Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Tjaldað við strönd
og fjöll í Mýrdal
MYRDALUR byrjar á sandi og
endar á sandi. Hann afmarkast af
Jökulsá á Sólheimasandi í vestri
og Blautukvísl á Mýrdalssandi í
austri en þrátt fyrir þetta er að
finna í Mýrdalnum ótrúlega mörg
sýnishorn af fjölbreytileika ís-
lenskrar náttúru t.d. Dyrhólaey,
Reynisdranga, Hjörleifshöfða og
Höfðabrekkuafrétt sem á fáa sína
líka með djúpum giljum svo eitt-
hvað sé nefnt.
Eftirtektarverðast við Mýrdal-
inn er hvað fjöllin eru gróin upp á
fjallsbrúnir og hjálpast þar að að
veðurfar er frekar milt og fjöllin
eru yfirleitt úr móbergi. Þá er mik-
ið fuglalíf í öllum hömrum og gilj-
um, víðast má sjá fýlinn sem er
eitt af táknum Mýrdalsins.
Eitt af stærri kríuvörpum lands-
ins er í miðju iðnaðarhverfinu í
Vík í Mýrdal. Mýrdalurinn er land-
búnaðarhérað með Mýrdalsjökul
sem skrauthúfu í bakgrunninn þar
sem Katla, ógnvaldur héraðsins,
sefur, hún hefur ekki gosið síðan
1918. í suðri er ein af 10 fegurstu
ströndum heims með brimið gjálfr-
andi í fjöruborðinu, mjög sjaldgæft
er að sjá sjóinn alveg kyrran.
Úrval
gistimöguleika
í Mýrdalnum er mikið og fjöl-
breytt úrval af gistimöguleikum,
allt frá tjaldstæðum til gistingar í
svefnpokaplássum eða á fyrsta
flokks hótelum með öllum þægind-
um.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
TJALDSTÆÐIÐ í Vík í Mýrdal er búið flestum þægindum sem í boði eru á tjaldstæðum.
ta eignast
utarspil...
...meö JóniAmari
Magnússyni og
Snœfinni snjókarli.
Nú er kjöriö tœkifæri aö
gerast félagi í Æskulínu
Búnaöarbankans.
Félagar sem leggja inn á
Stjömubók Æskutínunnar í
júní fá Tugþrautarspiliö
aögjöf.
Snœfinnur snjókarl
lukkudyr Smdþjóöaleikanna
í Reykjavík 2. - 7. júní.
BUNAÐARBANKINN
-Traustur banki
Ferðafélag íslands
Afmælis-
ferð í
Þórsmörk
YFIR sumartímann og fram á
haust býður Ferðafélag íslands
skipulagðar ferðir í Þórsmörk um
hverja helgi. í júlí og ágúst er einn-
ig boðið uppá ferðir þangað á mið-
vikudögum og ennfremur eru
dagsferðir flesta sunnudaga og
miðvikudaga í sumar.
Á morgun verður lagt af stað í
afmælisferð félagsins sem er 70
ára um þessar mundir. Ferðin
nefnist fjölskylduhelgi en á dag-
skrá eru meðal annars léttar
gönguferðir, ratleikir, grill og
kvöldvökur. Á sunnudagsmorgni
gefst einnig kostur á léttri göngu-
ferð í Strákagil en á heimleið verð-
ur stoppað við risasteininn Jóhann-
es og gengið yfir nýju göngubrýrn-
ar á Steinholtsá og Jökulsá. Á
dagskrá laugardagsins verður m.a.
þjóðsöguganga þar sem koma við
sögu útlaginn Snorri í hellinum
Snorraríki, Fjallbúinn í Húsadal
og tröllskessan við Sóttarhelli.
----» ♦ ♦----
Lónkot 1 Sléttuhlíð
Tónleikar í
tjaldi galdra-
mannsins
HÁLFDÁNARHRINGUR, tjald
galdramannsins, er nýtt mannvirki
sem stendur við Lónkot í Sléttu-
hlíð, skammt norður af Hofsósi í
Skagafirði. Um er að ræða 700
fermetra stórt tjald sem er I senn
sýningargripur og skemmtistaður
m.a. fyrir tónleika, leikverk og
ættarmót.
Hringurinn er kenndur við sr.
Hálfdán Narfason að Felli í Sléttu-
hlíð en hann var galdramaður uppi
á 16. öld. Hlaðnir veggir úr sjávar-
gijóti setja svip sinn á tjaldið inn-
anvert en grasivaxnir jarðhryggir
mynda útveggi þessa mannvirkis.
Næstkomandi laugardag, þann
28. júní, heldur Hermann Jónsson
harmonikuleikari þar tónleika. Þeir
hefjast kl. 23.00 og standa til kl.
3.00 um nóttina.
Eitt blað
fyrir alla!
- kjarni málsins!