Morgunblaðið - 26.06.1997, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Valdhafar í
Hong Kong
hrósa happi
Hong Kong. Reuter.
VERÐANDI valdhafar Hong Kong
hrósuðu tvöföldu happi í gær er
annars vegar var samþykkt á
Bandaríkjaþingi að framlengja
bestu viðskiptakjör handa Kína eitt
ár til viðbótar og hins vegar er til-
raunir Breta til þess að fá þjóðir
heims til að hundsa valdatöku nýrra
valdhafa í bresku nýlendunni fyrr-
verandi virtust ætla að fara út um
þúfur.
Kínveijar héldu vildarstöðu sinni
í viðskiptum er tillaga um að af-
nema hana var felld með 259 at-
kvæðum gegn 173 í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings í fyrradag. Bill
Clinton forseti fagnaði niðurstöð-
unni en þingmenn sem rýra vildu
kjör Kínvetja sögðu réttara að
refsa þeim vegna mannréttinda-
brota, afstöðu þeirra til Tævans
og vegna þess hversu óhagstæð
viðskipti landanna væru Banda-
ríkjunum.
Með samþykktinni lendir hin
nýja stjóm Hong Kong, sem lifir
á viðskiptum við Kína, ekki mitt á
milli í viðskiptastríði stórveldanna
tveggja.
Þá tilkynntu bandarísk stjórn-
völd að ræðismaður þeirra í Hong
Kong, Richard Boucher, yrði við-
staddur er nýir valdhafar í Hong
Kong sveija embættiseiða skömmu
eftir að breskum yfirráðum lýkur á
miðnætti næstkomandi mánudags-
kvöld. Madeleine Albright utanrík-
isráðherra ítrekaði hins vegar að
hún myndi hvergi koma nærri há-
tíðahöldunum í Hong Kong. Bretar
hafa reynt að mynda samstöðu
vestrænna ríkja um að taka ekki
þátt í þeim og er ákvörðunin um
að bandaríski ræðismaðurinn verði
viðstaddur því túlkuð sem áfall fyr-
ir þá. Talsmaður breska utanríkis-
ráðuneytisins vísaði því á bug að
breska stjómin hefði gefist upp og
ákveðið að senda tvo embættis-
menn til athafnar í tilefni embættis-
tökunnar. í því fælist engin stefnu-
breyting eða viðurkenning á hinni
sérútvöldu löggjafarsamkundu er
við tæki í Hong Kong.
Reuter
LÚÐRASVEITIR breska hersins léku hinsta sinni opinberlega
í Hong Kong í gær. Fylgdust um 30.000 manns með og tók
skarinn undir er sveitin spilaði God Save the Queen.
Náttúruleg
sýklavörn
húðarinnar
London. Reuter.
HÚÐ manna framleiðir náttúrulega
sýklavörn, sem ver líkamann árásum
gerla, að sögn þýskra vísindamanna,
sem starfa við háskólann í Kiel.
Telja þeir uppgötvun sína geta orðið
grunn að nýju sýklalyfi, að því er
segir í nýjasta hefti vísindaritsins
Nature.
Vísindamennirnir líkja sýklavörn-
inni, human beta-defensin-2
(hBD-2), við efnahjúp. Þegar hann
sé rofinn, líkt og gerist hjá fólki
með cystic fibrosis, sjúkdóm sem
lýsir sér einkum í truflunum á starf-
semi lungna og meltingarfæra, verði
vart sýkingar í húð. Vísindamennirn-
ir uppgötvuðu sýklavörnina þegar
þeir rannsökuðu hvers vegna fólk
með húðsjúkdóminn psoriasis fái
sjaldan sýkingu, þrátt fyrir að húðin
flagni sökum sjúkdómsins.
I ljós kom að sýklavörn húðarinn-
ar vinnur vel á gerlum á borð við
E-coli, sem veldur matareitrun, og
gersveppnum Candida albicans, sem
veldur sýkingum. Sýklavörnin vinn-
ur hins vegar ekki eins vel á stap-
hylococcus-gerlinum, sem er oftast
að finna á húðinni sjálfri og getur
valdið lífshættulegum sýkingum.
