Morgunblaðið - 26.06.1997, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 26. JÚNÍ 1997
AÐSEIMDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Markaðsvæðing
viðbótarkvótans
Laumukommi svarar fyrir sig
A DOGUNUM
eyddi ég einni kvöld-
stund mér til afþrey-
ingar við að skrifa
litla grein í Morgun-
blaðið um að nú eigi
að bjóða upp á mark-
v aði til leigu viðbótar
þorsk- og rækjukvóta.
Af þessu litla tilefni
uppgötva ég svo í
Morgunblaðinu 19.
júní, að háskólakenn-
ari nokkur hefur al-
gerlega hrokkið upp
af standinum við lest-
ur greinarinnar. Birg-
ir Þór Runólfsson
heitir maðurinn, sem fyrir þessum
ósköpum varð. Hann titlar mig
ríkisforstjóra í virðingarskyni. Ég
hlýt því að titla hann ríkisdósent
við Háskólann. Þeim til upprifjun-
ar, sem ekki muna, er maðurinn
annar þeirra hirðfræðimanna sjáv-
arútvegsráðherra og
sæaðalsins, sem létu
hafa sig til að gefa
áróðurskongress ráð-
herrans á Akureyri á
dögunum fræðilegra
yfirbragð. Háskóla-
rektor sá þá ástæðu
til að afneita vinnu-
brögðunum.
Þessi grein Birgis
Þórs bar þess glöggan
vott, að hann er í mikl-
um sálarháska vegna
þjóðhættulegra skoð-
ana minna og kallar
mig sósíalista, fólki til
varnaðar. Það er svo
sem ekki vonum seinna, að upp
komist, að ég sé laumukommi,
rétt eins og búið er að bera upp
á fleiri. Með fleiri jafnvondum
greinum og þeirri, sem Birgir býð-
ur upp á, gæti fjölgað í þeirri sellu.
Hugmynd Birgis um að við beij-
Jón
Sigurðsson
umst fyrir Sovét-íslandi er fijórri
en svo, að mér hafi komið hún til
hugar. Hún verður að sjálfsögðu
rædd á næsta sellufundi.
Grein Birgis er ekki einungis
vond fyrir þá vanstillingu, sem hún
ber með sér, og upphrópanir, sem
þar er að finna. Hún er ekki síður
vond af því að höfundurinn hrærir
saman og kynnir sem staðreyndir
fáeinar slíkar í bland við skoðanir
hans sjálfs, sem margar hveijar
eru pólitískt trúarbragðarugl, sem
ekkert á skylt við staðreyndir. Það
er afarvond fræðimennska og ekki
bjóðandi því fólki, sem les Morgun-
blaðið í leit að málefnalegri um-
ræðu um þjóðmál.
Mér, sem valdið hef öllu þessu
uppistandi hjá manninum, kemur
ekki síst spánskt fyrir sjónir, að
meginhluti þess efnis, sem þó er
að finna í grein hans, er vörn fyr-
ir kvótakerfið. Það setti ég ekki
út á í minni grein og skil því illa
samhengið. Ég tel hins vegar gjaf-
aúthlutun kvóta til frambúðar
óveijandi, af því að eigandi auð-
lindarinnar fær ekkert í sinn hlut
af því markaðsverðmæti, sem hún
hefur fengið í viðskiptum milli
útgerða. Eg hef engar forsendur
til að draga í efa staðhæfingar
Birgis um, að fyrirkomulagið hafi
í einhveijum efnum leitt til aukinn-
ar hagkvæmni í útgerðinni.
Hótel Loftleiðum, þingsal nr. 5,
föstudaginn 27. júní 1997 kl. 13:30 - 17:00
Setning
Halldór Blöndal, samgönguráðherra
Famtídarstefna í markaðsmálum til ársins 2005
Steinn Logi Björnsson kynnir niðurstöður starfshóps
Samgönguráðuneytisins
Erindi um einstök markaðssvæði
Einar Gústavsson
Bandaríkin
Anton Antonsson
Bretland. og Ítalía
Gtmnar Rafn Birgisson
Norðurlöndin og Japan
Magnús Ásgeirsson
Frakkland og Spánn
Ómar Benediktsson
ÞýskalancL, Austurríki og Sviss
Ármann Kr. Ólafsson
Niðurstöður í samkeppni um slagorðJyrir
ísland semferðamannaland
Magnús Oddsson
Möguleikar íslands
Ráðstefnustjóri
Hildur Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Fjallað verður um markaðsmál íslenskrar ferðaþjónustu á
erlendum mörkuðum til ársins 2005 í framhaldi af
stefnumótun Samgönguráðuneytisins í ferðamálum.
Ráðstefnan er æduð þeim sem vinna að markaðsmálum
ferðaþjónustunnar og öðru áhugafólki
um ferðaþjónustu.
Ekkert ráðstefnugjald.
Ferðamálaráð íslands
Samgönguráðuneytið
Inn í næstu öld
Ráðstefna um markaðssetningu ferðaþjónustunnar
á vegum Samgönguráðuneytisins og Ferðamálaráðs
Þetta gengur ekki leng-
ur, segir Jón Sigurðs-
son. Viðbótarkvótann
í þorski og rækju
verður að bjóða
út til leigu.
