgaard, barnaslysa-
varnarfulltrúi Slysavarnafélags ís-
lands, segir að samfara aukinni
reiðhjólanotkun hafi slysum íjölgað.
„Um helmingur allra slysa á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur þar
sem höfuðáverkar koma við sögu
eru vegna hjólreiða", segir hún.
„Það er því aldrei of varlega far-
ið því aðstaða til hjólreiða er ekki
sú ákjósanlegasta. Það er lítið um
hjólreiðarstíga og fólk er því oft að
hjóla í mikilli umferð. Það er átak-
anlegt að horfa á fjölskyldu vera
að hjóla og börnin með hjálma en
ekki foreldrarnir. Hvað eiga börnin
að gera verði foreldrarnir fyrir slysi?
í auknum mæli verð ég vör við það
hér á höfuðborgarsvæðinu að for-
eldrarnir eru með hjálma. Því miður
er ekki sömu sögu að segja af lands-
byggðinni."
Velja sæti með DS gæðastimpli
— En hvað með aðbúnað ung-
barna sem eru aftan á hjólum?
„Ég ráðlegg fólki 'eindregið að
bytja ekki að hjóla með börn fyrr
en þau eru orðin níu mánaða. Fram
að þeim tíma er mjög erfitt
fyrir bömin að halda jafn-
vægi og þau sitja ekki al-
mennilega í sætinu. Þegar velja
á sæti fyrir barnið mælum við
eindregið með gæðastimpli sem
kallast DS staðall. Það er eini
staðallinn sem við ráðleggjum.
Hann er danskur og sá
strangasti í heiminum. Stað-
allinn gerir ráð fyrir tvöföldu
festingarkerfi."
Herdís segir að ekki sé
nóg að huga að góðu sæti
fyrir barnið, hjólið þurfi
líka að vera í lagi.
„Bremsurnar þurfa að
vera samtengdar þannig
að bremsist á báðum
hjólum í einu og síðan þarf að vera
öruggt að hjólið þoli þetta auka-
álag.“
Ef stóllinn er þannig útbúinn að
hann á að festast á bögglabera
þarf hann einnig að þola álagið.
Þá bendir Herdís á að fólk eigi
endilega að fara eftir leiðbeiningum
um festingar sætisins á hjólið. „Þá
ætti fólk að hafa hugfast að alltaf
þarf að fara yfir uppherðingarnar
því þegar verið er að hjóla vilja
festingarnar losna aðeins. Það hafa
orðið slys hérlendis og börnin dottið
úr sætinu aftur fyrir sig vegna
þessa. í þeim tilfellum fá börnin
högg á bak og höfuð. Á hinn bóg-
inn er jákvætt að upplýsa að í þeim
tilfellum, sem ég hef upplýsingar
um slys af þessum toga, voru börn-
in með hjálma og fór ekki mjög illa.
Það er oft erfitt að hjóla með
börn eftir að þau hafa náð tuttugu
kílóa þyngd enda eru stólar oft
ekki ætlaðir börnum sem eru
þyngri. Síðan er gott að hafa hug-
fast að þó fólki sé heitt á ferðinni
þá getur börnunum verið kalt. Þau
sitja hreyfingarlaus aftan á hjól-
inu.“
Ungbarnahjálmar
og teinahlífar
Það eru til sérstakir ungbarna-
hjálmar sem eru hannaðir fyrir börn
frá níu mánaða aldri. Annað sem
Herdís talar um er að æskilegt sé
að stóllinn sé með góðu plássi fyrir
fæturna. Hann þarf að hafa bak
og hálsstuðning. „Öryggisútbúnað-
ur sem ég vil benda sérstaklega á
er grind eða skermur sem skellt er
í brettið að aftan og hindrar að
barnið fari með
tærnar milli
teinanna. Þau
eiga til losa sig
og ef barnið er
það langt að
hnén eru bogin
þarf að huga
að þessu.
Þetta er aukaöryggisatriði en ákaf-
lega mikilvægt. Það hefur verið
komið með börn á slysadeildina eft-
ir að þau hafa fest tærnar í teinum
og þetta eru ljót slys þar sem bæði
barnið og sá sem hjólar slasast illa.
Allir hjálmar með
CE merkingu
Herdís bendir á að hjálmar eiga
að vera með CE merkingu annars
eru þeir ólöglegir. Hún segist vilja
brýna fyrir foreldrum að láta börn
ekki vera með húfu undir hjálmi
Afurðamarkaður Suðurlands Sala 24. júní 1997
Vörutegund Lágmarks verð Hámarks verð
Svínaskrokkar, heilir 1A 240
Svínaskrokkar, heilir 1A J 205
Svínahnakki 315 Æ 321
Svínasíða 204
Svínalundir f 929
Svínaskankar 35
I
í TÖFLUNNI er að finna upplýsingar frá vikulegu uppboði
Afurðamarkaðar Suðurlands sem haldinn er á þriðjudögum.
ÞAÐ er gaman þegar fjölskyldan getur öll farið saman í hjól-
reiðatúr en þá þarf að huga að öryggi allra. Litlu börnin, sem
eru aftan á hjá mömmu eða pabba, þurfa að vera í öruggu
sæti, hjálmurinn þarf að passa og gott að hafa teinahlífar líka.
í fyrra segir Herdís að barn hafi
dottið aftur fyrir sig af sæti sem
var samkvæmt þýskum staðli. „Við
höfðum samband við innflytjendur
og í framhaldi voru allir þessir stól-
ar teknir úr sölu.“
Fimmtán ára
mega reiða
Að gefnu tilefni segist Herdís
vilja benda á að börn og unglingar
megi alls ekki reiða annað barn
nema þau séu orðin fimmtán ára.
heldur með þunna lambhúshettu.
Húfur draga úr öryggi hjálmsins.
— Hvernig er úrvalið af sætum
á hjól fyrir börn?
„Úrvalið er nokkuð fjölbreytt og
yfirleitt koma þau frá viðurkennd-
um stórum fyrirtækjum. Þó hafa
stungið upp kolli sæti sem eru fram-
leidd samkvæmt þýskum staðli. Sá
staðall er hins vegar alls ekki nógu
góður og við gerð evrópsks staðals,
sem verið er að semja, er þessi
danski hafður til hliðsjónar."
NöRMMAMI
Útsölustaðir:
BRÁ Laugavegi,
HYGEA Kringlunni og Austurstræti,
LAUGAVEGSAPÓTEK,
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN Glæsibæ,
NANA Hólagarði, SANDRA Hafnarfirði,
EVITA Borgarkringlunni, HILMA Húsavík
og SPES Háaleitisbraut.
r||Y i]i
j§
HAGKAUP
HÚSASMIÐJAN
Shellstöðvarnar
FLUGLEIDIR
BIFREIÐASKOOUN HF
Tæknival
HANsFtmíEN
FLUGFÉLAO ÍSLANDS
® TOYOTA