Vitað er um aðra náttúrulega
sýklavörn, sem kallast hBD-1, en
hana er að finna í þvagblöðrunni,
kynfærum og lungum.
Engar geimverur í Roswell
Washington. Reuter.
BANDARÍSKI flugherinn segir í
skýrslu, sem gefin var út í fyrra-
dag, að „geimverurnar", sem
fundust í eyðimörk Nýju Mexíkó
fyrir 50 árum, hafi aðeins verið
brúður, sem látnar voru svífa úr
mikilli hæð til jarðar í fallhlífum.
I skýrslunni, sem er 231 síða
og er ætlað að binda enda á ára-
tuga vangaveltur um svokallað
Roswell-atvik, er því með öllu
hafnað að bandaríski herinn hafi
fundið lík áhafna fljúgandi diska
sem brotlent hafi skammt frá
bænum 7. júll 1947 ogreyntað
hylma yfir það allar götur síðan.
Grunsemdir um að eitthvað
óeðlilegt væri á sveimi vöknuðu
er herinn vann að því skammt frá
Roswell að ná niður belgjum sem
sendir höfðu verið á loft til há-
loftarannsókna. Lík meintra
geimvera, sem sjónarvottar sögð-
ust hafa séð í eyðimörkinni, voru
brúður sem látnar voru falla til
jarðar í fallhlífum úr mikilli hæð
um sama leyti og unnið var að
björgun belgjanna.
Sagan um geimverurnar hefur
reynst lífseig og búist er við, að
allt að hundrað þúsund manns,
sem trúa því að geimverur séu
til, komi til Roswell í næstu viku
í tilefni 50 ára afmælis hinnar
meintu geimskipslendingar. Til
að auka á óvissuna kveðst blaða-
fulltrúi hersins, Walter Haut, sem
sendi út fréttina um diskinn fljúg-
andi, enn trúa því að hún hafi í
raun verið rétt. Myndin hér til
hliðar fylgir skýrslu flughersins.
Hún er af Viking-rannsóknafari,
sem tekin var 1972 þar sem farið
hafði hrapað til jarðar í eyðimörk-
inni í Nýju Mexíkó. Með slíku
myndefni vill herinn sanna að
„Roswell-geimskipið" hafi aðeins
verið tilraunaloftfar flughersins.
Reuter
Franskí haffræðingurinn Jacques-Yves Cousteau látinn á 88. aldursári
Kafteínnínn sem sýndi
undur undirdjúpanna
Reuter
JACQUES Yves Cousteau ásamt seinni konu sinni, Francine.
París. Reuter.
FRANSKI haffræðingurinn Jacqu-
es-Yves Cousteau, sem lést í gær
á 88. aldursári, miðlaði leynd-
ardómum hafanna til almennings
um veröld víða með margverðlaun-
uðum kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum. Jacques Chirac Frakk-
landsforseti lýsti hryggð frönsku
þjóðarinnar við fráfall hans og
sagði Cousteau hafa verið heillandi
mann og líklega þekktari meðal
þjóða heims en nokkur annar
Frakki.
Stofnun, sem kennd var við Co-
usteau, skýrði frá andláti hans í
gærmorgun en greindi ekki frá
dánarorsök. Hann fæddist 11. júní
1910 í vínhéraðinu Bordeaux en
ólst upp í París og New York. Síð-
ar lá leið hans í háskóla franska
flotans í Brest. Að frátöldum árum
sem hann tók þátt í aðgerðum
frönsku andspyrnuhreyfingarinnar
gegn nasistum á stríðsárunum
þjónaði Cousteau í franska flotan-
um 1930 til 1950. Sagði hann sig
úr flotanum það ár til þess að hefja
haffræðirannsóknir sínar á
Calypso. Undur hafdjúpanna höfðu
heillað hann löngu áður, eða allt
frá því hann sem ungur flotaforingi
í Indókína fylgdist með kínverskum
sjómanni kafa án súrefnistækja og
veiða físk með höndunum einum.