Það var mikil hagkvæmni í því
fólgin fyrir plantekrueigendur
vestan hafs að hafa þræla til að
vinna sykurreyr og tína baðmull.
Þessi hagkvæmni var svo mikil,
að það kostaði blóðuga styrjöld
að afnema hana. Forréttindafólk
lætur sín forréttindi ekki af hendi
nema nauðugt.
Það er með sama hætti afar
hagkvæmt fyrir kvótaeigendur að
geta haft þræla til að kaupa af
sér þorskkílóið í kvóta fyrir 70-95
kr., næstum jafnmikið og þrælarn-
ir fá fyrir fiskinn á markaði eftir
að þeir hafa haft fyrir því og kost-
að til að veiða hann. Það er m.a.
þetta þrælahald, sem ég vil bijóta
upp með því að bjóða út til leigu
viðbótarþorskkvótann. Markaðs-
framboðið mundi sjá til þess, að
það kæmi lægra og vitlegra verð-
lag á kvótann í stað þess einokun-
arverðs, sem útgerðarmenn núna
geta haldið uppi gagnvart þeim
félögum sínum, sem fremur vilja
freista þess að stunda ærlegar
veiðar en braska með kvótann, og
haldið er í þrældómi ásamt sjó-
mönnum á skipum þeirra. Hug-
myndin gæti líka opnað smábáta-
sjómönnum leið til að halda áfram
að vera til í sínum byggðarlögum
eftir að núgildandi fótboltareglur
hafa fært sóknardaga þeirra niður
í 18 á ári.
Þetta væri í mínum huga aðeins
fyrsta skrefið til að markaðsvæða
kvótaúthlutunina. Endanlega, eft-
ir hæfilega mörg ár, næðist það
markmið, sem háskólakennarinn
aðhyllist, að þeir gætu keypt kvót-
ann, sem best gera út, og allir
gætu keppt á jafnréttisgrundvelli
um að afla kvótans með lægstum
tilkostnaði fyrir þjóðarbúið. Nú-
verandi fyrirkomulag gerir það
ekki. Það verðlaunar hins vegar
þá, sem eru útsjónarsamastir við
braskið með kvótann.
Ég ítreka að lokum lykilorðin í
minni síðustu grein: Þetta gengur
ekki lengur! Viðbótarkvótann í
þorski og rækju verður að bjóða
út til leigu. Og á næsta ári á síldar-
kvótinn að fara sömu leiöina.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
Ennum
atkvæðisrétt
VEGNA greinar
Magnúsar L. Sveins-
sonar formanns Versl-
unarmannafélags
Reykjavíkur í Mbl. 24.
júní sl. vil ég taka
fram eftirfarandi.
Tilgangur minn
með grein minni sem
birtist í Mbl. 11. júní
sl. og ijallaði um
skerðingu á atkvæðis-
rétti félagsmanna í
stéttarfélögum var sá
að ég vildi vekja at-
hygli á þeim samningi
sem gerður hafði verið
fyrir starfsfólk Hag-
kaupa á Eiðistorgi og
Það var ekki og er ekki
ætlun mín að standa í
ritdeilum við Magnús
L. Sveinsson, segir
Lára V. Júlíusdóttir,
enda á ég ekkert sökótt
við Magnús.
afgreiðslu kjarasamn-
inga. Ég taldi jafn-
framt að skerðingin
stæðist ekki að lögum
og vildi fá skýringar á
því á hvaða lagastoð
mismunandi vægi at-
kvæða byggist.
Fyrri þátturinn virð-
ist hafa komist vel til
skila, ef marka má við-
brögðin sem ég hef
fengið við greininni.
Varðandi síðari þáttinn
er það að segja að eng-
ar skýringar fást við
því á hvaða lagastoð
þessi réttindaskerðing
byggist. Eftir stendur
því að lögmæti skerðingarinnar ork-
ar að minnsta kosti tvímælis. Jafn-
vel þótt hægt sé að finna því dönsk
fordæmi.
Það var ekki og er ekki ætlun
mín að standa í ritdeilum við Magn-
ús L. Sveinsson enda á ég ekkert
sökótt við Magnús. Á hann í raun
allt annað skilið af mér en að ég
standi í deilum við hann. Eins og
reyndar kemur fram í grein hans
hefur samstarf okkar alltaf verið
með ágætum og vænti ég þess að
svo verði áfram.
Lára V.
Júlíusdóttir
vara við því að sú leið að skerða Höfundur er
vægi atkvæða yrði farin áfram við héraðsdómslögmaður.
IIIIFHEII
"ZeWiJe/t
SÍÐUMÚLI 4 - SÍMI 553 8775
HAFNARSTRÆTI 21 - SÍMI 551 3336
SUMARTILBOÐ
Qluggatjaldaefni
20% afsláttur
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD,
FAXAFENI I4, SÍMI 533 5333.