Leiddi það til þess að árið 1943
smíðaði hann ásamt frönskum
verkfræðingi, Emile Gagnan,
fyrsta nothæfa froskköfunarbún-
aðinn.
Kafteinn Cousteau, eins og hann
var jafnan nefndur, ritaði ijölda
bóka og stjórnaði gerð kvikmynda
um athuganir sínar á heimshöfun-
um, Amazon-svæðinu og á Suður-
skautslandi. Fyrir þær vann hann
meðal annars þrisvar Oskarsverð-
laun og þtjár æðstu viðurkenningar
kvikmyndahátíðarinnar í Cannes.
Kunnastur er hann þó líklega fyrir
sjónvarpsþættina „Hafheimar
Jacques-Yves Cousteau", sem sýn-
ingar hófust á 1965.
Cousteau naut ekki 'aðeins virð-
ingar og vinsælda á alþjóðavísu
heldur var hann margsinnis kosinn
vinsælasti maður ársins í Frakk-
landi. Hann sat í frönsku vísinda-
akademíunni frá 1988. Hann lét
umhverfisvernd mjög til sín taka
en ákafast beitti hann sér þó gegn
mengun hafanna. Sagði hann ný-
verið, að losun óniðurbijótanlegra
eiturefna væri mesta hætta sem
steðjaði að heimshöfunum á næst-
unni. „Við höfum ekkert leyfi til
þess að fleygja þessum efnum inn
í vatnsrásina. Með því stuðlum við
að útrýmingu seinna meir,“ sagði
hann. Tók hann m.a. þátt í mót-
mælum í Suður-Kyrrahafí 1995
gegn kjarnorkutilraunum sem
stjórn Chiracs stóð fyrir þar um
slóðir.
Þá varði hann 900 þúsund dollur-
um, jafnvirði 63 milljóna króna,
árið 1978 til þess að rannsaka
hversu mengað Miðjarðarhafið
væri af eiturefnaúrgangi. Um það
leyti sagðist hann vera hættur að
synda í sjónum við Mónakó vegna
mengunar en þar hafði hann synt
hvern dag 20 árum áður. „Ég hef
ekki tíma til þess að sigla 20 kíló-
metra á haf út til að komast í hrein-
an sjó.“
Við rannsóknir sínar á heimshöf-
unum sigldi Cousteau á skipi sínu
Calypso, gömlum breskum tundur-
duflaslæðara, sem hann hafði
breytt í fljótandi rannsóknarstofu.
Mikla eftirtekt hlaut það afrek
Cousteau er hann setti upp neðan-
sjávarstöð á Iandgrunnsbrúninni
undan Marseille í Frakklandi árið
1962. Var það í fyrsta sinn sem
menn dvöldust langdvölum neðan-
sjávar en tveir menn höfðust við í
stöðinni, Díógenesi, í röska viku.
Vindknúið skip
Nýjasta uppfynding hans var
vindknúið skip. Farkostur sá var
búinn háum rörum, sem minntu á
skorsteina, en inn um þau sogaðist
loft er beint var um vindgöng og
túður til þess að knýja farkostinn
áfram. Fyrsta ferðin á hinni 42
tonna „vindmyllu“ varð þó enda-
slepp. Komst skipið út á mitt Atl-
antshaf í október 1983 en tommaði
ekki áfram mót miklu hvassviðri.
Gafst hann ekki upp og í maí 1985
lagði hann úr höfn öðru sinni, að
þessu sinni á helmingi stærri og
endurbættum farkosti, Alcyone,
sem sigldi um heimshöfin í hálft
þriðja ár. Að því búnu hélt Coust-
eau því fram að aflbúnaður hans,
þar sem hvorki eru brúkuð segl né
eldsneyti, gæti valdið byltingu í
sjóflutningum framtíðarinnar og
dregið úr olíunotkun um a.m.k.
40%.
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, sagði Cousteau hafa verið
hetju í sínum huga og kvaðst hann
hafa lært „reiðinnar ósköp" af hon-
um. „Hann var stórmenni, risi,
hvernig sem á það er litið,“ sagði
Gore.e.